Erlent

Kjötætur hættulegar umhverfinu

Bandarískar kjötætur eru ábyrgar fyrir einu og hálfu tonni meira af koltvíoxíðlosun en grænmetisætur. Bandaríska matvælastofnunin skýrir frá þessu í úttekt sem þeir gerðu á bandarískum matvælaiðnaði.

Erlent

Íhaldsflokkurinn nálgast hreinan meirihluta

Breski Íhaldsflokkurinn mun fá 42 prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga í Bretlandi í dag. Verkamannaflokkurinn, sem verður væntanlega undir handleiðslu núverandi fjármálaráðherra Bretlands, Gordon Brown, fengi aðeins 29 prósent atkvæða. Þetta er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur mælst með síðan árið 1983.

Erlent

Fimm létu lífið og 75 slösuðust

Fimm létu lífið og fleiri en 75 slösuðust þegar flutningabíll sprakk nærri veitingastað í bæ rétt fyrir norðan Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Lögregla staðarins skýrði frá þessu. Sprengingin átti sér stað í bænum Taji sem er 20 kílómetra frá Bagdad.

Erlent

Fæddist í 23. viku meðgöngu og lifði af

Fyrirburi sem læknar segja að hafi eytt minni tíma í móðurkviði en nokkur annar verður útskrifaður af sjúkrahúsi í Miami í Bandaríkjunum í dag. Amillia Sonja Taylor var aðeins 24 og hálfur senitmeter á lengd og ekki nema 284 grömm á þyngd þegar hún fæddist þann 24. október á síðasta ári. Hún fæddist í 23. viku meðgöngu en algengt er að konur gangi með börn í 37 til 40 vikur. Amillia hefur verið í hitakassa og fengið súrefni síðan hún fæddist.

Erlent

Tveir grunaðir um sprengjuárás

Lögreglan í Indlandi hefur sent fjölmiðlum þar í landi teiknaðar myndir af tveimur mönnum sem yfirgáfu lestina sem var ráðist á í gær. Þeir eru grunaðir um að hafa komið fyrir sprengjum í lestinni. Að minnsta kosti 67 létu lífið í sprengjuárásinni en tvær sprengjur sprungu um borð í lestinni. Mikill eldur braust síðan út í henni.

Erlent

McCain álasar Rumsfeld

John McCain sagði í ræðu í gær að Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, yrði minnst sem eins versta varnarmálaráðherra í sögu Bandaríkjanna. McCain er einn af þeim sem þykir líklegur til þess að verða útnefndur forsetaframbjóðandi repúblikana.

Erlent

Leynilegar áætlanir Bandaríkjanna afhjúpaðar

Bandaríkjamenn hafa gert áætlun um loftárásir á Íran og beinast þær að kjarnorkuverum og innviðum íranska hersins. Ef bandaríkjamenn réðust á Íran samkvæmt áætluninni, myndu íranskir flugvellir, flotastöðvar, flugskeytastöðvar og stjórnstöðvar verða skotmörkin. Bandaríkjamenn staðhæfa að ekki sé ráðgert að ráðast á Íran og eru að reyna að fá sjórnvöld í Teheran til að hætta auðgun úrans.

Erlent

Frekari refsiaðgerðum hótað

Á morgun rennur út sá frestur sem Sameinuðu þjóðirnar settu Írönum til að hætta úranauðgun eða sæta ella frekari refsiaðgerðum. Íranar standa þó enn sem fyrr fast á því að þeir þurfi á kjarnorku að halda til friðsamlegra nota.

Erlent

Trylltist og henti kjötstykki í barn

Fimm ára bandarísk stúlka liggur á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið frosið kjötstykki í höfuðið. Skyldmenni hennar, tuttugu og fimm ára gamall karlmaður, trylltist þegar kvöldmaturinn hans var ekki tilbúinn, opnaði frystinn og henti mat um alla íbúðina. Þetta kemur fram á vef bandarísku fréttastofunnar CBS.

