Nýtt útlit og lækkað verð 22. júlí 2004 00:01
Kassavínið vinsæla Terra Vecchia frá Korsíku hefur fengið andlitslyftingu eins og sjá má á frönskum dögum í Vínbúðum en þeir standa til 7. ágúst. Eyjan fagra Korsíka er lítt þekkt vínsvæði hérlendis þótt vín þaðan séu þekkt á alþjóðavettvangi. Vínrækt á eyjunni hófst löngu áður en frægasti sonur hennar, Napoleón Bonaparte, fæddist eða á tímum Rómverja. Vínin á Korsíku, eiga líkt og tungumál eyjaskeggja, ýmislegt sameiginlegt með Ítalíu og Terra Vecchia er gott dæmi þess. Þrúgurnar eru annars vegar "alþjóðlegar" eins og merlot, cabernet sauvignon, grenache og syrah, og hins vegar upprunnar frá eyjunni sbr. niellucio sem er nátengd sangiovese. Vínið verður nokkuð þétt og öflugt, ávaxtaríkt og með ágætis fyllingu. Það er sólríkt eins og eyjan sjálf án þess að vera sætt, er þægilega mjúkt og endar á krydduðum nótum. Terra Vecchia hentar því mjög vel með öllum léttari máltíðum, mildum eða léttkrydduðum ostum -- og að sjálfsögðu með grillmat á sólardegi. Kynningarverð á frönskum dögum 2.930 kr.
Matur Mest lesið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… London? Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Gloria Steinem er látin Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira