Lífið

Tvö ný andlit í Gettu betur

Spyrillinn Edda Hermannsdóttir og stigavörðurinn Marteinn Sindri Jónsson eru ný andlit spurningakeppninnar Gettu betur sem hefur göngu sína í Sjónvarpinu 19. febrúar. Höfundur spurninga verður sá sami og áður, Örn Úlfar Sævarsson.

Lífið

Uppvakningur gleymdist

„Við réðumst í miklar endurbætur fyrir hálfu ári og þá kom sér vel að það varð eitthvert smáræði eftir sem við gátum nýtt okkur,“ segir Benedikt Guðmundsson hjá Draugasetrinu á Stokkseyri.

Lífið

Kolsvartur pakki frá XIII

Rokksveitin XIII sendir frá sér tvöföldu plötuna Black Box í dag. Þar verða öll bestu lög sveitarinnar ásamt sjö nýjum lögum sem voru tekin upp í sumar. „Við erum búnir að spila mikið undanfarið ár og höfum fundið fyrir miklum áhuga,“ segir forsprakkinn Hallur Ingólfsson.

Lífið

Bannað að lyfta lóðum

Leikkonan Christina Hendricks hefur verið bannað að lyfta lóðum í líkamsræktinni vegna vinnunnar en hún fer með hlutverk Joan Harris í sjónarpsþáttunum Mad Men, sem sýndur er á Stöð 2, þar sem mikið er lagt upp úr trúverðugleika karakterana. Christina heldur sér í formi með því að hreyfa sig þrisvar í viku en nú hefur henni verið bannað að lyfta lóðum í ræktinni. Handritshöfundur þáttanna, Matthew Weiner, hefur sannfært Christinu um að hætta að lyfta þungum lóðum því hann vill ekki að hún verði stæltari. „Matt myndi klikkast ef hann sæi massaðan handlegg því hann vill ekki að neitt sé í anda ársins 2010," sagði Christina. Christina er stolt af líkama sínum og hefur engan áhuga á að grenna sig, hvað þá létta sig. Foreldrar Christinu kenndu henni að vera stolta af því hvernig hún er vaxin.

Lífið

Sagði börnunum ekki frá krabbameininu

Leikkonan Marcia Cross, 48 ára, sagði börnum sínum ekki frá því þegar pabbi þeirra greindist með krabbamein. Desperate Housewives leikkonan á þriggja ára gamlar tvíburadætur, Eden og Savönnuh, með eiginmanni sínum Tom Mahoney. Tom fékk krabbamein á síðasta ári. Í dag lítur allt út fyrir að Tom hafi náð að sigrast á krabbameininu eftir að hafa farið í gegnum lyfjameðferð. Marcia var óttaslegin þegar Tom fékk fréttirnar en upplýsti ekki ungar stúlkurnar sínar því hún vildi ekki hræða þær. Við ákváðum að segja þeim ekki frá því þó við vissum ekki hvernig heilsa Tom yrði," sagði Marcia. Þær njóta tilverunnar áhyggjulausr og pabbi þeirra er hraustur í dag. Veikindin tilheyra fortíðinni og hann vill ekki segja þeim frá því strax," sagið hún.

Lífið

Óútgefin bók Jónínu seld til Þýskalands

Þýska forlagið Kiepenheuer und Witsch hefur fest kaup á óútgefinni bók Jónínu Leósdóttur. Bókin kemur út í nóvember hér á landi en Þjóðverjarnir hrifust svo af handritinu að þeir ákváðu að eigna sér það strax.

Lífið

Ófáanlegar gersemar

„Okkur finnst þetta vera ófáanlegar gersemar sem eru að koma út. Við teljum þetta vera poppsögulegt innlegg,“ segir Karl Roth úr hljómsveitinni Melchior sem gaf fyrir skömmu út tvöföldu plötuna Um er að ræða

Lífið

Æfir 5 sinnum í viku

Danska leikkonan Brigitte Nielsen, 47 ára, er ánægð með líkama sinn sem er í það góðu formi að hún gæti auðveldlega tekið að sér að leika í spennumynd þar sem útlit og úthald þarf að vera framurskarandi að hennar sögn. Brigitte sem skildi við leikarann Sylvester Stallone árið 1987,hefur æft eins og enginn væri morgundagurinn undanfarin ár. Ég hef lést gríðarlega mikið síðan ég byrjaði að æfa og taka mataræðið íg egn og mér líður frábærlega vel með líkama minn á ný, sagði Brigitte. Hún segir að líkamsræktin taki töluverðan tíma frá annasamri dagskrá en það sé svo sannarlega þess virði því útkoman er frábær. Ég neyðist til að æfa fimm sinnum í viku í klukkutíma sí senn svo ég sjái árangur sem ég er ánægð m eð," sagið hún.

