Erlent
Bóluefni Astra Zenica mögulega samþykkt fyrir lok janúar Bóluefni AstraZenica verður mögulega veitt markaðsleyfi í Evrópu fyrir lok janúar. Frá þessu greinir Lyfjastofnun Evrópu (EMA) á Twitter nú í hádeginu. Erlent 8.1.2021 12:27
Ígildi íslensku þjóðarinnar liggur í valnum Alls hafa 365.346 dáið vegna Covid-19 í Bandaríkjunum, samkvæmt samantekt Johns Hopkins háskólans, þar sem haldið er utan um opinberar tölur. Það þýðir að fleiri hafa dáið þar en Íslendingar voru í upphafi síðasta árs. Erlent 8.1.2021 12:24
Trump sagður íhuga að náða sjálfan sig Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa lagt til við ráðgjafa sína að hann hafi áhuga á að veita sjálfum sér forsetanáðun á lokadögum forsetatíðar sinnar. Forsetinn mun vera sannfærður um að óvinir sínir muni beita dómskerfinu gegn sér eftir að hann fer úr Hvíta húsinu. Erlent 8.1.2021 11:40
Sænska þingið samþykkti sérstök heimsfaraldurslög Sænska þingið samþykkti í dag sérstök neyðarlög – svokölluð heimsfaraldurslög – sem veitir ríkisstjórn og opinberum stofnunum auknar heimildir til að takmarka ýmsa starfsemi í samfélaginu til að hefta megi útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi. Erlent 8.1.2021 11:34
Kim heitir bættum samskiptum við umheiminn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, segir nauðsynlegt að bæta samband ríkisins við umheiminn og heitir því að gera það. Þetta sagði einræðisherrann á flokksþingi Verkamannaflokks Norður-Kóreu í gær en fjórði dagur þingsins er í dag. Erlent 8.1.2021 10:26
Lögreglan hafnaði boðum um aðstoð Nokkrum dögum fyrir óeirðirnar í þinghúsi Bandaríkjanna höfðu embættismenn í varnarmálaráðuneytinu samband við lögreglu þingsins og buðu þeim aðstoð þjóðvarðliðs Washington DC við að halda aftur af mótmælendum. Þegar þúsundir stuðningsmanna Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, umkringdu húsið á miðvikudaginn bauð dómsmálaráðuneytið aðstoð Alríkislögreglu Bandaríkjanna. Erlent 8.1.2021 08:54
Annar ráðherra í ríkisstjórn Trumps segir af sér Betsy DeVos, menntamálaráðherra Bandaríkjanna, hefur skilað inn afsögn sinni til Donalds Trump Bandaríkjaforseta, þrettán dögum fyrir embættistöku nýs forseta. DeVos segir að aðkoma Trumps hafi skipt sköpum varðandi það að æstur múgur hafi ráðist inn í bandaríska þinghúsið á miðvikudag. Erlent 8.1.2021 08:20
Pfizer segir bóluefnið virka vel á breska afbrigðið Bóluefni Pfizer og BioNtech virkar vel á breska afbrigði kórónuveirunnar sem hefur breiðst hratt út víða um heim síðustu vikurnar. Erlent 8.1.2021 07:20
Lögreglumaður lést af sárum sínum eftir árásina á þinghúsið Lögreglumaður sem starfaði í þinghúsi Bandaríkjanna, Capitol Hill, er látinn. Hann lést af sárum sem hann hlaut þegar æstur múgur réðst inn í þinghúsið síðastliðinn miðvikudag og truflaði þingfund þar sem átti að staðfesta kjör Joes Biden í embætti forseta Bandaríkjanna. Erlent 8.1.2021 06:45
Trump kominn aftur á Twitter og fordæmir árásina í myndbandi Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er kominn aftur með aðgang að Twitter-reikningi sínum eftir að lokað var á hann í gærkvöldi. Hann birti nú skömmu eftir miðnætti myndband, þar sem hann fordæmir árásina á þinghúsið. Erlent 8.1.2021 00:15
Útiloka ekki að Trump verði ákærður Saksóknarinn Michael Sherwin segir rannsóknina á þeirri árás sem var gerð á þinghúsið í gær fyrst og fremst snúa að því að rannsaka hverjir stuðluðu að ofbeldi og óeirðum innan veggja hússins. Á þessu stigi sé það forgangsmál, þó ekki sé útilokað að fleiri verði ákærðir fyrir sinn þátt. Erlent 7.1.2021 23:34
Evrópuþjóðir verði að grípa til harðari aðgerða vegna afbrigðisins Hans Kluge, yfirmaður Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, segir nýtt afbrigði kórónuveirunnar geta leitt til frekara álags á heilbrigðiskerfi víða um álfuna sem nú þegar eru undir miklu álagi. Því þurfi lönd að grípa til harðari aðgerða til að sporna við frekari útbreiðslu. Erlent 7.1.2021 22:01
Sagði atburði gærdagsins afleiðingu valdatíðar Trump Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt viðbrögð lögreglu við árásinni á þinghúsið í gær harðlega. Hann segir óásættanlegt að hugsa til þess að lögregla hefði brugðist við af meiri hörku ef um Black Lives Matter mótmæli væri að ræða. Erlent 7.1.2021 21:41
Pelosi biðlar til Pence að svipta Trump völdum Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hefur óskað eftir því að Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, og ríkisstjórnin svipti Donald Trump Bandaríkjaforseta völdum. Erlent 7.1.2021 19:38
Samgönguráðherra Bandaríkjanna segir af sér Elaine Chao, samgönguráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér. Hún segir í tilkynningu sem hún birti á Twitter að hún sé þjökuð vegna atburða gærdagsins. Erlent 7.1.2021 19:22
