Erlent
Foreldrar geti fylgst með börnum sínum Með nýjum GPS-farsímum geta foreldrar fylgst með staðsetningu barna sinna. Þetta segir Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri íslenska fyrirtækisins Trackwell. Fyrirtækið hefur þróað eftirlitsforrit frá árinu 1996. Erlent 18.7.2007 02:45
Næturfundur um Íraksmálið Demókratar í öldungadeild Bandaríkjaþings bjuggu sig í gær undir langan og strangan þingfund um Íraksmálið, sem standa átti alla nóttina. Reiknað er með endanlegri atkvæðagreiðslu í deildinni í dag. Erlent 18.7.2007 02:30
Ætla að svara á viðeigandi hátt Stjórnvöld í Rússlandi sögðust í gær ætla að svara bresku ríkisstjórninni á ákveðinn og viðeigandi hátt eftir að stjórnvöld á Englandi ákváðu að reka fjóra rússneska diplómata úr landi á mánudag. Erlent 18.7.2007 02:30
Dauðadómur og ævilangtfangelsi fyrir þrælahald Forstjóri, verkstjóri og undirverkstjóri í kínversku múrsteinsbrennslufyrirtæki voru í gær dæmdir fyrir þrælahald og misþyrmingar á starfsfólki. Erlent 18.7.2007 02:00
Vill gera alla að líffæragjöfum Allir Bretar verða líffæragjafar nema þeir taki annað fram nái tillaga landlæknis Bretlands, Liams Donaldson, fram að ganga. Donaldson segir alvarlegan skort á líffærum í Bretlandi þar sem að meðaltali einn sjúklingur deyi daglega meðan hann bíður eftir líffæri. Erlent 18.7.2007 01:00
Bilanahrina í kjarnorkuveri Kjarnorkuúrgangur sem helltist niður, sprungin rör, eldur og vatnsleki eru dæmi um nokkur af þeim fimmtíu vandamálum sem uppgötvuðust í stærsta kjarnorkuveri heims, Kashiwazaki-Kariwa, eftir að stór jarðskjálfti reið yfir í norðurhluta Japans á mánudaginn. Erlent 18.7.2007 00:15
Flugvél með 170 manns alelda eftir að hafa keyrt á bensínstöð Flugvél með 170 manns innanborðs hlekktist á í flugtaki frá flugvellinum í Sao Paulo í Brasilíu í kvöld með þeim afleiðingum að hún keyrði beint á bensínstöð. Vélin varð strax alelda en ekki er vitað hvort einhver hafi látið lífið eða hversu margir slösuðust. Björgunaraðgerðir standa nú yfir. Erlent 17.7.2007 23:32
Tólf láta lífið í sjálfsmorðsárás í Pakistan Að minnsta kosti 12 létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás í Islamabad í Pakistan í dag. Talið er árásinni hafi verið beint gegn stuðningsmönnum, Iftikhar Chaudhry fyrrum dómsmálaráðherra landins. Erlent 17.7.2007 23:04
Dómstólaráð Líbíu mildar dóm yfir heilbrigðisstarfsfólki Dómstólaráð Líbíu ákvað í dag að milda dóm yfir fimm hjúkrunarkonum frá Búlgaríu og einum lækni frá Palestínu úr dauðdómi í ævilangt fangelsi. Fólkið var dæmt til dauða í síðustu viku fyrir að hafa smitað 438 börn viljandi af HIV veirunni. Talið er að ákvörðun dómstólaráðs Líbíu eigi eftir að liðka fyrir því að fólkið verði látið laust. Erlent 17.7.2007 22:42
Þjálfa hermenn til að greina áfallastreitu Bandaríski herinn hefur ákveðið að þjálfa alla hermenn til að greina áfallastreitu hjá sjálfum sér svo þeir geti leitað sér aðstoðar. Talið er að um 30 prósent bandarískra hermanna í Írak hafi upplifað áfallastreitu á einhverjum tímapunkti. Herinn hefur þó takmarkaða getu til að hjálpa þessum hermönnum eins og sakir standa. Erlent 17.7.2007 20:20
Friðarfundur væntanlega haldinn í Bandaríkjunum Fyrirhugaður friðarfundur ríkja fyrir botni Miðjarðarhafs verður væntanlega haldinn í Bandaríkjunum síðar á þessu ári. Þetta kom fram í máli talsmanns bandaríska innanríkisráðuneytisins á blaðamannafundi í dag. Enn liggur þó ekki fyrir hvaða ríkjum verður boðið á friðarfundinn. Erlent 17.7.2007 19:38