Erlent

Taka vel í eldflaugavarnir

Ríkisstjórnir Póllands og Tékklands eru fylgjandi því að Bandaríkjamenn fái að setja upp búnað fyrir eldflaugavarnakerfi sitt í löndunum tveimur, sem á sínum tíma voru í Varsjárbandalaginu en gengu í Atlantshafsbandalagið árið 1999 og Evrópusambandið árið 2004.

Erlent

Reynt að tefja friðarviðræður

Nærri 70 manns fórust þegar tvær sprengjur sprungu í fyrrakvöld í járnbrautarlest í bænum Dewana, sem er um 80 kílómetra norður af Nýju-Delí.

Erlent

Ruslið safnast upp í Árósum

Sorphirðumenn í Árósum í Danmörku hafa verið í verkfalli í rúmar tvær vikur til að mótmæla því að tveir langveikir félagar þeirra hafa fengið hótanir um uppsögn.

Erlent

Nicolas Sarkozy eykur forskotið

Segolene Royal, forsetaefni franskra sósíalista, á nú í vök að verjast í kosningabaráttunni. Samkvæmt nýjustu viðhorfskönnunum er forskot höfuðkeppinautarins, Nicolas Sarkozy úr íhaldsflokknum UMP, sífellt að aukast.

Erlent

Lítil hreyfing í átt að sátt

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna og leiðtogar Ísraels og Palestínumanna hittust á sameiginlegum fundi í Jerúsalem í gær. Vonir um að hann kynni að marka nýjan áfanga í friðarumleitunum brugðust.

Erlent

Fylgi við konu á forsetastól

Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum telja að þjóðin sé tilbúin til að kjósa sér konu til forseta, en fylgi við demókratann Hillary Rodham Clinton og repúblikanana John McCain og Rudolph Giuliani mælist nánast hnífjafnt í nýjustu viðhorfskönnunum vestra.

Erlent

Vilja einkavæða Atlantsflog

Færeyska landstjórnin hefur aftur tekið upp áform um að einkavæða flugfélagið Atlantsflog, sem annast hefur mestallt áætlunarflug til og frá eyjunum. Í fyrsta áfanga á að selja þriðjungshlut, en ætlunin mun vera að selja annan þriðjung í framhaldinu.

Erlent

Afnám nauðungarhjónabanda

Stærsti stjórnmálaflokkurinn í Pakistan hefur kynnt frumvarp um að banna nauðungarhjónabönd í landinu, þar með talin hjónabönd þar sem konur eru giftar mönnum til að sætta deilur samkvæmt fornri ættbálkavenju. Í frumvarpinu segir að þeim sem neyði konu í hjónaband skuli refsað með fangelsisvist í allt að þrjú ár og fjársekt.

Erlent

Blóðnasir ullu lokun sendiráðs

Kanadíska sendiráðinu í París var lokað tímabundið í dag vegna gruns um eitur í bréfasendingu. Starfsmaður sendiráðsins fékk blóðnasir og veiktist eftir að hann opnaði bréf. Grunsemdir vöknuðu um að eitur hafi verið í bréfinu og ákváðu yfirvöld að loka sendiráðinu og nærliggjandi götu um tíma. Hættuástandi var aflýst og sendiráðið opnað þegar lögregla komst að því að starfsmaðurinn hafði verið veikur í einhvern tíma og fengið blóðnasir.

Erlent

Árásaráætlun á Íran afhjúpuð

Áætlun Bandaríkjamanna um loftárásir á Íran beinast að kjarnorkuverum og innviðum íranska hersins. Ef bandaríkjamenn réðust á Íran samkvæmt áætluninni, myndu íranskir flugvellir, flotastöðvar, flugskeytastöðvar og stjórnstöðvar verða skotmörkin. Bandaríkjamenn staðhæfa að ekki sé ráðgert að ráðast á Íran og eru að reyna að fá sjórnvöld í Teheran til að hætta auðgun úrans.

Erlent

Leitað í barnaskóla vegna bréfasprengju

Lögreglan í Bretlandi hefur gert húsleit í barnaskóla í Cambridgeshire eftir handtöku manns í tengslum við bréfasprengjurnar sem sprungu í London í síðustu viku. Maðurinn heitir Miles Cooper og er umsjónarmaður í Teversham kirkjuskólanum.

