Erlent

Dauðdagi

Fjörutíu og fimm ára fjölskyldufaðir í Danmörku lét lífið þegar hann varð fyrir garðsláttuvél. Ritzau fréttastofan segir að hann hafi verið bæjarstarfsmaður og verið að slá gras í almenningsgarði þegar slysið varð.

Erlent

Flaug í 9 tíma með slasaða farþega

Japanska samgönguráðuneytið hefur fyrirskipað rannsókn á því af hverju breiðþotu hollenska flugfélagsins KLM var ekki snúið við eftir að níu farþegar slösuðust í mikilli ókyrrð. Fimm þeirra voru fluttir á sjúkrahús eftir að vélin lenti í Osaka.

Erlent

Norskar konur drykkfelldari en aðrar

Norskar konur eru drykkfelldari en aðrar konur á Vesturlöndum. Þar er meðal annars kennt um að jafnrétti hefur aukist milli karla og kvenna í Noregi, og norskar konur taka nú meiri þátt í atvinnulífinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu norsku lýðheilsustöðvarinnar.

Erlent

Svartur skjár hjá DR í júlí?

Svo gæti farið að Danir horfðu á svartan sjónvarpsskjá þegar þeir stilla á ríkissjónvarpsstöðina Danmarks Radio frá og með 1. júlí. Ástæðan fyrir því er sú að upp úr kjaraviðræðum slitnaði milli forsvarsmanna Danmarks Radio og Bandalags háskólamanna.

Erlent

Vísindaveiðar Japana fordæmdar

Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti í morgun tillögu sem fordæmir vísindahvalveiðar Japana. Japanar veiða nærri 1.000 hvali á ári hverju í vísindaskyni. Miklar og hatrammar umræður urðu um málið á þinginu. Stór hluti meðlima neitaði að greiða atkvæði og sagði atkvæðagreiðsluna ólöglega. Ísland var þar á meðal.

Erlent

Lugovoi segir Litvinenko hafa unnið fyrir bresku leyniþjónustuna

Andrei Lugovoi, maðurinn sem er grunaður um að hafa myrt fyrrum KGB njósnarann Alexander Litvinenko, sagði morgun að Litvinenko hefði verið að vinna með bresku leyniþjónustunni þegar hann var myrtur. Hann segist jafnframt hafa sannanir fyrir því breska leyniþjónustan eigi þátt í dauða Litvinenko. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem nú stendur yfir í Moskvu.

Erlent

Forseti Bólivíu í götufótbolta

Forseti Bólivíu, Evo Morales, tók þátt í götufótbolta í gær til þess að mótmæla banni FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, við því að spila knattspyrnuleiki hátt yfir sjávarmáli. Morales sagði að ef hann og ráðherrar hans gætu spilað 2.500 metra yfir sjávarmáli ættu bestu leikmenn heims einnig að geta það.

Erlent

Hart tekist á í Alþjóðahvalveiðiráðinu

Tillaga um alþjóðlegt griðasvæði í Suður-Atlantshafinu handa hvölum var felld í Alþjóðahvalveiðiráðinu í gær. Lönd frá Suður-Ameríku báru tillöguna fram en hún hefði stækkað núverandi griðasvæði þeirra. Á fundi hvalveiðiráðsins er líka tekist harkalega á um frumbyggjaveiðar. Hvalveiðar Íslendinga voru ekkert nefndar á fundinum.

Erlent

Spánverjar vilja fjársjóðsgull

Spánverjar hófu í gærkvöldi málarekstur gegn bandarísku fyrirtæki sem nýverið fann sokkinn spænskan fjársjóð undan ströndum Englands. Skipið sem fjársjóðurinn fannst í er talið vera spænskt og vera frá sautjándu öld. Bandaríska fyrirtækið Odyssey hefur þegar náð sautján tonnum af silfur- og gullpeningum úr skipsflakinu.

Erlent

Thai Rak Thai mótmæla banni

Leiðtogar taílenska stjórnmálaflokksins Thai Rak Thai, sem stjórnarskrárdómstóll bannaði í gær, sögðu ákvörðunina ósanngjarna. Samtímis því að banna flokkinn hefur fjölmörgum flokkmönnum verið bannað að koma nálægt stjórnmálum næstu fjögur árin.

Erlent

Shimon Peres býður sig fram

Shimon Peres, aðstoðar­forsætisráðherra Ísraels, greindi í gær frá því að hann ætlaði að bjóða sig fram til forseta. Ísraelsþing kýs forseta landsins hinn 13. júní næstkomandi.

Erlent

Ætla að vinna meira saman

Að loknum fundi með utanríkisráðherrum G8-ríkjanna ákváðu utanríkisráðherrar Afganistans og Pakistans að efla samvinnu milli ríkisstjórna landanna tveggja.