Lífið

Noel frestar plötuútgáfu

Noel Gallagher, gáfaða bróðurnum úr Oasis, liggur ekkert á að taka upp nýtt efni fyrir sólóplötu sína. Hann ætlar að einbeita sér að komandi erfingja. Noel yfirgaf Oasis í ágúst á síðasta ári eftir að hafa lent í slag við yngri

Lífið

Brjóstagjöf lykill að kjörþyngd

Mamma brasilísku ofurfyrirsætunnar Gisele Bündchen er hetjan hennar. Gisele, sem á soninn Benjamin fyrir níu mánuðum, með eiginmanni sínum Tom Brady elskar móðurhlutverkið. Mamma hennar, Vânia, er fyrirmyndin í lílfi hennar. Mamma er hetjan mín. Ég kann virkilega að meta allt sem hún hefur gert. Hún ól upp sex börn samhliða vinnunni og nágrannarnir hjálpuðu okkur. Hverfið var eins og ein stór fjölskylda," sagði Gisele. Gisele var mætt aftur í vinnuna aðeins sex vikum eftir að hún eignaðist drenginn en hún þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að grennast aftur. Hún borðaði holla fæðu yfir meðgönguna og heldur því fram að brjóstagjöfin hafi hjálpað til að ná kjörþyngd á ný. Hún tekur drenginn með sér hvert sem hún fer. Ég er svo heppin að geta tekið hann með mér hvert sem ég fer. Ég geri ekkert án hans. Við höfum verið aðskilin í þrjá klukkutíma," sagði Gisele.

Lífið

Troðfullt á súlukeppni

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Íslandmeistaramótinu í Súluformi sem fram fór Re-Play Sportbar um helgina. „Keppnin gekk afskaplega vel. Stelpurnar sýndu atriðin sín sem voru ekkert smá flott. Húsið var troðið og mögnuð stemming," svaraði Inga Dungal framkvæmdastjóri keppninnar spurð hvernig til tókst. Sólveig Steinunn Pálsdóttir sigraði en hana sjá hér (youtube) og Eva Rut Hjaltadóttir landaði öðru sætinu eins og sjá má hér (youtube). Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari hjá Súperman.is.

Lífið

Tískuvikurnar byrjaðar

Nú eru tískuvikur haustsins að fara af stað og er það New York sem reið á vaðið um helgina. Verið er að sýna tískustrauma og stefnur næsta vors og sumars. Stjörnurnar flykkjast til borgarinnar til að sýna sig og sjá aðra sem og að drekka í sig tískuna.

Lífið

Jay-Z vill eiga Arsenal

Rapparinn Jay-Z hefur mjög mikinn áhuga á að fjárfesta í enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal. Jay-Z, sem er kvæntur söngkonunni Beyoncé Knowles, hefur verið aðdáandi liðsins síðan Frakkinn Thierry Henry lék með því fyrir nokkrum árum.

Lífið

Skólahreysti vettvangur nýrrar bíómyndar

Unglingakeppnin Skólahreysti, þar sem grunnskólnemar landsins keppa í allskyns íþróttaþrautum, verður miðpunktur nýrrar íslenskra unglingamyndar sem framleiðslufyrirtækið Saga Film hyggst gera.

Lífið

Hefur ekki sungið í fimmtán ár

Jónmundur Grétarsson gerði garðinn frægann fyrir fimmtán árum í leikritinu Bugsy Malone þar sem hann heillaði áhorfendur með sóp í hönd raulandi lagið „Á morgun“. Nú hefur hann ákveðið að dusta rykið af leikaraferlinum og fer með hlutverk Sams Cook í söngleiknum Buddy Holly. „Það hefur alltaf

Lífið

Sér fyrir endann hjá Kylie

Söngkonan Kylie Minogue segist enn eiga í erfiðleikum vegna krabbameinsmeðferðar sinnar en hlakkar til þegar henni lýkur á næsta ári. Eins og kunnugt er greindist Kylie með brjóstakrabbamein árið 2005 og nú fimm árum síðar er hún enn í lyfjameðferð sem á að tryggja að sjúkdómurinn taki sig ekki upp að nýju.

