Erlent Rice varar Norður-Kóreu við Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ef Norður-Kórea framkvæmdi aðra tilraunasprengingu á kjarnavopnum, væri landið að auka enn á einangrun sína í alþjóðakerfinu. Erlent 5.1.2007 19:14 Offitulyf fyrir hunda komið á markað Matvælaeftirlit Bandaríkjanna hefur leyft offitulyf fyrir hunda en það virkar á þann hátt að það dregur úr matarlyst og upptöku líkamans á fitu. Lyfið, sem heitir Slentrol, á að hjálpa þeim bandarísku hundum sem glíma við offitu en talið er að um fimm prósent þeirra eigi við vandann að stríða. Erlent 5.1.2007 18:12 Litvinenko sakaður um fjárkúgun Alexander Litvinenko, fyrrum njósnari sem var eitrað fyrir í Lundúnum í nóvember síðastliðnum, ætlaði sér að fjárkúga rússneskan auðkýfing sem búsettur er í Lundúnum. Þetta fullyrti vinkona hans í samtali við fréttaþáttinn sextíu mínútur en hann verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn kemur. Erlent 5.1.2007 17:43 Frelsaður eftir sex ár í gíslingu Fyrrum ráðherra í Kólumbíu, sem hefur verið í haldi mannræningja í sex ár, tókst í dag að komast undan þeim eftir björgunaraðgerðir kólumbíska hersins. Talið er að tugir uppreisnarmanna í FARC hafi látið lífið í aðgerðunum. Erlent 5.1.2007 17:32 Litla moskan á sléttunni Framleiðendur nýrra gamanþátta fyrir sjónvarp, í Kanada , bíða spenntir eftir að sjá hver viðbrögðin verða við þáttunum. Þáttaröðin heitir "Litla moskan á sléttunni," og fjallar um hóp múslima sem setjast að í kristnum smábæ í Kanada, og samskiptum þessara tveggja hópa. Erlent 5.1.2007 16:45 VRÚÚMMMMM Erlent 5.1.2007 16:00 Bush tilnefnir Negroponte sem varautanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Mike McConnel, fyrrverandi yfirmann Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, sem nýjan yfirmann leyniþjónustustofnana landsins. Hann tekur við af John Negroponte sem verður varautanríkisráðherra og því staðgengill Condoleezu Rice. Erlent 5.1.2007 15:35 Amazon-geimfar á loft Miljarðamæringurinn Jeff Bezos sem stofnaði Amazon.com hefur skotið geimfari á loft. Geimfarið flaug 85 metra upp í loftið og lenti aftur mjúklega. Erlent 5.1.2007 15:00 Snyrtilegi pissuskálaþjófurinn Breska lögreglan leitar nú að manni sem stal pissuskálinni af Royal Oak pöbbinum í Southampton. Maðurinn kom þar inn, pantaði sér hálfpott af bjór og fór nokkrar ferðir á klósettið. Á öryggismyndavél sést hann svo troða skálinni í bakpoka sinn og fara með hana út. Erlent 5.1.2007 14:32 Höfrungar vernduðu sundmenn fyrir hákarli Höfrungavaða verndaði fjóra sundmenn fyrir stórum hvítum hákarli, undan ströndum Nýja Sjálands, á dögunum. Mennirnir voru strandverðir, sem voru á æfingasundi um eitthundrað metra frá landi, þegar hákarlinn kom aðvífandi. Erlent 5.1.2007 14:25 Erkibiskup Varsjár var njósnari kommúnista Kaþólska kirkjan í Póllandi segir að erkibiskupinn í Varsjá, sem Benedikt páfi skipaði í embætti í síðasta mánuði, hefði um tuttugu ára skeið verið njósnari fyrir leyniþjónustu kommúnistastjórnar landsins. Óvíst er hvort hann verður vígður í embættið, á sunnudag. Erlent 5.1.2007 14:00 Íranskir leyniþjónustumenn í Írak Erlent 5.1.2007 13:37 Krókódílaveiðimaður ekki á netið Erlent 5.1.2007 13:28
Rice varar Norður-Kóreu við Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að ef Norður-Kórea framkvæmdi aðra tilraunasprengingu á kjarnavopnum, væri landið að auka enn á einangrun sína í alþjóðakerfinu. Erlent 5.1.2007 19:14
Offitulyf fyrir hunda komið á markað Matvælaeftirlit Bandaríkjanna hefur leyft offitulyf fyrir hunda en það virkar á þann hátt að það dregur úr matarlyst og upptöku líkamans á fitu. Lyfið, sem heitir Slentrol, á að hjálpa þeim bandarísku hundum sem glíma við offitu en talið er að um fimm prósent þeirra eigi við vandann að stríða. Erlent 5.1.2007 18:12
