Erlent
Tugir hafa látist í hitabylgju í Suður-Evrópu Samkvæmt heimildum AFP fréttastofunnar hafa að minnsta kosti 40 manns látist í hitabylgju sem gengur nú yfir Suður-Evrópu. Í Rúmeníu hafa 29 látist, fjórir í Grikklandi, þrír í Albaníu og að minnsta kosti fimm í Bosníu, Króatíu og Tyrklandi. Erlent 26.6.2007 16:22
Saksóknari í máli Milosevic ósátt við lát hans Carla Del Ponto, saksóknari Sameinuðu Þjóðanna segir að dauði Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Serbíu, ásæki sig. Hún lýsir því hversu ósátt hún sé við að hann hafi dáið áður en dómur féll yfir honum fyrir stríðsglæpi í stjórnartíð hans. Erlent 26.6.2007 16:20
Tannhvítun ekki hættulaus Í mörgum tegundum búnaðar til tannhvítunar hefur fundist ólöglega mikið magn vetnisperoxíðs, sem leysir upp liti. Efnið er aðallega notað í hárliti og sótthreinsiefni. Í mælingu á vegum TSI-eftirlitsins var magn vetnisperoxíðs yfir settum mörkum í 18 af 20 vörum. Í einu tilfelli reyndist vera notaður 230 sinnum löglegur skammtur. Erlent 26.6.2007 16:10
Danir greiða mest í skatt Launþegar í Danmörku borga mestan skatt miðað við önnur Evrópusambandslönd, eða 59 prósent. Þetta kemur fram í samantekt frá Evrópsku hagstofunni sem greint er frá í Jyllands-Posten í dag. Erlent 26.6.2007 15:18
Uppbyggingu lengstu brúar í heimi lokið Uppbyggingu lengstu brúar í heimi var formlega lokið í dag. Brúin, sem er í Kína, er 36 kílómetra löng verður þó ekki tekin í notkun fyrr en á næsta ári. Brúin mun verða sexbreið og heildarkostnaður við hana verður í kringum 97 milljarða króna. Erlent 26.6.2007 15:00
Hjúkrunarfræðingar í Póllandi í hungurverfall Hjúkrunarfræðingar í Póllandi hafa gripið til þess ráðs að fara í hungurverkfall til að krefjast hærri launa. Hungurverkfallið hófst í dag og kemur í kjölfar mótmælagangna og vinnustopps. Hundruðir sjúkrahúsa hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa. Erlent 26.6.2007 14:11
Dani sýknaður af ákæru um manndrápstilraun Hinn 27 ára gamli Jonatan Falk var í dag sýknaður af manndrápstilraun fyrir að hafa ýtt Haraldi Sigurðssyni (26) fyrir lest á Nørreport lestarstöðinni Kaupmannahöfn. Atvikið átti sér stað í ágúst á síðasta ári. Falk var þó fundinn sekur um að hafa komið Haraldi í mikla lífshættu. Refsing hans verður ákveðin síðar í dag. Erlent 26.6.2007 13:26
Vilja að Blair leiði friðarviðræður Embættismenn sem sérhæfa sig í málefnum Miðausturlanda íhuga nú að fá Tony Blair, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, til að leiða friðarviðræður fyrir botni Miðjarðarhafs. Blair lætur af embættinu á morgun. Erlent 26.6.2007 13:07
Þrír látnir eftir flóð í Bretlandi Þrír eru látnir eftir hellirigningar og flóð á norðurhluta Englands og fjöldi fólks er slasað. Hjálparsveitir höfðu ekki undan að bjarga fólki af húsþökum, bílastæðum og verksmiðjuhúsnæðum. Hundruð manna hafa verið flutt af heimilum sínum og þúsundir eyddu nóttinni í björgunarskýlum. Erlent 26.6.2007 12:59
Samkynhneigður koss ritskoðaður Skólastjórn gagnfræðiskóla í New Jersey segist sjá eftir að hafa ritskoðað myndir sem áttu að birtast í árbók skólans. Skólinn lét afmá myndir af 18 ára karlkyns nemanda kyssa kærasta sinn úr bókinni. Stjórn skólans segist hafa beðið nemandann afsökunnar. Erlent 26.6.2007 12:45
