Erlent
BNA og Pólland skrifa undir varnarsamning Pólland hefur skrifað undir samning við Bandaríkin um að hýsa hluta af skotvarnarkerfi Bandaríkjahers. Í samningnum felst að Bandaríkin munu koma 10 flugskeytum fyrir á herstöð í Póllandi í staðinn fyrir að hjálpa Pólverjum að styrkja flugvarnir sínar. Erlent 15.8.2008 11:26
Rushdie óhress með útgefandann vegna bókar um Múhameð Rithöfundurinn Salman Rushdie hefur gagnrýnt útgefandann sinn Random House harðlega fyrir að hætta við útgáfu á sögulegri skáldsögu sem fjallar um spámanninn Múhameð og barnunga brúði hans. Erlent 15.8.2008 08:34
Fleiri blekkingar Kínverja komast upp Opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking er enn milli tannana á fólki. Sagt hefur verið frá því að stjórnendur hátíðarinnar hafi látið tölvuteikna hluta flugeldasýningarinnar stórfenglegu. Erlent 15.8.2008 08:26
Biðlistum eytt á dauðadeildinni í Texas Fjörutíu og fimm ára karlmaður var tekinn af lífi í nótt í Texas ríki en maðurinn var fundinn sekur um morð á lögreglumanni á aðfangadag árið 2000. Maðurinn var í hópi sjö fanga sem brutu sér leið út úr prísund sinni í desember það ár. Erlent 15.8.2008 08:15
Væri nær að banna svínakjöt til þess að koma í veg fyrir salmonellu Danskir stjórnmálamenn ættu að banna danskt svínakjöt ef þeir vilja koma í veg fyrir salmonellusmit segir matvælasérfræðingur þar í landi. Erlent 15.8.2008 07:47
Mótmæltu framferði Kínverja í Tíbet Fimm útlendingar eru í haldi í Peking höfuðborg Kína en fólkið var að mótmæla framferði Kínverja í Tíbet. Þrennt er frá Bandaríkjunum, einn frá Ástralíu en fimmti mótmælandinn er Breti, að því er fréttastofa SKY greinir frá. Fólkið klifraði upp á höfuðstöðvar kínverska ríkissjónvarpsins og lét sig síðan síga niður með stóran mótmælafána. Erlent 15.8.2008 07:26
Skotinn til bana í Danmörku Nítján ára gamall maður var í gærkvöldi skotinn til bana í bænum Tingbjerg sem er úthverfi Kaupmannahafnar. Danska lögreglan telur að um klíkuuppgjör sé að ræða en drengurinn sat og borðaði pizzu með félögum sínum þegar á þá var skotið með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 15.8.2008 07:23
Rice heimsækir Tbilisi Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag heimsækja Tbilisi, höfuðborg Georgíu. Rice mun hitta Mikheil Saakashvili forseta Georgíu að máli og reyna til þrautar að ná lausn í deilum Rússa og Georgíumanna en hermenn ríkjanna hafa barist í Suður-Ossetíu undanfarið. Erlent 15.8.2008 07:12
Líklegt að Musharraf muni segja af sér á næstu dögum Financial Times fullyrðir á heimasíðu sinni að forseti Pakistans, Pervez Musharraf, muni láta af embætti á næstu dögum svo hann sleppi við að mæta ákærum pakistanska þingsins. Erlent 14.8.2008 21:46
Bandaríkin og Líbýa innsigla samning um skaðabætur Bandaríkin og Líbýa munu endurnýja diplómatísk tengsl sín eftir að hafa skrifað undir samning um skaðabætur vegna sprenginga sem varða löndin tvö. Skrifað var undir samninginn í Trípoli, höfuðborg Líbýu í dag. Erlent 14.8.2008 16:54
Viljayfirlýsing um eldflaugavarnarkerfi Pólskir og bandarískir samningamenn munu á morgun skrifa undir viljayfirlýsingu um að hluti af eldflaugavarnarkerfi, sem Bandaríkjamenn vilja setja upp í Austur-Evrópu, verði í Póllandi. Erlent 14.8.2008 16:38
Obama reynir að ná til andstæðinga fóstureyðinga Barack Obama, forsetaframbjóðandi Demókrata og stuðningsmenn hans vinna nú að því að ná til þeirra kjósenda sem eru á móti fóstureyðingum. Það ætla þau að gera með því að hvetja til aðgerða til að hjálpa konum að halda börnum sínum í stað þess að fara í fóstureyðingar. Erlent 14.8.2008 14:57
Segir drukkna Suður-Osseta skjóta á blaðamenn Rússar stjórna enn georísku borginni Gori og hleypa engum inn í borgina. Þá hafa drukknir uppreisnarmenn úr röðum Suður-Osseta skotið á bæði borgara og blaðamenn við borgina eftir því sem danska blaðið Berlingske Tidende greinir frá. Erlent 14.8.2008 14:25
Veita aðskilnaðarhéruðum í Georgíu fullan stuðning Rússar ætla að veita aðskilnaðarhéruðunum í Georgíu fullan stuðning í væntanlegum viðræðum um framtíð þeirra. Erlent 14.8.2008 12:37
