Lífið

Hvað gerði hann við hárið á sér?

Leikarinn Jude Law vakti talsverða athygli þegar hann fékk sér göngutúr í London fyrir helgi. Sjarmörinn er nefnilega kominn með miklu þykkara hár en hann var með fyrir nokkrum mánuðum þegar hann kynnti nýjustu Sherlock Holmes-kvikmyndina. Þá var eins og karlinn væri að verða sköllóttur en nú er hann allt í einu kominn með hár – líkt og fyrir töfra.

Tíska og hönnun

Jessie J krúnurakar sig fyrir gott málefni

Poppsöngkonan Jessie J hefur ákveðið að raka af sér allt hárið fyrir gott málefni og hún hefur ákveðið dagsetninguna. Jessie sagði aðdáendum sínum á Twitter-síðu sinni að hún ætli að krúnuraka sig á Degi rauða nefsins þann 1. mars á næsta ári.

Tíska og hönnun

Fór í brjóstaaðgerð í beinni

Raunveruleikastjarnan Kris Jenner, móðir Kardashian-systranna, brá sér í skurðaðgerð í nýlegum þætti af Keeping Up With the Kardashians sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni E! Kris ákvað að sýna þegar brjóstafylling hennar var tekin út og ný sett inn í staðinn til að minna konur á að passa að hafa sílíkonpúða ekki of lengi í brjóstunum.

Lífið

Sjóðheitar súperbombur! Hvor er flottari?

Bjútíbomburnar Charlize Theron og Kim Kardashian féllu báðar kylliflatar fyrir þessum eldrauða kjól frá Lanvin. Charlize klæddist honum í Los Angeles við ljósa hæla en Kim ákvað að vera rauð frá toppi til táar. En hvor ber þennan fallega kjól betur?

Lífið

Kynþokkafull með klauf

Leikkonan suðræna Penelope Cruz heillaði alla upp úr skónum á frumsýningu kvikmyndarinnar Twice Born á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto fyrir helgi.

Lífið

Tölvuleikir og tækni

Í tilefni af sýningu myndarinnar Indie Game: The Movie stendur Riff-hátíðin í samstarfi við tölvuleikjaframleiðandann CCP að pallborðsumræðum á Sólon föstudaginn 5. október. Yfirskrift umræðnanna er Vöxtur og umfang tölvuleikjaframleiðslu og möguleikar sjálfstæðra framleiðenda til framtíðar.

Lífið

Kate flassar magavöðvunum

Leikkonan Kate Hudson skekur sig allhressilega í fyrsta þætti fjórðu seríu af Glee. Kate leikur danskennarann Cassandra July í sjónvarpsseríunni og flassar stæltum magavöðvunum í einu atriðinu.

Lífið

SJP selur lúxusíbúðina í New York

Sex and the City-pæjan Sarah Jessica Parker og eiginmaður hennar, leikarinn Matthew Broderick, eru búin að setja íbúðina sína í Greenwich Village-hverfinu í New York á sölu. Ásett verð? 25 milljónir dollara, rétt rúmlega þrír milljarðar króna.

Lífið

Nýliðar og reynsluboltar gefa út á tónlistarhausti

Margar áhugaverðar íslenskar plötur líta dagsins ljós í haust og fram að jólum. Fréttablaðið renndi yfir það sem er fram undan í popp- og rokkdeildinni.<br />Eins og undanfarin ár kemur út nóg af íslenskum popp- og rokkplötum núna á haustmánuðum.

Tónlist

Lára sýnir Judy Garland

Leikkonan Lára Sveinsdóttir verður með Judy Garland-sýningu í Leikhúskjallaranum á morgun, sunnudag. Lára gaf fyrir skömmu út plötuna Judy Garland Kabarett sem er afsprengi sýningar sem var haldin í Þjóðleikhúskjallaranum síðasta vetur. Þar söng Lára þekktustu lög Garland ásamt því að bregða sér í nokkur hlutverk og segja sögu hennar. Garland var ein frægasta söng- og leikkona síðustu aldar. Hún hóf feril sinn aðeins tveggja og hálfs árs gömul. Hún lék í fjölda kvikmynda, kom fram í sjónvarpsþáttum og á tónleikum og sendi frá sér plötur.

