Lífið

Moss vissulega með viðskiptavit

Breska fyrirsætan Kate Moss, 36 ára, var klædd í svartar gallabuxur þegar hún kynnti nýja ilmvatnið hennar Vintage Muse í versluninni Boots í London í gærdag. Kate stillti sér upp fyrir ljósmyndara á milli þess sem hún gaf fólki eiginhandaráritun á ilmvatnsflöskurnar. Skoða má myndirnar í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Ráðleggur mönnum að þefa ekki af nærbuxum

„Menn verða að vita hvaða stærð prinsessan notar, það er algjört lykilatriði. Þá er tvennt í stöðunni, að sms-a vinkonu hennar og spyrja hvaða stærð hún noti eða lauma þér í nærbuxurnar hennar þegar hún sér ekki til og gá að stærðinni. Ekki haga þér samt eins og pervert og fara að þefa af nærbuxunum í leiðinni. Ef hún gómar þig með nærbuxurnar hennar í andlitinu á þér mun hún skottast út og þú ert ekki að fara að heyra í henni aftur". Þetta eru margir karlmenn bara ekki með á hreinu og því ómetanleg ráðlegging frá þeim Þykka."

Lífið

Má ég koma heim?

Erpur Eyvindarson fer öfganna á milli í textunum á fyrstu sólóplötu sinni. Segja má að platan skiptist í þrjá hluta: Djamm, pólitík ásamt hluta þar sem við heyrum mýkri hlið á rapparanum sem er aldrei kjaftstopp.

Lífið

Skemmtilegt jukk

Prinspóló er orðin fjögurra manna hljómsveit en það góða er samt að þó að tónlistin hafi þróast nokkuð er „heima í herbergi"-hljómurinn ennþá til staðar.

Gagnrýni

Dýrindis klæði

Hönnuðirnir Þórey Björk Halldórsdóttir og Richard P. Foley munu opna vefverslunina Worn By Worship 10. desember. Verslunin mun selja íslenska og erlenda fatahönnun og renna tíu prósent af hverri seldri vöru til góðgerðamála.

Tíska og hönnun

Sandler alveg milljón

Gamalt myndband úr sjónvarpsþáttunum Saturday Night Live með Adam Sandler rauf milljón áhorfenda múrinn á fimmtudagskvöldið. Á myndbandinu sést Sandler syngja hið fræga Þakkargjörðarlag en þar koma við sögu frægir einstaklingar á borð við Mike Tyson, Betty Grable og Sammy Davis Jr.

Lífið

Gleymir giftingunni

Poppdívan Katy Perry á erfitt með að venjast breyttri hjúskaparstöðu sinni en hún er stöðugt gleyma því að leikarinn Russell Brand sé eiginmaður hennar en ekki kærasti. Parið gekk í það heilaga með pompi og prakt á Indlandi í síðasta mánuði og má því segja að hjónin svífi um á bleiku skýi þessa dagana. Foreldra Perry eru líka í skýjunum yfir nýja tengdasyninum og elduðu meira að segja sérstakan rétt fyrir hann á þakkargjörðardaginn.

Lífið

Færir engar þakkir

Samkvæmt sumum slúðurritum hið vestra hefur Angelina Jolie ákveðið að þakkargjörðarhátíðin verði ekki haldin hátíðleg á heimili Jolie-Pitt fjölskyldunnar.

Lífið

Fáum ekki leið á Jólahjólinu

„Við höfum ekkert breyst. Það hafa bara allir í kringum okkur breyst,“ segir snigillinn Skúli Gautason, en Sniglabandið fagnar 25 ára afmæli sínu í ár. Af því tilefni gefur hljómsveitin út þriggja diska afmælispakka sem ber einfaldlega nafnið „25“. Afmælispakkinn inniheldur tvo hljómdiska og einn mynddisk. Fyrri hljómdiskurinn skartar mörgum af vinsælustu lögum Sniglabandsins en á þeim seinni er að finna lög sem aldrei áður hafa verið gefin út á geisladiski. Á mynddisknum er svo hægt að horfa á tvenna tónleika Sniglabandsins í Borgarleikhúsinu.

Lífið

Faldi hringinn í skó

Söngkonan Jessica Simpson trúlofaðist nýverið unnusta sínum, fyrrverandi íþróttamanninum Eric Johnson. Að sögn Simpson hafði pilturinn mikið fyrir því að fela hringinn fyrir henni þar til hann bar upp bónorðið.

Lífið

Dreymir um Rihönnu

Breska söngkonan Susan Boyle vill ólm syngja dúett með bandarísku poppdívunni Rihönnu. Boyle lítur á Rihönnu sem keppinaut sinn í poppbransanum og vill meina að ef þær tvær leiða saman hesta sína á plötu myndi það slá í gegn.

Lífið

Besta fyrirmyndin

Breskar unglingsstúlkur hafa valið skólafélaga Harry Potter, Hermione, sem bestu fyrirmyndina. Hermione er leikin af leikkonunni ungu Emmu Watson og skýtur hún þar með poppprinsessunum Cheryl Cole og Katy Perry ref fyrir rass. Í Harry Potter-kvikmyndunum kemur Hermione fyrir sem einstaklega gáfuð stúlka sem er gædd yfirnáttúrulegum hæfileikum og lýsa breskir fjölmiðlar þessu sem ánægjulegri þróun hjá ungu kynslóðinni.

Lífið

Fimm hlutir sem þú vissir ekki um Lindu Evangelista

Linda Evangelista var ein vinsælasta fyrirsæta tíunda áratugarins ásamt Naomi Campbell, Christy Turlington, Cindy Crawford og Claudiu Schiffer. Þær stöllur teljast til fimm áhrifamestu fyrirsætna heims og í viðtali við Vogue árið 1990 gantaðist Evangelista með það að hún færi ekki fram úr rúminu nema hún hlyti minnst eina milljón króna í dagslaun.

