Embætti stigavarðarins lagt niður í Gettu Betur 17. október 2011 10:00 Þórhildur Ólafsdóttir og Örn Úlfar Sævarsson halda utanum stjórnartaumana í Gettu Betur þetta árið. Embætti stigavarðar hefur verið lagt niður en fjölmargir nafntogaðir Íslendingar hafa gegnt því hlutverki eins og Katrín Jakobsdóttir og Þóra Arnórsdóttir. Fréttablaðið/E.ÓL
Örn Úlfar Sævarsson „Þetta var hugmynd sem kom fram á fundum í sumar, að hafa tvo dómara. Og þar með datt stigavörðurinn eiginlega út,“ segir Örn Úlfar Sævarsson, annar af spurningahöfundum og dómurum Gettu Betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Ákveðið hefur verið að leggja niður embætti stigavarðarins sem frá upphafi keppninnar hefur setið við hægri hönd dómarans og talið stiginn. Þórhildur Ólafsdóttir, fréttakona sjónvarpsins á Norðurlandi, hefur verið ráðin í starf hins dómarans og spurningahöfundar. Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar hafa gegnt þessu embætti með miklum myndarskap, meðal annars mennta-og menningarmálaráðherrann Katrín Jakobsdóttir, fréttakonan Þóra Arnórsdóttir, Svanhildur Hólm, framkvæmdarstjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og svo þeir Ásgeir Erlendsson og Marteinn Sindri Jónsson sem var síðasti maðurinn í stólnum. Örn Úlfar verður dómari þriðja árið í röð og eftir því sem Fréttablaðið kemst næst er hann fyrsti maðurinn til að ná þeim áfanga. „Ég var mjög kaldur þegar falast var eftir kröftum mínum en þegar ég heyrði af þessum hugmyndum, að dómararnir gætu orðið tveir og að vinnuálagið yrði þar af leiðandi helmingi minna varð þetta strax meira heillandi,“ segir Örn en hann og Þórhildur hafa þegar hist á nokkrum fundum og borið saman bækur sínar. „Hún er alveg frábær og mikið spurningaljón.“ Örn segir jafnframt að áhorfendur megi búast við öðrum breytingum, meðal annars uppstokkun spurninga og annað slíkt. Hann tekur hins vegar af allan vafa að þátturinn fari að snúast uppí einhver fíflalæti, engin verði látin hlaupa eða fái slím yfir sig. „Við viljum auðvitað standa vörð um anda þáttarins sem stendur á gömlum merg. Við förum því hægt í allar breytingar og gerum það af ábyrg, Gettu Betur er hálfgerður íþróttaþáttur og við vitum af liðum sem eru þegar byrjuð að undirbúa sig.“ freyrgigja@frettabladid.isasdfF18281210 Rökstólr 20
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“