Forsætisráðherra segir áhlaupið í gær árás á lýðræðið Minnst fjórir eru látnir eftir að stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta gerðu áhlaup á þinghúsið í Washington í gær. Erlent 7.1.2021 18:45
Geta ekki beðið í þrettán daga Fleiri þingmenn hafa kallað eftir því að 25. viðauki bandarísku stjórnarskrárinnar verði virkjaður og að Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, verði vikið úr embætti. Aðeins þrettán dagar eru eftir af valdatíð Trump en Joe Biden tekur formlega við embættinu þann 20. janúar næstkomandi. Erlent 7.1.2021 17:39
Loka fyrir aðgang Trump að Facebook og Instagram Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni ekki geta notað reikninga sína á Facebook og Instagram í óákveðinn tíma. Í það minnsta þangað til Joe Biden hefur tekið við sem forseti Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Zuckerberg á Facebook. Erlent 7.1.2021 16:15
Öfgamenn áberandi í árásinni á þinghúsið Þeir fjölmörgu óeirðaseggir sem brutu sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna til að stöðva staðfestingu niðurstaða forsetakosninganna í nóvember í gærkvöldi eiga það flestir sameiginlegt að vera stuðningsmenn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Erlent 7.1.2021 15:11
Konan sem skotin var til bana var lengi í flughernum og ötull stuðningsmaður Trumps Konan sem var skotin til bana í þinghúsi Bandaríkjanna í gær hét Ashli Babbit. Hún var 35 ára gömul, frá Kaliforníu og hafði verið í flugher Bandaríkjanna í um fjórtán ár. Hún var mikill stuðningsmaður Donalds Trump, fráfarandi forseta, og var skotin þegar hún og aðrir stuðningsmenn forsetans brutu sér leið inn í þinghúsið til að stöðva staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember. Erlent 7.1.2021 13:43
Hverjar verða afleiðingar atburða gærdagsins? Mikill titringur er í Washington D.C. eftir atburðarás gærdagsins og meðal annars rætt óformlega um að koma forsetanum frá. Bandaríska þingið lauk í gær talningu atkvæða kjörmanna og því ekkert sem kemur í veg fyrir að Joe Biden verði forseti 20. janúar nk. Erlent 7.1.2021 13:42
„Hann var algjört skrímsli í dag“ Donald Trump Bandaríkjaforseti varði gærkvöldinu í Hvíta húsinu umkringdur nánustu ráðgjöfum sínum, á meðan annað starfsfólk fylgdist með þróun mála í vantrú og skelfingu. Erlent 7.1.2021 13:26
„Munið þennan dag að eilífu“ Undir lok baráttufundar Donalds Trump, fráfarandi forseta, við Hvíta húsið í gær, sagði hann stuðningsmönnum sínum að berjast til að bjarga landi þeirra. Nú væri tíminn til að sýna styrk. Erlent 7.1.2021 11:37
Trump segir að valdaskiptin verði friðsæl Stuttu eftir að kjör Joe Bidens og Kamölu Harris sem næsta forseta og varaforseta Bandaríkjanna var staðfest sendi Donald Trump, fráfarandi forseti, frá sér yfirlýsingu sem aðstoðarmaður hans, Don Scavino, birti á Twitter. Lokað hefur verið á Twitter-aðgang forsetans sjálfs. Erlent 7.1.2021 09:57
Viðbúnaður og viðbrögð lögreglu vekja furðu Viðbúnaður og viðbrögð lögreglu Bandaríkjaþings við áhlaupi æstra stuðningsmanna Donalds Trump, forseta, á þinghúsið í gær hafa vakið mikla furðu meðal þingmanna og sérfræðinga. Þingmenn hafa þegar heitið því að rannsaka störf lögreglunnar og með stjórn á báðum deildum þingsins eru Demókratar í stöðu til að gera breytingar. Erlent 7.1.2021 09:10
Maðurinn sem Obama tilnefndi í Hæstarétt verður dómsmálaráðherra Bidens Dómarinn Merrick Garland, sem Barack Obama tilnefndi sem hæstaréttardómara árið 2016 en þingmenn Repúblikana neituðu að staðfesta í embætti, verður dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Joes Biden. Erlent 7.1.2021 09:04
Kjör Bidens staðfest þrátt fyrir innrás í þinghúsið Bandaríkjaþing staðfesti nú rétt í þessu kjör Joe Bidens og Kamölu Harris sem forseta og varaforseta Bandaríkjanna eftir ótrúlega atburðarás í gær þar sem þetta lýðræðislega ferli var hindrað. Erlent 7.1.2021 08:48
Það helsta í geimnum 2021: Tunglið er aftur orðið töff Geimförum og ferðum hefur farið hratt fjölgandi á undanförnum árum og er útlit fyrir að sú þróun haldi áfram. Sérstaklega með tilliti til aukinna umsvifa einkafyrirtækja á þessu sviði. Erlent 7.1.2021 08:31
Fjórir látnir eftir árásina á þinghúsið Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir óeirðirnar við þinghús Bandaríkjaþings í Washington DC í gær. Erlent 7.1.2021 07:02
Trump einangraður eftir ótrúlega atburðarás Þingmenn, stórfyrirtæki og stjórnmálaleiðtogar hafa fordæmt Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, fyrir viðbrögð hans við atburðum gærkvöldsins í þinghúsinu í Washington D.C. Twitter ákvað að loka fyrir aðgang hans af ótta við að færslur hans myndu hvetja til ofbeldis og samstarfsmenn hans eru sagðir íhuga að koma honum frá völdum. Erlent 7.1.2021 03:25