Lífið

Íslensk stuttmynd á Cannes

„Ég og tökumaðurinn minn, Hrafn Jónsson, erum að spá í að fara, við erum komnir með miðann en nú er bara að redda pening,“ segir Eilífur Þrastarson, kvikmyndagerðarnemi í Prag. Stuttmynd hans Shirley hefur verið valinn til þátttöku á kvikmyndahátíðinni í Cannes í svokölluðum Short Film Corner-flokki. Cannes er ein stærsta kvikmyndahátíð heims en þangað flykkist allt helsta kvikmyndagerðarfólk í heiminum og drekkur léttvín við hvítar strendur Miðjarðarhafsins.

Lífið

Ógeðslegt ástaratriði

Reese Witherspoon segir að ástaratriði sem hún lék í á móti Robert Pattinson í myndinni Water For Elephants hafi verið ógeðslegt. Ástæðan er sú að Pattison var mjög kvefaður og var allan tímann hóstandi og hnerrandi á meðan þau voru að knúsast.

Lífið

10 ára afmæli Fréttablaðsins

Eins og meðfylgjandi myndir sýna var frábær stemning á tíu ára afmælishátíð Fréttablaðsins á laugardaginn. Hátt í tíu þúsund gestir á öllum aldri fögnuðu áfanganum ásamt starfsfólki Fréttablaðsins. Páskaeggjaleit fór fram í Öskjuhlíðinni og boðið var upp á gómsæta tíu metra langa köku með yfir 2000 kökusneiðum sem kláraðist á 45 mínútum. Þá var einnig boðið upp á Svala, heitt kakó og hátt í þúsund vöfflur með rjóma. Skoppa og Skrítla, leikhópurinn Lotta, Friðrik Dór, Pollapönk og Páll Óskar héldu uppi stuðinu og Franzína mús var kynnir.

Lífið

Pabbi Völu Grand söng og mamma bakaði

Meðfylgjandi myndskeið var tekið í 25 ára afmæli Völu Grand á veitingastaðnum Oliver í gærkvöldi. Pabbi Völu stjórnaði afmælissöngnum áður en Vala Grand skar kökuna sem mamma hennar bakaði handa henni í tilefni dagsins.

Lífið

Hreinskilinn Rourke

Leikarinn Mickey Rourke lýsir kvikmyndinni Passion Play sem hræðilegri, en hann fór með hlutverk í myndinni ásamt Megan Fox, Bill Murray og Rhys Ifans. Myndin fjallar í stuttu máli um jasstónlistarmann sem kemst í kynni við unga konu sem fædd er með fuglsvængi og ferðast um Bandaríkin með sirkus.

Lífið

Tekur púlsinn á samfélaginu

Einfalt og tímalaust eru orðin sem lýsa best stíl ljósmyndarans Einars Snorra. Með Gwen Stefani og hljómsveitina R.E.M. á ferilskránni býður Einar Snorri Íslendingum upp á myndatöku gegn vægu verði næstu daga en hann er að sanka að sér efni í nýja portrettbók.

Lífið

Pælir ekki í vextinum

Söngkonan Adele segist ekki hafa tíma til að velta sér upp úr smáhlutum líkt og vexti sínum og segir tónlist sína vera fyrir eyrun, ekki augun.

Lífið

Sjúkdómurinn eins og þrumuský

"Það er ekki bara ég sem dett niður heldur detta allir niður með mér. Sjúkdómurinn hangir bara yfir mér eins og þrumuský. Og svona er þetta bara, ég varð bara að leita mér hjálpar,“ segir Catherine Zeta Jones í samtali við breska blaðið Mirror. Zeta Jones lagðist inn á geðdeild í síðustu viku eftir að hún var greind með geðhvörf eða bipolar II. Það var eiginmaður hennar, Michael Douglas, sem fylgdi henni inn á geðsjúkrahúsið Silver Hill í Connecticut. "Ég er mjög heppin og reyni að vera jákvæð. Það er ekki gott fyrir persónuleika minn að vera neikvæð.“

Lífið

Elvis syngur í Hörpunni

Bandaríski tónlistamaðurinn Elvis Costello heldur tónleika í Hörpunni hinn 21. nóvember næstkomandi. Þetta er í annað sinn sem Costello kemur til Íslands en aftur á móti fyrstu tónleikarnir hans; hann kom hingað til lands og hlýddi á tónleika eiginkonu sinnar, Diönu Krall, árið 2003. Elvis Costello verður einn á sviði og hyggst flytja öll sín bestu lög auk þess sem áhugasamir geta farið inn á heimasíðu hans, elviscostello.com, og beðið um óskalög.

Lífið

Afmælispartý Völu Grand

Meðfylgjandi myndir voru teknar í 25 ára afmæli Völu Grand á veitingastaðnum Oliver í gærkvöldi. Margt var um manninn og afmælisstelpan í miklu stuði eins og sjá má á myndunum. Pabbi Völu og Haffi Haff héldu tölu áður en hún skar væna sneið af afmælistertunni sem mamma hennar bakaði.