Tíska og hönnun

Vill bara skemmta sér

Hjónin David Arquette og Courteney Cox eru sem kunnugt er skilin að borði og sæng. Síðan fréttirnar spurðust út hefur oft sést til Arquette þar sem hann er vel við skál auk þess sem hann hefur viðurkennt að hafa sængað hjá öðrum konum skömmu eftir skilnaðinn. Þrátt fyrir þetta segist leikarinn elska konu sína og að þau séu að vinna í sínum málum.

Lífið

Þess vegna vilja allir fá Pál Óskar að spila

Skagamenn gengu af göflunum um síðustu helgi þegar poppstjarnan Páll Óskar mætti og spilaði í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi. Bærinn var búinn að titra í marga daga og símalínurnar á Gamla Kaupfélaginu glóa eftir að fréttist af komu hans. Þegar miðarnir fóru síðan í sölu ruku allir 500 út á 28 mínútum.

Lífið

Leita að fyrirsætum í skólum

„Við erum að safna í myndabanka til að auðvelda okkur að finna krakka fyrir myndatökur,“ segir Erna Hrund Hermannsdóttir, förðunarfræðingur hjá Maybelline, en Maybelline, Oroblu, íslenska vefritið Nude magazine og módelskrifstofan Elite heimsækja menntaskóla landsins í leit að nýjum andlitum.

Lífið

Grohl leitar aftur í ræturnar

Rokkarinn Dave Grohl er ánægður með samstarf sitt og upptökustjórans Butch Vig við gerð nýrrar plötu hljómsveitarinnar Foo Fighters. Grohl segir endurnýjuð kynni þeirra vera eins og að sofa aftur hjá gamalli kærustu.

Lífið

Yesmine fagnar bókaútgáfu

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru á 20. hæð í Turninum í gærkvöldi þegar Yesmine Olsson fagnaði ásamt fjölda manns þriðju matreiðslubókinni sinni þar sem hún ferr nýjar leiðir því með bókinni fylgir DVD mynddiskur. Yesmine leggur áherslu á meðferð krydda sem eru einkennandi fyrir indverska og arabíska matreiðslu. Sem áður fer Yesmine sínar eigin leiðir í eldhúsinu þar sem einfaldleiki og hollusta eru í fyrirrúmi.

Lífið

Ekkert kjöt fyrir Jessicu Simpson

Söngkonan Jessica Simpson trúlofaðist nýlega unnusta sínum, fyrrverandi fótboltakappa að nafni Eric Johnson, og ætla þau að eyða þakkargjörðarhátíðinni saman í New York. Þetta er fyrsta þakkargjörðarhátíðin sem Simpson og Johnson eyða saman.

Lífið

Alexa Chung þykir flottust

Tískutímaritin keppast nú við að velja best klæddu konur ársins 2010. Tímaritið Teen Vogue birti nýverið lista sinn yfir fimmtíu best klæddu ungstirni þessa árs og var það hin breska Alexa Chung sem hreppti fyrsta sætið.

Lífið

Fín barnaplata

Ísgerður er enginn nýliði hvað barnaefni varðar og það heyrist á plötunni. Árið 2010 ætlar að verða fínt ár fyrir barnaplötur. Bara plata er ekki alveg jafn skemmtileg fyrir foreldrana eins og Pollapönk eða Diskóeyjan, en krakkarnir hafa mjög gaman af henni.

Gagnrýni

Urgur í bókaútgefendum

„Þessi listi er okkur mjög mikilvægur og það er mjög slæmt þegar vantraust myndast á hann,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Veröld. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær var hætt við að birta metsölulista bókaverslana sem Rannsóknarsetur verslunarinnar tekur saman. Ástæðan var sú að þau þrjú hundruð eintök af ævisögu Jónínu Ben sem Office 1 keypti og seldi í sínum verslunum í síðustu viku voru einnig inni í sölutölum N1.

Lífið

Alan Jones fer nýjar leiðir

„Ég er að prófa eitthvað alveg nýtt og ferskt,“ segir söngvarinn Alan Jones, en á næstu vikum kemur út nýtt lag með kappanum sem ber nafnið „Look around“.

Lífið

Skemmtu sér á Lakers-leik

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian og fyrrverandi eiginmaður leikkonunnar Halle Berry, Gabriel Aubry, skelltu sér saman á körfuboltaleik með L.A. Lakers í vikunni. Samkvæmt tímaritinu UsMagazine.com hefur parið verið að stinga saman nefjum um nokkurt skeið.

Lífið

Danskur prins í íslenskum fötum

Sonur Friðriks Danaprins og Mary Donaldson, Kristján, var kirfilega merktur íslenska útivistarmerkinu 66 gráðum norður þegar hann fór í göngutúr með föður sínum um hinn fallega hallargarð Fredensborgar. Kristján var klæddur í fallegan grænan vindjakka og buxur í stíl. Þeir feðgar voru myndaðir af ljósmyndara glanstímaritsins Kig Ind og flennistór mynd af þeim birt á áberandi stað í blaðinu. Friðrik segir við blaðið að honum sé umhugað að bæði börnin sín læri að umgangast náttúruna af virðingu.

Lífið

Bieber vill nammi

Táningsstjarnan Justin Bieber er ekki eins kröfuharður og margir fjölmiðlar hafa látið vera. Sögur hafa verið á kreiki um að „rider“-inn hans, kröfur um það sem skal vera fyrir hendi á tónleikum, sé án fordæma en sú er alls ekki raunin.

Lífið