Erlent

Þriggja leitað í tengslum við bílsprengjur í Lundúnum

Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að þremur mönnum vegna tveggja bílsprengja sem fundust í miðborg Lundúna í gær. Fréttastofa bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC greinir frá þessu og segir að lögregla viti hverjir mennirnir séu - þeir búi í Birmingham og næsta nágrenni.

Erlent

Strauk og varð fangi í áratug

Fyrrverandi öryggisvörður í grunnskóla, Thomas John Hose, var á miðvikudag dæmdur í fimm til fimmtán ára fangelsi fyrir að hafa haldið stúlku, sem strauk að heiman, á heimili sínu í áratug og átt ítrekað samræði við hana.

Erlent

Ný rök fyrir kröfum Rússa

Rússland, AP Vísindamenn, sem rannsakað hafa neðansjávarhryggi og jarðfræði hafsbotnsins undir Norðurskautsísnum, segja nú að Rússar hafi sterk rök fyrir kröfu til landgrunnsréttinda á tveggja milljón ferkílómetra stóru svæði í Norður-Íshafinu.

Erlent

Hryðjuverkaógnin snýr aftur

Lögregla aftengdi í gær sprengju sem komið hafði verið fyrir í bíl í mannmörgu leikhúshverfi Lundúnaborgar, sem gæti hafa drepið hundruð manna. Sprengjan fannst þegar áhöfn sjúkrabíls sá reyk koma úr Mercedes Benz-bifreið, sem í ljós kom að var fyllt með banvænni blöndu af bensíni, própangasi og nöglum, að því er lögregluyfirvöld greindu frá.

Erlent

Mælir með góðu mataræði

George W. Bush Bandaríkjaforseti þakkaði líkamsrækt góða heilsu sína og mælti með hjólreiðum í viðtali á CBS-sjónvarpsstöðinni í gær.

Erlent

Réttur Guantanamo-fanga

Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í gær, þvert á vilja ríkisstjórnar George W. Bush forseta, að taka aftur til skoðunar hvort fangar í herfangelsinu við Guantanamo-flóa á Kúbu hafi rétt á að leita til bandarískra borgaralegra dómstóla til að fá úr því skorið hvort ótakmörkuð fangelsun þeirra, án dóms, sé lögleg.

Erlent

Portúgalar vilja efla viðræður

Evrópumálaráðherra Portúgals. Manuel Lobo Antunes, segir að portúgölsk stjórnvöld myndu í formennskutíð sinni í Evrópusambandinu síðari helming ársins ekki hlíta tilmælum Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta um að hægar yrði farið í sakirnar í aðildarviðræðum við Tyrki. Tyrknesk stjórnvöld gagnrýndu í vikunni tilraunir til að stöðva aðildarviðræðurnar.

Erlent

Skotárás í Danmörku

Tuttugu og átta ára gamall maður særðist alvarlega eftir skotárás í Lekkende Mark, sunnan af Præstø, í Danmörku. Hann var fluttur á danska ríkisspítalann með þrjú skotsár á líkamanum.

Erlent

Bíllinn við Hyde Park var fullur af sprengiefnum

Breska lögreglan segir að bíllinn sem fannst í bílageymslunni við Hyde Park hafi verið fullur af sprengiefni. Bíllinn er sömu gerðar og annar bíll sem fannst í nótt, hlaðinn samskonar sprengiefni. Því þykir nær öruggt að málin tengist.

Erlent

Brú milli Danmerkur og Þýskalands

Danir og Þjóðverjar hafa ákveðið að byggja brú milli Láglands og og Norður-Þýskalands. Brúin verður átján kílómetra löng. Framkvæmdin kostar jafnvirði hátt í 500 milljarða íslenskra króna og á að ljúka 2018.

Erlent

Blóðbaði afstýrt

Lundúnarbúar hafa verið á varðbergi í dag eftir að breska lögreglan kom í veg fyrir sprengjutilræði í miðborginni í nótt. Sprengja í kyrrstæðum bíl var gerð óvirk. Í dag var svo götu lokað vegna annarrar grunsamlegrar bifreiðar. Íslendingur sem búsettur er í Lundúnum segir blóðbaði hafa verið afstýrt.

