Réðust inn í breska þingið 15. september 2004 00:01
Fimm menn réðust inn í breska þingið í dag með hrópum og köllum til að mótmæla fyrirhuguðu banni við refaveiðum. Það þykir með ólíkindum að mennirnir skyldu komast inn í þingsalinn enda á öryggisvarsla þar að vera pottþétt. Breskir þingmenn samþykktu í dag bann við refaveiðum á meðan um tíu þúsund andstæðingar veiðibannsins mótmæltu fyrir utan þingið. Margir urður sárir og blóðugir eftir slagsmál við lögregluna og á sama tíma dró til tíðinda inni í þinginu. Fimm menn, klæddir hvítum stuttermabolum, komu skyndilega hlaupandi úr tveimur áttum inn í þingsalinn og hófu hróp að ráðherranum sem hafði lagt tillöguna um veiðibannið fram. Öryggisverðir í kjólfötum fylgdu fast á hæla þeim og mennirnir voru að lokum yfirbugaðir og vísað á dyr. Málið þykir alvarlegt og er álitshnekkir fyrir bresku ríkisstjórnina, aðallega sökum þess að öryggismálin í þinginu áttu að vera í fullkomnu lagi. Ekki aðeins vegna hugsanlegrar hættu á hryðjuverkum heldur höfðu öryggismálin einnig verið vandlega yfirfarin í vor þegar tveir menn komust inn í þingið og köstuðu fjólublárri hveitisprengju að Tony Blair til að vekja athygli á málefnum feðra. Greinileg brotalöm er á öryggisvörslu æðstu ráðamanna í Bretlandi því skemmst er að minnast þess að karlmaður í líki Leðurblökumannsins spókaði sig á svölum Buckingham-hallar í fyrradag.
Erlent Fréttir Mest lesið Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Erlent Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira