Lífið

Hrefna Sætran á von á öðru barni

Þau Hrefna Rósa Sætran, kokkur og veitingahúsaeigandi og unnusti hennar, Björn Árnason deildu þeim dásamlegu fréttum með Facebook vinum sínum í gær að von væri á öðru barni. "Sætran II á leiðinni! Vantanlegur/ur 6. apríl!!! Stay Tuned!!!" skrifuðu þau auglóslega að springa úr spennu yfir gleðifréttunum. Fyrir eiga þau Hrefna og Björn soninn Bertram Sætran en hann átti eins árs afmæli fyrr í þessum mánuði. Lífið óskar þeim innilega til hamingju!

Lífið

Húsfyllir á haustkynningu

Mikil stemning og eftirvænting ríkti er ELLA, Oroblu, Grand Marnier og L'Oréal fögnuðu haustinu saman og frumsýndu haustlínur sínar í Ölgerðinni síðastliðinn fimmtudag. Gestir troðfylltu húsið.

Tíska og hönnun

Mundar penslana í London

„Mig langaði til að prófa nýja hluti og kanna nýjar slóðir,“ segir förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason sem hefur komið sér vel fyrir í Lundúnum þar sem hann var að meðal annars iðinn við kolann á nýafstaðinni tískuviku.

Lífið

Frægir á frumsýningu

Þéttsetið var á frumsýningu meistaraverksins Rautt eftir John Logar í Borgarleikhúsinu í síðustu viku. Andrúmsloftið var gott og leikhúsgestir í spariskapi...

Lífið

Sónar-hátíðin til Íslands í fyrsta sinn

Hin heimsfræga tónlistarhátíð Sónar verður haldin í fyrsta sinn í Hörpunni í Reykjavík dagana 14. til 16. febrúar á næsta ári. Þetta staðfesti skipuleggjandinn Björn Steinbekk við Fréttablaðið en gat að öðru leyti ekki tjáð sig um hverjir kæmu þar fram.

Tónlist

Kolfinna á forsíðu i-D

Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir prýðir forsíðu nýjasta heftis tímaritsins i-D. Heftið nefnist The Role Model Issue sem mætti þýða sem Fyrirmyndarheftið og er Kolfinna mynduð af írska ljósmyndaranum Boo George. Kolfinna situr ekki aðeins fyrir á forsíðunni heldur birtir tímaritið heilan myndaþátt með fyrirsætunni. Boo George hefur áður myndað fyrir Levi's, Topman, Wrangler, Louis Vuitton, Ungaro og Allsaints.

Lífið

Rifbeinin fótósjoppuð

Fyrirsætan Karlie Kloss situr fyrir hálfnakin í októberhefti japanska tímaritsins Numéro en eitthvað er nú búið að fikta við myndina.

Lífið

Leðurklædd og komin með nýjan

Fyrirsætan og leikkonan Liberty Ross hefur haldið andlitinu ótrúlega vel eftir að upp komst um að eiginmaður hennar, leikstjórinn Rupert Sanders, hélt framhjá með Twilight-skvísunni Kristen Stewart.

Lífið

Frumburðurinn væntanlegur hjá Adele

Söngkonan Adele, 24 ára, á von á frumburðinum hvað og hverju. Meðfylgjandi myndir voru teknar af henni ásamt kærastanum sínum Simon Konecki, 36 ára, og hundinum þeirra, Louie...

Lífið

Anspach opnar Riff

Opnunarmynd Riff í ár er myndin Drottningin af Montreuil eða The Queen of Montreuil eftir Sólveigu Anspach. Myndin gerist um sumar þegar Agathe snýr heim til sín í Montreuil sem er úthverfi í París. Hún missti mann sinn í bílslysi og eftir að hafa syrgt hann hyggst hún taka aftur til starfa við kvikmyndagerð. Þegar íslensk mæðgin, sæljón og kynþokkafullur nágranni dúkka óvænt upp á heimili hennar öðlast Agathe aftur styrk til að takast á við lífið að nýju.

Lífið

Bubbi á tónleikaferð um landið

Bubbi Morthens leggur land undir fót í haust og heimsækir landsbyggðina auk þess sem hann kemur fram á höfuðborgarsvæðinu. Heiti tónleikaraðarinnar er Þorpin en síðasta plata hans hét einmitt Þorpið. Þar hvarf Bubbi aftur til rótanna með kassagítarinn í fararbroddi.