Erlent

Rassía gerð í Sadr-hverfinu

Hundruð íraskra og bandarískra hermanna lokuðu hluta af borgarhverfinu Sadr-borg í Bagdad í gær af og gengu hús úr húsi í leit að fimm Bretum, sem var rænt úr stjórnarbyggingu skammt frá daginn áður.

Erlent

Vill Zoellick í stað Wolfowitz

Robert Zoellick, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur væntanlega við af Paul Wolfowitz sem bankastjóri Alþjóðabankans í byrjun júlí.

Erlent

Sjálfsmorð ráðherra

Landbúnaðarráðherra Japans, Toshikatsu Matsuoka, svipti sig lífi á mánudag, nokkrum tímum áður en hann átti að mæta í yfirheyrslu vegna meintra bókhaldssvika. Matsuoka skildi nokkur bréf eftir, þar á meðal eitt til forsætisráðherrans og almennings þar sem hann baðst afsökunar á gjörðum sínum.

Erlent

Fengu blessun frá páfanum

Gerry og Kate McCann, foreldrar fjögurra ára stúlku sem rænt var í Portúgal fyrir tæpum mánuði, gengu í gær á fund Benedikts sextánda páfa í Páfagarði í Róm.

Erlent

Sakir bornar af Sadr

Aðstoðarmaður shía klerksins Moqtada Sadr segir að menn hanns séu ekki viðriðnir rán á fimm Bretum í Sadr borg í gær. Utanríkisráðherra Íraks hafði áður sagt að hann teldi að Mehdi herinn hefði staðið á bakvið mannránin.

Erlent

Heiligendamm breytt í fangelsi

Gríðarleg öryggisgæsla er nú í þýska sumardvalarstaðnum Heiligendamm. Þar fer nú fram fundur átta helstu iðnríkja heims en mikil mótmæli hafa ávallt fylgt fundum sem þessum.

Erlent

Sérstakur dómstóll fjalli um morðið á Hariri

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld að settur verði á laggirnar alþjóðlegur dómstóll sem á að rétta yfir sakborningum vegna morðsins á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons.

Erlent

Banvæn vanskil

Ógreiddir orkureikningar urðu til þess að slökkt var á öndunarvél nýsjálenskrar konu í vikunni með þeim afleiðingum að hún andaðist. Konan hafði verið rúmliggjandi á heimili sínu frá því í febrúar vegna hjarta- og lungnasjúkdóma. Vegna veikindanna hafði safnast um tíu þúsund króna skuld hjá orkuveitu í borginni Auckland

Erlent

Át hund í mótmælaskyni

Nýjasti gjörningur breska listamannsins Mark McGowans hefur vakið upp hörð viðbrögð í heimalandi hans. Hann snæddi hund af eftirlætiskyni Elísabetar Bretadrottningar í mótmælaskyni við refaveiðar eiginmanns hennar.

Erlent

Chavez hótar Globovision

Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótaði í gær að loka annarri sjónvarpsstöð sem gagnrýnt hefur störf hans. Fjórða daginn í röð kom til átaka á milli lögreglu og fólks sem mótmælti lokun RCTV-sjónvarpsstöðvarinnar í síðustu viku.

Erlent

Páfinn bað fyrir Madeleine

27 dagar eru liðnir síðan bresku telpunni Madeleine McCann var rænt af hótelherbergi í Portúgal og enn hefur ekkert til hennar spurst. Foreldrar Madeleine hittu Benedikt páfa sextánda í Róm í dag. Hann blessaði mynd af dóttur þeirra og bað fyrir fjölskyldu

Erlent

Putin sýnir klærnar

Rússneski ríkissaksóknarinn hefur sent helsta stjórnarandstöðuflokki landsins opinbera viðvörun vegna þess sem kallað er öfga-aðgerðir. Þessar öfga-aðgerðir felast í því að Yablonko flokkurinn hjálpaði þekktum pólitískum fréttaskýranda að gefa út bók þar sem Vladimir Putin forseti er harðlega gagnrýndur.

Erlent

Þið munið gleyma 11. september

Bandarískur talsmaður al-Kæda hefur hótað Bandaríkjunum verri árás en gerð var 9/11, ef Bush forseti kalli ekki bandarískar hersveitir heim frá öllum ríkjum múslima. Adam Gadahn hefur komið fram á mörgum myndböndum sem talin eru komin frá al-Kæda síðan árið 2005. Hann er Bandaríkjamaður af Gyðingaættum sem snerist til múslimatrúar. Hann hefur þegar verið ákærður fyrir föðurlandssvik og fer huldu höfði.

Erlent

Vilja taka barnaníðinga af lífi

Þeirri hugmynd að taka barnaníðinga af lífi jafnvel þótt þeir myrði ekki fórnarlömb sín vex fylgi í Bandaríkjunum. Hæstiréttur í Lousianaríki staðfesti í síðustu viku slíkan dauðadóm. Fimm ríki Bandaríkjanna hafa þegar sett lög sem geta leitt til dauðadóms yfir mönnum

Erlent