Sex ára drengur klæddur í sjálfsmorðssprengjuvesti Talibanar fengu Jamal Gul, sex ára afganskan dreng til að bera sjálfsmorðssprengju. Þeir settu hann í sprengjuvesti og sögðu honum að ef hann ýtti á takka myndi vestið sprauta blómum. "Þegar þeir settu vestið á mig vissi ég fyrst ekki hvað ég ætti að halda en svo fann ég fyrir sprengjunni," sagði Jamal við fréttamenn AP fréttastofunnar. Erlent 26.6.2007 11:30
Sven-Göran til Manchester City Sven-Göran Eriksson, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, hefur tekið við framkvæmdastjórastöðunni hjá Manchester City. Fréttastofan Sky News skýrði frá þessu fyrir stundu. Eriksson, sem er 59 ára Svíi, hefur verið atvinnulaus eftir Heimsmeistarakeppnina sem fór fram síðasta sumar. Manchester City er við að taka yfirtökutilboði taílenska auðkýfingsins Thaksin Shinawatra. Erlent 26.6.2007 11:26
Dæmdur til dauða í Kína Kínverskur réttarstóll dæmdi í morgun mann frá Taívan, Chung Wan-yi til dauða. Maðurinn var dæmdur fyrir að stjórna eiturlyfjahring í Kína. Í gær var annar taívanskur maður líflátinn fyrir svipaðar sakir. Erlent 26.6.2007 11:25
Fellibylur í Pakistan Fellibylur reið yfir strendur Pakistan í morgun, aðeins einum degi eftir að flóð banaði yfir 200 manns í Karachi borg.Yfirvöld í Pakistan hafa flutt þúsundir manna á brott af lágum landsvæðum. Erlent 26.6.2007 10:44
Bílaeltingaleikur í Hollandi Ökumaður í Hollandi sem var undir áhrifum kókaíns brást illa við þegar lögregla reyndi að stöðva för hans. Í kjölfarið hófst mikill eltingaleikur sem fjöldi lögreglubíla og þyrla tóku þátt í. Erlent 26.6.2007 10:41
Evrópusambandið ræðir við Tyrki Evrópusambandið stækkaði í dag viðræðugrundvöll við Tyrkland þegar hafist var handa að ræða um hagtölur og fjármálastjórn í landinu. Enn var þó horft fram hjá tveimur mikilvægustu punktunum í aðildaviðræðunum, efnahags- og gjaldmiðilsmálum. Erlent 26.6.2007 10:40
Sjö farast í kolanámu í Rússlandi Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í metansprengingu í kolanámu í Rússlandi í gær. Kolanáman er í eigu stálsmiðjunni Severstal í Vorkuta. Þriggja manna er enn saknað og er þeirra leitað. Erlent 26.6.2007 10:19
Morðingi Önnu Lindh kærir illa meðferð Mijailo Mijailovic, morðingi Önnu Lindh, fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur kært lækni og hjúkrunarkonu í Kumla-fangelsinu í Svíþjóð fyrir að taka ekki mark á kvörtunum sínum. Hann fékk blóðtappa í lungun í byrjun ársins. Erlent 26.6.2007 10:15
Viagra vinsælt á sumrin Það er ekki aðeins hitinn sem eykst á sumrin því eftir því sem segir í frétt á vef Jótlandspóstsins eykst sala á stinningarlyfjum eins og Viagra um 15 prósent yfir sumarmánuðina miðað við aðra mánuði ársins. Erlent 26.6.2007 09:41
Flugvél í Kambódíu ófundin Yfir 2000 hermenn höfðu gengið í gegnum skóg Kambódíu í morgun í mikilli rigningu, í von um að finna flugvél sem hrapaði í gær. Einum sólarhring eftir að flugvélin hvarf af ratsjám hefur ekkert fundist. Um borð í flugvélinni voru 22 manns. Erlent 26.6.2007 09:32
