Erlent
Sýrlendingar vilja rannsaka morðið á Hariri Sýrlensk stjórnvöld segjast reiðubúin að hefja eigin rannsókn á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar hafna þau rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu og segja hana ekki hlutlausa. Erlent 26.10.2005 11:00
Skera upp herör gegn grimmilegri meðferð á dýrum Yfirvöld í Róm á Ítalíu hafa skorið upp herör gegn kærulausum gæludýraeigendum og -seljendum og hafa sett margs konar reglur til þess að koma í veg fyrir grimmilega meðferð á dýrum. Erlent 26.10.2005 09:45
Vinsældir Bush minnka Fimmtíu og fimm prósent Bandaríkjamanna myndu kjósa Demókrata ef gengið yrði til kosinga nú. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar Gallup, CNN og dagblaðsins USA Today. Erlent 26.10.2005 08:30
Segir margar ríkar þjóðir hafa brugðist Margar af ríkustu þjóðum heims hafa brugðist þegar kemur að því að aðstoða fórnarlömb jarðskjálftans í Suður-Asíu sem varð fyrir tæpum þremur vikum. Þetta segja bresku hjálparsamtökin Oxfam og benda á að einungis hafi fengist loforð fyrir þriðjungi þess fjár sem Sameinuðu þjóðirnar hafa farið fram á vegna hamfaranna. Erlent 26.10.2005 08:30
Grunur um fuglaflensu á Indlandi Yfirvöld á Indlandi hafa sent blóðsýni úr farfuglum sem fundist hafa dauðir í vesturhluta Bengal-skóganna síðustu vikuna til rannsókna vegna gruns um fuglaflensu. Erlent 26.10.2005 08:15
Segja tengsl milli messusóknar og auðæfa Það að sækja trúarlegar athafnir getur ekki aðeins göfgað sálina heldur einnig stuðlað að ríkidæmi. Erlent 26.10.2005 08:00
Norðmenn græða á fuglaflensu Fuglaflensa leiðir ekki aðeins til útgjalda fyrir ríki heims. Norðmenn hafa komist að raun um að það er líka hægt að græða á óttanum við fuglaflensu. Erlent 26.10.2005 07:45
Sagður hafa logið að þingnefnd Breski þingmaðurinn George Galloway þverneitar að hafa borið ljúgvitni fyrir bandarískri þingnefnd síðastliðið vor, eins og nýjar upplýsingar eru sagðar benda til að hann hafi gert. Erlent 26.10.2005 07:39
Greinist á enn fleiri stöðum Enn á ný hefur fuglaflensa greinst í Kína, að þessu sinni í rúmlega fimm hundruð öndum og kjúklingum í Hunan-héraði. Yfirvöld þar hafa fargað tvö þúsund og fimm hundruð fuglum í varúðarskyni. Erlent 26.10.2005 07:30
Ísraelsher skýtur á Gasa Ísraelski herinn skaut í morgun úr flugvélum og af jörðu niðri á svæði á norðanverðri Gasaströndinni, þaðan sem herskáir Palestínumenn skutu í nótt flugskeytum að borginni Sderot í Ísrael. Ekki er vitað til þess að neinn hafi fallið í valinn. Erlent 26.10.2005 07:11
Áfengissýki norskra ungmenna eykst Norsk ungmenni hafa tvöfaldað áfengisneyslu sína síðustu árin og fjórðungi fleiri ungmenni eiga við áfengisvandamál að stríða nú en fyrir fimm árum. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem norska heilbrigðisráðuneytið hefur tekið saman og norska Ríkisútvarpið greinir frá. Erlent 26.10.2005 06:50
Lægstu framlögin frá Íslandi Carsten Hansen, þingmaður danskra jafnaðarmanna, gagnrýndi íslensk stjórnvöld í upphafi umræðna á þingi Norðurlandaráðs fyrir lítil framlög til þróunaraðstoðar. Hann spurði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hvort og þá hvenær þróunaraðstoð Íslendinga yrði viðlíka mikil hlutfallslega og hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Erlent 26.10.2005 06:45
Konan sem hleypti lífi í réttindabaráttu blökkumanna Rosa Parks, konan sem hleypti lífi í réttindabaráttu blökkumanna með því að neita að standa upp fyrir hvítum manni í strætisvagni í Montgomery í Alabama, lést í hárri elli í fyrrakvöld. Erlent 26.10.2005 06:15
Heilagt stríð hótar hefndum Ísraelskar hersveitir skutu Luay Saadi, yfirmann hernaðararms samtakanna Heilagt stríð, og náinn samstarfsmann hans til bana í flóttamannabúðum í Tulkarem á Vesturbakkanum um helgina. Yfirmaður Ísraelshers á svæðinu sagði að Saadi hefði staðið fyrir nokkrum árásum undanfarna mánuði sem tólf Ísraelar hefðu látið lífið í og hann væri auk þess grunaður um að hyggja á frekari tilræði. Talsmaður Heilags stríðs hótaði grimmilegum hefndum vegna drápsins. Erlent 26.10.2005 04:45
Íslenskar konur í fréttum í Katar Fjölmiðlar í löndum jafn fjarri okkur og Ástralíu og Katar við Persaflóa sögðu fréttir af kvennafrídeginum á Íslandi. Gulf Times í Katar og The Australian, stærsta dagblað Ástralíu, sögðu frá því að tugþúsundir íslenskra kvenna hefðu yfirgefið störf sín til þess að mótmæla kynbundnum launamuni í landinu. Erlent 26.10.2005 04:15
