Lífið
Öfunduð af því að vera nálægt söngvara Hurts Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrirsæta hjá Eskimo, leikur í nýju myndbandi hinnar vinsælu hljómsveitar Hurts. Anna Þóra flaug til London á föstudag og dvaldi í borginni þar til í gær. Þetta er í annað sinn sem Anna Þóra leikur í myndbandi Hurts en hún fór einnig með aðalhlutverkið í myndbandi lagsins Stay ásamt söngvaranum Theo Hutchcraft. Lífið 22.11.2010 16:00
Hvaða brúnkukrem erum við að tala um? Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ og Laugardalshöll um helgina þar sem úrslit í fitness og vaxtarækt fóru fram. Magnús Samúelsson vann margfaldan Íslands- og bikarmeistaratitil, Magnús Bess í vaxtarrækt yfir 85 kóló og Gunnar Nelson att kappi gegn Michael Russel og sigraði bardagann en hann er í dag bjartasta vonin í heimi blandaðra bardagalistar. Lífið 22.11.2010 15:23
Drungalegur millikafli Harry Potter og dauðadjásnin er fín afþreying en áhorfandinn vill óneitanlega fá meira, sjálfan lokakaflann. Gagnrýni 22.11.2010 13:00
Hátíska í H&M Á meðfylgjandi myndum má sjá hönnun franska tískuhússins Lanvin fyrir H&M. Hönnuðurinn er Alber Elbaz og línan samanstendur af kjólum, kápum, bolum, pilsum, skóm og hönskum. Í myndbandinu sem fer eins og logi yfir akur um netið þessa dagana má sjá módel eins og Natasha Poly, Tati Cotliar og Hannelore Knuts á lúxushótelherbergjum kvartandi yfir að elskhuginn færi þeim rósir í stað Lanvin-klæða. Herlegheitin, sem skoða má í myndasafni, fara í sölu í netverslun H&M og völdum búðum 23. nóvember. Tíska og hönnun 22.11.2010 10:24
Séð og heyrt anno 1874 Stórskemmtileg og vel stíluð saga en dálítið ágripskennd og sjónarhornið þröngt. Gagnrýni 22.11.2010 10:00
Tískan á bleika dreglinum Tískusýningar undirfataframleiðandans Victoria's Secret hafa ávallt vakið mikla athygli enda ansi litríkar og glaðlegar. Gestir á sýningunni á dögunum gengu ekki rauða dregilinn heldur þann bleika og hér má sjá nokkrar myndir af því sem gestirnir klæddust á sýningunni. Tíska og hönnun 22.11.2010 00:01
Skilnaðaralda í Hollywood Skilnaðir og brestir í samböndum fræga fólksins vekja jafnan mikla athygli og að undanförnu hefur óvenju mikið borið á hjónaskilnuðum í borg englanna. Fréttablaðið valdi fimm fræg pör sem hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina. Lífið 22.11.2010 00:01
Willow fetar í fótspor foreldra sinna Hin tíu ára gamla dóttir Wills Smith og Jödu Pinkett Smith, Willow, prýðir forsíðu tímaritsins W Magazine um þessar mundir. Stúlkan gaf nýlega út sína fyrstu smáskífu, Whip My Hair, sem hefur slegið í gegn vestan hafs og komst í kjölfarið á samning hjá engum öðrum en Jay-Z. Lífið 22.11.2010 00:01
Komin á samning í Þýskalandi Hljómsveit Veru Sölvadóttur og Magnúsar Jónssonar reynir fyrir sér í Þýskalandi með útgáfu á dansvænni plötu. Plata með tvíeykinu BB & Blake verður gefin út hjá þýska útgáfufyrirtækinu Athletikk á næstunni. Hún inniheldur fjórar ólíkar útgáfur af laginu Paris je t’aime. Tónlistarmennirnir Lars Sommerfeld, Edgar 9000 og Kerosene sjá um að endurvinna lögin. Lífið 22.11.2010 00:01
Uppselt á tónleika Ólafs Arnalds víða um Evrópu Ólafur Arnalds hefur verið í tæpan mánuð á tónleikaferðalagi um Evrópu. Allt hefur gengið eins og í sögu hjá Ólafi og föruneyti hans sem telur 11 manns. „Við erum búin að leggja allt í þennan túr,“ segir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds. Lífið 22.11.2010 00:01
