Erlent
Hættulegustu öfgasamtök N-Írlands hætta starfsemi Hættulegustu öfgasamtök mótmælenda á Norður-Írlandi, Ulster Volunteer Force (UVF), hafa tilkynnt að þau muni hætta vopnaðri baráttu. Þau segjast ætla að taka upp baráttu án vopna. „Frá og með tólf á miðnætti, fimmtudaginn 3. maí 2007, munu Ulster Volunteer Force og Red Hand Commando beita sér á friðsaman hátt og taka upp borgaralega starfsemi." sagði í tilkynningu frá þeim í morgun. Erlent 3.5.2007 10:10
Vilja hvít barnaheimili í Svíþjóð Flokkur þjóðernissinna í Svíþjóð vill stofna barnaheimili fyrir innfædd hvít börn. Ætlunin er að fyrsta barnaheimilið verði opnað í Uppsölum, á næsta ári. Vávra Suk, formaður flokksins segir að fólk eigi að eiga þess kost að ala börn sín upp í vestrænni menningu. Erlent 3.5.2007 09:17
Kosið í Englandi, Skotlandi og Wales Almenningur í Englandi, Skotlandi og Wales gengur til kosninga í sveitastjórnar- og þingkosningum í dag. Kosið er á flestum stöðum í Bretlandi að undanskildri höfuðborginni, Lundúnum. Alls eru 39 milljón manns með kosningarétt. Búist er við góðu veðri í dag sem gæti aukið kjörsókn. Erlent 3.5.2007 08:57
Leiðtogi íslamska ríkisins í Írak allur Bandaríski og íraski herinn hafa fellt leiðtoga íslamska ríkisins í Írak, hryðjuverkahóps með tengsl við al-Kaída. Innanríkisráðherra Íraks skýrði frá þessu í morgun. Hann sagði að leiðtogi hópsins, Abu Omar al-Baghdadi, hefði verið felldur í bardaga norður af Bagdad. Hann neitaði að segja hvenær þetta gerðist en sagði að yfirvöld hefðu lík hans í sinni vörslu. Erlent 3.5.2007 08:20
Bush fundar með demókrötum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og leiðtogar demókrata í bandaríska þinginu hafa heitið því að komast að niðurstöðu varðandi aukafjárveitingu til hersins. Erlent 3.5.2007 07:46
Fundað um framtíð Íraks Alþjóðleg ráðstefna um framtíð Íraks fer nú fram í Sharm el-Sheikh í Egyptalandi. Á meðal þátttakenda eru Bandaríkin, Íran og Sýrland. Búist er við því að löndin sem ráðstefnuna sækja eigi eftir að sættast á fimm ára áætlun sem krefst endurbóta fyrir stuðning. Erlent 3.5.2007 07:12
Jafnræði í kappræðum Frönsku forsetaframbjóðendurnir Nicolas Sarkozy og Sególene Royal tókust á í sjónvarpskappræðum í gærkvöldi. Töluverðar tilfinningar voru í spilinu en kappræðurnar eru taldar geta ráðið úrslitum í forsetakosningunum sem fara fram á sunnudaginn kemur. Erlent 3.5.2007 07:09
AC Milan mætir Liverpool Ítalska knattspyrnuliðið AC Milan bar í gærkvöldi sigurorð af Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu og mun því mæta enska liðinu Liverpool í úrslitum þann 23. maí næstkomandi. Brasilíumaðurinn Kaka var hetja AC Milan en hann skoraði fyrsta mark liðsins þegar aðeins tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Erlent 3.5.2007 07:06
Japanir vilja nýja stjórnarskrá Forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, sagði í gær að það þyrfti að endurskoða stjórnarskrá landsins. Ástæðuna sagði hann að sú stjórnarskrá sem Bandaríkjamenn hefðu sett Japönum eftir síðari heimsstyrjöld væri úrelt með tilliti til heimsmála í dag. Erlent 3.5.2007 06:59