Litvinenko sakaður um fjárkúgun Alexander Litvinenko, fyrrum njósnari sem var eitrað fyrir í Lundúnum í nóvember síðastliðnum, ætlaði sér að fjárkúga rússneskan auðkýfing sem búsettur er í Lundúnum. Þetta fullyrti vinkona hans í samtali við fréttaþáttinn sextíu mínútur en hann verður sýndur í Bandaríkjunum á sunnudaginn kemur. Erlent 5.1.2007 17:43
Frelsaður eftir sex ár í gíslingu Fyrrum ráðherra í Kólumbíu, sem hefur verið í haldi mannræningja í sex ár, tókst í dag að komast undan þeim eftir björgunaraðgerðir kólumbíska hersins. Talið er að tugir uppreisnarmanna í FARC hafi látið lífið í aðgerðunum. Erlent 5.1.2007 17:32
Litla moskan á sléttunni Framleiðendur nýrra gamanþátta fyrir sjónvarp, í Kanada , bíða spenntir eftir að sjá hver viðbrögðin verða við þáttunum. Þáttaröðin heitir "Litla moskan á sléttunni," og fjallar um hóp múslima sem setjast að í kristnum smábæ í Kanada, og samskiptum þessara tveggja hópa. Erlent 5.1.2007 16:45
Bush tilnefnir Negroponte sem varautanríkisráðherra George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Mike McConnel, fyrrverandi yfirmann Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna, sem nýjan yfirmann leyniþjónustustofnana landsins. Hann tekur við af John Negroponte sem verður varautanríkisráðherra og því staðgengill Condoleezu Rice. Erlent 5.1.2007 15:35
Amazon-geimfar á loft Miljarðamæringurinn Jeff Bezos sem stofnaði Amazon.com hefur skotið geimfari á loft. Geimfarið flaug 85 metra upp í loftið og lenti aftur mjúklega. Erlent 5.1.2007 15:00
Snyrtilegi pissuskálaþjófurinn Breska lögreglan leitar nú að manni sem stal pissuskálinni af Royal Oak pöbbinum í Southampton. Maðurinn kom þar inn, pantaði sér hálfpott af bjór og fór nokkrar ferðir á klósettið. Á öryggismyndavél sést hann svo troða skálinni í bakpoka sinn og fara með hana út. Erlent 5.1.2007 14:32
Höfrungar vernduðu sundmenn fyrir hákarli Höfrungavaða verndaði fjóra sundmenn fyrir stórum hvítum hákarli, undan ströndum Nýja Sjálands, á dögunum. Mennirnir voru strandverðir, sem voru á æfingasundi um eitthundrað metra frá landi, þegar hákarlinn kom aðvífandi. Erlent 5.1.2007 14:25
Erkibiskup Varsjár var njósnari kommúnista Kaþólska kirkjan í Póllandi segir að erkibiskupinn í Varsjá, sem Benedikt páfi skipaði í embætti í síðasta mánuði, hefði um tuttugu ára skeið verið njósnari fyrir leyniþjónustu kommúnistastjórnar landsins. Óvíst er hvort hann verður vígður í embættið, á sunnudag. Erlent 5.1.2007 14:00
Þær berrössuðu unnu Nektardans hefur verið opinberlega viðurkenndur sem listform, í Noregi og fjármálaráðherra landsins er ekki skemmt. Hún ætlar að heimta af þessu skatt, hvað sem það kostar. Erlent 5.1.2007 13:21
Varar við áframhaldandi hættu á fuglaflensufaraldri Margaret Chan, nýr forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, segir fuglaflensu enn vera ógn við mannkyn þrátt fyrir að lítið hafi frést af fuglaflensutilvikum undanfarna mánuði. Erlent 5.1.2007 13:17
Verðlækkanir hérlendis ólíklegar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið undanfarna daga og hefur ekki verið lægra í hálft annað ár. Talsmenn íslensku olíufélaganna segja ólíklegt að eldsneytisverð lækki hér á landi á næstunni vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Erlent 5.1.2007 12:04
Leikjatölva drepur dreng Sjö ára drengur frá Englandi fékk banvænt raflost á laugardaginn þegar hann var að hlaða Game Boy leikjatölvuna sína. Drengurinn var í fríi með foreldrum sínum í Pukhet í Thailandi og hafði fengið leikjatölvuna í jólagjöf. Hann var að taka hana úr sambandi við hleðslutæki sem móðir hans hafði keypt í Thailandi þegar hann fékk straum og lést. Erlent 5.1.2007 11:54
Pyntingarmál í Afganistan skekja dönsk stjórnmál Komið hefur í ljós að pyntingar fóru fram í fangabúðum í Kanadahar í Afganistan þar sem fangar ,sem danskir hermenn afhentu bandarískum starfsbræðrum sínum í mars 2002, dvöldu. Frá þessu er greint á vef Politiken. Erlent 5.1.2007 11:47
