Erlent

Látinna hermanna minnst

Árleg minningarathöfn um þá bresku hermann sem hafa fallið í stríði var haldin í London í gær. Elísabet Englandsdrottning var viðstödd athöfnina ásamt m.a. Tony Blair forsætisráðherra og Karli Bretaprins, sem hélt upp á 56 ára afmæli sitt þennan sama dag. Sonur hans, Vilhjálmur, tók þátt í athöfninni í fyrsta sinn. Um níu þúsund hermenn voru einnig viðtaddir athöfnina og fylgdust með þegar kóngafólkið lagði blómsveiga á leiði til að minnast hinna látnu, m.a. 21 hermanns sem hefur fallið í Írak það sem af er árinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×