Lífið

Vill fá frí frá unnustanum

Söngkonan Jessica Simpson er orðin þreytt á því að hafa unnusta sinn, íþróttamanninn fyrrverandi Eric Johnson, alltaf í kringum sig. Johnson hefur verið atvinnulaus frá árinu 2008 og eyðir því öllum sínum stundum með Simpson.

Lífið

Fjölmenni í afmæli Björgvins

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Háskólabíó í sextíu ára afmælisveislu Björgvins Halldórssonar eftir síðari tónleika hans í kvöld sem voru vægast sagt frábærir að sögn tónleikagesta. Eins og sjá má á myndunum voru Björgvin og afmælisgestir í hátíðarskapi en hann fékk meðal annars gítar að gjöf frá félögunum.

Lífið

Idol gaur ástfanginn af Twilight stjörnu

Paul McDonald, 26 ára, sem var rekinn úr American Idol í gærkvöldi og Twilight leikkonan Nikki Reed, 22 ára, eru yfir sig ástfangin. Já ég og Nikki erum að hittast. Það er opinbert, sagði Paul í viðtali á sjónvarpsstöðinni E! Hún er mjög kúl. Hún er klár og ég er svo ánægður með það. Við höfum verið saman undanfarið þrátt fyrir að hafa nóg að gera. Paul viðurkennir að Nikki er á bömmer yfir því að hann var rekinn úr þættinum í gærkvöldi en sér jákvæðu hliðarnar á brottrekstrinum. Hún sagði við mig: Gaur ekki örvænta. Nú þegar þú verið þú sjálfur og gert það sem þú vilt gera og verið litamaðurinn sem þú sannarlega ert.

Lífið

Nýtt par í Hollywood

Ef marka má slúðurmiðla vestanhafs eru leikaranir Charlize Theron og Keanu Reeves að stinga saman nefjum. Ónefndir heimildarmenn úr vinahópi þeirra staðfesta sambandið en segja leikarana vera að bíða með að opinbera þangað til þau flytja saman til Englands, en bæði eru að taka upp kvikmyndir þar á næstu vikum.

Lífið

Tugir milljóna í íslenskt grín

„Þetta þýðir bara það að þættirnir fara í loftið,“ segir Ragnar Hansson, leikstjóri sjónvarpsþáttanna Mið-Ísland, sem verið er að skrifa um þessar mundir.

Lífið

Playmo tryllir lýðinn í sumar

Ballhljómsveitin Playmo ætlar að sér stóra hluti í sumar. Vinskapur við hljómsveitirnar Mars og Dalton varð til þess að Playmo var stofnuð.

Lífið

Safnar kröftum fyrir risasumar

„Ég er ekki búinn að fara úr náttfötunum í svona 72 tíma,“ segir Árni Hjörvar Árnason, bassaleikari bresku hljómsveitarinnar The Vaccines.

Lífið

Biðlaði til vina um hreint piss

Brooke Mueller, sem er hvað best þekkt fyrir að vera fyrrum eiginkona vandræðagemlingsins Charlie Sheen, á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Ekki nóg með að þurfa að takast á fyrrum eiginmann sinn um forræði yfir tveggja ára tvíburadrengjum sínum, virðist Mueller eiga sjálf við fíkniefnavandamál að stríða.

Lífið

Aftur saman

Heyrst hefur að fyrrum hjónakornin Jude Law og Sadie Frost gætu tekið aftur saman, nú þegar Law hefur skilið í þriðja sinn við leikkonuna Siennu Miller.

Lífið

Bríarí opnað

Tómstundahúsið Bríarí var opnað í Kex Hostel við Skúlagötu á fimmtudaginn. Húsið verður opið um helgina í tengslum við tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess.

Lífið

Til heiðurs Perkins

Blúshátíð í Reykjavík hefst í áttunda sinn í dag með ýmsum uppákomum í miðbænum. Þar á meðal verður tilkynnt um heiðursfélaga Blúsfélags Reykjavíkur. Bandaríska blúsarans Pinetop Perkins, sem lést á dögunum 97 ára gamall, verður minnst um helgina, enda spilaði hann með íslensku hljómsveitinni Blue Ice Band og kom fram á Blúshátíð fyrir tveimur árum. Tónleikar honum til heiðurs verða haldnir á Rosenberg í kvöld þar sem fjöldi tónlistarmanna ætlar að heiðra Perkins, þar á meðal Vinir Dóra, Ragnheiður Gröndal og Hilmar Örn Hilmarsson. Allur ágóðinn rennur til Pinetop Perkins stofnunarinnar.

