Erlent

Á 86 konur og 170 börn

84 ára gamall Nígeríumaður, Mohammed Bello Abubakhar, ráðleggur karlmönnum um víða veröld að taka sig ekki til fyrirmyndar. Mohammed á 86 konur.

Erlent

Mugabe myndar stjórn – hunsar Tsvangirai

Robert Mugabe, forseti Simbave, hefur gert samkomulag við Arthur Mutambara, leiðtoga klofningsflokks MDC, um stjórn landsins. Leiðtogi MDC, Morgan Tsvangirai var hafður að vettugi í samkomulaginu.

Erlent

Rússar og Georgíumenn samþykkja friðarsamkomulag

Georgíumenn og Rússar hafa komist að samkomulagi um vopnahlé fyrir milligöngu Frakka. Þjóðirnar hafa einnig samþykkt drög að friðarsamkomulagi eftir átök síðustu daga vegna mála Suður-Ossetíu. Samkomulagið er þó enn til umræðu svo ekki liggur fyrir hvað í því felst.

Erlent

Ísbúðarmorðingja leitað í Þýskalandi

Lögreglan í Þýskalandi hefur nú hafið viðamikla leit að morðingja sem varð þremur karlmönnum og einni konu að bana við ísbúð í bænum Russelsheim, skammt suð-vestur af Frankfurt, í dag.

Erlent

Rómverskt hof fannst undir kirkju

Ísraelskir fornleifafræðingar hafa fundið rústir rómversks hofs undir grunni kirkju á Zippori í Ísrael sem var höfuðborg Galíleu á rómverskum tíma. Hofið hefur verið rænt og ruplað í fornöld og stendur því aðeins grunnurinn nú eftir.

Erlent

Ísraelsmenn leggja til samning um Vesturbakkann

Ísraelsmenn hafa lagt til friðarsamning við Palestínumenn sem myndi tryggja þeim fyrrnefndu 7,3 prósent af Vesturbakkanum samkvæmt ísraelska fréttablaðinu Haaretz. Myndi sá samningur gera þeim kleift að halda stærstu landnemabyggðum sínum.

Erlent

Viðræður í Zimbabwe halda áfram

Samningaviðræðum stjórnar og stjórnarandstöðu í Zimbabwe verður haldið áfram nú eftir hádegið og enn vonast menn til að niðurstaða fáist í þær á næstu klukkustundum.

Erlent

Bretar hegða sér illa á erlendi grundu

Slæm hegðun Breta utan landsteina þeirra hefur leitt til mikillar aukningar á handtökum Breta á Spáni og Frakklandi samkvæmt nýjustu könnunum. Orsakast hin slæma hegðun fyrst of fremst af ofdrykkju og dólgsláta í kjölfar hennar.

Erlent

Enn barist í Abkasíu

Rússar hafa hætt hernaðaraðgerðum sínum í Georgíu enda telja þeir sig nú hafa náð markmiðum sínum - að tryggja öryggi rússneskra íbúa Suður-Ossetíu og rússneskra friðargæsluliða. Í Abkasíu halda uppreisnarmenn hins vegar áfram að láta sprengjum rigna yfir georgíska hermenn.

Erlent

Pólitískum föngum fækkar á Kúbu

Pólitískum föngum á Kúbu hefur fækkað það sem af er ári samkvæmt nýrri skýrslu mannréttindasamtaka í landinu. Samtökin segja þó að nýjum forseta, Raul Castro, fylgi þó ekki grundvallarbreytingar í mannréttindamálum.

Erlent

Bush á heimavelli á hafnaboltaleik í Peking

George Bush Bandaríkjaforseti sagði að Ólympíuleikarnir hefðu farið fram úr væntingum hans. Forsetinn var í fjóra daga í Peking og náði að vera við fjölmargan íþróttaviðburðinn áður en hann sneri aftur til Washington.

Erlent

Falsaðir flugeldar á opnunarhátíðinni í Peking

Sjónvarpsáhorfendur um allan heim sem fylgdust spenntir með opnunarhátíð Ólympíuleikanna og tóku margir hverjir andköf af hrifningu þegar nokkurskonar fótspor voru mynduð með flugeldum á sjónvarpsskjánum. Nú hefur hinsvegar komið í ljós að þar var tæknin á ferð, því fótsporin voru búin til í tölvu. Jafnvel stórir tölvuskjáir sem voru inni á leikvangnum sýndu tölvugerðu flugeldana.

Erlent

Rússar láta af árásum í Georgíu

Dimitri Medvedev, forseti Rússlands, hefur ákveðið að aðgerðum hersins gegn Georgíu verði hætt. Samkvæmt BBC sagðist Medvedev á fundi með embættismönnum í Kreml hafa ákveðið að binda enda á hernaðaraðgerðirnar og þvinga ráðamenn í Gerogíu til að gera friðarsamkomulag.

Erlent

Sagði Obama vera óamerískan

Minnisblöð sýna að Mark Penn sem var einn helsti ráðgjafi Hillary Clinton vildi ráðast harkalega að Barack Obama, keppinaut hennar í kosningabaráttunni um útnefninguna sem forsetaefni Demókrataflokksins, og gera að umtalsefni það sem hann kallaði óamerískan bakgrunn Obama.

Erlent

Áframhaldandi átök í Georgíu

Aðskilnaðarsinnar í sjálfstjórnarhéraðinu Abkhazía í Georgíu hafa hafið mikla gagnsókn gegn georíska stjórnarhernum á svæðinu í því augnarmiði að hrekja herinn frá hernaðarlega mikilvægum svæðum.

Erlent

Úrskurði í nauðgunarmáli í Bretlandi breytt

Bresk yfirvöld hafa viðurkennt að hafa brotið á 25 ára konu sem var nauðgað fyrir fimm árum. Konan átti rétt á bótum en var sagt að þær myndu skerðarst um 25% vegna þess að hún var ölvað þegar henni var nauðgað.

Erlent

Salmonella í Danmörku

Heilbrigðiseftirlitið í Danmörku fullyrðir nú að salmonellu sýking sem hefur geysað í Danmörku í allt sumar hafi ekki borist með innfluttu kjöti.

Erlent

Fundum haldið áfram í Zimbabwe

Forseta Zimbabwe og leiðtoga stjórnarandstöðunnar tókst ekki að ná samkomulagi um nýja ríkisstjórn í gær. Robert Mugabe forseti segir að viðræðunum verði haldið áfram og telur hann að samkomulag verði undirritað á næstunni.

Erlent