Lífið

Jónas Sigurðsson og Valdimar í Austurbæ í kvöld

Það verða þrusutónleikar í Austurbæ í kvöld. Stuðsveitirnar Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar og Valdimar halda tónleika og flytja lög af nýju plötunum sínum, Allt er eitthvað og Undraland. Meðal hápunkta kvöldsins verður án efa þegar Jónas slær í lagið Hamingjan er hér en lagið var valið besta lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum um daginn. Þar var einnig platan Allt er eitthvað tilnefnd sem plata ársins og Jónas tilnefndur sem textahöfundur ársins.

Lífið

Óánægja með Hróarskelduhátíðina

Danskir tónlistargagnrýnendur eru æfir yfir dagskrá Hróarskelduhátíðarinnar og segja hana vægast sagt ömurlega. Danskt tónlistaráhugafólk virðist vera þeim sammála.

Lífið

Scarlett er ekki ólétt

Bandaríska leikkonan Scarlett Johansson blæs á sögusagnir þess efnis að hún sé með barni. Bandarískir slúðurmiðlar hafa mikið verið að velta þessu fyrir sér eftir að mynd birtist af leikkonunni úti að skokka og breiðari um sig miðja en gengur og gerist. Barnsfaðirinn mun þá vera leikarinn og meintur ástmaður Johansson, Sean Penn. Þess ber að geta að síðast þegar Johansson sló á sögusagnir um sjálfa sig í slúðurmiðlunum var það einmitt um samband hennar við Penn sem nú er staðfest.

Lífið

Skapbráðir snúa bökum saman

Stórleikararnir Christian Bale og Sean Penn eru nú sagðir líklegastir til að hreppa aðalhlutverkin í spennutryllinum The Last Photograph. Þetta er gæluverkefni bandaríska leikstjórans Zach Snyder sem gerði síðast hina arfaslöku Sucker Punch en hann mun einnig leikstýra næstu Ofurmennismynd.

Lífið

Spennandi myndir frumsýndar

Nóg er um að vera í íslenskum kvikmyndahúsum um þessa helgi. Að venju má finna vandaðar kvikmyndir í Bíó Paradís en þar ber hæst frumsýning Boy, nýsjálenskrar kvikmyndar um Dreng, 11 ára gamlan strák sem hittir pabba sinn í fyrsta skipti. Og sá reynist vera allt öðruvísi en Drengur hafði gert sér í hugarlund um.

Lífið

Elin ekki fengið krónu frá Tiger

Elin Nordegren hefur ekki fengið krónu frá fyrrverandi eiginmanni sínum, Tiger Woods. Hjónakornin skildu í ágúst í fyrra og samkvæmt dómsátt á Tiger að greiða Elin 110 milljónir dollara. En samkvæmt bandarískum netmiðlum hefur sænska fyrirsætan ekki fengið neitt. Tiger greiðir henni þó meðlag en það er ekki hluti af skilnaðarsamkomulaginu sjálfu.

Lífið

Kvikmyndafólk syrgir Lumet

Bandaríski leikstjórinn Sidney Lumet andaðist í síðustu viku, 86 ára að aldri. Fjölmargir kvikmyndagerðarmenn hafa vottað honum virðingu sína að undanförnu og látið í það skína að hann hafi verið í fremstu röð leikstjóra.

Lífið

Jón Jónsson reynir að vera einlægur á fyrstu plötunni

Jón Jónsson hefur vakið talsverða athygli undanfarið fyrir sumarlega popptóna sem hafa hljómað á öldum ljósvakans. Nú er plata á leiðinni frá Jóni Ragnari og félögum. „Við tókum lögin upp í janúar og erum búnir að vera að fínpússa síðan. Ferlið er komið mjög langt,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson.

Lífið

Gyllenhaal hreifst af íslensku stelpunum

„Ég var að koma heim frá Ástralíu þar sem við vorum að hljóðblanda nýjustu myndina mína, The Killer Elite, og rakst þá á Jake í flughöfninni,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi með meiru. Hann hitti Jake Gyllenhaal á mánudaginn í flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar leikarinn var að yfirgefa landið eftir ævintýralega helgi.

Lífið

Spennandi tónlistarkokkteill

TV on the Radio frá Brooklyn í New York hefur gefið út plötuna Nine Types of Light. Hljómsveitin er þekkt fyrir að hrista saman ýmsar tónlistarstefnur í litríkan og bragðgóðan kokkteil.