Ingibjörg segir Peres vongóðan um frið Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að Shimon Peres nýr forseti Ísraels sé bjartsýnn á friðarferlið á svæðinu þrátt fyrir að mörg tækifæri hafi glatast á síðustu misserum. Ingibjörg er fyrst erlendra ráðamanna til að hitta Peres eftir að hann tók við forsetaembætti. Erlent 17.7.2007 18:48
Mömmu var ekki skemmt Spænskur faðir hefur verið sviptur umgengnisrétti við tíu ára gamlan son sinn, eftir að móðirin sá myndir af þeim í nautahlaupinu í Pamplona. Hjónin eru skilin en sonurinn var í sumarfríi með föður sinum. Á myndunum sem móðirin sá voru feðgarnir á harðahlaupum nokkrum metrum á undan 600 kílóa tarfi. Hún hringdi þegar í lögregluna. Erlent 17.7.2007 16:36
Madeleine Potter J.K. Rowling, höfundur bókanna um Harry Potter hefur farið framá að mynd af Madeleine McCann verði hengd upp í öllum bókabúðum þar sem nýjasta bókin um galdrastrákinn verður seld. Madeleine, sem er fjögurra ára gömul var rænt af hóteli í Portúgal fyrir tveimur og hálfum mánuði. Erlent 17.7.2007 15:35
Undirbúningur hafinn fyrir geimskot Endeavour Sjö manna áhöfn Endeavour geimskutlunnar frá Nasa er komin til Flórída þar sem undirbúningur fyrir flugtak skutlunnar hefst. Flugtakið er sett þann 7da ágúst. Áfangastaðurinn er Alþjóðageimstöðin þar sem byggingu stöðvarinnar verður haldið áfram. Erlent 17.7.2007 15:33
Líbanski herinn sækir lengra inn í flóttamannabúðir Líbanskar hersveitir sóttu í dag lengra inn í flóttamannabúðir þar sem þær hafa barist við liðsmenn Fatah al-Islam síðan 20. maí síðastliðinn. Samtökin eru sögð tengjast Al Kæda. Líbanski herinn hefur nú hrakið liðsmenn þeirra inn í lítið horn flóttamannabúðanna. Að minnsta kosti 227 hafa fallið í þessum átökum. Erlent 17.7.2007 15:01
Rússar hóta að reka 80 breska diplomata úr landi Rússar hafa hótað að reka 80 breska diplomata úr landi í hefndarskyni fyrir brottrekstur fjögurra rússneskra diplomata frá Bretlandi. Rússarnir voru reknir vegna tregðu stjórnvalda til þess að framselja meintan morðingja rússneska njósnarans Alexanders Litvinenkos. Erlent 17.7.2007 14:28
Auðveldara á tveimur jafnfljótum Mannskepnan stóð upp á afturlappirnar og hóf að ganga upprétt vegna orkusparnaðar sem felst í því. Þetta er niðurstaða bandarískra vísindamanna. Báru þeir saman göngulag nútímamanna og simpansa, sem beita að jafnaði fjórum útlimum við ferðalög sín. Erlent 17.7.2007 14:23
Vill líta á alla landsmenn sem líffæragjafa Landlæknir Bretlands vill breyta lögum þannig að litið sé á alla þegna landsins sem viljuga líffæragjafa, nema þeir óski sérstaklega eftir því að vera það ekki. Í dag er þessu þveröfugt farið. Sir Liam Donaldson segir að með því megi bjarga hundruðum mannslífa á hverju ári. Erlent 17.7.2007 13:49
Sýrlendingar heimta Golan hæðir Sýrlendingar segja að þeir muni ekki hefja friðarviðræður við Ísrael nema Ísraelar gefi fyrirfram loforð um að skila öllum Golan hæðunum. Bashar al-Assad, forseti Sýrlands lýsti þessu yfir á sýrlenska þinginu í dag. Erlent 17.7.2007 12:58
Tyrkneskur þingframbjóðandi myrtur Tyrkneskur frambjóðandi sjálfstæðisflokkssins var skotinn til bana í Istanbul í gærkvöldi. Alþingiskosningar fara fram á sunnudag í landinu. Frambjóðandinn Tuncay Seyranlioglu var í bíl á leið úr sjónvarpsviðtali þegar skotárás var gerð á hraðbraut í borginni. Þrír farþegar í bílnum voru fluttir slasaðir á sjúkrahús. Erlent 17.7.2007 12:58
