Lífið

Arney Ingibjörg sigraði Röddina

„Þetta kom rosalega á óvart og ég er eiginlega ennþá í sjokki,“ segir hin sextán ára gamla Arney Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir. Hún sigraði í söngkeppninni Röddinni en þættir með keppninni hafa verið sýndir á Stöð 2 að undanförnu. Hátt í níu hundruð keppendur á aldrinum 12 til 16 ára skráðu sig til leiks og því var leiðin að sigrinum bæði löng og ströng. Arney segir frábært fyrir sig að vinna jafn stóra keppni og Röddin sé. „Ég hélt pottþétt að ég myndi ekki vinna en mér leið æðislega þegar Sveppi tilkynnti hver væri sigurvegarinnar.“

Lífið

Möguleg gifting

Orðrómur þess efnis að Nicole Richie og Joel Madden ætli að ganga í það heilaga er aftur kominn á kreik. Samkvæmt Hollywood Life mun brúðkaupið eiga sér stað á morgun á heimili föður Richie.

Lífið

Hasselhoff sparkað

Lífið er ekki bara hvítar strandir og sólbrenndir líkamar hjá David Hasselhoff. Nú hefur raunveruleikaþáttur hans, The Hasselhoffs, verið tekinn af dagskrá A&E-sjónvarpsstöðvarinnar eftir aðeins tvo þætti.

Lífið

Hönnunin rataði á síður Vogue

„Nú fara Ítalirnir vonandi að taka línuna inn í sínar búðir,“ segir fatahönnuðurinn Sunna Dögg Ásgeirsdóttir. Hluti úr nýjustu fatalínu hennar birtist í ítalska barnablaði Vogue á dögunum, Vogue Bambini.

Tíska og hönnun

Héldust í hendur

Robert Pattinson og Kristen Stewart snæddu kvöldverð á veitingastaðnum Fleming’s Prime Steakhouse ásamt tökuliði nýjustu Twilight-myndarinnar fyrr í vikunni. Að sögn sjónarvotta virtist parið afskaplega ástfangið.

Lífið

Safnar skóm fyrir fátæk börn

Fatahönnuðurinn Una Hlín Kristjánsdóttir hannar undir heitinu Royal Extreme. Hún stendur nú fyrir skósöfnun handa börnum á Indlandi í samstarfi við vefverslunina Worn by Worship.

Lífið

Miley Cyrus reykti salvíu

Netsíðan TMZ.com birti í gær myndband þar sem Disney-stjarnan Miley Cyrus virðist vera að reykja kannabis með nokkrum vinum sínum. Talsmaður Cyrus hefur neitað sögusögnunum og sagt hana vera reykja salvíu sem sé löglegt í Kaliforníufylki.

Lífið

Herbert gefur út tónleika sem hurfu

Popparinn Herbert Guðmundsson hefur gefið út mynddisk sem var tekinn upp á tónleikum hans í Íslensku óperunni. Þar söng hann öll sín bestu lög, þar á meðal Svaraðu, Hollywood og að sjálfsögðu Can"t Walk Away. „Þessir tónleikar voru teknir upp 2002 en svo hurfu þeir,“ útskýrir Herbert.

Lífið

Longoria sökuð um framhjáhald

Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria sótti nýverið um skilnað frá eiginmanni sínum, körfuboltamanninum Tony Parker. Ástæða skilnaðarins er sú að Parker átti að hafa átt vingott við aðra konu.

Lífið

Vildi verða rappari

Robert Pattinson þráði ekkert heitar en að verða rappstjarna sem unglingur. Robert, sem þekktastur er fyrir að leika vampíruna Edward Cullen í Twilight-kvikmyndunum, var með rapparann Eminem á heilanum og tók sjálfan sig upp rappa lög eftir kappann. „Ég á heilt safn af upptökum af mér að rappa frá þrettán ára aldri. Ég var með Eminem á heilanum þegar ég var yngri.“

Lífið

Leyndarmál Justin Bieber

Í september síðastliðnum var ungstirnið Justin Bieber myndaður þar sem hann sat í aftursætinu á bíl og kyssti söngkonuna Jasmine Villegas. Söngvararnir ungu sáust síðan saman við nokkur önnur tækifæri og virtist fara vel á með þeim.

Lífið

Sumir komast upp með að sitja fyrir allsberir

Danska fyrirsætan Helena Christensen situr fyrir kviknakin, eins og meðfylgjandi myndir sýna, klædd í EasyTone strigaskó í auglýsingaherferð Reebok. Ekki nóg með að Helena lofi strigaskóna heldur stillir hún sér upp í engu eins og ekkert sé eðlilegra. Fyrirsætan lét hafa eftir sér: „Ég er óþolinmóð og þegar ég prófa eitthvað nýtt vil ég sjá afraksturinn strax. Ég fann að þessir skór virkuðu um leið og því hélt ég áfram að nota þá.“ Loftpúðarnir í sólunum á þessum skóm eru afrakstur ítarlegrar rannsóknavinnu. Þeir byggja á sérstakri Moving Air tækni sem er náskyld tækninni á bak við Pilates æfingaboltana. Loft flæðir milli púða í sólanum svo að þegar skórnir eru notaðir er eins og stöðugt sé verið að gera jafnvægisæfingar. Jafnvægisæfingar styrkja djúplæga kvið- og bakvöðva sem gerir það að verkum að bakverkir geta minnkað. Skórnir eru ætlaðir til daglegra nota, hvort sem er í vinnu, skóla eða göngutúra. Þeir henta sérstaklega vel fyrir þá sem þurfa að standa mikið.

