Erlent

Ný alþjóðastofnun refsi skussum

Fjörutíu og fimm ríki hafa lýst yfir stuðningi við tillögu Frakka um að sett verði á stofn ný alþjóðleg umhverfisstofnun, sem hefði vald til að fylgja eftir samþykktum um ráðstafanir til að hægja á hlýnun loftslags og aðrar náttúruverndaraðgerðir. Hugmyndin er sú að hin nýja stofnun hefði vald til að ákveða refsiaðgerðir gegn skussum.

Erlent

Ætla að kvarta yfir SÞ-áætlun

Utanríkisráðherra Serbíu sagði í gær að Serbíustjórn myndi standa fast á þeirri kröfu að Kosovo yrði eftir sem áður hluti af Serbíu, hvað svo sem liði áætlun Sameinuðu þjóðanna um framtíðarstöðu héraðsins.

Erlent

Íslenska þjóðin sögð klofin

Bandaríska dagblaðið The New York Times birti um helgina langa grein um virkjanamál á Íslandi. Aðaláherslan er á Kárahnjúkavirkjun og álver Alcoa-Fjarðaáls á Reyðarfirði. „Það hefur verið í brennidepli heiftarlegustu deilur sem valdið hefur mestum klofningi meðal þjóðarinnar sem um getur í sögu Íslands,“ skrifar blaðið.

Erlent

Skilyrði ítrekuð

Norður-Kóreustjórn verður að standa að fullu við skuldbindingar um að stöðva kjarnorkuvígvæðingarbrölt sitt. Þessa kröfu ítrekaði fulltrúi Bandaríkjastjórnar í sex-velda-viðræðunum svonefndu, sem hefjast eiga að nýju í Peking nú í vikunni með þátttöku beggja Kóreuríkjanna, Japans, Kína, Rússlands og Bandaríkjanna.

Erlent

Hundruð þúsunda á flótta

Að minnsta kosti 20 manns hafa látið lífið í flóðum í Djakarta, höfuðborg Indónesíu, og hátt á fjórða hundrað þúsund íbúar borgarinnar hafa þurft að flýja heimili sín, að sögn talsmanna almannavarnayfirvalda. Úrhellisrigning undanfarna daga hefur valdið því að ár hafa flætt yfir bakka sína og sett heilu borgarhverfin á kaf.

Erlent

Boðið upp á barnlaus sæti

Sænska leiguflugfélagið Star Tours býður viðskiptavinum sínum upp á barnlaust farrými í flugferðum til Taílands. Sænskum mannfræðingi þykir nýungin ögrandi.

Erlent

Rússneskir saksóknarar vestur

Rússnesk yfirvöld vonast til að fá bráðlega heimild til að senda menn til Bretlands til að rannsaka eitrunardauða fyrrverandi njósnarans Alexanders Litvinenko. Frá þessu greindi rússneska ríkissaksóknaraembættið í gær.

Erlent

Heiftarlegar árásir Hamas-liða

Vopnaðir liðsmenn Hamas-samtaka Palestínumanna réðust í gær á stöðvar öryggissveita hollum Fatah-hreyfingunni, á fjórða degi stanslausra átaka milli fylkinganna tveggja eftir skammlíft vopnahlé. Beittu Hamas-liðarnir sprengjuvörpum og sprengiflaugum, auk skotvopna.

Erlent

Boða mestu herferð gegn andófsmönnum sem farin hefur verið

Herferð írakskra og bandarískra hersveita gegn andófsmönnum í Bagdad, sem staðið hafa fyrir fjömörgum blóðugum árásum undanfarna mánuði, hefst innan skamms og verður stærrri en nokkur aðgerð sem lagt hefur verið í frá því að ráðist var inn í Írak fyrir nærri fjórum árum.

Erlent

Kreistir chillivökva yfir augum sér

Mexíkóskur maður, sem hyggst setja heimsmet í chilipiparáti, er svo ónæmur fyrir styrk belgjanna að hann úðar þeim í sig eins og hverju öðru sælgæti. Hann gengur jafnvel svo langt að kreista safann úr þeim yfir augunum á sér.