Þingmenn styðja Olmert Þingmenn Kadima flokksins í Ísrael hafa ákveðið að styðja við bakið á Ehud Olmert eftir að utanríkisráðherra Ísraels, Tzipi Livni, sagði að hann ætti að segja af sér. Þeir áttu sérstakan fund í gærkvöldi til þess að ræða stöðu mála innan flokksins. Erlent 3.5.2007 06:54
Sjálfsstæðissinnum spáð naumum sigri Skotar og Walesbúar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér þing. Einnig eru sveitarstjórnarkosningar um allt Bretland. Í Skotlandi vonast aðskilnaðarsinnar til þess að sigra og boða þá kosningar árið 2010 um aðskilnað frá Bretlandi. Erlent 3.5.2007 06:15
Forseti verði þjóðkjörinn Stjórnarflokkurinn í Tyrklandi fór á þriðjudag fram á það við þingið að þingkosningum yrði flýtt um nokkra mánuði. Að öllum líkindum verða þær haldnar 22. júlí næstkomandi í staðinn fyrir nóvember. Erlent 3.5.2007 04:45
Eitt síðasta tækifæri Royal Neistarnir flugu þegar keppinautarnir um franska forsetaembættið, sósíalistinn Segolene Royal og hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy, mættust í sjónvarpskappræðum í gærkvöld. Þær voru hápunktur kosningabaráttunnar fyrir úrslitaumferð kosninganna á sunnudaginn. Erlent 3.5.2007 04:15
Fjórir Pakistanar hálshöggnir Yfirvöld í Sádi-Arabíu létu í gær hálshöggva fjóra Pakistana, sem dæmdir höfðu verið fyrir að berja mann til dauða þar sem hann svaf í rekkju sinni, nauðga og misþyrma eiginkonu hans og ræna fé og skartgripum hjónanna. Frá þessu greindi sádi-arabíska innanríkisráðuneytið. Erlent 3.5.2007 04:00
Kosningaaldur niður í 16 ár Ríkisstjórn Austurríkis ákvað í gær að leggja formlega fram lagafrumvarp, þar sem lagt er til að lágmarksaldur til að kjósa í þingkosningum í landinu verði færður niður í 16 ár. Erlent 3.5.2007 03:00
Súdanstjórn hafnar afskiptum Alþjóðlegi sakadómstóllinn í Haag (ICC) hefur gefið út handtökutilskipun á hendur ráðherra í Súdanstjórn og eins af forsprökkum svonefndra janjaweed-sveita á grundvelli gruns um að þeir beri ábyrgð á stríðsglæpum í Darfúr-héraði. Frá þessu greindi dómstóllinn í gær. Erlent 3.5.2007 01:15
Sendiráð Eista njóti verndar Erindrekar Evrópusambandsins þrýsta á rússnesk yfir-völd að vernda betur eistneska sendiráðið í Moskvu, sem reiðir ungir Rússar sitja um vegna minnismerkis. Erlent 3.5.2007 01:00
Neitar að segja af sér í bráð Á neyðarfundi ríkisstjórnar Ísraels, sem Ehud Olmert forsætisráðherra kallaði saman í gær, sagðist hann ætla að sitja áfram í embættinu þrátt fyrir háværar kröfur um afsögn. Erlent 3.5.2007 00:30
Royal og Sarkozy tókust á í beinni Forsetaframbjóðendurnir í Frakklandi, þau Segolene Royal og Nicolas Sarkozy tókust á í kappræðum í kvöld sem talið er að um 20 milljón manns hafi horft á. Talið er að þátturinn gæti haft úrslitaáhrif á þá sem enn eiga eftir að gera upp hug sinn. Erlent 2.5.2007 22:51
Þingmönnum mistekst að koma í veg fyrir synjun Bush Þingmönnum í fulltrúadeild bandaríska þingsins mistókst í dag að koma í veg fyrir að Bush forseti beiti neitunarvaldi sínu gegn frumvarpi þingsins sem varðaði aukafjáveitingu til stríðsrekstursins í Írak og Afganistan. Erlent 2.5.2007 21:18
20 milljónir horfi á kappræður Búist er við að 20 milljón Frakkar fylgist í kvöld með sjónvarpskappræðum frambjóðendanna tveggja sem berjast um forsetaembættið í Frakklandi. Þetta er síðasta tækifæri sósíalistans Segolene Royal til að saxa á naumt forskot hægrimannsins Nicolas Sarkozy. Kosið er á sunnudaginn. Erlent 2.5.2007 19:45
