Erlent
Dóttirin dó úr hungri á meðan mamman djammaði í sex daga Ung bresk kona hefur verið dæmd til níu ára fangelsisvistar fyrir að yfirgefa tuttugu mánaða gamla dóttur sína í sex daga, á meðan hún hélt upp á átján ára afmæli sitt. Barnið dó úr inflúensu og hungri. Erlent 6.8.2021 16:57
Boraði fyrstu holuna á Mars Vélmennið Perseverance boraði í morgun sína fyrstu holu á Mars. Úr holunni tók vélmennið sýni sem vísindamenn vonast til að bera ummerki fornra lífvera. Erlent 6.8.2021 15:00
Reiðir heimamenn handsömuðu meðlimi Hezbollah sem skutu eldflaugum að Ísrael Reiðir þorpsbúar í Chouya í suðurhluta Líbanons stöðvuðu bílalest á vegum Hezbollah hryðjuverkasamtakanna sem virðist hafa verið notuð til að skjóta eldflaugum að Ísrael í morgun. Erlent 6.8.2021 13:45
Þvertekur fyrir að Sjísjov hafi svipt sig lífi Maki hvítrússnesks aðgerðasinna, sem fannst látinn í almenningsgarði í Úkraínu, segist ekki trúa því að hann hafi svipt sig lífi. Vinir hans telja að hann hafi verið myrtur og vettvangur sviðsettur. Erlent 6.8.2021 13:44
Talibanar taka fyrstu borgina án þess að hleypa af skoti Vígamenn Talibana hafa náð tökum á fyrstu héraðshöfuðborg landsins. Borgin Zaranj í Nimruz-héraði féll í hendur þeirra án þess að skoti væri hleypt af. Zaranj er nærri landamærum Afganistans og Írans. Erlent 6.8.2021 11:57
Hamfararigningar í kjölfar hitabylgju og þurrks í Norður-Kóreu Hamfararigningar og flóð hafa valdið miklu tjóni í Norður-Kóreu. Minnst ellefu hundruð heimili hafa skemmst og þúsundir hafa þurft að flýja undan flóðum. Þá hafa miklar skemmdir orðið á ræktunarlandi, vegum og brúm. Erlent 6.8.2021 11:03
Greenville brann til kaldra kola í stærsta eldi ársins Hinn sífellt stærri Dixie-eldur í Kaliforníu brenndi í vikunni smábæinn Greenville til grunna. Eldurinn hefur brunnið í rúmar þrjár vikur og varð rúmlega 360 þúsund ekrur að stærð í gærkvöldi. Erlent 6.8.2021 09:54
Þrír starfsmenn CNN reknir fyrir að mæta óbólusettir til vinnu Þremur starfsmönnum CNN hefur verið sagt upp eftir að hafa mætt óbólusettir í vinnuna. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ekkert umburðarlyndi verða viðhaft hvað varðar endurkomu starfsmanna til starfa án bólusetningar. Erlent 6.8.2021 09:10
Apple hyggst skima eftir barnaníð þegar myndir fara í skýið Tæknirisinn Apple hyggst taka í notkun hugbúnað til að skima allar myndir sem farsímanotendur hlaða upp í skýið (iCloud). Hugbúnaðinum er ætlað að bera kennsl á þekktar myndir sem sýna kynferðislega misnotkun á börnum. Erlent 6.8.2021 08:22
Vill að Pólland segi sig úr Evrópusambandinu Dómsmálaráðherra Póllands segir að kominn sé tími til að landið segi sig úr Evrópusambandinu vegna afskipta sambandsins af nýsettum lögum í Póllandi sem heimila að dómurum sé refsað fari þeir ekki að vilja framkvæmdavaldsins. Erlent 6.8.2021 07:57
