Erlent
Þjóðernissinnar með flest atkvæði í Serbíu Flokkur þjóðernissinnaðra Serba er sigurvegari þingkosninga í landinu með 29% atkvæða. 62% af 6,6 milljón kjósendum skiluðu inn atkvæði, enda var mikill áhugi fyrir kosningunum. Eins og spáð var hlaut enginn einn flokkur eða kosningabandalag hreinan meirihluta, því verður að mynda samsteypustjórn í landinu. Erlent 22.1.2007 06:31
Lifði af tveggja daga ísskápsvist Bandarískum hjónum brá heldur betur í brún þegar þau opnuðu ísskáp sinn í gær og sunnudagssteikin kom fljúgandi á móti þeim. Þar var á ferðinni önd sem húsbóndinn hafði skotið tveimur dögum áður. Erlent 21.1.2007 19:00
Ótti um mengunarslys í Devon Bresk yfirvöld óttast mengunarslys við suðvesturströnd Englands eftir að flutningaskipið Napoli strandaði þar. Skipið skemmdist í óveðrinu sem gekk yfir Evrópu fyrir helgi og því var ákveðið að sigla því í strand. Erlent 21.1.2007 18:45
Abbas og Mashaal hittast í dag Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, og Khaled Mashaal, leiðtoga Hamas-samtakanna ætla að hittast í Damaskus í Sýrlandi í dag. Þetta fullyrðir Saeb Erekat, náinn ráðgjafi Abbasar. Erlent 21.1.2007 12:30
Samsteypustjórn líklegust Þingkosningar fara fram í Serbíu í dag, þær fyrstu frá því að leiðir skildu með Serbum og Svartfellingum á síðasta ári. Sex og hálf milljón manna er á kjörskrá og stendur slagurinn á milli flokka sem aðhyllast nánari samband við nágrannalöndin í Evrópu og flokka þjóðernissinna. Erlent 21.1.2007 10:30
Viðurkenndi morðið á Dink Sautján ára atvinnulaus piltur frá borginni Trabzon hefur viðurkennt að hafa skotið tyrkneska blaðamanninn Hrant Dink til bana í Istanbul í fyrradag. Erlent 21.1.2007 10:00
Hillary Clinton vinsælust frambjóðenda Hillary Clinton, fyrrum forsetafrú, er með umtalsvert forskot á keppinauta sína í keppninni um útnefningu frambjóðanda demókrataflokksins til forsetakosninganna 2008. Hillary tilkynnti formlega um framboð sitt í dag. Í könnun Washington Post og ABC News, sem birt var í dag er Hillary með 41% fylgi, Barack Obama með 17% og John Edwards með 11%. Erlent 20.1.2007 21:31
Lögreglan í Bretlandi ber kennsl á grunaðan morðingja Litvinenkos Lögreglan í Bretlandi hefur borið kennsl á manninn sem þeir telja að hafi byrlað Alexander Litvinenko eitur, að sögn The Times. Mynd náðist af grunuðum morðingja á eftirlitsmyndavélar á Heathrow flugvelli þegar hann kom til landsins frá Hamborg 1. nóvember til að framkvæma morðið. Vinir njósnarans fyrrverandi segja að hér hafi verið á ferð leigmorðingi: Hann hafi verið ráðinn til verksins af ráðamönnum í Kreml, og svo horfið jafnskjótt og hann hafði byrlað Litvinenko banvænan skammt af polonium-210, geislavirku efni, á í tebolla á hótelherbergi í London. Erlent 20.1.2007 21:15
Hlakkar til að mæta Attenborough Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra er óhræddur við herferð breskra stjórnvalda gegn hvalveiðum Íslendinga, en verndarar hennar eru Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og sjónvarpsmaðurinn David Attenborough. Hann óttast aftur á móti að aðgerðir Bretanna muni ganga af Alþjóðahvalveiðiráðinu dauðu. Erlent 20.1.2007 19:15
