Lífið
Eurobandið borgar kynningu úr eigin vasa „Keppnin er orðin svo breytt. Hér áður fyrr heyrði maður lögin bara einu sinni á úrslitakvöldinu, en núna er fólk búið að heyra lögin oft áður," segir Friðrik Ómar, söngvari í Eurobandinu. Hann segir það skipta miklu máli að spila sem víðast og kynna lagið fyrir keppnina. Lífið 21.4.2008 16:44
Spilaði með kanadíska landsliðinu í handbolta „Á námsárum mínum í Kanada lék ég með kanadíska landsliðinu í handbolta í nokkur ár. Við vorum á leiðinni á Ólympíleikana í Moskvu þegar ákveðið var að mótmæla yfirgangi Rússa gegnvart grannþjóð,“ skrifar Jónína Benediktsdóttir á bloggsíðu sína. Lífið 21.4.2008 16:35
Breskir fjölmiðlar sitja um Garðar Cortes „Það má segja að við komumst ekki áfram með upptökurnar vegna ágangs fjölmiðla!," segir Einar Bárðarson, umboðsmaður Íslands. Sunday Times heimsótti Garðar Cortes í hljóðver í dag, þar sem hann er að ljúka vinnslu á næstu plötu sinni. Breskir fjölmiðlar eru greinilega hrifnir af tenórnum sjarmerandi, en NOW tímaritið heimsækir Garðar á miðvikudaginn, og á fimmtudag verður birt stórt viðtal við hann í Daily Telegraph. Lífið 21.4.2008 14:59
Engin líkamsáras, bíllinn heill, en hljóðkerfið ekki Öllum að óvörum lifðu allir meðlimir Dalton, óheppnustu hljómsveitar landsins, af eins árs afmælistónleika sveitarinnar á Players á föstudaginn. „Við komumst uppeftir, og bíllinn bilaði ekki," segir Böðvar Rafn Reynisson söngvari sveitarinnar, en bætir við að gamanið hafi kárnað þegar á staðinn var komið. „Í fyrsta laginu sló öllu hljóðkerfinu út," segir Böðar. Korter tók að finna út hvað hefði klikkað, en það reyndist vera bilað fjöltengi. Því var kippt í lag, en þá datt mónitorkerfið líka út. Lífið 21.4.2008 14:35
Liz Hurley fótósjoppar fjölskyldumyndirnar Leikkonan Liz Hurley hefur uppgötvað leiðina að eilífri æsku. Photoshop. Lífið 21.4.2008 12:43
Clinton stolt af því vera skyld Angelinu Forsetaframbjóðandinn Hillary Clinton er í skýjunum yfir þeim fregnum að hún sé mögulega fjarskyldur ættingi Angelinu Jolie og Madonnu, eins og ættfræðingar vestanhafs reiknuðu út á dögunum. Lífið 21.4.2008 11:19
Britney snýr aftur á skjáinn Poppprinsessan Britney Spears mun leika í öðrum þætti af How I Met Your Mother. Í þætti sem sýndur var í lok mars lék Spears móttökuritara hjá húðsjúkdómalækni og hlaut fádæma lof fyrir frammistöðu sína. Samkvæmt heimildum People tímaritsins stendur nú til að endurtaka leikinn, enda voru bæði Britney og framleiðendur hæstánægðir með samstarfið. Lífið 21.4.2008 10:20
Justin huggar Cameron Þeir Justin Timberlake og John Mayer voru báðir viðstaddir minningarathöfn sem fjölskylda Cameron Diaz hélt fyrir föður hennar í gær. Lífið 21.4.2008 09:35
Sandra Bullock slapp ómeidd úr hörðum árekstri Kvikmyndaleikkonan Sandra Bullock og eiginmaður hennar, mótorhjólatöffarinn Jesse James, sluppu ómeidd úr hörðum árekstri í gærkvöldi. Hjónakornin voru að snúa heim af tökustað kvikmyndar sem Bullock leikur í þegar Subaru bíll fór yfir á vitlausan vegarhelming og keyrði á fullri ferð framan á jeppann sem parið var í. Lífið 20.4.2008 18:15
Bond-bíllinn á bólakaf í Gardavatn James Bond, njósnari hennar hátignar, mun að sjálfsögðu aka um á forláta Aston Martin í nýjustu Bond myndinni, Quantum of Solace. Litlu mátti muna að illa færi þegar áhættu ökumaður myndarinnar var að ferja græjuna á tökustað við Gardavatn á Ítalíu í vikunni. Lífið 20.4.2008 14:21