Lífið

Sofia Coppola sigraði í Feneyjum

Leikstjórinn Sofia Coppola hlaut Gullna ljónið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum um helgina fyrir kvikmynd sína Somewhere. Myndin fjallar um Hollywoodstjörnu sem reynir að ná aftur til ungrar dóttur sinnar. Með aðalhlutverk í myndinni fara Stephen Dorff og Elle Fanning.

Lífið

Smith-barnið í tónlistina

Willow Smith, níu ára gömul dóttir leikarahjónanna Wills Smith og Jada Pinkett Smith, er að hasla sér völl innan tónlistargeirans. Fyrsta smáskífa stúlkunnar hefur lekið á Netið og fær afbragðs dóma, meðal annars frá gagnrýnanda LA Times. Laginu „Whip my hair“ er sagt geta verið frá stórstjörnum á borð við Rihönnu og Keri Hilson og þykir Willow Smith hafa alla burði til að ná langt á sviði tónlistar.

Lífið

Útvarp er leikhús ímyndunaraflsins

Vetrardagskrá Útvarpsleikhússins hefst á sunnudag þegar leikritið Djúpið eftir Jón Atla Jónasson verður frumflutt. Útvarpsleikhúsið hefur breyst frá því sem var, að mati Viðars Eggertssonar leikhússtjóra og forsendur og möguleikar útvarpsins höfð í fyrirrúmi.

Lífið

Trúarvakning í bókaútgáfu

Bókaforlagið Veröld hefur gefið út bókina Þú sem ert á himnum – rýnt í bresti biblíunnar með guði almáttugum eftir Úlfar Þormóðsson. Í bókinni fer Úlfar í

Lífið

Ólafur biskup í hlandskálum

„Það tókst aldrei að dæma hann og okkur fannst það leiðinlegt. Þetta er okkar framlag í því máli,“ segir Össur Hafþórsson, einn af eigendum skemmtistaðarins Sódómu Reykjavík.

Lífið

Orðin sérfræðingur um kossa og kynlífsstellingar

„Þetta er náttúrlega aðallega bara hrikalega óþægilegt, að lýsa kynlífsathöfnum í smáatriðum,“ segir Anna Svava Knútsdóttir leikkona hlæjandi en hún er þessa dagana að leggja lokahönd á handrit að sjónvarpsþáttum byggðum á bókinni Makalaus. Fylgifiskur þess er að

Lífið

Leikur alka í nýrri mynd

Samkvæmt breska blaðinu Daily Mail hefur Gwyneth Paltrow samþykkt að leika áfengissjúka tónlistarkonu í kvikmyndinni Country Strong. Gwyneth er auðvitað gift Chris Martin, oftast kenndum við Coldplay, og því ættu

Lífið

Í brúðkaupsferð til Ítalíu

Anna Paquin og eiginmaður hennar, Stephen Moyer, eru nú stödd í Ravello á Ítalíu til að halda upp á brúðkaup sitt. Þau játuðust hvort öðru í Malibu fyrir tveimur vikum og sáust ákaflega hamingjusöm á hinum vinsæla ferðamannastað, Amalfi-ströndinni, á mánudag.

Lífið

Europe-stjóri aðstoðaði Noise

Bandaríski upptökustjórinn Beau Hill lagði lokahönd á þriðju plötu rokksveitarinnar Noise sem kemur út á mánudaginn. Hann er þekktastur fyrir að hafa tekið upp plötur með Alice Cooper, Warrant og Europe og hafa þær útgáfur selst í hátt í fimmtíu milljónum eintaka.

Lífið

Lou Reed vildi ekki sjá Boyle

Breskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að farþegar hefðu kvartað undan ónæði af hálfu söngkonunnar Susan Boyle um borð í flugi frá New York til London í vikunni. Boyle ku hafa sungið hátt og grátið með reglulegu millibili auk þess sem henni þótti ekkert verra að fá sér í tána inn á milli. Bandaríski slúðurvefurinn TMZ komst í gær yfir tölvupóst frá talsmanni Boyle þar sem málið er útskýrt.

Lífið