Vill að Olmert víki Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels hefur hvatt Ehud Olmert til þess að segja af sér sem forsætisráðherra. Hún segir jafnframt að hún muni sækjast eftir forystu í Kadima-flokki hans. Livni skýrði frá þessu eftir fund sinn með Olmert í dag. Erlent 2.5.2007 19:30
Ráðist að sendiherra Eista Eistnesku ræðismannsskrifstofunni í Moskvu var lokað í dag um óákveðinn tíma eftir að hópur rússneskra ungmenna gerði aðsúg að eistneska sendiherranum í Rússlandi í dag. Eistar og Rússar hafa deilt hart á opinberum vettvangi síðan í síðustu viku eða frá því eistneskir ráðamenn létu færa til minnismerki um fallna hermenn sem var í miðborg Tallinn. Erlent 2.5.2007 19:15
Óttast meira mannfall Bush Bandaríkjaforseti óttast að mannfall verði áfram mikið í Írak og segir bandaríska hermenn ekki á heimleið á næstunni. Hann hvetur Íraka til að sameinast í að uppræta ofbeldi í landinu og biður um stuðning Bandaríkjamanna við herliðið í Írak. Erlent 2.5.2007 19:00
Danir bjóða ofsóttum rithöfundum hæli Danir hafa ákveðið að veita ofsóttum rithöfundum hæli og vernd gegn andskotum sínum. Þetta á við um blaðamenn, rithöfunda og teiknara sem hafa ástæðu til þess að óttast um hag sinn. Annaðhvort vegna ofsókna ríkisstjórna eða trúarsamtaka. Erlent 2.5.2007 16:11
Nýjar myndir af Júpíter Geimferðastofnun Bandaríkjanna hefur gefið út nýjar myndir af plánetunni Júpíter. Þær eru teknar úr geimfarinu New Horizons. Á annarri myndinni má sjá hnúð á norðurpól stjörnunnar sem er af völdum gríðarlegs eldgoss. Erlent 2.5.2007 14:50
Utanríkisráðherrann boðar uppreisn gegn Olmert Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels hefur hvatt Ehud Olmert til þess að segja af sér sem forsætisráðherra. Hún segir jafnframt að hún muni sækjast eftir forystu í Kadima-flokki hans. Livni skýrði frá þessu þegar hún kom af tveggja manna fundi sínum með Olmert. Erlent 2.5.2007 14:38
Grafreitur skylmingaþræla í Tyrklandi Vísindamenn telja sig hafa fundið grafreit skylmingaþræla í Efesus í Tyrklandi. Þar var stórborg í austrómverska keisaradæminu. Þegar beinin eru skoðuð og áverkar á þeim kemur í ljós nýr fróðleikur um líf, bardagaaðferðir og dauða skylmingaþræla. Erlent 2.5.2007 14:27
Bandaríkjamenn hunsuðu Breta í grundvallarákvörðunum Bretar voru algerlega á móti því að leysa upp íraska herinn og reka opinbera starfsmenn úr embætti. Bandaríkjamenn hunsuðu hinsvegar þessar skoðanir. Breta grunar að Dick Cheney, varaforseti hafi staðið á bak við það. Fyrrverandi varnarmálaráðherra Bretlands segir að þeir hafi verið furðu lostnir yfir sumum ákvörðunum Bandaríkjamanna. Erlent 2.5.2007 13:54
Þróunarlöndin menga minna Þróunarlönd sem eru að iðnvæðast, eins og Kína og Indland, hafa dregið meira úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda en krafist hefur verið af öllum iðnríkjunum samanlagt. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem verður gerð opinber á föstudag segir að ýmsar ráðstafanir sem þróunarlöndin hafi gert hafi haft þau hliðaráhrif að draga úr útblæstri. Erlent 2.5.2007 13:34