Lífið

Leikrit um leðurblöku

Framleiðendur nýrrar Batman-leiksýningar í Bretlandi hafa lofað því að vandamálin við sýninguna verði ekki þau sömu og í söngleik um Köngulóarmanninn í Bandaríkjunum sem ítrekað hefur verið frestað. „Sú sýning er allt öðruvísi en okkar. Einu líkindin eru þau að bæði verkin fjalla um ofurhetjur,“ sagði Anthony van Laast, leikstjóri Batman Live, í viðtali við BBC.

Lífið

Til Íslands í þriðja sinn

Þýski plötusnúðurinn Stephan Bodzin spilar á Nasa miðvikudaginn 20. apríl. Hann er að koma hingað í þriðja sinn. Bodzin er þekktur fyrir að spila mínímalíska teknótónlist. Aðrir sem koma fram á Nasa eru Oculus, Steffan J, Mr. Cuellar og Balrock. Miðasalan er í Mohawks í Kringlunni og kostar 2.500 krónur.

Lífið

Uppstokkun á FM 957

„Ég vil ekki gefa mikið upp, en það eru stórir hlutir að gerast á FM,“ segir Heiðar Austmann, dagskrárstjóri FM 957.

Lífið

Aukakílóin hrynja af skokkandi útgáfustjóra

Eiður Arnarsson, útgáfustjóri afþreyingarfyrirtækisins Senu, hefur misst þrettán kíló síðan hann byrjaði að stunda langhlaup í september ásamt eiginkonu sinni. Hann stefnir á að hlaupa hálfmaraþon (21 km) í Reykjavíkurmaraþoninu í haust.

Lífið

Aðdáendur Coldplay fara ekki alla leið

Aðdáendur bresku hljómsveitarinnar Coldplay eru ólíklegastir allra tónlistaraðdáenda til að stunda kynlíf á fyrsta stefnumóti. Könnun vefsíðunnar Tastebuds.fm leiðir þetta í ljós, en vefsíðan leiðir saman fólk eftir tónlistarsmekk.

Lífið

Danski prinsinn á kvennafari

Danskir fjölmiðlar fara nú mikinn vegna myndbands sem sýnir Friðrik krónprins láta vel að konu á skemmtistað nokkrum dögum fyrir skírn tvíbura hans.

Lífið

Með ævintýralegt húðflúr af Mjallhvíti

Ég er sérstakur aðdáandi Disney-teiknimyndanna og hef alla tíð horft mikið á fyrstu teiknimynd Disney; Mjallhvíti,“ segir Eyrún Helga Guðmundsdóttir klippari. Hún skartar litskrúðugu húðflúri af aðalpersónum teiknimyndarinnar Mjallhvítar og vekur mikla athygli fyrir vikið. "Ég vinn sem klippari, er til dæmis að klippa þættina Makalaus núna. Ég er útskrifuð úr Kvikmyndaskóla Íslands, teikna mikið sjálf og langaði að fá mér tattú sem væri fullt af litum og fallegum persónum, eins og ævintýrið um Mjallhvíti hefur.“ Jón Páll Halldórsson húðflúrmeistari hjá Íslenzku húðflúrstofunni sá um verkið. "Ég treysti Jóni Páli vel þannig að ég var ekkert stressuð, en ég hefði ekki treyst öðrum til að gera þessa mynd, það er mjög gott að vinna með honum. Jú, þetta hefur vakið mikla athygli og fólki finnst ótrúlegt að hægt sé að gera tattú að svona miklu listaverki, með þessum skyggingum. Tattúlistin hefur nefnilega þróast svo mikið síðustu árin, með betri nálum og tækni.“

Lífið

Hjálmar spila fyrir íslenska keppendur

Hljómsveitin Hjálmar heldur tónleika til styrktar íslenskum keppendum á Special Olympics 2011. Tónleikarnir fara fram á Nasa á föstudaginn. Sérstakur gestur verður hljómsveitin Valdimar. Meðlimir Hjálma vilja koma því á framfæri að þeim þykir afskaplega vænt um að fá að standa fyrir þessum tónleikum og hjálpa þannig einstöku íslensku íþróttafólki að láta draum sinn rætast. Miðaverð er kr. 1.500 og renna peningarnir óskiptir til ferðarinnar. Miðasala er við innganginn. Húsið verður opnað kl. 21 og tónleikarnir hefjast kl. 22.

