Lífið
Vigdís tók á móti gestum Ævisagan Vigdís – Kona verður forseti er komin út. Af því tilefni var haldið útgáfuhóf í Iðnó þar sem Vigdís Finnbogadóttir tók á móti hverjum gestinum á fætur öðrum. Útgáfustjórinn Páll Valsson ritaði þessa ævisögu Vigdísar sem margir hafa beðið spenntir eftir. Þar ber margt á góma sem hefur ekki farið hátt í gegnum tíðina, bæði er varðar einkalíf og opinber störf Vigdísar sem forseta Íslands. Lífið 19.11.2009 05:45
Hjálmar á vínyl Nýjasta Hjálma-platan, IV, er nú komin út á vínylplötu. Vínylsnobbarar landsins gleðjast eflaust við þessi tíðindi og eins þau að Hjálmar stefna á að gefa út hinar plöturnar þrjár á vínylforminu. Lífið 19.11.2009 05:00
Of gott til að sitja á þessu ein „Við gáfum fyrst út bókina Stattu með þér, sem eiginmaður minn, Gunnar Hrafn Birgisson, skrifaði árið 1998. Seinna gáfum við út spilið Skilaboð frá hulduheimum auk bókarinnar Þín hjartans þrá sem kennir mjög merkilega lífsspeki um það hvernig fólk geti unnið að draumum sínum. Ástæðan fyrir því að ég þýddi hana var sú að mér fannst þetta einum of gott efni til að halda þessu fyrir sjálfa mig,“ segir Hildur Halldóra Karlsdóttir, bókasafnsfræðingur og bókaútgefandi, en hún og eiginmaður hennar stofnuðu bókaútgáfuna Upptök ehf. fyrir rúmum tíu árum. Lífið 19.11.2009 04:45
Fara saman í tónleikaferð Ragnheiður Gröndal og Helgi Hrafn Jónsson eru á leiðinni í tónleikaferð um Austurríki, Þýskaland og Sviss dagana 24. til 29. nóvember. Ferðin er farin á vegum Norðursins, sem vinnur að því að kynna íslenska tónlist í Þýskalandi og nágrenni. Fyrstu tónleikarnir verða í Zürich en þeir síðustu í Admiralspalast í Berlín, þar sem Ragnheiður er einmitt búsett. Hún er væntanleg til Íslands í byrjun desember þar sem hún mun kynna sína sjöttu plötu, Tregagás, sem kom út fyrir skömmu. Lífið 19.11.2009 04:30
Fyrirsæta verður móðir Ofurfyrirsætan Adriana Lima og eiginmaður hennar, serbneski körfuknattleiksmaðurinn Marko Jaric, eignuðust sitt fyrsta barn á mánudag. Hjónin eignuðust lítið stúlkubarn sem hefur hlotið nafnið Valentina Lima Jaric Lífið 19.11.2009 04:30
Sannkölluð fjölskylduhugmynd „Mamma átti eiginlega upphaflegu hugmyndina, en við tókum öll vel í það fjölskyldan og skipulögðum þetta í sameiningu,“ segir Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm sem stendur fyrir styrktartónleikum fyrir Mæðrastyrksnefnd í Guðríðarkirkju í Grafarholti ásamt fjölskyldu sinni. Tónleikarnir fara fram sunnudaginn 22. nóvember klukkan 20.30 og hefur Hreindís fengið fjölda tónlistarmanna til að koma fram. Þar á meðal eru Guðrún Gunnarsdóttir, Helga Möller og Regína Ósk auk þess sem Hreindís mun sjálf syngja á tónleikunum, en hún tók meðal annars þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr á árinu. Lífið 19.11.2009 04:30
Húðslit skiptir engu máli Ashley Simpson segir líkama sinn hafa breyst eftir að hún eignaðist son sinn Bronx, ellefu mánaða, en hún segist ánægð með útlit sitt. Í viðtali við tímaritið Women‘s Health segist Ashley vera hamingjusöm og segir eiginmann sinn Pete Wentz finnast hún kynþokkafull. Lífið 19.11.2009 04:15
Ekkert að því að gleðja fólk Nicolas Cage hefur undanfarin ár verið gagnrýndur fyrir að leika í innantómum Hollywood-myndum á kostnað mynda þar sem leikhæfileikar hans fengju betur að njóta sín. Hann gefur lítið fyrir þessa gagnrýni og segir að stórmyndirnar veiti sér frelsi til að leika í smærri, áhugaverðum myndum eins og nýjustu mynd sinni Bad Lieutenant: Port of Call New Orleans. Bætir hann við að annar kostur við stóru myndirnar sé að þær dragi að sér fjölda áhorfenda. Lífið 19.11.2009 04:15
