Erlent

Bankaræningjar halda fjórum í gíslingu

Fjórir einstaklingar eru í haldi bankaræningja í banka í úthverfi suður af París. Um tvo starfsmenn og tvo viðskiptavini er að ræða. Tveir ræningjar fóru inn í bankann klukkan átta í morgun að íslenskum tíma.

Erlent

Talibanar ná stjórn á héraði í Afganistan

Talibanar hafa náð stjórn á Myanishen héraðinu í suðurhluta Afganistan eftir harða bardaga undanfarna daga. Afganski herinn sagðist hafa gefið héraðið eftir viljandi. Talibanar hafa náð stjórn á fjölmörgum héruðum undanfarin ár en þeim hefur aðeins tekist að halda stjórn á einu þeirra. Talsmaður afganska hersins sagði að Myanishen héraðið yrði tekið aftur mjög fljótlega.

Erlent

Viðskipti með feld hunda og katta bönnuð

Útflutningur og innflutningur á feldi hunda og katta verður bannaður í Evrópu í dag. Þrýstihópar hafa barist í tíu ár fyrir því að viðskipti með slíkan feld verði bönnuð. Þeir segja að slíkur feldur endi síðan í fatnaði og hvers kyns neytendavörum þar sem þeir sem selji feldinn merki hann vísvitandi rangt.

Erlent

Áhorf danskra ungmenna á sjónvarp minnkar

Dönsk ungmenni horfa nú mun minna á sjónvarp en um aldamótin samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar í Danmörku. Í fríblaðinu 24 timer er greint frá því að sjónvarpsáhorfið hafi minnkað um fimmtung hjá aldurshópnum 12-20 ára á síðustu sjö árum en á sama tíma hefur netnoktun þeirra aukist mikið.

Erlent

Bresk yfirvöld sleppa 2.000 föngum

Afbrotamönnum í Bretlandi hefur fjölgað svo mikið að nú þurfa stjórnvöld að láta lausa allt að tvö þúsund fanga þar sem fangelsin eru hreinlega yfirfull. Þeir sem fengu minna en fjögurra ára dóm fyrir innbrot, fíkniefnasölu eða svik verða í hópi þeirra sem verða látnir lausir. Aðrir afbrotamenn koma ekki til greina.

Erlent

Íranar íhuga að nota olíu sem vopn

Íranar útiloka ekki að beita olíu sinni sem efnahagslegu vopni gegn Bandaríkjunum ef þau ráðast á landið vegna kjarnorkuáætlunar þess. Íranskur embættismaður skýrði frá þessu í morgun. Þeir sögðu það jafnframt eðlileg viðbrögð við þeim fréttum að Bandaríkjamenn hafi ekki útilokað að gera árás á landið.

Erlent

Hart barist um skilgreiningu á vodka

Evrópuþingmenn eiga oft erfitt starf fyrir höndum og nú þurfa þeir að skilgreina hvað er vodki og hvað ekki. Þau lönd sem framleiða mestan vodka í Evrópu, skandinavía og Eystrasaltslöndin, vilja að vodki verði skilgreindur sem áfengi gert úr korni eða kartöflum. Með þeirri skilgreiningu yrði vodki frá stærri löndum sambandsins, eins og Frakklandi og Bretlandi ekki lengur vodki.

Erlent

Forseti Tyrklands beitti neitunarvaldi

Forseti Tyrklands beitti í gær neitunarvaldi gegn frumvarpi sem hefði flýtt þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort að almenningur myndi kjósa forseta landsins. Stjórnarflokkurinn AK lagði frumvarpið fram eftir að honum mistókst að kjósa eigin frambjóðanda, en hingað til hafa þingmenn kosið forseta landsins.

Erlent

Forsetafrú Kúbu látin

Vilma Espin, eiginkona Raul Castro, sitjandi forseta Kúbu, lést í nótt, 77 ára að aldri. Vilma fæddist inn í ríka fjölskyldu og var menntuð í Bandaríkjunum. Snemma á sjötta áratugnum snerist henni þó hugur og gekk hún til liðs við byltingarmenn.

Erlent

Sarkozy fær ótvírætt umboð til umbóta

Þótt vinstrimenn hafi náð meiri árangri í síðari umferð þingkosninganna í Frakklandi á sunnudag en búist hafði verið við fékk íhaldsflokkur Sarkozys for-seta sannfærandi umboð til að hrinda efnahagsumbótaáætlun hans í framkvæmd.

Erlent

Mannskætt rútuslys

Þrettán manns fórust er rúta full af farþegum lenti út af þjóðvegi í grennd við borgina Halle í Mið-Þýskalandi. Að sögn lögreglu slösuðust um 30 manns til viðbótar. Um borð var 48 manna hópur ellilífeyrisþega frá Hopsten í Norðvestur-Þýskalandi.

Erlent

Sjö börn létust í árás alþjóðaliðs

Sjö börn, drengir á aldrinum tíu til sextán ára, létust þegar herþotur alþjóðaherliðsins í Afganistan gerðu árás á hús þar sem talið var að uppreisnarmenn væru í felum. Nokkrir uppreisnarmenn dóu í árásinni.