Erlent

Yfir þúsund hafa fallið í vikunni

Yfir þúsund manns liggja í valnum í Írak eftir átök og árásir undanfarinna sjö daga. Stjórnvöld í landinu segja fylgismenn Saddams Hussein hafa staðið á bak við hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf.

Erlent

Þjóðverjar heimsmeistarar í handknattleik

Þjóðverjar tryggðu sér í dag heimsmeistaratitilinn í handknattleik á heimavelli þegar þeir lögðu nágranna sína Pólverja í úrslitaleik frammi fyrir fullu húsi í Köln. Lokatölur í leiknum urðu 29-24.

Erlent

Vindhviður sagðar hafa farið upp í 73 metra á sekúndu

Íbúar í miðhluta Flórída sem urðu fyrir barðinu á kröftugum stormi sem gekk yfir svæðið á föstudag héldu í dag áfram að leita að heillegum munum í rústum húsa sinna. Fram kemur á fréttavef CNN að vindhviður hafi farið upp í 73 metra á sekúndu og rifið allt sem á vegi þeirra varð.

Erlent

Viðurkenndi að hafa myrt Palme í bréfi til kærustu sinnar

Christer Pettersson, sem grunaður var um að hafa myrt Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, viðurkenndi fyrir leynilegri kærustu sinni að hann hefði drepið forsætisráðherrann. Frá þessu greinir sænska blaðið Aftonbladet og vitnar í bréf sem Petterson skrifaði til kærustunnar.

Erlent

Leita sér aðstoðar vegna vændiskvennafíknar

Ráðgjafarskrifstofa í tengslum við vændi í Danmörku hefur haft í nógu að snúast frá því að henni var komið á fót fyrir hálfu ári. Eftir því sem segir á vef Jótlandspóstsins hefur skrifstofan haft í nógu að snúast við að hjálpa karlmönnum sem sagðir eru háðir því að kaupa þjónustu vændiskvenna.

Erlent

Á fjórða tug dó í námuslysi

32 kólumbískir verkamenn biðu bana í sprengingu í kolanámu norðausturhluta landsins í gærkvöld. Talið er að neisti hafi komist í gas á um fjögur hundruð metra dýpi í námugöngunum og þau hrunið.

Erlent

Þúsund fallnir á sjö dögum

Forsætisráðherra Íraks kennir stuðningsmönnum Saddams Hussein um hryðjuverkið í Bagdad í gær sem kostaði 135 mannslíf. Um eitt þúsund manns hafa látið lífið undanfarna viku í ofbeldisverkum í landinu.

Erlent

Ók inn í þvögu í brúðkaupi í Stokkhólmi

Lögregla í Stokkhólmi leitar nú manns sem ók á bíl inn í hóp fólks sem stóð fyrir utan veitingastað í borginni þar sem verið var að halda brúðkaupsveislu. Eftir því sem sænska ríkisútvarpið greinir frá slösuðust sjö þegar maðurinn keyrði inn í þvöguna, þar af einn alvarlega.

Erlent

Léku rangan þjóðsöng

Stjórnvöld á eynni Grenada í Karabíska hafinu eru í öngum sínum eftir að þjóðsöngur Taívans var leikinn í stað þess kínverska þegar nýr íþróttavöllur var tekinn í notkun um helgina í höfuðborginni St. Johns.

Erlent

Segja helming árásarmanna koma frá Sýrlandi

Íröksk stjórnvöld segja að helmingur þeirra andófsmanna úr röðum súnnía sem staðið hafi fyrir sprengjuárásum að undanförnu í Írak hafi komið frá Sýrlandi. Segjast yfirvöld í Írak jafnframt hafa sýnt sýrlenskum stjórnvöldum sannanir þar að lútandi.

Erlent

Aukin útgjöld til varnarmála

George Bush Bandaríkjaforseti segir að í næstu fjárlögum ríkisins verði útgjöld til varnarmála aukin á kostnað útgjalda til innanríkismála.

Erlent

Vara við árásum á Íran

Þrír fyrrverandi hershöfðingjar úr Bandaríkjaher vara eindregið við hernaðaraðgerðum gegn Írönum í bréfi sem þeir birta í breska blaðinu Sunday Times í dag.

Erlent