Baggalútur á Garðatorgi Hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu á vegum menningar- og safnanefndar Garðabæjar verður haldin í kvöld kl. 21.00 í göngugötunni á Garðatorginu í Garðabæ. Lífið 19.11.2009 04:00
Áratugurinn gerður upp Nú þegar fyrsti áratugur 21. aldarinnar er að renna sitt skeið á enda keppast tónlistarspekingar við að gera áratuginn upp. Enska tónlistartímaritið NME hefur gefið út sinn lista yfir 100 bestu plöturnar frá 2000 til 2009. Þar eru þrjú efstu sætin skipuð plötunum XTRMNTR með Primal Scream, Up the Bracket með The Libertines og sú besta þykir þeim vera Is This It með The Strokes. Lífið 19.11.2009 04:00
Ingibjörg sýnir á tískuvikunni í New York „Þetta er stærsta tískuvika í heimi og ég komst að. Ég trúi þessu varla,“ segir fyrirsætan og fegurðardrottningin Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir, sem hefur dvalið í New York síðustu mánuði og komið sér á framfæri. Ingibjörg sýnir á tískuvikunni í New York í febrúar á næsta ári, en allir helstu hönnuðir heims kynna þar haustlínu ársins 2010. Hún býst við annasamri viku. Lífið 19.11.2009 04:00
Reese í rusli Leikkonan Reese Witherspoon mætti í viðtal til Conans O‘Brien fyrir stuttu og þar ræddi hún meðal annars eina undarlega áráttu sína. „Mér finnst gott að henda hlutum. Ég er heltekin af rusli. Lífið 19.11.2009 04:00
Ekki bara fallegt andlit Ummæli fyrirsætunnar Kate Moss í nýlegu viðtali hafa vakið harða gagnrýni meðal almennings, en í viðtalinu er Moss spurð hvort hún eigi sér lífsmottó og því svarar fyrirsætan: „Ekkert bragðast eins vel og vellíðanin sem fylgir því að vera mjór.“ Lífið 19.11.2009 03:45
Gleymdi sér í tökunum Thandie Newton segist hafa gleymt sér á tökustað, þegar hún átti að vera að leika í senu fyrir kvikmyndina 2012. Newton, sem er 37 ára, leikur dóttur Bandaríkjaforseta í myndinni og hún segir í viðtali við breska dagblaðið Daily Mirror að hasarsenur í myndinni hafi verið svo yfirþyrmandi að hún hafi gleymt sér. Lífið 19.11.2009 03:30
Kántrískotin popptónlist Tónlistarmaðurinn Koi heldur útgáfutónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði á föstudag til að kynna plötu sína Sum of All Things sem kom út í september Lífið 19.11.2009 03:30
Stelpukvöld NFS: Söfnuðu 60 þúsund krónum Það var fjölmenni á Stelpukvöldi NFS síðastliðinn þriðjudag en hátt í 120 stelpur í nemendafélaginu létu sjá sig. Kvöldið var til styrktar ungum dreng, Sigfinni Pálssyni, sem greindist með krabbamein árið 2007. Lífið 18.11.2009 23:28
Afmælistónleikar Lögreglukórsins Lögreglukór Reykjavíkur heldur afmælistónleika í Laugarneskirkju í Reykjavík næstkomandi laugardag. Á efnisskránni verður mikið af léttri tónlist í bland við hefðbundin karlakóralög. Lögreglukórinn var stofnaður 1934 og fagnar því 75 ára afmæli um þessar mundir. Lífið 18.11.2009 21:15
Hundrað Íslendingar unnu ókeypis ferð til Kanaríeyja Hundrað Íslendingar er á leið í ókeypis ferð til Kanaríeyja dagana 25. nóvember til 2. desember. Ferðin er fyrsti hluti umfangsmikillar Evrópuherferðar ferðamálayfirvalda á Kanaríeyjum. Lífið 18.11.2009 17:53