Tsvangirai fær ekki að fara úr landi Yfirvöld í Simbabve komu í veg fyrir að Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins MDC kæmist úr landi í dag. Tsvangirai var á leiðinni á fund Þróunarsamvinnufélags Suður-Afríku (SADC). Erlent 14.8.2008 12:24
Mál gegn lögreglumönnum látið niður falla Dómstóll í Bandaríkjunum hefur ákveðið að láta ákærur, gegn sjö lögreglumönnum í New Orleans sem voru ásakaðir um skotárás eftir að fellibylurinn Katrín reið yfir haustið 2005, niður falla. Erlent 14.8.2008 08:08
Hvítir Bandaríkjamenn verða í minnihluta Hvítum mönnum fækkar hlutfallslega í Bandaríkjunum og samkvæmt nýrri mannfjöldaspá verða þeir orðnir minnihlutahópur árið 2042. Erlent 14.8.2008 07:51
Rússar á förum frá Gori Rússneskt herlið er farið að láta frá sér svæði nærri borginni Gori í Georgíu í hendur Georgíumanna. Erlent 14.8.2008 07:46
Sættir í sjónmáli hjá Líbönum og Sýrlendingum Forsetar Líbanon og Sýrlands ræddust við í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í gær og hafa þeir samþykkt að koma á fullum stjórnmálatengslum á milli ríkjanna. Erlent 14.8.2008 07:44
Formaður Demókrataflokksins í Arkansas skotinn til bana Bill Gwatney, formaður Demókrataflokksins í Arkansas-fylki, lést í kvöld af sárum sínum eftir að hafa verið skotinn af byssumanni við höfuðstöðvar flokksins í Little Rock. Erlent 13.8.2008 21:26
Lavrov: Bandaríkjamenn velji milli Rússa og Georgíumanna Vaxandi kulda gætir í samskiptum Rússa og Bandaríkjamanna vegna deilu þeirra fyrrnefndu við Georgíumenn. Erlent 13.8.2008 19:57
Bandaríkin senda herafla og hjálpargögn áleiðis til Georgíu Bandaríkjaforseti sagði í dag að stjórn sín myndi nota bæði flugher og landher til að koma hjálpargögnum og lyfjum til Georgíu. Georgíuforseti segist líta svo á að þar með verði flugvellir og hafnir í Georgíu undir bandarískri stjórn og hervernd. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er á leið til Georgíu til að sýna stuðning Bandaríkjastjórnar í verki. Erlent 13.8.2008 19:06
Í öndunarvél eftir árás rottweiler-hunda Fimm ára dönsk stúlka liggur nú á gjörgæsludeild í Danmörku eftir að tveir rottweiler-hundar í eigu fjölskyldu hennar réðust á hana. Erlent 13.8.2008 17:21
Bush skorar á Rússa að hætta hernaðaraðgerðum í Georgíu George Bush, forseti Bandaríkjanna, lýsti yfir áhyggjum sínum yfir fréttum af áframhaldandi hernaðaraðgerðum Rússa í Georgíu í Hvíta húsinu rétt í þessu. Erlent 13.8.2008 15:38
Saka Rússa um að rjúfa vopnahlé Georgíumenn sökuðu í dag Rússa um að rjúfa vopnahlé sem samþykkt var í gær með því að senda hersveitir frá Suður-Ossetíu inn í Georgíu og í átt til höfuðborgarinnar Tblisi. Erlent 13.8.2008 14:54
Nepal leitar að nýrri lifandi gyðju Trúarleg yfirvöld í Nepal leita nú að stúlku til þess að þjóna sem hin nýja Kumari sem er „hin lifandi meygyðja" í aldalöngum trúarbrögðum þeirra, bæði í hindúa og búddhahefð. Er leitað allt niður í þriggja-fjögurra ára aldur. Erlent 13.8.2008 14:53
Tveir handteknir í tengslum við ísbúðarmorð Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við morð á þremur manneskjum í ísbúð í bæ nærri Frankfurt í Þýskalandi í gær. Frá þessu greindi saksóknari í Darmstadt í dag. Erlent 13.8.2008 14:04
Minnst 11 látnir í sprengingu í Líbanon Minnst 11 eru látnir í sprengingu í miðbæ líbönsku borgarinnar Trípoli. Sprengingin var í nánd rútu með nokkrum hermönnum sem voru í leyfi innanborðs. Enginn hefur lýst árásinni á sig en yfir 30 manns særðust einnig í árásinni. Erlent 13.8.2008 12:51
Skemmdarverk og rán í Gori Fregnir berast nú af því að rússneskir skriðdrekar hafi sést á ferli í borginni Gori í Georgíu. Samkvæmt fréttavef BBC vinna Rússar nú að því að rústa herstöðvum Georgíumanna þar í borg. Erlent 13.8.2008 11:48
Þrjár erlendar konur myrtar í Afganistan Þrjár erlendar konur sem störfuðu við hjálparstörf létust ásamt bílstjóra sínum þegar skotið var á bíl þeirra þegar þær voru á ferð í Afganistan. Erlent 13.8.2008 10:50