Viðskipti erlent

Skiptar skoðanir um öryggi þess að fljúga yfir Írak

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Flugfélagið Emirates hyggst stöðva allar flugferðir sínar yfir Írak.
Flugfélagið Emirates hyggst stöðva allar flugferðir sínar yfir Írak. Vísir/AP
Ágreiningur er kominn upp hjá stórum alþjóðlegum flugfélögum um hvort öruggt sé að fljúga yfir átakasvæði í Írak eftir að vél Malaysia Airlines í flugi MH17 var skotin niður yfir austurhluta Úkraínu.

British Airways og Etihad Airways eru á meðal þeirra sem hafa haldið áfram að fljúga farþegaþotum yfir Írak á meðan Air France og Virgin Atlantic hafa stöðvað allar flugferðir yfir landið. Emirates hyggst gera slíkt hið sama og Qantas flugfélagið tilkynnti í gær að það myndi ekki fljúga yfir Írak, að því er fram kemur í Financial Times.

Mörg flugfélög sem fljúga á milli evrópskra og asískra borga fljúga yfir Írak þar sem íraska stjórnin berst við uppreisnarmenn undir forystu ISIS-samtakanna, sem stjórna stórum hluta norður- og vesturhluta landsins. Flest flugfélaganna framkvæma sitt eigið áhættumat en deila því ekki með öðrum flugfélögum.

Skiptar skoðanir á öryggi þessar flugleiðar hefur valdið því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafa gefið út tilmæli til þarlendra flugfélaga að fljúga hærra yfir Írak vegna hættunnar sem fylgir átökum sem þar geisa. Bandaríska flugmálastofnunin hækkaði fyrir helgi flughæðina úr 20 þúsund fetum í 30 þúsund fet.


Tengdar fréttir

Stjórnarherinn í Írak endurheimtir Tíkrit

Stjórnarherinn í Írak gerði í dag áhlaup á hersveitir uppreisnarmanna öfgasamtakanna ISIS í borginni Tíkrit í norðurhluta landsins, og er borgin nú á valdi stjórnarhersins. Talið er að um 60 liðsmenn ISIS hafi fallið í árásinni.

Emirates hættir að fljúga yfir Írak

Írak er í alfaraflugleið flugvéla á leið milli Asíu og Evrópu. Flugfélög eru að enduskoða áætlanir sínar eftir að MH 17 var skotin niður í Úkraínu.

Ísis sækir í sig veðrið í Írak

Yfirvöld í Írak virðast nú hafa misst stjórnina á vesturlandamærum landsins og ráða Ísis samtökin nú yfir landamærastöðvunum inn í Sýrland og Jórdaníu.

Bandaríkin og Íran íhuga að ræða ástandið í Írak

Stjórnvöld í Bandaríkjunum og í Íran eru nú að íhuga að efna til beinna viðræðna vegna ástandsins í Írak. Ríkin tvö hafa lengi eldað grátt silfur en sókn ISIS hreyfingarinnar í Írak gæti gefið þeim tilefni til að slíðra sverðin og sameinast í baráttunni gegn samtökunum.

Ríkasta hermdarverkasveit í heimi

Óvinsældir stjórnvalda í Írak meðal súnníta í landinu og þrautþjálfaðir hermenn, sem reknir voru úr þjóðarhernum við fall Saddams Hussein, er meðal þess sem getur skýrt skjótan uppgang hinna herskáu ISIS-manna, að mati átakafræðings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×