Erlent

Þrýst á Pólverja og Breta

Fulltrúar Póllands og Bretlands sættu vaxandi þrýstingi á utanríkisráðherrafundi Evrópusambandsins í gær um að láta af andstöðu við áform um nýja, einfaldaða uppfærslu á stofnsáttmála Evrópusambandsins sem koma myndi í staðinn fyrir strandaðan stjórnarskrársáttmála þess.

Erlent

Einangrun Palestínu aflétt

Evrópusambandið og Bandaríkin gáfu í gær fyrirheit um að hefja á ný beinan efnahagsstuðning við Palestínu í kjölfar þess að forseti landsins, Mahmoud Abbas, skipaði nýja stjórn á sunnudaginn sem Hamas-samtökin eiga ekki aðild að.

Erlent

Royal og Hollande að skilja

Leiðtogapar franskra sósíalista, Ségolène Royal og Francois Hollande, hefur ákveðið að skilja. Þau tilkynntu þetta á sunnudagskvöld, að kvöldi kjördags í síðari umferð þingkosninganna í landinu.

Erlent

Björguðu 31 barni

Yfir 700 manns voru handteknir og 31 barni bjargað þegar flett var ofan af viðamiklum barnaklámhring á netinu að því er bresk yfirvöld greindu frá í gær.

Erlent

Mikið mannfall í Afganistan

Að minnsta kosti hundrað manns þar á meðal óbreyttir borgarar, lögreglumenn og herskáir Talibanar hafa látið lífið í hörðum bardögum sem geisað hafa í suðurhluta Afganistan síðustu daga. Bardagarnir hafa aðalleg geisað í Uruzgan-héraðinu.

Erlent

Sprengjuleit við Hvíta húsið

Fjölmiðlamiðstöð nálægt Hvíta húsinu var rýmd í dag. Það var gert eftir að sprengjuleitarhundur sýndi viðbrögð við bifreið sem verið var að nota í tengslum við heimsókn ísraelska forsætisráðherrans Ehud Olmert til landsins.

Erlent

Umhverfisvænir bílar koma illa út úr öryggisprófunum

Sænskir bílasérfræðingar greina frá því að 18 af hverjum 37 umhverfisvænum bílum uppfylla ekki lágmarks öryggiskröfur og koma illa út úr árekstarprófunum. Á sama tíma og ríkið ýtir undir kaup á umhverfisvænum bílum með skattafríðindum eru settar hömlur á bíla með sérstakan öryggisbúnað.

Erlent

Nokkurra mánaða börnum bjargað frá barnaníðingum

Bresku lögreglunni hefur tekist að koma upp um barnaklámhring sem teygir anga sína til þrjátíu og fimm landa. Lögreglan bjargaði þrjátíu og einu barni úr klóm barnaníðinganna á meðan á rannsókn málsins stóð, sum þeirra voru aðeins nokkurra mánaða gömul.

Erlent

Ný ríkisstjórn Abbas hefur stuðning lykilaðila

Ný Neyðarstjórn Mahmoud Abbas forseta Palestínu hefur stuðning lykilaðila í alþjóðasamfélaginu. Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið ætla að hefja fjárhagsaðstoð við stjórnvöld í Palestínu á nýjan leik eftir um eins og hálfs árs hlé.

Erlent

Rútuslys í Þýskalandi

Að minnsta kosti þrettán manns létust og um 30 slösuðust í rútuslysi í Þýskalandi í dag. Fjörtíu og átta eldri borgarar voru í rútunni þegar slysið varð á þjóðveginum á milli Halle og Magdeburg í austur Þýskalandi. Fólkið var frá Hopsten i norðvestur Þýskalandi.

Erlent

Hamasliðar gefa mannræningjum frest til miðnættis

Hamassamtökin í Palestínu sem ráða nú yfir Gasa svæðinu, hafa gefið mannræningjunum sem hafa breska blaðamanninn Alan Johnston í haldi, frest til miðnættis til þess að sleppa honum. Verði ræningjarnir ekki við kröfu samtakanna hyggjast þeir beita valdi til þess að frelsa hann úr prísund sinni.

Erlent

Reyna að stöðva flutning vopna frá Íran

Fjölþjóðlegt herlið í Írak hefur í dag staðið í bardgögum í austurhluta landsins með það að markmiði að koma í veg fyrir flæði hermanna og hergagna frá Íran til Íraks. Í tilkynningu frá Bandaríkjaher kemur fram að um 20 vígamenn hafi fallið í bardögunum.

Erlent

31 barni bjargað úr klóm barnaníðinga

Alþjóðlegt lögreglulið hefur upprætt alþjóðlegan barnaklámhring. 700 manns eru grunaðir í málinu og herma fregnir að 31 barni hafi verið bjargað úr klóm níðinganna. Níðingsverkin voru í sumum tilfellum sýnd í beinni útsendingu á Netinu.

Erlent