Lífið

Fjölmörg andlit Rihönnu

Söngkonan Rihanna er með fatastíl sem tekið er eftir og er stúlkan óhrædd við að fara sínar eigin leiðir þegar kemur að tískunni. Hin 22 ára gamla söngkona sló fyrst í gegn árið 2005 og hefur síðan þá átt hvern smellinn á fætur öðrum. Það er forvitnilegt að líta til baka yfir farinn veg og skoða hin mörgu andlit Rihönnu.

Lífið

Sögur frá djassara

Ingvi Þór Kormáksson, meðlimur djass- og blússveitarinnar JJ Soul Band, hefur gefið út smásagnasafnið Raddir úr fjarlægð.

Lífið

Jamie Oliver hjólar í Ramsay

Jamie Oliver húðskammar Gordon Ramsay í viðtali við breska blaðið Daily Mail. Ramsay fór nýlega til Indlands og kynnti sér matargerð þar ásamt tökuliði Channel 4 og var afraksturinn sýndur í sjónvarpsþáttaröð Ramsay, Gordon‘s Great Escape.

Lífið

Ellefu ár að ljúka við plötu

„Þetta bara æxlaðist þannig að þetta hefur tekið langan tíma,“ segir Sveinn Hauksson, sem var í ellefu ár að ljúka við sína fimmtu sólóplötu, Attilla, sem er nýkomin út. Lögin á plötunni eru tíu og því má segja að hann hafi að meðaltali verið í rúmt ár að ljúka við eitt lag.

Lífið

Sjónvarpsborðið notað í fyrsta skipti

„Það eru tíu myndavélur í borðinu og svo verða nokkrar á flakki um salinn,“ segir Valur Heiðar Sævarsson, eigandi pókerklúbbsins Button við Gullinbrú, sem var opnaður á dögunum.

Lífið

Jóhanna söng Helga nótt fyrir Monocle

„Þeir báðu mig bara um að koma og ég söng þarna fimm lög,“ segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona. Breska tímaritið Monocle bauð henni til London til að koma fram í útvarpsþætti tímaritsins sem það heldur úti í ansi glæsilegu hljóðveri sínu.

Lífið

Sameinuð um jólin

Leikkonan Sandra Bullock hyggst eyða jólunum í Texas með fyrrverandi eiginmanni sínum, Jesse James, börnum hans og syni sínum, Louis. Bullock og James skildu fyrr á árinu eftir að upp komst um framhjáhald hans.

Lífið

Jay-Z fékk dýrasta bílinn að gjöf

Söngkonan Beyoncé Knowles taldi það ekki eftir sér að gefa eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Jay-Z, dýrasta bíl heims í tilefni 41 árs afmælis hans. Beyoncé keypti Bugatti Veyron Grand Sport handa ástinni sinni og kostar bíllinn ekki nema 232 milljónir króna.

Lífið

Diskóið læknar svínaflensuna

Eftir fimm ára hlé snýr Margeir Ingólfsson aftur með sitt vinsæla diskókvöld á annan í jólum. Tilefni endurkomunnar er skinkuvandmál unglingsstúlkna í tengslum við svínaflensuna og ævisaga hans sem var rituð í hans óþökk. Diskókvöld Margeirs voru haldin tíu ár í röð og nutu mikillar hylli þangað til plötusnúðurinn ákvað að setja þau í salt. Núna, fimm árum síðar, hefur hann snúið aftur og í þetta sinn verður diskóið á skemmtistaðnum Austur á annan í jólum.

Lífið

Bloom í Hobbitanum

Leikarinn Orlando Bloom er sagður í viðræðum um að leika í Hobbitanum. Stutt er síðan Cate Blanchett ákvað að leika álfadrottninguna Galadriel í myndinni og nú virðist Bloom ætla að feta í fótspor hennar. Bloom lék

Lífið

Winona treystir ekki karlmönnum

Leikkonan Winona Ryder segist eiga erfitt með að treysta karlmönnum því frægðin geri það að verkum að ókunnugt fólk viti ótrúlegustu hluti um hana.

Lífið

Þreytt á slúðrinu

Kourtney Kardashian er sögð miður sín vegna orðróms um að unnusti hennar, Scott Disick, sé samkynhneigður og hrífist af klæðskiptingum.

Lífið

Ben vinnur heima

Samkvæmt US Magazine ætlar leikarinn Ben Affleck að vera heimavinnandi faðir nú á næstu mánuðum og segist hann hlakka mikið til að geta eytt tíma með dætrum sínum tveimur.

Lífið