Erlent

Tafla gegn offitu

Ítalskir vísindamenn hafa þróað einfalda töflu til inntöku sem gæti komið offitusjúklingum að góðum notum. Taflan er gerð úr sérstöku vatnshlaupi og þenst út í maga. Þannig dregur hún úr hungri og megrun ætti því að auðveldast fyrir vikið.

Erlent

Endeavour á loft þann sjöunda ágúst

Nasa hefur staðfest brottfaradag næstu mönnuðu geimsferðar sinnar. Það er geimskutlan Endeavour sem tekst á loft þann sjöunda ágúst og heldur til Alþjóðageimstöðvarinnar. Erindi skutlunnar er að halda áfram uppbyggingu stöðvarinnar. Til dæmis verður haldið áfram að klæða stöðina og fyllt verður á byrðarnar.

Erlent

Búið að opna Fleet street

Lögregla í Lundúnum hefur nú opnað Fleet street aftur. Götunni var lokað vegna grunsamlegrar bifreiðar sem þar var. Fyrr í dag var Park Lane, sem er gata við Hyde Park, lokað vegna grunsamlegs bíls í neðanjarðarbílastæði undir garðinum. Hyde Park var einnig lokað. Mikill viðbúnaður hefur verið í Lundúnum frá því í nótt þegar lögregla fann og aftengdi bílsprengju við skemmtistað rétt hjá Piccadilly Circus og Leicester Square. Talið er víst að með því hafi lögreglan komið í veg fyrir stórfellt manntjón.

Erlent

Líbanskir hermenn skutu á mótmælendur

Líbanskir hermenn skutu í dag á palestínska mótmælendur með þeim afleiðingum að þrír létust og að minnsta kosti 20 særðust. Mótmælendurnir voru að reyna að komast í gegnum eftirlitshlið á leið sinni aftur í flóttamannabúðirnar Nahr al-Bared í norður Líbanon. Vitni sögðu hermennina í fyrstu hafa skotið upp í loftið en þegar mótmælendurnir sem voru að minnsta kosti hundrað talsins.

Erlent

Hæstiréttur ákveður að fjalla um rétt fanga í Guantanamo

Bandaríkjastjórn varð fyrir enn einu áfallinu í stríði sínu gegn hryðjuverkum í dag þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað að taka fyrir mál fanga í Guantanamo-búðunum sem snýr að því hvort þeim sé heimilt að láta taka mál sín upp fyrir alríkisdómstólum.

Erlent

Frumbyggjar mótmæla í Kanada

Lögregla í Kanada hefur neyðst til þess að loka hluta af fjölförnustu hraðbraut landsins og lestarsamgöngur á milli Toronto og Montreal hafa verið stöðvaðar vegna mótmæla frumbyggja á götum úti. Mikil ferðamannahelgi er framundan enda þjóðhátíðardagurinn 1. júlí á sunnudaginn og hafa mómælin skapað talsverð vandræði.

Erlent

Marsjeppi á barmi hyldýpis

Geimjeppi Nasa Opportunity sem ekur um reikistjörnuna Mars og safnar gögnum til rannsókna á henni stendur frammi fyrir nýju og krefjandi verkefni. Honum er ætlað að renna niður í djúpan loftsteinagíg á yfirborði Mars og safna þar sýnum. Förin er hættuleg og gera Nasaliðar ekki ráð fyrir að jeppanum verði afturkvæmt úr gígnum.

Erlent

Bifreið við Hyde Park tengist rannsókn á bílsprengju í nótt

Lögregla í Bretlandi hefur lokað götunni Park Lane við Hyde Park Í Lundúnum vegna grunsamlegs bíls við götuna. Frá þessu greindi Sky-fréttastöðin og hefur eftir heimildarmönnum sínum að bifreiðin tengist rannsókn á bílsprengju sem fannst nærri Piccadilly Circus í nótt. Talið er að sprengja hafi átt hana með farsíma.

