Lífið

Síðasta vasadiskóið

Birgir Örn Steinarsson
Birgir Örn Steinarsson
Tónlistarmaðurinn, plötusnúðurinn og útvarpsmaðurinn Birgir Örn Steinarsson, sem einnig er þekktur sem Biggi Maus og Bigital, stjórnar útvarpsþætti sínum Vasadiskó á Xinu 977 í hinsta sinn næstkomandi sunnudag.

Í þættinum, sem hófst í raun sem tónlistarblogg en færðist yfir í útvarp í fyrravor, hefur Birgir lagt áherslu á nýja og týnda tónlist, en ef marka má Facebook-síðu stjórnandans var honum tjáð að ekki yrði fleiri þáttum útvarpað af stöðinni. Þá er spurning hvort aðrar útvarpsstöðvar vilji nýta sér krafta Birgis, en sjálfur segist hann vera að undirbúa svakalegan lokaþátt og hann ætli að ljúka seríunni með stæl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×