Lífið

Sjóðheitur samfestingur

Jennifer Lopez, 43 ára, var klædd í einstaklega fallegan bleikan samfesting þegar hún yfirgaf hótelið sem hún dvaldi á í New York í vikunni. Eins og sja má var hún með stór sólgleraugu á nefinu og slegið liðað hárið...

Lífið

Kjólaslys á Emmy

Leikkonan Sofia Vergara lenti í óhappi um 20 mínútum áður en hún þurfti að stíga á svið á Emmy-verðlaunahátíðinni um helgina. Rennilásinn á kjólnum hennar sprakk og afturendi leikkonunnar blasti við baksviðs.

Lífið

Töff að vera í tvíhneppntu

Áttu eftir að fjárfesta í fallegum jakka eða frakka fyrir veturinn? Í meðfylgjandi myndasafni geturðu fengið innblástur af því allra heitasta um þessar mundir. Eins og sjá má eru tvíhnepptir jakka mjög áberandi en athygli vekur að það er enginn einn ríkjandi litur. Einnig má sjá tölulausa jakka með fallegu belti í mittið. Ekki má þó gleyma aðal atriðinu en það er að sniðið henti þínum líkamsvexti og að þér líði vel í honum.

Lífið

Heitasta hönkið í Hollywood

Það verður ekki tekið af leikaranum Ryan Gosling, 31 árs, að hann er hæfiliekaríkur leikari og fjallmyndarlegur þar að auki. Slúðurheimurinn vill halda því fram að hann sé heitasta hönkið í Hollywood...

Lífið

Mér skilst að Ísland sé stórt og fallegt

Dario Argento, hinn goðsagnakenndi ítalski kvikmyndaleikstjóri og einn áhrifamesti hrollvekjuleikstjóri allra tíma, er heiðursgestur kvikmyndahátíðarinnar Reykjavík International Film Festival sem sett verður með pompi og prakt í dag. Ferill Argento spannar rúm fjörutíu ár og hann er hvergi nærri hættur, en í ár sendi hann frá sér kvikmyndina Dracula 3D. Haukur Viðar Alfreðsson tók Argento tali og óhætt er að segja að hann sé töluvert geðþekkari en yrkisefnin gefa til kynna. Eftir örstutt spjall um veðrið hófst alvaran.

Lífið

Lífvörður og kærasti Heidi Klum

Þýska sjónvarpsstjarnan og fyrirsætan Heidi Klum, 39 ára, var ómótstæðileg á rauða dreglinum Emmy verðlaunahátíðinni. Hún var klædd í síðan Alexandre Vauthier kjól...

Lífið

Nýjungagjarnir rokkarar

Sjötta hljóðversplata Muse heitir 2nd Law og kemur út eftir helgi. Þar blanda Matt Bellamy og félagar saman hinum ýmsu tónlistarstefnum í eina stóra epík.

Lífið

Byrjuð að búa á ný

Samkvæmt nýjustu heimildum hafa þau Robert Pattinson og Kristen Stewart náð sáttum eftir mikla rússíbanareið undanfarna mánuði. Ekki hafa þau bara náð sáttum heldur eru þau byrjuð að búa á ný en aðeins eru nokkrir dagar síðan fréttir bárust af því að Pattinson hefði ákveðið að fyrirgefa Stewart framhjáhaldið með leikstjóranum Rupert Sanders.

Lífið

Ætlar að verða rokkari eins og mamma

Allir meðlimir hljómsveitarinnar No Doubt eru nú orðnir foreldrar en það er einmitt ástæðan fyrir því að erfiðlega gekk að koma síðustu plötu þeirra út. Sagði Gwen Stefani í viðtali við Ellen DeGeneres á dögunum að það hefði verið vægast sagt erfitt fyrir hljómsveitarmeðlimi að finna tíma saman þar sem allir væri á fullu í barnauppeldinu.