Lífið

Eiga upphafslagið í vinsælli sápuóperu í Brasilíu

„Serían er nokkurs konar Dallas þeirra Brasilíubúa, full af dramatík og látum. Það má því segja að við eigum Dallas-stefið í Brasil-íu sem er ekki slæmt,“ segir tónlistarmaðurinn Einar Tönsberg í Feldberg, en sveitin á upphafsstef brasilísku sápuóperunnar Morde e Assopras.

Lífið

Gleði á tökustað Private Practice

Þau litu svo sannarlega út eins og hamingjusöm fjölskylda leikararnir Kate Walsh og Benjamin Bratt ásamt ungabarni á tökustað Private Practice í vikunni. Tökur þáttanna fara nú fram í Los Angeles en spenntir aðdáendur um heim allan bíða nú eftir næstu seríu. Sjá má leikarana á tökustað í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Sjóðheitur samfestingur

Jennifer Lopez, 43 ára, var klædd í einstaklega fallegan bleikan samfesting þegar hún yfirgaf hótelið sem hún dvaldi á í New York í vikunni. Eins og sja má var hún með stór sólgleraugu á nefinu og slegið liðað hárið...

Lífið

Kjólaslys á Emmy

Leikkonan Sofia Vergara lenti í óhappi um 20 mínútum áður en hún þurfti að stíga á svið á Emmy-verðlaunahátíðinni um helgina. Rennilásinn á kjólnum hennar sprakk og afturendi leikkonunnar blasti við baksviðs.

Lífið

Töff að vera í tvíhneppntu

Áttu eftir að fjárfesta í fallegum jakka eða frakka fyrir veturinn? Í meðfylgjandi myndasafni geturðu fengið innblástur af því allra heitasta um þessar mundir. Eins og sjá má eru tvíhnepptir jakka mjög áberandi en athygli vekur að það er enginn einn ríkjandi litur. Einnig má sjá tölulausa jakka með fallegu belti í mittið. Ekki má þó gleyma aðal atriðinu en það er að sniðið henti þínum líkamsvexti og að þér líði vel í honum.

Lífið

Heitasta hönkið í Hollywood

Það verður ekki tekið af leikaranum Ryan Gosling, 31 árs, að hann er hæfiliekaríkur leikari og fjallmyndarlegur þar að auki. Slúðurheimurinn vill halda því fram að hann sé heitasta hönkið í Hollywood...

Lífið

Mér skilst að Ísland sé stórt og fallegt

Dario Argento, hinn goðsagnakenndi ítalski kvikmyndaleikstjóri og einn áhrifamesti hrollvekjuleikstjóri allra tíma, er heiðursgestur kvikmyndahátíðarinnar Reykjavík International Film Festival sem sett verður með pompi og prakt í dag. Ferill Argento spannar rúm fjörutíu ár og hann er hvergi nærri hættur, en í ár sendi hann frá sér kvikmyndina Dracula 3D. Haukur Viðar Alfreðsson tók Argento tali og óhætt er að segja að hann sé töluvert geðþekkari en yrkisefnin gefa til kynna. Eftir örstutt spjall um veðrið hófst alvaran.

Lífið

Lífvörður og kærasti Heidi Klum

Þýska sjónvarpsstjarnan og fyrirsætan Heidi Klum, 39 ára, var ómótstæðileg á rauða dreglinum Emmy verðlaunahátíðinni. Hún var klædd í síðan Alexandre Vauthier kjól...

Lífið

Byrjuð að búa á ný

Samkvæmt nýjustu heimildum hafa þau Robert Pattinson og Kristen Stewart náð sáttum eftir mikla rússíbanareið undanfarna mánuði. Ekki hafa þau bara náð sáttum heldur eru þau byrjuð að búa á ný en aðeins eru nokkrir dagar síðan fréttir bárust af því að Pattinson hefði ákveðið að fyrirgefa Stewart framhjáhaldið með leikstjóranum Rupert Sanders.

Lífið

Nýjungagjarnir rokkarar

Sjötta hljóðversplata Muse heitir 2nd Law og kemur út eftir helgi. Þar blanda Matt Bellamy og félagar saman hinum ýmsu tónlistarstefnum í eina stóra epík.

Lífið