Hillary Clinton tilkynnir framboð sitt til forseta Hillary Clinton öldungadeildarþingmaður og fyrrverandi forsetafrú hefur tilkynnt framboð sitt til forseta Bandaríkjanna. Hún tók fyrr í dag fyrsta skrefið í áttina að framboði í forsetakosningunum 2008 þegar hún tilkynnti á vefsíðu sinni að hún hefði sett á fót nefnd sem heimilar henni að safna fé til framboðsins. Í yfirlýsingunni segist Clinton ætla að spila til sigurs því kominn sé tími til að binda enda á valdatíð Bush-stjórnarinnar. Clinton er sögð eiga allgóða möguleika á að ná kjöri og ef sú verður raunin yrði hún fyrst kvenna til að gegna þessu valdamesta embætti heims. Erlent 20.1.2007 17:18
Elsta kona heims látin Elsta kona í heimi, Julie Winnefred Bertrand, andaðist í gær á elliheimili í Montreal í Kanada 115 ára að aldri. Hún fæddist 16. september 1891. Erlent 20.1.2007 11:30
Tilraunirnar vekja ugg Tilraunir Kínverja til að skjóta niður gervihnött með stýriflaug hefur litla ánægju vakið á Vesturlöndum. Gervihnötturinn sem var grandað var gamall veðurathugnarhnöttur en hann var í svipaðri hæð og bandarískir njósnahnettir og því virðist tilrauninni beint gegn þeim. Erlent 20.1.2007 11:00
Stjórn olíunnar í Bagdad Lagafrumvarp sem veitir ríkisstjórninni í Bagdad yfirráð yfir olíulindum Íraks er nánast tilbúið og bíður einungis samþykkis ríkisstjórnar og þings. Þetta er fullyrt í stórblaðinu New York Times í dag. Erlent 20.1.2007 10:30
Leiðtogi Abu Sayyaf fallinn DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að Khaddafy Janjalani, leiðtogi filippeysku skæruliðasamtakanna Abu Sayyaf, er látinn. Lík hans fannst á Jolo-eyju á dögunum og er talið að hann hafi fallið í skotbardaga einhvern tímann í fyrrahaust. Erlent 20.1.2007 09:58
Blæjustúlkur á forsíðu Múslimastúlkur í Bandaríkjunum hafa nú fengið glanstímarit þar sem blæjuburður er skilyrði fyrir því að komast á forsíðuna. Muslim Girl Magazine miðar, eins og nafnið gefur til kynna, á múslimskar táningsstúlkur sem markhóp. Reynslusögurnar í tímaritinu lúta flestar að því hvernig er að vera múslimi í Bandaríkjunum í dag. Erlent 19.1.2007 23:37
Egypsk kona látin úr fuglaflensu Egypsk kona lést í dag úr fuglaflensu eftir sex daga sjúkrahúsvist. Warda Eid Ahmed var 27 ára en hún var talin vera með lungnabólgu þegar hún var flutt á landssjúkrahúsið í Kaíró. Warda er ellefti Egyptinn sem deyr úr fuglaflensu. 19 hafa veikst af sjúkdómnum síðan í febrúar á síðasta ári en 8 hafa náð sér aftur. Erlent 19.1.2007 22:24
Mega bera kross um hálsinn Starfsmönnum British Airways er nú aftur heimilt að bera kross eða önnur trúartákn í keðju um hálsinn utan klæða. Áður máttu krossar ekki sjást, jafnvel þó að höfuðblæjur múslimakvenna og túrbanar hafi verið leyfilegir. Erlent 19.1.2007 22:04
Rekin úr Big brother vegna rasisma Breska sjónvarpsstjarnan Jade Goody, sem sökuð hefur verið um kynþáttahatur og einelti, var send heim úr breska raunveruleikasjónvarpsþættinum Big brother í kvöld. Legið hefur við milliríkjadeilum vegna áreitni hennar og rifrilda við indverska kvikmyndaleikkonu í þættinum. Erlent 19.1.2007 21:41
Minnismerkið um óþekktu vændiskonuna Rauðljósahverfið í Amsterdam mun bæta fjöður í hatt sinn á næstunni: til stendur að reisa þar styttu til heiðurs vændiskonum um víða veröld. Styttan verður líkast til afhjúpuð í lok mars. Erlent 19.1.2007 19:51
66 manns saknað eftir ferjuslys á Indlandi Óttast er um 66 manns á Suður-Indlandi eftir að ferja sökk á leið sinni yfir stórfljót. Fólkið var flest á leið heim frá fjölmennri pílagrímshátíð við ána Ganges. Kafarar og þyrlur hafa hjálpað til við leitina í dag en leit hefur verið frestað vegna myrkurs. Áfram verður leitað á morgun. Erlent 19.1.2007 19:23