Erlent

Íranir og Rússar í kjarnorkudeilu

Íranir neita fullyrðum rússneskra embættismanna að þeir standi ekki við greiðslur vegna vinnu við Bushehr kjarnorkuverið sem nú er verið að reisa í suðurhluta Íran. Rússneskir embættismenn hafa varað við seinkun á afhendingu úraneldsneytis standi Íranir ekki við greiðslurnar. Íranir segja að þeir hafi staðið við sinn hluta samningsins.

Erlent

Lengdu rangan fótlegg

Skurðlæknar í Kína hafa beðist afsökunar eftir að lengja rangan fótlegg fimm ára gamals drengs. Aðgerðin var gerð til að laga helti drengsins. Læknarnir á sjúkrahúsinu í Changsha segja skýringuna vera þá að drengurinn var svæfður þegar hann lá á bakinu, en aðgerðin var gerð með hann liggjandi á maganum.

Erlent

Bíll Leðurblökumannsins til sölu

Eðalvagn Leðurblökumannsins, úr samnefndum bandarískum sjónvarpsþáttum frá sjöunda áratug síðustu aldar, verður seldur á uppboði í Lundúnum síðar í mánuðinum. Talið er að jafnvirði tæpra 10 milljóna króna fáist fyrir bílinn sem var sá sjötti í röð nokkurra sem smíðaðir voru árið 1966 til kynningar á þáttunum og voru notaðir í rúmlega hundrað þeirra.

Erlent

Friðarviðræðum verður fram haldið

Leiðtogar Ísraels og Palestínumanna ítrekuðu í dag stuðning sinn við stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Olmert, forsætisráðherra Ísraels, Abbas, forseti Palestínumanna, og Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddu friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs í Jerúsalem í morgun.

Erlent

Sprengjuárás á Indlandi rannsökuð

Ráðamenn í Indlandi og Pakistan hafa fordæmt sprengjuárás á farþegalest í Indlandi í gærkvöldi. Segja þeir ætlun ódæðismannanna hafi verið að raska friðarviðræðum landanna og það takist ekki. Minnst 66 týndu lífi í árásinni.

Erlent

Bakkavör innkallar hummus

Bakkavör hefur innkallað kjúklingabaunamauk úr sex matvöruverslanakeðjum á Bretlandi eftir að salmonellusmit greindist í sýnum úr því. Ekki er talið að nokkur hafi veikst eftir að hafa neytt vörunnar og segir forstjóri fyrirtækisins fjárhagstjón vegna smitsins óverulegt.

Erlent

8000 morðingjum sleppt úr fangelsi

Átta þúsund föngum var sleppt úr fangelsum í Rúanda, í dag, en þeir höfðu verið sakaðir um aðild að þjóðarmorðinu árið 1994. Frelsun þeirra hefur vakið mikla reiði meðal ættingja þeirra sem myrtir voru í blóðbaðinu. Fangelsi í Rúanda eru yfirfull af föngum sem hafa annaðhvort verið sakfelldir eða bíða eftir réttarhöldum.

Erlent

Enn eitt heiðursmorð í Danmörku

Danskur saksóknari hefur krafist þyngri refsingar yfir pakistanskri fjölskyldu sem myrti nítján ára gamla stúlku vegna þess að hún hafði gifst manni sem fjölskyldan sætti sig ekki við. Það var bróðir stúlkunnar sem skaut hana til bana, að skipun föðurins. Eiginmaður hennar særðist mikið, en lifði tilræðið af.

Erlent

Á svifdreka í 10 þúsund metra hæð

Þýsk kona slapp á undraverðan hátt frá svifdrekaflugi, um síðustu helgi, þar sem óveður þeytti henn i upp í tíuþúsund metra hæð. Það er sama hæð og farþegaþotur fljúga í. Í slíkri hæð er frostið um fjörutíu stig og nánast ekkert súrefni, enda missti konan meðvitund.

Erlent