Viðskipti

Hlutabréf African Bank hríðfalla

African Bank Investments sendi frá sér afkomuviðvörun til Kauphallarinnar í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær þar sem varað var við því að tap ársins hjá bankanum gæti orðið allt að 7,6 milljarðar randa (81,4 milljarðar íslenskra króna). Þá var frá því greint að stofnandi og forstjóri bankans, Leon Kirknis, hefði látið af störfum.

Viðskipti erlent

Sala TM Software á Tempo margfaldast

Viðskiptavinir TM Software vegna sölu á Tempo-hugbúnaði yfir netið eru nú yfir 5.000 talsins í meira en 100 löndum. Framkvæmdastjóri TM Software býst við að fyrirtækið haldi áfram að tvöfalda söluna milli ára. Selja á fyrir 700 milljónir í ár.

Viðskipti innlent

Greiddu lánardrottnum 1.200 milljarða króna

Heildaruppgjöri Björgólfs Thors Björgólfssonar og fjárfestingarfélags hans, Novators, við innlenda og erlenda lánardrottna er nú lokið. Heildarfjárhæð greidd til lánardrottna er um 1.200 milljarðar króna, þar af hafa íslenskir bankar og dótturfélög þeirra nú alls fengið greidda rúma 100 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Björgólfur sendi fjölmiðlum í gær. Allar greiðslur voru í erlendri mynt.

Viðskipti innlent

Vinnsla að komast í fyrra horf

Eftir erfið ár virðist fiskvinnsla vera að Um fjörutíu manns vinna við fiskvinnslu hjá Arctic Odda á Flateyri en það er álíka fjöldi og vann hjá Eyrarodda sem var stærsti vinnustaðurinn þar til fyrirtækið varð gjaldþrota í upphafi árs 2011.komast í gott jafnvægi á Flateyri.

Viðskipti innlent

Argentínumenn þurfa að halda áfram að semja

Dómstóll Vestanhafs hefur úrskurðað að viðræður argentínska ríkisins við kröfuhafa sína verði að halda áfram þrátt fyrir að Argentína hafi lýst yfir greiðslufalli. Vogunarsjóðir sem keypt hafa kröfur á argentínska ríkið eru í sumum tilvikum þeir sömu og keypt hafa skuldabréf föllnu bankanna hér á landi.

Viðskipti erlent