Lífið

Ekki fyrir lofthrædda leikara

Börkur Jónsson hefur hannað sérstaka leikmynd fyrir verkið Fjölskylduna í Borgarleikhúsinu. Leikmyndin er þriggja hæða hús og segir Börkur þetta sitt stærsta verk til þessa.

Lífið

Brjáluð þungarokksbomba

„Við vorum beðnir um að taka eina tónleika á Eistnaflugi í sumar, sem við gerðum. Eftir það ákváðum við að klára nokkur lög sem við höfðum samið en aldrei fullklárað og þess vegna var hljómsveitin endurvakin,“ segir Agnar Eldberg gítarleikari um endurkomu harðkjarnahljómsveitarinnar Klink sem mun spila á Dillon í kvöld ásamt hljómsveitunum Retrön og Celestine.

Lífið

Fjórða plata Óskars

Álftagerðisbróðirinn Óskar Pétursson hefur sent frá sér sína fjórðu sólóplötu, Allt sem ég er. Tónlistin er eftir Björgvin Þ. Valdimarson og gestasöngvarar eru Björgvin Halldórsson, Guðrún Gunnarsdóttir og Guðjón Davíð Karlsson, eða Gói, sem syngur lagið Neyslu(kv)æði þar sem gert er góðlátlegt grín að neysluæði Íslendinga.

Lífið

Bláa gullið glóir í Borgó

Í dag verður frumsýnt verk fyrir fólk á aldrinum 9 til 99 ára sem fjallar um vatn. Sýningin hefur það að markmiði að sýningargestir sjái vatn í nýju ljósi; upplifi margbreytileika, mikilvægi og töfra bláa gullsins.

Lífið

Árni Bergmann skrifar ævisögu Gunnars Eyjólfssonar

„Jú, þetta er rétt, annars erum við bara rétt að byrja og það er varla tímabært að tala um þetta," segir stórleikarinn Gunnar Eyjólfsson. Hann er nú farinn að leggja drög að ritun ævisögu sinnar ásamt sveitunga sínum, Árna Bergmann. Upphaflega stóð til að Illugi Jökulsson myndi skrifa sögu Gunnars en hann féll úr skaftinu vegna anna og Árni hljóp í skarðið. Illugi sagðist í samtali við Fréttablaðið hafa mælt með Árna og kvaðst vera ánægður með að hann hefði fengist til verksins.

Lífið

Rokkað fyrir Hljóðstofu

Níu hljómsveitir koma fram á Grand rokk í kvöld. Þær ætla að rokka til stuðnings nýju hljóðveri. Það heitir Hljóðstofan og Jóhann Rúnar Þorgeirsson og Friðrik Helgason reka það í sameiningu.

Lífið

Rabbað við rallökumenn

Styrktarakstur fyrir Daníel Sigurðs­son rallökumann fer fram við Litlu Kaffistofuna klukkan 13 í dag. Þar gefst færi á að skoða rallíbíla og ræða við þaulreynda ökuþóra og geta þeir óhræddustu fengið að aka rallíbíl sjálfir. Daníel hóf að keppa á Íslandi árið 1998 og varð Íslandsmeistari nýliða árið árið eftir. Árið 2007 hóf hann að keppa í Bretlandi og hefur gott gengi hans vakið nokkra athygli fjölmiðla þar í landi.

Lífið

Hamingjusöm Hudson

Söng- og leikkonan Jennifer Hudson, sem eignaðist sitt fyrsta barn í sumar, segist njóta móður­hlutverksins. „Ég hef unun af því að nostra við barnið og dekra við það, mér finnst gaman að sjá annað fólk hamingjusamt og það er fátt yndislegra en að gleðja sitt eigið barn."

Lífið

Fimmtán ára afmæli Sixtís

Hljómsveitin Sixtís heldur upp á fimmtán ára afmæli sitt með balli á Players í kvöld. Tveir af hinum upprunalegu meðlimum sveitarinnar, Þórarinn Freysson og Andrés Þór Gunnlaugsson, ætla að stíga á svið og gera sér glaðan dag með sínum gömlu félögum. Þórarinn er búsettur í Bretlandi en Andrés Þór er einn fremsti djassari landsins.

Lífið

Hlutverk Herdísar

Áfram heldur flutningur verka eftir Hrafnhildi Hagalín í Útvarpsleikhúsinu á rás 1 sem samin voru fyrir nokkra elstu og virtustu leikara okkar: á sunnudag verður frumflutt leikritið Is there someone out there? með Herdísi Þorvaldsdóttur í aðalhlutverki.

Lífið

Misheppnuð Lindsay Lohan

Leikkonan Lindsay Lohan var ráðinn sérlegur ráðgjafi tískuhússins Ungaro fyrir nokkru og um helgina var fyrsta framleiðslan undir leiðsögn Lohan frumsýnd.