Prescott þjáðist af lotugræðgi Fyrrum aðstoðarforsætisráðherra Bretlands viðurkennir að hafa þjást af lotugræðgi í nærri tvo áratugi. Hann þorði ekki að viðurkenna sjúkdóminn þar sem hann er einkum tengdur við konur. Lífið 20.4.2008 13:39
Prinsinn fljúgandi lenti í garðinum hjá kærustunni Vilhjálmur Bretaprins hefur valdið ólgu í heimalandi sínu að undanförnu. Hann fékk nýlega þyrluflugréttindi enda er hann í breska flughernum. Fjölmiðlar á Englandi fara þó mikinn þessa dagana og segja Vilhjálm nota þyrlur breska hersins eins og um leigubíla sé að ræða. Í gær tók hann sig til og lenti risastórri Chinook þyrlu í bakgarðinum hjá kærustu sinni, Kate Middleton. Og í síðustu viku skutlaðist hann á annari Chinook þyrlu í steggjapartí frænda síns sem haldið var á eyjunni Wight á Ermarsundi. Raunar tók hann á sig krók til að sækja litla bróðurinn Harry sem staddur var á herstöð fyrir utan London. Lífið 20.4.2008 12:22
Vill ekki að pabbi sinn tali við fjölmiðila Glamúrpían og leikkonan Lindsay Lohan er síður en svo ánægð með föður sinn þessa dagana. Henni finnst óþægilegt þegar hann ræðir við fjölmiðla og segir það koma illa út fyrir sig. Lífið 19.4.2008 20:15
Foxy sleppt úr fangelsi Rappdívunni Foxy Brown var sleppt úr fangelsi í gær eftir að hafa afplánað átta mánuði af eins árs dómi sínum fyrir að ráðast á tvo naglasnyrta vegna óánægju með þjónustu þeirra. Lífið 19.4.2008 17:15
Akon laug til um fangelsisvist Rapparinn Akon skáldaði upp glæpaferil og fangelsisvist til að ganga í augun á aðdáendum sínum. Akon hefur lengi haldið því fram að hann hafi setið í fangelsi í fjögur ár fyrir bílaþjófnað og samið þar slagara á borð við ,,Locked Up”. Þá hafi hann eitt sinn átt yfir höfði sér 75 ára fangelsisdóm fyrir að stýra glæpagengi. Lífið 19.4.2008 16:45
Fréttamaður CNN tekinn með dóp Hinn eiturhressi Richard Quest, sem fjallar um viðskiptaferðalög á CNN sjónvarpsstöðinni var tekinn fastur í fyrrinótt og ákærður fyrir að hafa fíkniefni undir höndum. Lífið 19.4.2008 16:15
Stútur keyrði á Söndru Bullock Ölvaður ökumaður keyrði í gær á Söndru Bullock og eiginmann hennar, Jesse James. Að sögn lögreglu voru hjónin á leið heim á hótel sitt í Gloucester nálægt Boston rétt undir miðnætti, þegar grár Subaru skutbíll sveigði í veg fyrir þau og skall á framenda bíls þeirra. Ökumaðurinn var sauðölvuð kona á sjötugsaldri, en hún mældist með vel rúmlega tvöfalt leyfilegt magn áfengis í blóði. Engann sakaði, en konan var kærð fyrir ölvunarakstur og glæfralegt ökulag Lífið 19.4.2008 15:30
Ég er kærasta Ivica Kostelic! Elín Arnarsdóttir byrjaði með króatískum skíðamanni fyrir tveimur árum. Sá heitir Ivica Kostelic og er nokkuð þekktur í heimalandi sínu. Undanfarin tvö ár hafa hinsvegar birst myndir af Margréti Elínu Arnarsdóttur flugfreyju og flugnema í króatískum miðlum. Elínu þykir leiðinlegt að valda hálf nöfnu sinni þessum vandræðum. Lífið 19.4.2008 12:56
Lít á þetta sem styrk fyrir mig sem listamann Það var hinn 18 ára gamli Eyþór Ingi Gunnlaugsson frá Dalvík sem hreppti söngvarastöðuna í Bandinu hans Bubba í gærkvöldi. Í lokaþættinum sigraði hann Arnar Már Friðriksson eftir harða keppni. Eyþór fékk einnig þrjár milljónir króna í verðlaunfé. Lífið 19.4.2008 11:25
