Erlent
Kallað hermenn heim en ekki gæsluliða Nærri tuttugu þjóðir hafa kallað herlið sitt heim frá Írak frá innrásinni 2003. Fulltrúar sumra ríkjanna starfa þó enn þar á vegum Sameinuðu þjóðanna eða Atlantshafsbandalagsins þrátt fyrir heimkvaðningu hermanna. Erlent 6.9.2007 18:45
Rhys Jones borinn til grafar í dag Rhys Jones, ellefu ára drengur sem lést fyrir byssukúlu skotmanns í Liverpool í Bretlandi, var borinn til grafar í dag. Meðal þeirra sem voru viðstaddir útförina í dómkirkjunni í Liverpool voru félagar hans úr fótboltanum. Erlent 6.9.2007 18:12
Flugu milli Íslands og Færeyja Átta rússneskar herflugvélar fóru inn í íslenska flugumferðarsvæðið í morgun án þess að tilkynna flugmálayfirvöldum um komu sína. Erlent 6.9.2007 18:10
Árás hrundið í Ísrael Sex palestinskir vígamenn voru felldir þegar þeir reyndu að gera árás á ísraelska varðstöð við Gaza ströndina í dag. Ísraelar beittu orrustuþyrlu til þess að hrinda árásinn. Palestínumennirnir tilheyrðu samtökunum Islamic Jihad. Erlent 6.9.2007 16:36
Víkingar sóttir í hauga í Noregi Norskir fornleifafræðingar eru nú að sækja jarðneskar leifar þriggja víkinga í hauga þar semþær voru skildar eftir þegar skip voru grafin úr haugunum á fyrrihluta síðustu aldar. Annað var hið fræga Gauksstaðaskip en hitt var sótt í haug í Oseberg. Erlent 6.9.2007 15:41
Gabb í Kaupmannahöfn Hryðjuverkaútkall lögreglunnar í Kaupmannahöfn eftir hádegi, reyndist vera gabb. Tilkynnt var um sprengiefni og hugsanleg efnavopn. Lögreglan tól kallið alvarlega, girti af hverfið og flutti fólk á brott. Nú er verið að reyna að finna þá sem göbbuðu hana og eiga þeir ekki von á góðu ef þeir nást. Erlent 6.9.2007 14:16
Kaupmannahafnarlögreglan í hryðjuverkaútkalli Danska lögreglan hefur lokað hverfi í norðvesturhluta Kaupmannahafnar. Lögreglan hafði fengið tilkynningu um að þar sé sprengiefni og efnavopn. Íbúar í nærliggjandi húsum hafa verið fluttir á brott. Talsmaður lögreglunnar segir í samtali við Extra Bladet að miðað við það sem á undan sé gengið, sé engin áhætta tekin þegar svona tilkynningar berist. Því hafi fólki verið forðað. Verið er að leita í húsi við Næturgalaveg 75. Erlent 6.9.2007 12:55
Tilraunir til hryðjuverka sýna mikilvægi herliðs í Afganistan Háttsettur Bandarískur diplómat segir að sprengjuárásirnar sem þýskum yfirvöldum tókst að koma í veg fyrir í gær sýni mikilvægi þess að þjóðverjar og aðrar Natoþjóðir hafi herlið sitt áfram í Afganistan. Richard Boucher, aðstoðar utanríkisráðherra Bandaríkjanna yfir suður- og mið-Asíu, hvatti í viðtali við Reuters þýsk stórnvöld til að halda herliði sínu í í landinu og sagði þetta veru eina leiðina til að stöðva straum hryðjuverkamanna frá svæðinu. Erlent 6.9.2007 12:09
Danska lögreglan engu nær um hver sprengdi hús í Íslendingahverfi í Árósum Danska lögreglan hefur lagt til hliðar rannsókn á því þegar einbýlishús sprakk í sumar, án þess að vera nokkru nær um hver framdi verknaðinn. Erlent 6.9.2007 12:00
Rússnesku sprengjuvélarnar nálgast Ísland Breskar orrustuþotur hafa tekið við af norskum við að fylgjast með átta rússneskum sprengjuflugvélum sem eru á flugi yfir Norður-Atlantshafi. Ef að líkum lætur munu rússnesku vélarnar svo taka stefnuna á Ísland, og hér eru náttúrlega engar vélar til þess að senda á móti þeim. Erlent 6.9.2007 11:43
Spáð handtöku vegna hvarfs Madeleine McCann Breska Sky fréttastofan segir að mikilvæg DNA sýni hafi fundist í íbúðinni sem foreldrar Madeleina McCann bjuggu í ásamt börnum sínum, þegar telpan hvarf. Daily Mirror heldur því fram að sýnin muni leiða til handtöku innan tveggja sólarhringa. Sýnin voru skoðuð í rannsóknarstofu bresku lögreglunnar. Erlent 6.9.2007 11:13