Hafa rekið þjálfara Tímanovskaju úr Ólympíuþorpinu Tveir hvítrússneskir þjálfarar hafa verið reknir úr Ólympíuþorpinu eftir að þeir voru sakaðir um að reyna að senda íþróttamann nauðugan frá Tókýó. Þeir hafa misst allt aðgengi að svæðinu eftir að þjálfarapassar þeirra voru teknir af þeim. Erlent 6.8.2021 07:25
Bandaríkin veita íbúum Hong Kong 18 mánaða dvalarleyfi Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur sagt að íbúar Hong Kong í Bandaríkjunum geti sótt um 18 mánaða dvalarleyfi vegna aðgerða kínverskra stjórnvalda. Ákvörðunin kann að verða til hagsbóta fyrir þúsundir íbúa Hong Kong sem þegar dvelja í Bandaríkjunum. Erlent 6.8.2021 07:24
Biden ætlar að herða reglur um útblástur bíla Ríkisstjórn Joes Biden Bandaríkjaforseta ætlar að endurvekja reglur um útblástur bifreiða sem Donald Trump, forveri hans í embætti, veikti í stjórnartíð sinni. Reglurnar verða hertar enn frekar í framtíðinni til að ýta undir orkuskipti í vegasamgögnum. Erlent 5.8.2021 23:02
Undirbúa endurbólusetningu viðkvæmra hópa Bandarísk sóttvarnayfirvöld undirbúa nú endurbólusetningu fólks með skerta ónæmiskerfisstarfsemi eins fljótt og hægt er. Kórónuveirusmitum fjölgar nú ört vestanhafs eins og víða annars staðar. Erlent 5.8.2021 21:42
Ákvað að flýja eftir varnaðarorð ömmu sinnar Hvítrússneski spretthlauparinn Krystina Tsimanouskaja ákvað að snúa ekki aftur til heimalandsins þegar hún var á leiðinni á flugvöll í Tókýó eftir að amma hennar varaði hana við henni væri ekki óhætt að snúa heim. Erlent 5.8.2021 18:48
Nýr forseti sór embættiseið í Íran Harðlínuklerkurinn Ebrahim Raisi sór embættiseið sem nýr forseti Írans í dag. Hann tekur við embættinu af Hassan Rouhani sem þótti hófsamur á íranskan mælikvarða. Erlent 5.8.2021 17:46
Leiðtogi einna öflugustu glæpasamtaka Evrópu handtekinn á Spáni Domenico Paviglianiti, leiðtogi ´Ndrangheta glæpasamtakanna á Ítalíu var handtekinn á Spáni á þriðjudaginn. Hann hafði verið á flótta í rúm tvö ár og var handtekinn í sameiginlegri aðgerð lögreglunnar á Ítalíu og Spáni. Erlent 5.8.2021 15:54
Vistaður í tæp þrjú ár á geðdeild eftir að lögreglan fór mannavillt Heimilislaus maður sem handtekinn var fyrir mistök, varði nærri því þremur árum á geðdeild, þar sem hann var þvingaður til að taka lyf. Lögreglan á Havaí reyndi svo að hylma yfir málið og sleppa honum á laun. Erlent 5.8.2021 13:28
Náðu naumlega að bjarga fornum Ólympíuleikvangi frá gróðureldum Miklir gróðureldar hafa brunnið í Tyrklandi og Grikklandi undanfarna daga og hafa þúsundir þurft að yfirgefa heimili sín. Minnst átta hafa farist í eldunum í Tyrklandi síðan eldarnir hófust í síðustu viku og þúsundir hektara hafa orðið eldunum að bráð. Erlent 5.8.2021 10:44
Enn fleiri sjálfstæðum fjölmiðlum lokað í Rússlandi Tveimur rússneskum fjölmiðlum hefur verið lokað af yfirvöldum landsins. Þar er um að ræða fréttavefina Otrkytye Media og MBKh Media, auk þess sem hjálparsamtökunum Otkrytki hefur einnig verið lokað. Erlent 5.8.2021 10:36
