New Orleans í hættu vegna Ívans 15. september 2004 00:01
Óttast er að fellibylurinn Ívan valdi miklum usla með fram suðurströnd Bandaríkjanna í nótt og á morgun. Háborg djassins, New Orleans, er í sérstakri hættu enda liggur hún að stórum hluta undir sjávarmáli. Íslendingur sem býr í borginni er þó hvergi banginn og ætlar að sitja af sér veðrið þó aðrir íbúar flýi unnvörpum. Ívan grimmi heldur för sinni ótrauður áfram og stefnir nú á land í Bandaríkjunum. Tvær milljónir manna hafa flúið heimili sín, aðallega í þremur ríkjum: Flórída, Alabama og Louisiana. New Orleans borg er í sérstakri hættu. Borgin liggur að stórum hluta undir sjávarmáli og flóðbylgjur sem gjarnan fylgja fellibyljum geta því valdið gríðarlegu tjóni. Mikil umferðateppa hefur myndast út úr borginni. Berglind Garðarsdóttir, sem búið hefur í tíu ár í New Orleans, segir að umferðin hreyfist varla. Ekki er hægt að fá hótelgistingu nema á hótelum sem eru tíu akstursklukkustundir í burtu, og það í venjulegri umferð. Fólk sem fast er í umferðarteppunni sér eftir því að hafa lagt í hann, það komist t.d. ekki einu sinni á klósettið. Berglind segist sjálf ætla að sitja sem fastast. Hún hefur reynsla af fellibyljum, sterkum stormum og miklum rigningum og segir að þá verði ákveðin hverfi mjög illa úti. Hún búi hins vegar ekki í einum af þeim hverfum. Berglind segist þó taka fullt mark á aðvörunum, búið sé að negla fyrir glugga í húsinu þar sem hún býr og hún er búin að verða sér úti um vistir, vatn og mat þannig að hún geti verið sjálfri sér næg í nokkra daga, ef til þess kæmi. Hún ætlar hins vegar ekki að flýja frekar en gömul kona sem býr í sömu götu.
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ Innlent Fleiri fréttir Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Sjá meira