Lífið

Glæsilegur ferill

Fallega og fræga parið Blake Lively og Ryan Reynolds gekk í hjónaband um síðustu helgi í Suður-Karólínu. Aðeins er tæpt ár síðan þau sáust fyrst saman í Boston og orðrómur komst á kreik um samband þeirra en þau léku saman í myndinni Green Lantern. Hin 25 ára gamla Lively hefur oft verið nefnd ein heppnasta kona heims miðað við feril sinn í ástarmálum sem er frekar aðdáunarverður. Ekki á Reynolds, sem er 10 árum eldri en hún, mikið slakari feril á bakinu. - trs

Lífið

Kúreki norðursins fær viðurkenningar

„Þetta kemur mér verulega mikið á óvart því mér hefði aldrei nokkurn tíma dottið þetta í hug,“ segir tónlistarmaðurinn Hallbjörn Hjartarson, kúreki norðursins og konungurinn í Kántrýbæ. Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi og bandarísku samtökin Country Music Association hafa ákveðið að veita Hallbirni viðurkenningu fyrir að koma kántrýtónlist á framfæri á Íslandi og fyrir framlag hans til kántrýtónlistar. Afhendingin fer fram í Kántrýbæ á Skagaströnd næstkomandi þriðjudag.

Lífið

Allir með tölu hjá CCP

Tölvuleikjafyrirtækið CCP styrkti Kvennaathvarfið með kaupum á 150 marglitum tölum fyrir starfsmenn fyrirtækisins en Kvennaathvarfið stendur þessa dagana fyrir fjáröflunarátakinu Öll með tölu. Starfsfólk fyrirtækisins bætti um betur og sýndi áhuga sinn á verki með frekari tölukaupum og kynningum á átakinu í samfélagsmiðlum. Að þessu tilefni kom starfsfólkið í Reykjavík saman í gær og við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tekin.

Lífið

Langaði að sjá eitthvað geggjað

"Þetta er svolítið eins og að eignast barn,“ segir Arnljótur Sigurðsson, söngvari og bassaleikari Ojba Rasta, um útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar á þriðjudaginn.

Tónlist

Næstum því nakin Christina

Söngkonan og The Voice-dómarinn Christina Aguilera er búin að afhjúpa myndina sem prýðir hulstur nýjustu smáskífu hennar, Your Body.

Lífið

Leður, leður og meira leður

Heitustu konurnar í Hollywood eru gjörsamlega ástfangnar af leðri og klæðast því á hvaða vegu sem er. Kíkið á myndirnar og fáið innblástur um hvernig hægt er að lúkka vel í leðri.

Tíska og hönnun

Jón Jónsson sækir bændur heim

Fyrsti þáttur Stöðvar 2 af þættinum Beint frá býli fór mjög vel í landann, enda fór tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson á kostum. Næsti þáttur er ólíkur hinum fyrri að því leyti að það er Jón Jónsson sem kemur fram. Líkt og Björgvin er Jón Jónsson eldhress og fer á kostum, en tónlist þeirra er þó gerólík eins og þeir sem munu horfa á morgun taka eftir. Ábúendur að Meðalfelli í Kjós lifðu sig mjög vel inn í tónleika Jóns og voru hæstánægðir með heimsóknina og börnin á bænum sungu hástöfum með.

Tónlist

Algjörlega ódrepandi formúlu fylgt út í ystu æsar

Bourne-myndirnar eru með betri spennumyndum síðari ára, loftþéttir og fullorðins njósnatryllar sem einkennst hafa af styrkri leikstjórn, góðum leikurum og útpældum handritum. The Bourne Legacy stendur fyrri myndunum að baki en er engu að síður frambærilegur njósnatryllir sem byggir á óvenju traustri formúlu.

Gagnrýni

Stjörnurnar strippa hjá Ellen

Poppprinsessan Pink kom áhorfendum hressilega á óvart þegar hún sýndi nærbuxurnar sínar í þætti grínistans Ellen DeGeneres í vikunni. En hún er alls ekki sú eina sem er haldin strípihneigð í settinu hjá Ellen eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Lífið

Eiginkonan í aðalhlutverki

"Vinnuheiti myndarinnar er Harmsaga og ég skrifa handritið og kem til með að leikstýra henni,“ segir Mikael Torfason, kvikmyndasmiður og ritstjóri.

Lífið