Viðskipti erlent

Google fjarlægir leikinn „Bomb Gaza“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Netverjar spöruðu ekki stóru orðin í gagnrýni sinni um leikinn.
Netverjar spöruðu ekki stóru orðin í gagnrýni sinni um leikinn.
Google hefur fjarlægt leik úr leikjasafni sínu sem talinn er ýta undir andúð á íbúum Gasasvæðisins. Í leiknum, sem ber nafnið Bomb Gaza, bregður notandinn sér í gervi ísraelskrar orrustuþotu sem sleppir sprengjum yfir Gasa – en reynir þó að forðast það að sprengja saklausa borgara. Markmiðið er að myrða sem flesta svartklædda Hamas-liða áður en þeir ná að granda vélinni.

Samkvæmt The Guardian hafði verið náð í leikinn rúmlega 1000 sinnum síðan honum var ýtt úr vör 29. júlí síðastliðinn.

Talsmaður Google segir að leikurinn hafi verið fjarlægður vegna þess að hann „braut gegn skilmálum fyrirtækisins“ þó talið sé að afturköllunina megi frekar rekja til óánægjuöldunnar sem reis hátt á samfélagsmiðlum í kjölfar útgáfu leiksins.

Ekki var tekið fram hvaða skilmála fyrirtækisins leikurinn stríddi gegn en ein klausa kveður á um að Google áskilji sér réttinn til að eyða smáforritum sem hvetja til fordóma, eineltis og ofbeldis.

Facebook hefur þó ekki enn fjarlægt leikinn og geta áhugasamir nálgast hann í gegnum leikjasafn vefsins.

Hér að neðan má sjá stutt myndbrot af leiknum í spilun.


Tengdar fréttir

Saka Ísraelsher um að hindra för slasaðra á sjúkrahús

Talsmaður Hamas samtakanna fullyrðir að Ísraelsher hafi framið stríðsglæpi með því að hindra flutning særðra Palestínumanna á spítala. Verð á matvælum á Gaza hefur rokið upp vegna stríðsins og bændur leggja sig í lífshættu við að flytja mat á markaði á Gaza.

Hersveitir Ísraela yfirgefa Gasa

Ísraelsmenn segjast hafa dregið allar hersveitir sínar frá Gasasvæðinu og í varnarstöður umhverfis það. Þetta var tilkynnt í morgun skömmu áður en sjötíu og tveggja tíma vopnahlé gekk í gildi.

Heldur dregur úr mannfalli á Gaza

Ísraelsher fækkar í herliði sínu á Gazaströndinni. Átta ára stúlka féll í sprengjuárás á meðan sjö tíma vopnahlé stóð yfir. Vistum komið inn á Gaza.

Ísraelar fallast á nýtt vopnahlé

Sprengjuárásir Ísraelshers á íbúa Gasa höfðu síðdegis í gær kostað 1.880 manns lífið frá því þær hófust fyrir tæpum mánuði. Ísraelar féllust í gær á tillögur Egypta um þriggja daga vopnahlé, sem átti að hefjast í morgun. Palestínumenn hafa einnig fallist á þetta vopnahlé. Árásirnar hófust þann 8. júlí og létu Ísraelar sér í fyrstu nægja loftárásir, en þann 17. júlí var landherinn sendur inn á Gasasvæðið.

Warsi barónessa segir af sér vegna Gasa

Aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands, Sayeeda Warsi barónessa, sagði í morgun af sér. Ástæðan er óánægja hennar með stefnu ríkisstjórnar Davids Cameron í málefnum Ísraels og Palestínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×