Fundur Ingibjargar og Peres vakti athygli Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hitti Shimon Peres forseta Ísrael á fundi í Jerúsalem í morgun. Ingibjörg er fyrsti erlendi ráðamaðurinn sem Peres hittir í embætti forseta, en hann tók við því á sunnudag. Fundurinn vakti mikla athygli fjölmiðla í Ísrael og er fjallað sérstaklega um Ísland af því tilefni. Erlent 17.7.2007 12:49
Íranar segja fund með Bandaríkjamönnum líklegan Utanríkisráðherra Írans sagði í dag að miklar líkur væru á því að Bandaríkin og Íran myndu eiga viðræður í náinni framtíð. Ummæli hans þykja gefa til kynna að fundur verði haldinn á næstunni en utanríkisráðherrar landanna tveggja hittust í Írak í maí síðastliðnum. Talið er að ríkin tvö muni ræða öryggisástandið í Írak og leiðir til þess að bæta úr því. Erlent 17.7.2007 11:30
Fjölskyldur HIV smitaðra barna þiggja bætur Rúmur helmingur fjölskyldna þeirra 426 barna sem smituðust af HIV veirunni í Líbíu fyrir nokkrum árum hefur þegar fengið bætur sem þeim var lofað. Afgangur þeirra fær væntanlega bæturnar í dag. Erlent 17.7.2007 11:17
Al-Sadr tekur þátt í stjórnmálum á nýjan leik Stjórnmálaarmur samtaka sjía klerksins Múktada al-Sadr tilkynnti í dag að hann hefði hafið þátttöku í írakska þinginu á ný. Fyrir mánuði síðan dró hann sig úr stjórnarsamstarfi vegna óánægju með viðbrögð stjórnvalda við árás á heilaga mosku sjía múslima. Erlent 17.7.2007 10:55
Síamstvíburar í Kína bíða aðgerðar síamstvíburar sem fæddust í Kína bíða nú aðskilnaðar. Opinber fréttastofa Kína sendi í gær frá sér myndir af stúlkunum í fyrsta sinn, en sagði ekki til um hvort um stráka eða stúlkur væri að ræða. Tvíburarnir fæddust þann 15. mars síðastliðinn og fara brátt í aðgerð. Erlent 17.7.2007 10:28
Tré drukkna í Osló Á meðan úrkoman í Reykjavík hefur aðeins verið sjö millimetrar frá miðjum júní, eru tré að drukkna í Osló vegna mikilla rigninga undanfarnar vikur. Tré eru einnig að falla þar vegna þess að jarðvegurinn er orðinn svo gljúpur að ræturnar hafa litla festu. Erlent 17.7.2007 10:21
Erdogan hótar að hætta í stjórnmálum Forsætisráðherra Tyrklands, Tayyip Erdogan, sagði í dag að hann myndi hætta afskiptum af stjórnmálum ef flokkur hans næði ekki að mynda eins flokks stjórn eftir kosningarnar sem verða á sunnudaginn kemur. Skoðanakannanir gefa til kynna að flokkur hans, AK, muni fá nógu mörg atkvæði til þess að ná meirihluta á þingi. Erlent 17.7.2007 09:57
Tæplega 42.000 skátar koma saman á alheimsmóti Tæplega 42.000 skátar frá 159 þjóðlöndum munu sækja 21. alheimsmót skáta sem haldið verður í Hylands-Park í Englandi dagana 27. júlí til 8. ágúst. Frá Íslandi fara ríflega 440 íslenskir skátar og mun það vera stærsti hópur sem skátar á Íslandi hafa nokkru sinni sent á viðburð erlendis. Rúmlega 320 þessara þátttakenda eru unglingar á aldrinum 14-18 ára. Erlent 17.7.2007 09:54
Erfitt að sannfæra N-Kóreu um að afvopnast Stjórnarerindrekar Bandaríkjamanna sögðu við upphaf afvopnunarviðræðna í Bejing í gær að erfitt gæti reynst að sannfæra Norður-Kóreumenn um að láta af kjarnorkuvopnaáætlunum sínum. Norður Kórea lokaði kjarnorkuofni í Yongbyon á laugardaginn og var það fyrsta skref í afvopnunarsamningi sem samþykktur var í febrúar. Erlent 17.7.2007 09:02