Lífið

Upprennandi dansstjörnur

Meðfylgjandi myndir voru teknar á danssýningu á vegum dansskólans DanceCenter en skólinn hefur það að markmiði að kenna krökkum á öllum aldri sem hafa ástríðu fyrir dansi að dansa. Eins og framkvæmdastjóri skólans Nanna Ósk Jónsdóttir segir: Með dansafli er vísað til jákvæðra áhrifa sem dansinn hefur á líkama og sál og þeirri gleði sem hann gefur þeim, sem hann stundar.

Lífið

Sigtryggur gerir sjónvarpsþátt

„Ég afþakkaði þessa beiðni fyrst ákaflega pent og langaði eiginlega ekkert að gera einhvern stúdíóþátt. En óskin kom frá FTT þar sem séra Frímann [Jakob Frímann Magnússon] ræður ríkjum og maður getur ekki svo auðveldlega sagt nei við hann. Þannig að lendingin varð sú að við gerðum þennan þátt í hljóðveri,“ segir Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður og verðandi sjónvarpsstjarna.

Lífið

Finna ekki fólk í kviðdóm

Fjölmiðlar búa sig undir mikið fár þegar réttarhöld yfir Conrad Murray, lækni Michaels Jackson, hefjast. Erfiðlega gengur að finna fólk í kviðdóm.

Lífið

Ætla að reyna aftur

Leikkonan Michelle Williams og leikstjórinn Spike Jonze hafa verið að stinga saman nefjum aftur, rúmu ári eftir að þau slitu sambandi sínu. Parið tók fyrst saman sumarið 2008 en leiðir þeirra skildu ári síðar.

Lífið

Ekki veikan blett að finna

Upptökum á fjórðu plötu Geirs Ólafssonar lauk fyrir skömmu í Kaliforníu. 22 hljóðfæraleikarar komu við sögu og stóðu upptökur yfir í þrjá og hálfan tíma.

Lífið

Eignast barn með dóttur Stewarts

Ein stærstu tíðindin í heimi fræga og ríka fólksins eru þau að Kimberly Stewart er ólétt. Það eitt og sér er auðvitað ekki fréttaefnið heldur sú staðreynd að pabbinn er Óskarsverðlaunaleikarinn Benicio Del Toro. Og þau tvö eru ekki par. Og hafa engar háleitar hugmyndir um að verða par í nánustu framtíð.

Lífið

Gefa út nýja veftímaritið Bast Magazine

Nýtt vefrit, Bast Magazine, fór í loftið um helgina. Á bak við ritið standa Hafrún Alda Karlsdóttir, Íris Dögg Einarsdóttir og Sif Kröyer. Að sögn Sifjar, ritstjóra vefritsins, höfðu allar stúlkurnar gengið með þessa hugmynd í maganum í nokkra stund en hjólin fóru fyrst að snúast þegar þær hlutu peningastyrk frá Dansk Islandsk Fond. „Styrkurinn gerði það að verkum að við gátum leigt atvinnuhúsnæði og komið undir okkur fótunum. Þetta gerði það einnig að verkum að við fengum aukið sjálfstraust því styrkveitingin sýndi að fleiri höfðu trú á þessu verkefni með okkur,“ útskýrir hún.

Lífið

Gogoyoko.com hélt partý

Meðfylgjandi myndir voru teknar á veislu sem tónlistarveitan Gogoyoko.com hélt á veitingahúsinu Hvíta perlan til að fagna frábærum árangri síðunnar undanfarið. Fólk úr tónlistarbransanum, vinir, velunnarar og aðdáendur síðunnar gerðu sér glaðan dag eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Vesturport á vöktum í Pétursborg

"Þetta er náttúrulega bara bilun,“ segir Gísli Örn Garðarsson, einn af forsvarsmönnum leiklistarhópsins Vesturport. Yfir fimmtíu manna hópur frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu flaug til St. Pétursborgar í gær en þar mun afhending evrópsku leiklistarverðlaunanna fara fram 17. apríl.

Lífið

Skilnaðurinn særði Evu Longoria

Eva Longoria ræddi í fyrsta skipti skilnaðinn við Tony Parker, leikmann NBA-liðsins San Antonio Spurs, í þætti Piers Morgan á CNN. Leikkonan viðurkenndi að skilnaðurinn hefði sært hana afar mikið.

Lífið