Busey borgar ekki leigu Svo gæti farið að leikarinn Gary Busey yrði fljótt heimilislaus. Samkvæmt slúðurkónginum í Hollywood, Perez Hilton, borgar leikarinn ekki leigu og hefur verið hent útaf heimili sínu í Malibu í Kaliforníu. Lífið 19.4.2008 10:44
55 þúsund manns kusu í Bandinu hans Bubba Alls kusu um 55 þúsund manns í símakosningu í úrslitaþættinum á Bandinu hans Bubba í gærkvöld að sögn Pálma Guðmundssonar, sjónvarpsstjóra Stöðvar 2. Lífið 19.4.2008 08:55
Bubbi bannaði sigurvegaranum að kaupa hlutabréf Það var Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem hafði betur gegn Arnari Má Friðrikssyni í einvígi aldarinnar um sæti í Bandinu hans Bubba. Lífið 18.4.2008 21:33
Eiga báðir framtíðina fyrir sér „Þeir eru meira en efnilegir báðir tveir, þeir eru bara góðir," segir Eiríkur Hauksson yfirrokkari, sem verður gestadómari í úrslitaþætti Bandsins hans Bubba í kvöld. Hann var staddur á æfingu fyrir þáttinn þegar Vísir náði tali af honum, og sagði það hafa komið sér óvart hve góðir þeir Arnar og Eyþór væru. „Ég hef ekki séð neinn af þessum þáttum og renndi því blint í þetta," segir Eiríkur. Lífið 18.4.2008 17:28
Íslenskir dópistar reiðir yfir okri Ábendingunum rignir yfir Okursíðu Dr. Gunna þessa dagana, enda kreppan og gengishrunið á allra vörum. Flestar eru ábendingarnar um nauðsynjavörur og hversdagslega hluti. Hvað flokkast undir nauðsynjavörur er svo misjafnt eftir mönnum. Lífið 18.4.2008 16:28
Fyrsta plata Júróbandsins á leiðinni Fyrsta plata Júróbandsins mun líta dagsins ljós innan skamms. „Við klárum að taka hana um helgina. Hún fer í masteringu á mánudaginn,“ segir Friðrik Ómar Júróvisjónfari. Lífið 18.4.2008 15:10
Damien Rice bætist á tónleikadagskrá sumarsins „Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði Eystri verður haldin helgina 25. - 27. júlí í sumar. Þetta verður í fjórða sinn sem hátíðin verður haldin en undanfarin ár hafa komið þar fram Emilíana Torrini, Belle & Sebastian, Magni, Megas og Senuþjófarnir, Lay Low, Aldís og Jónas Sigurðsson,“ þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar. Lífið 18.4.2008 14:42
Barnapía borgarfulltrúa vill launin í Evrum „Okkur fannst barnapían alveg vera með puttann á púlsinum þarna," segir Oddný Sturludóttir borgarfulltrúi og rithöfundur. Hún og unnusti hennar, Hallgrímur Helgason, voru að ræða kaup og kjör við sextán ára barnapíu sína eitt kvöldið þegar gengi krónunnar bar á góma. Lífið 18.4.2008 14:29
Símkerfi 365 rauðglóandi vegna Blaðberans Viðtökur við endurvinnsluátaki Fréttablaðsins sem hófst í gær hafa verið framan vonum. Í gær hófst dreifing á Blaðaberanum sem er sérstaklega hönnuð taska sem auðveldar söfnun dagblaða og er hentug til að grípa með sér að næsta endurvinnslugámi. Lífið 18.4.2008 14:13
Hjónaband Amy í molum Hjónaband Amy Winehouse og Blake Fielder-Civils hangir á bláþræði eftir að hún hefur ítrekað sleppt heimsóknum til hans í fangelsið. Samkvæmt heimildum Sun tók steininn úr þegar poppdrottningin mætti ekki í heimsókn á 26 ára afmælisdag eiginmannsins. Lífið 18.4.2008 14:01
Rambó ræðst á sjálfsala Sylvester Stallone er alvanur að berja á þungvopnuðum illmennum, en nýjasta fórnarlamb hans átti erfiðara með að svara fyrir sig. Stallone situr nú í kviðdómi, og það var sjálfsali í dómshúsi í Los Angeles sem fékk að finna fyrir reiði Rambó. Lífið 18.4.2008 11:18