Ólafur seldur á 37 milljónir Quadruple Spiral Projection, sem listfræðingar telja vera fyrsta mikilvæga verkið eftir íslenska listamanninn Ólaf Elíasson, var slegið hæstbjóðanda hjá norræna uppboðshaldaranum Bukowski í Stokkhólmi á miðvikudagskvöld. Lífið 22.11.2010 00:01
Trúðar koma um áramótin Klovn:The Movie eða Trúður: Kvikmyndin verður frumsýnd á Íslandi 2. janúar í Sambíóunum. Þetta staðfestir Sigurður Viktor Chelbat hjá Samfilm við Fréttablaðið. Lífið 22.11.2010 00:01
Ungfrú Samúel 2010 valin Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar Móeiður Sif Skúladóttir sigraði samkeppni Samúels 2010 sem fram fór á veitingahúsinu Broadway á föstudagskvöldið. Í öðru sæti varð Hulda Kristinsdóttir og Jórunn Steinsson landaði þriðja sætinu. Lífið 21.11.2010 11:36
Kynnir Nóbelinn Leikkonan unga Anne Hathaway kemur fram í nýju hlutverki í lok mánaðarins en hún ætlar að vera kynnir á Nóbelstónleikunum sem haldnir eru í tengslum við afhendingu friðarverðlaunanna í Osló. Hathaway stendur við hlið leikarans Denzels Washington og mun það hafa verið leikkonan sjálf sem bað um að fá að gegna þessu hlutverki. Lífið 20.11.2010 20:00
Fjölmiðlafárið var of mikið fyrir mig Sænska prinsessan Madeleine talaði í fyrsta sinn opinberlega um sambandsslitin við Jonas Bergström síðasta vor í blaðaviðtali í vikunni. Þau voru nýtrúlofuð þegar upp komst um ítrekað framhjáhald kappans, meðal annars með ungri norskri stúlku sem seldi sögu sína til slúðurblaða þar í landi. Lífið 20.11.2010 18:15
Knightley leikur Önnu Keira Knightley á nú í samningaviðræðum við leikstjórann Joe Wright um að leika Önnu Kareninu, höfuðpersónu samnefndrar skáldsögu eftir Leo Tolstoj. Wright þessi leitar greinilega ekki langt yfir skammt eftir aðalleikkonum því hann leikstýrði Keiru í Pride and Prejudice og Atonement. Working Title er með myndina á sinni könnu og er gert ráð fyrir því að fyrsta uppkast að handriti verði klárt í næsta mánuði. Lífið 20.11.2010 18:00
Kennir Frökkum að taka slátur „Hann viðurkenndi að hann hefði kúgast yfir þessu,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir matargúrú, sem sýndi frönskum sjónvarpsmanni í vikunni hvernig ætti að taka slátur. Franska sjónvarpsstöðin Arte var stödd hér á landi til að fjalla um hvernig Íslendingar hefðu brugðist við kreppunni sem svo skyndilega skall á þjóðinni. Lífið 20.11.2010 16:30
Kate leggur línurnar Kjólar eins og sá sem Kate Middleton, unnusta Vilhjálms Bretaprins, var í er trúlofun þeirra var kynnt seldust upp á innan við sólarhring eftir að myndir af henni í kjólnum birtust. Kjóllinn er hannaður af brasilískum hönnuði sem Middleton leitar gjarnan til þegar hana vantar kjóla við opinberar athafnir. Lífið 20.11.2010 15:00
Japis opnuð á ný á netinu „Það verður að hafa trú á því að fólk borgi áfram fyrir tónlist því ef að það gerir það ekki endar það þannig að ekkert verður gefið út,“ segir Ásvaldur Friðriksson. Lífið 20.11.2010 13:00
Konur eiga orðið allan ársins hring Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfuhófi bókaforlagsins Sölku sem haldið var í IÐU í gærkvöldi. Tilefnið var útgáfa dagatalsbókarinnar Konur eiga orðið allan ársins hring sem kemur út árlega en í henni eru hugleiðingarnar íslenskra kvenna. Eins og sjá má á myndunum ríkti mikil gleði á meðal kvennanna. Lífið 20.11.2010 12:23