Norskar orrustuþotur á móti Rússum Norðmenn sendu í morgun tvær orrustuþotur á móti rússneskum sprengjuflugvélum sem nálguðust norska lofthelgi. Ofursti í norska flughernum segir að þeir fylgist náið með öllum ferðum Rússa og búist við tíðum heimsóknum þeirra á næstu árum. Erlent 6.9.2007 10:33
Rússar sagðir tilbúnir að afhenda Írönum kjarnorkueldsneyti Rússar og Íranar hafa náð samkomulagi um afhendingu á eldsneyti fyrir fyrsta kjarnorkuver Írana, að sögn ríkisútvarpsins í Teheran. Afhending eldsneytisins hefur tafist verulega. Rússar segja að það sé vegna þess að Íranar hafi ekki innt af hendi umsamdar greiðslur. Íranar segja hinsvegar að það sé vegna þess að Rússar séu undir miklum þrýstingi frá Vesturlöndum um að hætta við afhendinguna. Erlent 6.9.2007 10:13
Tíu leitað venga hryðjuverkamáls í Þýskalandi Þýsk yfirvöld leita nú tíu manna sem þau telja hafa aðstoðað mennina þrjá sem voru handteknir í gær grunaðir um að skipuleggja hryðjuverkaárásir í Þýskalandi. Fólkið er talið vera meðlimir í þýskri deild hryðjuverkasamtakanna islamskt Jihad. Aðstoðarinnanríkisráðherra Þýskalands, August Hanning, sagði í sjónvarpsviðtali í morgun að ekki stafaði lengur ógn af þessum tiltekna hópi. Þó væri ekki loku fyrir það skotið að fleiri hyggðu á árásir. Erlent 6.9.2007 08:51
Thompson tilkynnir framboð Leikarinn og fyrrverandi öldungardeildarþingmaðurinn Fred Thompsons hefur tilkynnt að hann hyggist sækjast eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins árið 2008. Erlent 6.9.2007 08:45
Sjö handteknir vegna hrottalegrar árásar í Danmörku Lögregla í Danmörku handtók í nótt sjö manns sem hún grunar að hafi ráðist á þrjátíu og fimm ára gamla konu á Jótlandi í gær. Konan fannst í gær nærri dauða en lífi við vegarkant við bæinn Roslev á Jótlandi. Hún var flutt á nærliggjandi sjúkrahús þar sem henni er haldið lifandi í öndunarvél. Málið hefur vakið óhug í Danmörku. Konan var nakin en föt hennar fundust skammt frá staðnum þar sem hún lá. Konan var illa farin og telur lögreglan allt benda til þess að hún hafi orðið fyrir hrottalegu ofbeldi. Erlent 6.9.2007 08:44
Fossetts enn leitað Ævintýramannsins og auðkýfingsins Steves Fossetts er enn leitað, en ekkert hefur spurst til hans frá því á mánudaginn þegar hann tók loft í eins hreyfils vél sinni frá flugvelli í Nevada. Ekkert neyðarkall hefur borist frá vélinni, en Fossett var ekki í fjarskiptasambandi á meðan hann var á lofti og ekki með fyrirliggjandi flugáætlun. Steve Fosset varð heimsfrægur þegar hann varð fyrstu manna til að fara hringinn í kringum jörðina í loftbelg árið 2002. Hann er 63 ára gamall og hefur sett 115 heimsmet í ferðalögum á loftbelgjum, flugvélum og seglbátum svo fátt eitt sé nefnt. Erlent 6.9.2007 08:41
Craig hættir hugsanlega við afsögn Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Larry Craig segist hugsanlega ætla að hætta við afsögn sína. Craig sagði af sér eftir að hann var hantekinn fyrir að hafa falast eftir kynmökum við óeinkennisklæddan lögreglumann á flugvelli. Þingmaðurinn segist ekkert rangt hafa gert og þvertekur fyrir það að vera samkynhneigður. Hann hefur á ferli sínum barist hatrammlega gegn auknum réttindum samkynhneigðra. Erlent 6.9.2007 08:40
Pavarotti er látinn Ítalski stórsöngvarinn Luciano Pavarotti lést nú í morgunsárið á heimili sínu í Modena á Ítalíu, umkringdur fjölskyldu og vinum Erlent 6.9.2007 08:28
Fannst nakin og illa farin við vegarkant Lögreglan í Danmörku fann í dag um fertuga konu nærri dauða en lífi við vegarkant við bæinn Roslev á Jótlandi. Konan var flutt á nærliggjandi sjúkrahús þar sem henni er haldið lifandi í öndunarvél. Allt bendir til þess að hún hafi verið beitt hrottalegu ofbeldi. Erlent 5.9.2007 23:37