Geimfari fangaði það þegar eining geimstöðvarinnar brann upp í gufuhvolfinu Geimfarinn Thomas Pesquet birti í vikunni myndband sem hann tók af því þegar gömul eining Alþjóðlegu geimstöðvarinnar var látin brenna upp í gufuhvolfi jarðarinnar. Pesquet lýsti því sem flugeldasýningu. Erlent 5.8.2021 09:44
Krefjast rannsóknar á notkun ráðherra á samskiptamiðlum Breski Verkamannaflokkurinn hefur kallað eftir rannsókn á notkun ráðherra á samskiptaforritum á borð við WhatsApp eftir að í ljós kom að undirráðherra í heilbrigðisráðuneytinu skipti um síma áður en rannsókn hófst á samskiptum hans. Erlent 5.8.2021 07:46
Eiturblöndur valda tvöfalt meiri dauða meðal býflugna Vísindamenn hafa komist að því að skordýraeiturblöndur geta valdið tvöfalt meiri dauða meðal býflugna en áður var talið. Þeir leggja til að haldið sé áfram að hafa eftirlit með notkun slíkra kokteila eftir að notkun þeirra hefur verið heimiluð. Erlent 5.8.2021 07:10
Bólusetning skilyrði fyrir ferðalögum til Bandaríkjanna Bandarísk stjórnvöld íhuga nú að gera bólusetningu gegn Covid-19 að skilyrði fyrir flesta erlenda ferðalanga sem þangað koma. Ferðalög erlendra ferðamanna til Bandaríkjanna eru enn verulega takmörkuð vegna faraldursins. Erlent 4.8.2021 23:32
Stjórnvöld í Japan opinbera nöfn þeirra sem brjóta sóttvarnareglur Japönsk stjórnvöld birtu á mánudag nöfn þriggja einstaklinga sem eru sakaðir um að hafa brotið gegn sóttkvíarskyldu við komuna til landsins. Samkvæmt gildandi reglum þurfa allir farþegar sem koma erlendis frá að sæta tveggja vikna sóttkví og nær það einnig til japanskra ríkisborgara. Erlent 4.8.2021 19:28
WHO hvetur til að beðið verði með endurbólusetningar Forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar vill að þjóðir heims fresti því að endurbólusetja þegna sína gegn Covid-19 til þess að tryggja framboð á bóluefni fyrir lönd þar sem fáir hafa fengið fyrsta skammt ennþá. Erlent 4.8.2021 17:39
Þrjú látin eftir lestarslys í Tékklandi Tvær lestir rákust saman í dag nálægt tékkneska bænum Pilsen. Þrjú eru látin og sex eru í lífshættu. Tékknesk yfirvöld kenna mannlegum mistökum um. Erlent 4.8.2021 17:10
Mexíkóar ætla að höfða mál gegn byssuframleiðendum í Bandaríkjunum Ríkisstjórn Mexíkó ætlar að höfða mál gegn byssuframleiðendum í Bandaríkjunum vegna þess hve mörg skotvopn berast ólöglega frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Lögsóknin beinist ekki gegn yfirvöldum Bandaríkjanna. Erlent 4.8.2021 16:51
Einni og hálfri milljón manna skipað að halda sig heima vegna nítján smitaðra Íbúum borgarinnar Zhangjiajie í Kína hefur verið meinað að yfirgefa heimili sín vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Um 1,5 milljón manna búa í borginni sem er einni vinsæll ferðamannastaður. Erlent 4.8.2021 14:45
Reyndu að myrða varnarmálaráðherrann og heita fleiri árásum á leiðtoga Talibanar gerðu í gær bíræfna tilraun til að ráða varnarmálaráðherra Afganistans af dögum og heita frekari árásum á leiðtoga ríkisstjórnar landsins. Bismillah Khan Mohammadi, ráðherrann, var ekki heima og verðir fluttu fjölskyldu hans á brott. Erlent 4.8.2021 11:01