Erlent

Nítján ára í lífstíðarfangelsi

Hinn nítján ára Stuart Harling frá Rainham hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða hjúkrunarkonuna Cheryl Moss fyrir aftan St George's sjúkrahúsið í Hornchurch austan við London í apríl 2006. Moss var í sígarettupásu þegar Harling réðst að henni og stakk hana með sjötíu og tvisvar sinnum með hnífi.

Erlent

Skógareldar svíða Grikkland

Mestu skógareldar í meira en tíu ár ógna nú höfuðborg Grikklands, Aþenu, en slökkviliðsmenn, hermenn og sjálfboðaliðar berjast nú við logana. Hundruð elda loga um allt Grikkland. Talið er að einhverjir séu komnir til vegna íkveikja en margir hófst vegna rafmagnslína sem kviknaði í vegna hitans.

Erlent

Pólverjar vilja endurskoða Evrópusáttmála

Pólverjar vilja taka upp viðræður um nýundirskrifaðan sáttmála Evrópusambandsins að nýju. Forsætisráðherra landsins, Jaroslaw Kaczynski, sagði þetta á fréttamannafundi í morgun. Viðbúið er að yfirlýsingin eigi eftir að valda mikilli úlfúð meðal annarra landa Evrópusambandsins.

Erlent

Mikil neyð í Pakistan eftir flóð

Mikill skortur virðist vera á neyðaraðstoð í þeim héruðum í vesturhluta Pakistans sem hafa orðið illa úti af völdum flóða undanfarna viku. Fram kemur á fréttavef BBC að um 800 þúsund manns eigi um sárt að binda vegna flóðanna í Balúkistanhéraði í suðvesturhluta landsins en hundruð þúsunda heimila hafa eyðilagst.

Erlent

Nauðgunarlög í Súdan þarfnast yfirferðar

Þörf er á því að yfirvöld í Súdan yfirfari lög um nauðganir til að stöðva þær fjöldanauðganir sem eiga sér stað í stríðshrjáðum héruðum Darfur. Fórnarlömb nauðgana hafa nær enga möguleika á því að leita réttar síns og eiga það jafnvel á hættu að verða lögsótt fyrir kynmök utan hjónabands.

Erlent

Naglar, gas og bensín í sprengjunni í Lundúnum

Lögreglan í Lundúnum fann og gerði óvirka sprengju sem fannst í bíl nærri Piccadilly Circus í miðborginni í nótt. Sprengjan er sögð hafa verið stór. Sprengjusveit lögreglunnar var kölluð til og sprengdi hún hana í loft upp. Í bílnum fundust naglar og mikið af bensíni og gasi í kútum.

Erlent

Eftirlitsmenn sáttir við skoðunarferð um kjarnorkuver í Norður-Kóreu

Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar sögðu í morgun að skoðunarferð þeirra um kjarnorkuver Norður-Kóreu hefði verið fullnægjandi. Þeir eru í landinu í boði þarlendra stjórnvalda til þess að fylgjast með og aðstoða við afvopnunarferli landsins. Heimsókn þeirra er sú fyrsta síðan þeir voru reknir úr landinu árið 2002. Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa sagt að þau muni innsigla kjarnorkuver sitt fyrir lok júlímánaðar.

Erlent

Rússnesk yfirvöld gera tilkall til hluta Norðurpólsins

Rússnesk yfirvöld lýstu því yfir í gærkvöldi að þau telji hluta Norðurpólsins vera landfræðilega tengdan Rússlandi. Með þeim rökum gera þau tilkall til svæðisins en talið er að þar sé að finna gríðarlegt magn af olíu og verðmætum málmum. Bandaríkin og Kanada hafa formlega mótmælt yfirlýsingunni. Samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna getur engin þjóð gert tilkall til Norðurpólsins eða landgrunnsins í kring. Rússar lögðu fram álíka kröfu fyrir fimm árum en var þá hafnað.

Erlent