Tugir manna láta lífið í hitabylgju í Kaliforníu Að minnsta kosti 25 hafa látið lífið í mikilli hitabylgju sem hefur gengið yfir suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum síðustu daga. Hiti fór í fyrsta skipti í dag niður fyrir 40 gráður í Los Angeles og mælist nú 38 gráður. Rafmagnslaust varð á stórum svæðum í kjölfar hitabylgjunnar vegna mikillar rafmagnsnotkunar. Erlent 5.9.2007 22:59
Flytja allt plútóníum á einn stað Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að flytja allar birgðir af geislavirku plútóníum sem nota má í kjarnorkuvopn til Savannah River í Suður-Karólínu fylki. Er þetta gert til að einfalda öryggisgæslu, draga úr kostnaði og koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir. Alls verða um þrjú þúsund gámar af plútóníum fluttir á hið nýja öryggissvæðið. Erlent 5.9.2007 21:30
Um 200 manns enn saknað í Níkaragva Að minnsta kosti 21 lét lífið þegar fellibylurinn Felix gekk yfir austurströnd Níkaragva í Mið-Ameríku í gær samkvæmt þarlendum yfirvöldum. Um 200 manns er enn saknað en þúsundir heimila eyðilögðust af völdum fellibylsins. Erlent 5.9.2007 20:59
Ræningjar með góða þjónustulund Þrír menn sem rændu sportvöruverslun nálægt borginni Montevideo í Úrúgvæ í dag héldu áfram að afgreiða viðskiptavini á meðan á ráninu stóð. Mennirnir lokuðu starfsmenn verslunarinnar inni í bakherbergi og afgreiddu viðskiptavini í tæpan hálftíma áður en þeir hurfu á braut. Erlent 5.9.2007 20:27
Flaug með fimm kjarnorkusprengjur fyrir mistök Bandarísk herflugvél flaug fyrir mistök með fimm kjarnorkusprengjur um borð yfir Bandaríkin í síðustu viku. Mistökin uppgötvuðust fyrir tilviljun en yfirmenn flughersins segja að þrátt fyrir þau hafi aldrei verið nein hætta á ferðum. Erlent 5.9.2007 19:35
Heilsu Pavarottis hrakar Heilsu stórsöngvarans Lucianos Pavarottis hefur hrakað mjög og ástand hans er nú sagt mjög alvarlegt. Pavarotti þjáist af krabbameini. Læknar sinna honum á heimili hans á Ítalíu. Erlent 5.9.2007 19:21
Systir grunaðs hryðjuverkamanns segir dönsku lögregluna ómanneskjulega Það var ómanneskjulegt hvernig lögreglan réðst inná fjölskyldu mína um miðja nótt, segir systir eins þeirra sem var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald í Kaupmannahöfn, vegna gruns um hryðjuverkastarfsemi. Erlent 5.9.2007 18:30
Leigubílstjórar í New York leggja niður vinnu Um 13 þúsund leigubílstjórar í New York borg í Bandaríkjunum héldu sig heima í dag til að mótmæla nýju tölvukerfi sem borgaryfirvöld vilja setja í leigubíla. Ekki urðu miklar truflanir á samgöngum en nú stendur yfir tískuvika þar í borg. Leigubílstjórarnir telja að tölvukerfið muni brjóta á mannréttindum þeirra og auka óþægindi í akstri. Erlent 5.9.2007 18:00
Íslendingar kalla herlið sitt heim frá Írak Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að Ísland hætti þáttöku í friðargæslu í Írak. Frá og með fyrsta október verða engir íslenskir friðargæsluliðar í landinu. Með þessari frétt fylgir mynd af íslensku friðargæslusveitinni sem væntanlega verður kölluð heim fyrsta október. Erlent 5.9.2007 14:46
Danir halda framhjá í bunkum Fjórir af hverjum tíu Dönum halda framhjá maka sínum einhverntíma ævinnar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Könnuðurinn hefur áhyggjur af því að framhjáhald fari að teljast eðlilegt. Konur óttast mest tilfinningaleg tengsl manna sinna við aðrar konur. Karlmenn óttast hinsvegar mest kynferðislegt samneyti kvenna sinna við aðra menn. Erlent 5.9.2007 14:19