Lífið

Tvítugsafmæli Skítamórals

Hljómsveitin Skítamórall hélt tvenna tónleika á skemmtistaðnum Rúbín í fyrrakvöld í tilefni af tuttugu ára afmæli sínu. Tónleikarnir voru teknir upp og verða gefnir út á geisla- og mynddiski fyrir jólin.

Lífið

Myndlist leidd af öðrum verkum

Í dag verður myndlistarsýning opnuð á Seyðisfirði. Hún er sett upp í Bókabúðinni, sem hefur nú þjónað sem verkefnarými Skaftfells í rúmt ár. Auk fjölbreyttra sýninga hafa verið haldin í bókabúðinni námskeið, vinnustofur, markaðir og uppákomur.

Lífið

Umhverfisvæn fatahönnun

Hollenski fatahönnuðurinn Jette Korine kom fram með sína fyrstu fatalínu undir eigin nafni í lok sumars. Línan, sem heitir Endless Light, var öll unnin úr umhverfisvænum efnum og litum og seldist upp á skömmum tíma. Nú vinnur Jette að því að koma frá sér vetrarlínu með ullarkápum og fylgihlutum.

Lífið

Ný plata á næsta ári

Ný plata frá söngkonunni Amy Winehouse er væntanleg á næsta ári. „Ég hef heyrt nokkrar lagaprufur sem heilluðu mig algjörlega upp úr skónum," sagði aðstoðarforstjóri plötufyrirtækisins Island.

Lífið

Ný plata og afmælistónleikar

Todmobile heldur tuttugu ára afmælistónleika í Íslensku óperunni 4. nóvember. „Ég hlakka mikið til. Við höfum ekki haldið tónleika þarna síðan okkar fyrstu fimm starfsár. Þá var þetta fastur liður eins og venjulega, alltaf á haustin,“ segir gítarleikarinn Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.

Lífið

MH tók fyrsta MH-Kvennó daginn

Menntaskólinn við Hamrahlíð bar sigurorð af Kvennaskólanum á fyrsta MH-Kvennó deginum í gærkvöldi. Keppnin hófst á Miklatúni um miðjan dag í gær og lauk með ræðukeppni í hátíðarsal MH.

Lífið

Bubbi: Það er búið að fjötra ungviðið til framtíðar

„Það segir sig sjálft bara,“ svarar Bubbi Morthens aðspurður um plötuumslag nýju Egó plötunnar sem kom út í vikunni en þar er mynd af handjárnuðu barni. „Umslagið er ekkert annað en skírskotun til ofbeldisaðgerða útrásarvíkinganna, bankanna og stjórnvalda og hvernig það er búið að fjötra ungviðið til framtíðar. Staða íslenskra barna eftir hrunið," segir hann. „Egó platan er fín og vekur auðvitað spurningar hjá sumum og allt það. Lögin á plötunni kaflast á við þann tíðaranda sem var þegar Egóið var nýtilkomið á markað. Hún er uppfærð því við erum að spila í dag en ekki árið 1982 en fyrst og fremst er þetta bara popprokk plata þar sem að kallast á sterkar melódíur og svo kannski textar aðallega um ástina og síðan hrunið," segir Bubbi. Egó heldur tónleika á Seyðisfirði í kvöld, föstudag.

Lífið

Búið að ráða leikstjóra fyrir Jar City

Bandaríski leikstjórinn Tod Williams hefur verið ráðinn til að leikstýra amerísku útgáfunni af Mýrinni eða Jar City eins og hún heitir á enskri tungu. Þetta staðfestir Baltasar Kormákur í samtali við Fréttablaðið.

Lífið

Endurtaka Alice in Chains-tónleika

Gítarleikarinn Franz Gunnarsson og félagar héldu tónleika til heiðurs hljómsveitinni Alice in Chains síðasta fimmtudag. Tónleikarnir heppnuðust svo vel að hljómsveitin hefur ákveðið að endurtaka leikinn í kvöld á Sódómu Reykjavík. Húsið verður opnað klukkan 21 og miðaverð er 2.000 krónur. Forsala á tónleikana fer fram í versluninni Havarí, en þar kostar miðinn 1.500 krónur.

Lífið

Milljón fyrir bestu myndirnar

„Okkur fannst í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu tilvalið að koma með eitthvað spennandi og jákvætt fyrir fólkið í þjóðfélaginu að hugsa um,“ segir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri Símaskrárinnar.

Lífið

Ungur lögfræðingur gefur út sína fyrstu glæpasögu

„Ég vona að það sé pláss fyrir okkur bæði á markaðnum,“ segir lögfræðingurinn Ragnar Jónasson sem hefur gefið út sína fyrstu glæpasögu, Fölsk nóta. Bókin verður í harðri samkeppni fyrir jólin við nýja glæpasögu Agöthu Christie sem Ragnar sá einmitt sjálfur um að þýða.

Lífið