Lífið

Óvenju mörg eintök pöntuð af Rowling

„Við finnum fyrir mikilli eftirvæntingu fyrir þessari bók,“ segir Ragnar Veigar Guðmundsson, vörustjóri erlendra bóka í Eymundsson, um nýjustu bók metsöluhöfundarins JK Rowling, The Casual Vacancy, sem kemur út í Bretlandi í dag. The Casual Vacancy er fyrsta skáldsaga JK Rowling síðan seinasta bók Harry Potter-seríunnar kom út árið 2007. Mikill spenningur er fyrir bókinni í Bretlandi en yfir milljón eintök hafa þegar selst þar í forsölu.

Lífið

Saga raftónlistarinnar

Plötuútgáfa á stafrænu formi er alltaf að aukast. Bæði tónlistarútgáfur og tónlistarveitur eru duglegar að bjóða upp á efni sem er eingöngu fáanlegt sem niðurhal. Nýlega gaf til dæmis Hellcat-útgáfan út 57 laga safnið The Hellcat Years í tilefni af því að Joe Strummer hefði orðið sextugur. Útgáfan spannar það efni sem Strummer gerði með hljómsveitinni Mescaleros. Flott safn með ýmsu áður óútgefnu efni og eingöngu fáanlegt stafrænt.

Lífið

Spáir yfir tíu þúsund eintökum

Fyrsta plata tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, hefur selst eins og heitar lummur að undanförnu. Samanlagt hafa um tvö þúsund eintök farið yfir búðarborðið á aðeins þremur vikum og situr platan í efsta sæti Tónlistans aðra vikuna í röð.

Lífið

Edrú og hamingjusöm

Partípían Courtney Love hefur svo sannarlega snúið við blaðinu eins og sást þegar hún fór á óperuna L'Elisir D'Amore í Metropolitan-óperunni í New York.

Lífið

Ólétt og yfir sig hamingjusöm

Leikarahjónin Claire Danes og Hugh Dancy eiga von á sínu fyrsta barni og eru í skýjunum með það. Leikkonan sem á von á sér í lok árs geislaði á Emmy verðlaunarhátiðinni sem fram fór á sunnudagskvöldið en hún klæddist gullfallegum gulum kljól sem sýndi vel stækkandi magann. Eins og þekkt er orðið var hún valin besta aðalleikkonan á hátíðinni fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Homeland. Þessi fallegu hjón hafa verið gift frá árinu 2009.

Lífið

Sjóðandi heit súpermamma

Það er alveg óhætt að segja að súpermódelið og súpermamman Alessandra Ambrosio hafi verið sjóðandi heit í vægast sagt stuttum stuttbuxum, háum hælum og hvítum blazer þegar ljósmyndarar náðu myndum af henni á förnum vegi í gær. Ambrosio brosti til ljósmyndara sem og dóttir hennar sem var með í för. Frekar flottar mægður!

Lífið

7 milljónir Breta hafa séð nektarmyndirnar

Myndir af fáklæddri Kate Middleton eiginkonu William Bretaprins birtust í Closer, frönsku tímariti, fyrr í þessum mánuði. Mikið hefur verið fjallað um þetta mál í breskum fjölmiðlum. Myndirnar voru teknar á sveitasetri Lord Linley í Frakklandi en Linley er frændi Elísabetar Bretadrottningar. Myndirnar eru mjög óskýrar og greinilega teknar af mjög löngu færi með aðdráttarlinsu...

Lífið

Mila Kunis og Robin Williams rennblaut á tökustað

Mila Kunis og Robin Williams voru vægast sagt á floti á tökustað myndarinnar The Angriest Man in Brooklyn en tökur á myndinn fara nú fram í New York. Var fullum fötum af vatni hellt yfir höfuð þeirra beggja fyrir atriði í myndinni sem verður spennandi að sjá enda skemmtileg leikaratvenna hér á ferð.

Lífið

Hvetur konur til að vera stoltar af líkama sínum

Lady Gaga hefur heldur betur fengið að finna fyrir því undanfarið í kjölfar örlítillar þyngdaraukningar. Hefur hver önnur greinin birst um málið með óviðeigandi fyrirsögnum og myndum. Gaga hefur ákveðið að snúa vörn í sókn og birti því mynd af sér á nærfötunum einum saman og segist vera stolt af sér eins og hún er.

Lífið