Sjálfhjálparhvötin sterkust Engin hvöt er sterkari í dýrum jarðarinnar en að reyna að halda sér á lífi hvað sem það kostar. Þrjú nýleg dæmi af jafnmörgum ferfætlingum sýna okkur það. Erlent 19.1.2007 19:00
Ritstjóri skotinn til bana Talið er að öfgasinnaður þjóðernissinni hafi verið að verki þegar ritstjóri tyrknesks dagblaðs var skotinn til bana fyrir utan skrifstofur blaðsins í Istanbúl í dag. Ritstjórinn var á síðasta ári dæmdur fyrir að sýna tyrknesku þjóðinni vanvirðingu með skrifum sínum um fjöldamorð Tyrkja á Armenum í lok heimsstyrjaldarinnar fyrri. Erlent 19.1.2007 18:45
41 sagður hafa látist í óveðrinu Á fimmta tug manna hafa látið lífi í fárviðri sem geisað hefur í Evrópu undanfarinn sólarhring. Samgöngur í álfunni eru í uppnámi og rafmagnsleysi hefur bitnað á milljónum manna. Íslendingur búsettur í Tékklandi segir að tré hafi rifnað upp með rótum í nágrenni við hann í mesta ofsanum. Erlent 19.1.2007 18:30
Allsherjarverkfall boðað í Líbanon Stjórnarandstaðan í Líbanon, með Hisbollah í fararbroddi, ætlar að boða til allsherjarverkfalls í landinu í næstu viku. Hisbollah hefur reynt að velta ríkisstjórninni með verkföllum og mótmælum frá því í desemberbyrjun en þokast lítið. Sjíahreyfingarnar Hisbollah og Amal og kristinn flokkur undir stjórn Michels Aoun krefjast neitunarvalds í ríkisstjórninni. Erlent 19.1.2007 17:51
Ekkert fækkað í breskum hersveitum í Írak Yfirmaður breska heraflans í Írak segir að liðsafli Breta í landinu verði óbreyttur að minnsta kosti þetta ár, og vel hugsanlega fram í 2008. Þetta er á skjön við fréttir breskra fjölmiðla um að ætlunin sé að fækka breskum hermönnum um nær 3000 fyrir maílok. Erlent 19.1.2007 15:49
Ísraelar skila skattfé Ísaraelar hafa afhent Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, 100 milljónir dollara eða um sjö milljarða króna af skattfé sem Palestínumenn eiga með réttu. Ísraelar innheimta skatta fyrir Palestínumenn, en hættu að gera skil á þeim þegar Hamas tók við völdum á heimastjórnarsvæðunum, og Bandaríkin og Evrópusambandið hættu að styrkja heimastjórnina. Erlent 19.1.2007 15:26
Fáfróðir um helförina Meira en fjórðungur ungra Breta veit ekki hvort helför Gyðinga í síðari heimsstyrjöldinni átti sér stað. Leiðtogum Gyðinga er brugðið við þetta. Þeir geta þó huggað sig við að aðeins eitt prósent telur helförina vera sögusögn. Fjórir af hverjum fimm voru líka hlynntir því að helfararinnar yrði minnst á árlegum minningardegi. Erlent 19.1.2007 14:35
Skótauinu er kastað Síðasti dagur vetrarþings Taívans leystist upp í slagsmál eftir að stjórnarþingmaður henti skónum sínum í ræðumann. Þingmenn fóru þá að hrinda, ýta og slá frá sér. Í byrjun réðist hópur stjórnarþingmanna að ræðumanni til þess að koma í veg fyrir kosningu um mannabreytingar í raforkunefnd þingsins. Stjórnarandstöðuþingmenn hlupu þá allir sem einn að verja sinn mann og von bráðar var skónum kastað. Erlent 19.1.2007 11:24
Bandaríska þingið gegn árás á Íran Hópur þingmanna demókrata og repúblikana í fulltrúadeild bandaríska þingsins ætlar sér að leggja fram tillögu sem kæmi í veg fyrir að George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, gæti ráðist á Íran án samþykkis þingsins. Erlent 19.1.2007 10:52
Tamíltígrar flýja undan hernum Herinn á Sri Lanka náði í dag stjórn á bæ í austurhluta eyjunnar en uppreisnarmenn Tamíltígra höfðu haft tangarhald á honum í langan tíma. Alls flúðu meira en tíu þúsund manns undan bardögum Tamíltígra og stjórnarhersins en bardagarnir stóðu í margar vikur. Erlent 19.1.2007 10:25