Leitarsvæðið stækkað Yfirvöld á Indónesíu hafa stækkað leitarsvæðið í kringum Sulawesi-eyju þar sem leitað er að flugvél sem hvarf í óveðri á nýársdag. Hundrað og tólf manns voru um borð í flugvélinni þegar hún hvarf. Neyðarkall barst frá vélinni en engar vísbendingar eru um að vélarbilun hafi orðið. Erlent 5.1.2007 11:06
Mér var kalt, hikk Bæjarfulltrúi í Nuuk á Grænlandi hefur verið úrskurðuð óverðug þess að sitja í bæjarstjórninni eftir að hún braust inn í hótel í bænum Sisiamiut, í janúar á síðasta ári. Jensína Berthelsen sagði sér til varnar, fyrir rétti, að henni hefði verið kalt, og að hótelið hefði verið læst. Hún hefði því ekki átt annarra kosta völ en að brjótast inn. Erlent 5.1.2007 11:02
Zawahri hvetur hryðjuverkasveitir Eþíópíumanna til baráttu Ayman al-Zawahri, næstráðandi í al-Kaída hryðjuverkanetinu, hvatti í morgun sómalska íslamista til að berjast gegn hersveitum Eþíópíumanna með oddi og egg. Erlent 5.1.2007 10:56
Öryggisfulltrúi drepinn á Gaza Háttsettur palestínskur öryggisfulltrúi var drepinn í gær þegar meðlimir Hamas-samtakanna réðust á hús hans. Öryggisfulltrúinn var tengdur Fatha-hreyfingunni og er dauði hans til marks um þá ólgu sem ríkir á svæðinu. Erlent 5.1.2007 08:28
Fuglaflensan enn ógn Nýr yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar varar við því að fuglaflensan sé enn ógn og að hættan á að hún breiðist út sé til staðar. Erlent 5.1.2007 08:15
Bensínverð mun líklega lækka Bensínverð mun að öllum líkindum lækka á næstunni hér á landi, eftir mikla lækkun á heimsmarkaði. Á tveimur dögum hefur heimsmarkaðsverð á olíu lækkað um níu prósent og er nú 55 til 56 dollarar á tunnu. Erlent 5.1.2007 08:00
Bush hefði viljað meiri virðingu yfir aftöku Saddam Bush Bandaríkjaforseti hefði viljað að meiri virðing hefði verið yfir aftöku Saddam Hussein. Bush lét þessi orð falla á blaðamannafundi í Þýskalandi þar sem hann fundar nú með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Erlent 5.1.2007 07:30
Demókratar fögnuðu Peloci Demókratar fögnuðu í gær þegar þingkona þeirra Nancy Peloci varð fyrsta konan til að verða kjörin forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Peloci sagði samvinnu beggja aðila á þinginu mikilvæga og kjör hennar mikilvægan þátt í baráttu kvenna fyrir réttindum sínum. Erlent 5.1.2007 07:02
Börn hengdu sig eftir aftöku Saddams Grunur leikur á að aftaka Saddams Hússeins og myndskeið sem birt hefur verið af hengingunni hafi valdið því að þrjú börn og unglingar hafa hengt sig í vikunni. Talið er að tvö barnanna hafi einungis verið að leik með þessum hræðilegu afleiðingum en þriðja stúlkan, á táningsaldri, varð harmþrungin við dauða Saddams og vildi fylgja honum. Erlent 4.1.2007 22:18
Rúmið hrundi í miðri fæðingu Þriggja barna móðir hefur lagt fram kvörtun til fæðingardeildar í Leeds eftir að rúm sem hún lá í hrundi í miðjum klíðum - í miðjum hríðum. Linda Makin segir að hún, barnið hennar nýfætt og ljósmóðirin hafi legið "í kássu" á gólfinu eftir að rúmið brast. Erlent 4.1.2007 21:57
Peretz hugsanlega á förum Ísraelsk sjónvarpsstöð hefur eftir heimildum á skrifstofu forsætisráðherrans Olmerts að Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraels verði senn færður til í starfi og ef hann þiggi ekki annað ráðherraembætti þá verði hann rekinn. Skrifstofa Olmerts segir sögusagnirnar hins vegar tilhæfulausar. Erlent 4.1.2007 20:59
Olmert biðst afsökunar á drápunum Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, baðst í kvöld afsökunar á því að fjórir Palestínumenn létust í hernaðaraðgerð Ísraelsmanna í Ramallah á Vesturbakkanum í dag. Hermenn á skriðdrekum og jarðýtum réðust inn í bæinn til þess að handtaka grunaða hryðjuverkamenn. Fjórir létust og 20 slösuðust en hermennirnir handtóku fjóra. Erlent 4.1.2007 20:07