Gerði ekkert annað en grúska og pæla Jónatan Garðarsson og Arnar Eggert Thoroddsen rifja upp atvik, skyggnast á bak við tjöldin og opinbera hluti sem hafa ekki verið á margra vitorði hingað til í bókinni 100 bestu plötur Íslandssögunnar. Tók ekki langan tíma að skrifa þessa bók? „Skriftirnar sjálfar tóku rúmlega þrjá mánuði og gerði ég ekkert annað þann tíma en skrifa, grúska og pæla í gengum öll þau gögn sem ég hef viðað að mér í gegnum tíðina um íslenska tónlist," svarar Jónatan. „Ég las allt sem ég fann í úrklippu safni mínu um plöturnar og listafólkið, ræddi við fjölda tónlistarmanna og leitaði víðar fanga til að viða að mér eins miklu efni og kostur var. Svo fór mestur tíminn í að rita um plöturnar og samræma hvernig tekið var á efninu. Þetta var mikil vinna og ótrúlega skemmtilegt verkefni." Hvernig gekk samstafið með Arnari? „Samstarf okkar Arnars gekk eins og í sögu. Við þekkjumst ágætlega því hann var í starfsþjálfun hjá mér þegar hann var rétt rúmlega fermdur og leiðir okkar hafa legið saman öðru hvoru eftir það. Skiptingin á því hvor skrifaði hvað var mjög einföld og við höfum í alla staði átt hið ánægjulegasta samstarf og hvergi borið skugga á, enda báðir rólyndismenn og höfum brennandi áhuga á viðfangsefninu og erum sannir aðdáendur íslenskrar tónlistar. Þetta er í senn uppflettibók og skemmtirit þar sem við söfnuðuðm saman miklum fjölda af áhugaverðum fróðleiksmolum sem eru birtir í sérstökum dálkum sem hægt er að glugga í. Það er auðvelt að grípa niður í bókina nánast hvar sem er og lesa stutta eða langa kafla og leggja hana síðan frá sér, eða lesa hana frá bls 1 og áfram, allt eftir áhugasviði hvers og eins. Reynsla mín af sambærilegum erlendum bókum er sú að þær endast manni lengi og eiga því langa lífdaga. Bókin er mjög litrík því myndir eru birtar af öllum plötu umslögum og listafólkinu frá þeim tíma er plöturnar voru í vinnslu. Lífið 18.11.2009 14:30
Rússarnir vilja meira samstarf „Þeir voru rosalega hrifnir. Við höfum verið samræðum við framleiðendurna og þeir hafa mikinn áhuga á áframhaldandi samstarfi,“ segir Kristinn Þórðarson, framleiðandi hjá Saga Film. Tökum á rússnesku stórmyndinni Faust lauk hér á landi á dögunum, eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu. Íslensk náttúra var notuð í síðustu fimmtán mínútum myndarinnar og fóru tökur fram í hrauni skammt frá Bláa lóninu, á Þingvöllum og víðar. Lífið 18.11.2009 06:30
Söng bakraddir hjá Anitu Briem á góðgerðaplötu „Við hlökkum mikið til að heyra þetta," segir söngkonan Erna Þórarinsdóttir. Dóttir hennar, leikkonan Anita Briem, syngur lagið C"est si bon á væntanlegri safnplötu sem verður gefin út til styrktar Preservation Hall-byggingunni í New Orleans. Forsvarsmenn byggingarinnar hafa djasstónlist frá New Orleans í hávegum og er starfsemin vel þekkt í bandarískum tónlistarheimi. Lífið 18.11.2009 06:00
Semur fyrir Múmínálfa Björk Guðmundsdóttir hefur samið lagið The Comet Song fyrir teiknimyndina Moomins and the Comet Chase, sem fjallar um hina einu sönnu Múmínálfa. Sjón semur textann við lagið en hann hefur áður starfað með Björk við lög á borð við Bachelorette og Wanderlust Lífið 18.11.2009 04:15