Lífið

Brjálæðingur gengur laus

Annar þáttur af nýju seríunni af Steindanum okkar fór í loftið á Stöð 2 í gær. Eins og alltaf endaði þátturinn á tónlistarmyndbandi, sannkallaðri sprengju um furðulegan gaur sem kallar sig Altmuligtmand. Í þættinum kölluðu Steindi og Ágúst Bent leikstjóri til sín fjöldan allan af aukaleikurum í frábærum atriðum, þeirra á meðal Þorstein Guðmundsson. Hann leikur erkióvin Altmuligmand í myndbandinu, harðgera og drykkfellda löggu sem hikar ekki við að skjóta til að leysa málið.

Lífið

Þú vinnur ekkert ef þú gerir ekkert

Langar þig að lesa góða bók í páskafríinu? Fylgstu þá með á Facebooksíðu Lífsins, deildu henni á vegginn þinn og kvittaðu á síðuna okkar. Í verðlaunapottinum eru alls níu bækur. Það eru bækurnar Mundu mig, ég man þig eftir Dorothy Koomson, Prjónaklúbburinn eftir Kate Jacobs og Brothætt eftir Jodi Picoult. Níu vinningshafar verða dregnir út á miðvikudaginn kemur. Vertu með! Eina sem þú þarft að gera er að ýta á LIKE hnappinn, deila og kvitta HÉR.

Lífið

Zeta-Jones á geðdeild

Catherine Zeta Jones hefur lagt sjálfa sig inn á geðdeild. Hún hefur verið greind með geðhvörf en talið er að sjúkdómurinn hafi blossað upp vegna streitu í kringum veikindi eiginmanns hennar.

Lífið

Var bara fegurðardrottningum boðið?

Stóra stundin rann upp í gær þegar að sigurvegari í Trúbadorkeppni FM957 og Corona var krýndur á Players. Það má með sanni segja að stemningin hafi náð nýjum hæðum í Kópavoginum þar sem staðurinn var troðfullur og fólk greinilega mætt til þess að skemmta sér og styðja sitt atriði í keppninni. Verkefni kvöldsins var því ekki öfundsvert fyrir dómnefndina sem var skipuð af þeim Haffa Haff tískugúrú og söngdrottningunum Heru Björk og Regínu Ósk ásamt Brynjari Má sem sat í dómnefnd sem fulltrúi FM957. Eftir að öll atriði kvöldsins höfðu lokið sér af fór dómnefnd afsíðis til að gera það upp sín á milli hver stæði upp sem sigurvegari og kom það á daginn að Eskfirðingarnir og bræðurnir Eiríkur og Magnús Hafdal sigruðu keppnina og var álit dómnefndar einróma. Það voru strákarnir í Bee On Ice, sigurvegararnir frá því í fyrra sem afhentu farandsbikarinn til bræðranna sem eru svo sannarlega vel að sigrinum komnir en atriðið þeirra þótti afburðarbest að mati dómnefndar kvöldsins. FM957 vill nota tækifærið og þakka öllum þeim sem tóku þátt bæði í áheyrnarprufunum og í keppninni sjálfri kærlega fyrir. Keppnin hefur stækkað ár frá ári og er óhætt að segja að keppnin í ár hafi verið sú stærsta hingað til.

Lífið

Lennon-texti boðinn upp

Handskrifaður texti Johns Lennon við Bítlalagið Lucy in the Sky with Diamonds verður seldur á uppboði í Los Angeles um miðjan maí. Talið er að yfir 22 milljónir króna fáist fyrir textann. Á textablaðinu er þriðja erindi lagsins skrifað niður og fyrsta setning lagsins She"s Leaving Home. Bæði lögin eru á plötunni Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band sem kom út 1967.

Lífið

Bríarí opið um helgina

Tómstundahúsið Havarí, sem lagðist í dvala í janúar, hefur opnað skammtímaútibúið Bríarí á Skúlagötu 28 þar sem Kex Hostel er einnig til húsa. Tilefnið er tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess sem hefst í dag og lýkur á sunnudag.

Lífið

Ekki lesa þessa frétt ef þú ert ekki partýdýr

Heimildarmyndin Iceland Food Centre eftir Þorstein J. verður frumsýnd á Stöð 2 klukkan 20.00 á páskadag. Af því tilefni var haldinn gleðskapur í Listasafni Reykjavíkur, þar sem aðstandendur myndarinnar og góðir gestir komu saman. Sýnt var brot úr myndinni og leikstjórinn Þorsteinn J. þakkaði samverkafólki frábært starf og sagði lauslega frá sögu myndarinnar sem er byggð á rannsóknum Sólveigar Ólafsdóttur, sem vann gögn um þessa fyrstu íslensku útrás, íslenska veitingastaðinn sem var opnaður með pomp og prakt í London árið 1965. Við þetta tækifæri afhenti Auður Sveinsdóttir, dóttir eins stjórnarmannsins í Iceland Food Centre, Þorsteini og Sólveigu matardiska frá veitingastaðnum. Þeir komu í leitirnar fyrir nokkrum vikum þegar Fréttablaðið sagði frá því að Þorsteinn væri að leita að materstellinu margfræga frá Iceland Food Centre.

Lífið