Óttast að stífla muni bresta Hundruð íbúa í Suður-Jórvíkurskíri í Englandi flýja nú heimili sín af ótta við að stífla á svæðinu eigi eftir að bresta eftir gríðarlega rigningu undanfarna daga. Verkfræðingar eru að störfum við að reyna að styrkja stífluna. Sprungur byrjuðu að myndast í stíflunni þegar í nótt. Miklar rigningar hafa leitt til flóða víðs vegar um landið. Ástandið fer þó batnandi. Erlent 26.6.2007 08:49
Stéttarfélög hætta þátttöku í verkfalli Stéttarfélög í Höfðaborg, sem eru meðlimir í COSATU, samtökum stéttarfélaga í Suður Afríku, hafa ákveðið að hætta þátttöku í verkfalli sem lamað hefur landið undanfarnar vikur. Um 160 þúsund meðlimir stéttarfélaga munu því mæta aftur til vinnu í dag og á morgun. Viðræður við COSATU munu halda áfram á morgun. Erlent 26.6.2007 08:28
NATO og Rússland að funda Aðalritari NATO, Jaap de Hoop Scheffer, mun funda með forseta Rússlands, Vladimir Putin, og utanríkisráðherra landsins, Sergei Lavrov, á næstunni til þess að ræða eldflaugavarnarkerfið sem Bandaríkjamenn vilja koma upp í Austur-Evrópu. Samskipti NATO og Rússa hafa ekki verið upp á sitt besta undanfarið og hafa Rússar hótað því að beina eldflaugum sínum að evrópskum skotmörkum ef eldflaugakerfið verður reist. Erlent 26.6.2007 08:01
Ópíumframleiðsla eykst í Afganistan Ópíum framleiðsla í Afganistan hefur aukist gríðarlega undanfarið samkvæmt árlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um eiturlyf en hún kom út í dag. Aukningin á sér stað þrátt fyrir viðveru 30 þúsund hermanna í landinu. Erlent 26.6.2007 07:59
Paris Hilton laus úr steininum Paris Hilton var sleppt úr fangelsi undir morgun að íslenskum tíma eftir þriggja vikna dvöl í kvennafangelsi í Lynwood í Kaliforníu. Gífurleg mergð ljósmyndara beið þess að Hilton gengi út úr fangelsinu. Hún sat inni fyrir að rjúfa skilorð vegna umferðarlagabrots. Erlent 26.6.2007 07:19
340 manns látist vegna flóða í Suður-Asíu Hundruð hafa látið lífið í flóðum sem gengið hafa yfir Suður-Asíu undanfarna daga. Fleiri en 200 hafa látið lífið í stærstu borg Pakistan, Karachi, en hún er rafmagns- og vatnslaus vegna flóðanna. Þá hafa rúmlega 140 látið lífið vegna flóðanna í Indlandi. Erlent 26.6.2007 07:18
Olíufyrirtæki yfirgefa Venesúela Tvö stærstu olíufyrirtæki heims, Conoco Philipps og Exxon Mobil, hafa hafnað samningum við stjórn Venesúela en þeir hefðu gert þeim kleyft að starfa áfram í landinu. Erlent 26.6.2007 07:15
Suður-Kórea hefur matvælaaðstoð Stjórnvöld í Suður-Kóreu hófu í gær matvælaaðstoð við Norður-Kóreu, aðeins einum degi eftir að staðfest var að afvopnunarferlið sé hafið. Suður-Kórea hefur veitt grönnum sínum aðstoð í formi hrísgrjónasendinga en þeir hafa þurft að glíma við langvarandi matarskort. Erlent 26.6.2007 07:13
Fjórveldin funda um framtíð Mið-Austurlanda Málamiðlunarkvartettinn svokallaði ætlar sér að hittast í Jerúsalem til þess að meta ástandið á svæðinu. Erlent 26.6.2007 06:54
Farþegavél fórst Leit stóð enn yfir í gær að flaki farþegaflugvélar sem hrapaði yfir frumskógi í suðurhluta landsins á sunnudagskvöld með 22 manns innanborðs. Erlent 26.6.2007 04:30