Opinskátt viðtal við Siggu Beinteins - myndband Sigríði Beinteinsdóttur er í opinskáu viðtali í Íslandi í dag í kvöld þar sem hún ræðir um nýútkominn jóladisk, jólatónleika sem framundan eru, Eurovision og einkalífið. Þá sýnir hún okkur gömlu Eurovision-gallana sem hún hefur alltaf geymt. Þá kynnum við okkur átak Heimilis og skóla gegn einelti en samtökin hafa fengið m.a. Sveppa, Unni Birnu og Ingó veðurguð til að berjast með sér og fylgjumst með sölu á kvenorku svo ekki missa af Íslandi í dag klukkan 18:55 í kvöld. Lífið 17.11.2009 15:38
Að sitja fyrir í Playboy er svo venjulegt - myndband „Úti þá er ég í myndatökum oft í viku. Það mesta sem ég geri er að vera mamma með börnunum mínum og fjölskyldunni minni en hérna svo er ég í þessum glamúrheimi og glamúrfyrirsætustörfum og mikið í sjónvarpinu líka," segir Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta í sjónvarpsþættinum Ísland í dag í gærkvöldi. Á meðfylgjandi link má sjá viðtalið. Lífið 17.11.2009 09:00
Höfundur Ávaxtakörfunnar vill stöðva Símaauglýsingu „Þetta kemur okkur verulega á óvart. Við teljum að í þessu felist ekki brot á höfundarrétti, hvað þá að birtingin hafi í för með sér fjárhagslegan skaða fyrir nokkurn mann,“ segir Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Lífið 17.11.2009 07:00
Jónsi gerir poppaða sólóplötu „Maður er bara að taka smá Phil Collins á þetta,“ segir Jón Þór Birgisson, Jónsi Í Sigur Rós, sem nú stendur í ströngu við að hljóðblanda fyrstu sólóplötuna sína úti í London. Hann mun helga sig verkefninu næsta ár og meðal annars leggjast í tónleikaferðalög um allan heim til að kynna plötuna. „Þetta er svaka popp,“ segir Jónsi aðspurður um nýja efnið. Hann segir að stefnan sé sett á að drífa plötuna bara út sem fyrst á nýja árinu, í febrúar eða mars. Lífið 17.11.2009 06:30
Heldur tónleika fyrir Ellu Dís „Ég var í ræktinni þegar ég sá viðtal við móður Ellu Dísar. Það snerti mig og mér fannst ég verða að gera eitthvað,“ segir Alan Jones sem skipuleggur styrktartónleika á Spot í Kópavogi á fimmtudaginn 19. nóvember. Allur ágóðinn mun renna til Ellu Dísar, en hún hefur glímt við stigvaxandi lömun frá því að hún fæddist alheilbrigð árið 2006. Eftir fjölda rannsókna er enn óljóst hvað hrjáir Ellu Dís en móðir hennar, Ragna Erlendsdóttir, hefur nú fundið læknismeðferð í Ísrael sem gefur góða von um lækningu og mun ágóðinn nýtast til að fjármagna hana. Lífið 17.11.2009 06:00
Ásdís Rán í einkaviðtali við Ísland í dag í kvöld Ásdís Rán er í stuttri heimsókn hér á landi. Í Íslandi í dag er rætt við hana um fjölskylduna, spennandi feril hennar í fyrirsætustörfum og umtalið sem hún vekur bæði hér heima og erlendis. Þá hittum við starfsmenn eina fyrirtækisins sem er flutt inn í turninn við Höfðatorg í Reykjavík, kynnum okkur athafnateygjuna og sitthvað fleira hér í Íslandi í dag strax á eftir kvöldfréttum Stöðvar 2. Lífið 16.11.2009 16:41
Jón Gnarr stofnar stjórnmálaflokk Jón Gnarr hefur stofnað stjórnmálaflokk. Hann heitir Besti flokkurinn og Jóni er full alvara. „Mig hefur lengi langað til að hafa völd og góð laun. Góð leið til þess er að verða lýðræðislega kosinn,“ segir Jón, fullur einlægni. „Mig langar líka að komast í þá stöðu að ég geti hjálpað vinum mínum. Það eru endalaust margar leiðir til þess. Það má úthluta alls konar styrkjum og búa til hinar ýmsu nefndir. Fólk þarf svo ekkert endilega að mæta á fundi, en fær bara borgað.“ Lífið 16.11.2009 06:30
Íslenskt listaverk í St. Giles dómkirkjunni í Edinborg Glerlistaverk eftir listamanninn Leif Breiðfjörð mun prýða forstofu innan við aðalinngang St. Giles dómkirkjunnar í Edinborg. Lífið 16.11.2009 06:00