Setur upp Villiönd Ibsens fyrir norska þjóðleikhúsið Baltasar Kormákur hefur verið fenginn til að setja upp Villiöndina eftir Henrik Ibsen í norska þjóðleikhúsinu árið 2012. Villiöndin á að vera opnunarsýningin á Ibsen-hátíðinni sem leikhúsið heldur annað hvert ár en Ibsen er í hávegum hafður í menningarlífi Norðmanna. „Þetta er mikill heiður fyrir mig," segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Hann er staddur í Los Angeles að ráða til sín starfsfólk fyrir fyrstu stóru Hollywood-kvikmyndina sína, Contraband, sem Universal-kvikmyndaverið framleiðir með Mark Wahlberg og Kate Beckinsale í aðalhlutverki. Lífið 20.11.2010 11:00
Sætur bolli af sviss mokka Það er gaman að prófa sig áfram með klassíska kaffidrykki og bæta einhverju spennandi út í bollann. Matur 20.11.2010 10:13
Sumir eiga bara fallega vini Útlitsráðgjafinn og sjónvarpsmaðurinn vinsæli Karl Berndsen hélt partý á stofunni sinni Beautybarinn í gærkvöldi af því tilefni að hann sendir nú frá sér sína fyrstu bók sem ber hún heitið VAXI-n - Finndu hvað fer þér best. Bókin hefur að geyma ýmsan fróðleik og gagnlegar upplýsingar sem Karl hefur safnað að sér á sínum fjölbreytilega ferli. Hann leggur ríka áherslu á að sérhver kona finni sinn eigin stíl og klæði sig í samræmi við það hvernig hún er VAXI-n. Á meðfylgjandi myndum má sjá Karl fagna á meðal fallegra vina og vinkvenna sem voru áberandi smart eins og Kalli sjálfur. Lífið 20.11.2010 09:58
Ingó gefur litla bróður tækifæri á Nasa „Hann er yngri, myndarlegri og betri söngvari. Það er allt sem þarf,“ segir Ingólfur Þórarinsson, söngvari Veðurguðanna. Lífið 20.11.2010 09:15
Gerði þátt með Maggie Q Egill Örn Egilsson, íslenskur kvikmyndagerðarmaður í Hollywood, leikstýrði nýverið þætti í bandarísku spennuþáttaröðinni Nikita með Die Hard stjörnunni Maggie Q í aðalhlutverki. Þættirnir hafa hlotið mikið lof í Ameríku og fá 7,8 á imdb.com en þeir eru byggðir á valinkunnri franskri mynd um unga stúlku á refilstigum sem bjargað er af leyniþjónustu Bandaríkjanna og í kjölfarið gerð út í líki leigumorðingja. Meðal annarra leikara í þáttunum má nefna Shane West sem margir kannast við úr ER og svo Lyndsy Fonseca úr Kick-Ass. Lífið 20.11.2010 07:30
Hræðist ekki hrukkurnar Fyrirsætan Heidi Klum sagði í nýju viðtali við tímaritið Self Magazine að besta fegurðarráðið sem hún gæti gefið konum á hennar aldri væri að bæta svolitlu kjöti á beinin. Lífið 20.11.2010 06:00
Friðrik Dór lofar miklu fjöri á útgáfutónleikum í kvöld „Þetta verður veisla, ein stór veisla, því get ég lofað,“ segir Friðrik Dór, söngvari, sem heldur útgáfutónleika á Nasa í kvöld. Hann lofar mikilli stemmingu en fjöldi tónlistarmanna koma fram með söngvaranum í kvöld. Á meðal þeirra eru Erpur Eyvindarson, Ásgeir Orri og Steindi Jr., auk þess mun rapparinn Henrik Biering taka lagið ásamt góðum gestum. Lífið 19.11.2010 16:26
Hjálmaklíkan með þrjár vinsælustu plöturnar Hljómsveitin Baggalútur gefur í á Tónlistanum þessa vikuna með nýjustu plötu sína, Næstu jól, og nær toppsætinu af Memfismafíunni og Diskóeyjunni. Í þriðja sæti eru síðan Hjálmar með Keflavík Kingston. Menn eru án efa kátir í herbúðum þessarra þriggja sveita, enda eru þær að miklu leyti skipaðar sömu mönnum. Lífið 19.11.2010 16:04
Þór í nýrri tónleikaröð Tónlistarmaðurinn Þór Breiðfjörð Kristinsson, sem hefur verið búsettur í Kanada, er fluttur til Íslands eftir fjórtán ára fjarveru. Lífið 19.11.2010 15:00
Önnur dansmynd til Hollands „Það er mikill heiður að fá þetta tækifæri. Þetta ýtir manni áfram í að gera fleiri myndir,“ segir María Þórdís Ólafsdóttir. Dans-stuttmynd hennar, Between, hefur verið valin til þátttöku á kvikmyndahátíðina Cinedans í Amsterdam sem fer fram 9. til 12. desember. Lífið 19.11.2010 14:30