Galloway fékk fé frá Írökum Bandarísk þingnefnd hefur sakað breska þingmanninn George Galloway um að hafa logið að sér þegar hann staðhæfði eiðsvarinn fyrr á þessu ári að hann hefði engar greiðslur fengið í tengslum við olíusöluáætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak. Erlent 26.10.2005 03:45
Gruna friðargæsluliða um nauðganir Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kosovo sæta nú rannsókn vegna ásakana um nauðganir, spillingu og mútuþægni. Íslenskir hermenn sáu um rekstur flugvallarins í Pristina og enn eru vopnaðir Íslendingar þar að störfum. Erlent 26.10.2005 03:30
Rússnesk skip gripin á ný Norska strandgæslan stöðvaði um helgina umskipun afla úr rússneskum togara yfir í flutningaskip nærri Bjarnarey í Barentshafi. Norðmenn gera tilkall til hafsvæðisins sem skipin voru á enda þótt það sé utan efnahagslögsögu þeirra. Erlent 26.10.2005 02:45
Tvíburar með töglin og hagldirnar Stjórnarmyndunarviðræður eru hafnar á ný í Póllandi eftir að Lech Kaczynski var kjörinn forseti um helgina. Sigur Kaczynskis styrkir mjög stöðu flokks hans í viðræðunum. Endanleg niðurstaða kosninganna liggur fyrir og hlaut Kaczynski 54 prósent atkvæða en Donald Tusk, keppinautur hans, 46 prósent. Erlent 26.10.2005 02:45
Með einkarétt á fetaosti Hvað er „feta"? Ostur, en meira en það. Evrópudómstóllinn úrskurðaði í dag að feta væri nánar til tekið saltur, grískur ostur gerður úr blöndu af kúa- og geitamjólk. Erlent 25.10.2005 20:30
60 grindhvalir syntu upp á land Nærri sextíu grindhvalir syntu upp á land á ströndum Tasmaníu í gær. Björgunarmenn þustu á staðinn en þeir náðu aðeins að bjarga tíu hvöldum. Erlent 25.10.2005 20:00
Stjórnarskrá samþykkt í skugga voðverka Al-Qaeda lýsti í dag ábyrgð á sprengjuárásunum á hótel í Bagdad í gær. Í miðju skot- og sprengjuárása í dag var greint frá því að mikill meirihluti Íraka hefði samþykkt nýja stjórnarskrá. Erlent 25.10.2005 18:53
Tæplega þúsund fangar teknir af lífi á 29 árum Fjöldi þeirra sem teknir hafa verið af lífi í Bandaríkjunum síðan dauðarefsingin var tekin upp þar að nýju á áttunda áratugnum nálgast nú eitt þúsund. Í dag var 48 ára gamall maður, Willie "Flip" Williams að nafni, sem dæmdur var fyrir morð á fjórum mönnum og eiturlyfjasölu, tekinn af lífi með banvænni sprautu í Ohio-ríki. Erlent 25.10.2005 17:24
34 hjálparstarfsmenn í haldi Flótamenn í Darfur héraði í Súdan hafa tekið þrjatíu og fjóra hjálparstarfsmenn í gíslingu í stærstu flóttamannabúðunum í Darfúr. Flóttamennirnir krefjast þess að einn af leiðtogum þeirra sem var nýverið handtekinn, verði látinn laus. Erlent 25.10.2005 13:12
Stjórnarskráin samþykkt Stjórnarskrá Íraks hefur verið samþykkt. Endanlegar tölur úr þjóðaratkvæðagreiðslu bárust nú rétt fyrir hádegi og samþykktu tæplega áttatíu prósent Íraka stjórnarskrána. Erlent 25.10.2005 11:50
Tamiflu nánast uppselt í Danmörku Ótti Dana við fuglaflensu er slíkur að nú er inflúensulyfið Tamiflu nánast uppselt í apótekum og hjá heildsölum í landinu. Sala á lyfinu jókst mikið í síðasta mánuði og hefur einnig aukist í þessum í kjölfar frétta af því að hin banvæni H5N1-stofn veirunnar hafi greinst í fuglum í Austur-Evrópu. Erlent 25.10.2005 10:00
Meira en helmingur fórnarlamba yfir sextugu Meira en helmingur þeirra sem létust af völdum fellibylsins Katrínar voru yfir sextugu. Nýjar tölur frá heilbrigðisyfirvöldum í Louisiana benda til að langflest fórnarlömb fellibylsins hafi verið eldri borgarar sem ýmist gátu ekki eða vildu ekki yfirgefa heimili sín. Erlent 25.10.2005 09:45
Skotið á herskáa Palestínumenn Ísraelsk herþota skaut í morgun sprengjum að vígi herskárra Palestínumanna í borginni Beit Hanoun á Gaza. Hópur sem tengist Fatah-hreyfingunni heldur til í byggingunni en enginn virðist hafa slasast í árásunum. Erlent 25.10.2005 09:00
Ben Bernanke tilnefndur sem seðlabankastjóri BNA George Bush Bandaríkjaforseti tilnefndi í gær Ben Bernanke, ráðgjafa í Hvíta húsinu, sem næsta seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Bernanke er ætlað að taka við af Alan Greenspan sem hættir snemma á næsta ári eftir ríflega 18 ár í starfi seðlabankastjóra. Erlent 25.10.2005 08:30
Sex borgarar drepnir í Afganistan Afganskir uppreisnarmenn drápu sex óbreytta borgara seint í gærkvöldi í árás sem beindist að bandarískum herjeppa. Árásin mistókst og hermennirnir sluppu allir ómeiddir. Bíll sem átti leið hjá varð hins vegar fyrir skoti úr sprengjuvörpu með þeim afleiðingum að allir farþegarnir sex létust. Erlent 25.10.2005 08:15