Erlent

Eiffel-turninn rýmdur

Eiffel-turninn var rýmdur í dag vegna sprengjuhótunar en um tvö þúsund ferðamenn voru í turninum þegar hótunin barst.

Erlent

Fimmtán fórust í flugslysi

Fimmtán fórust í flugslysi í Venesúela í gærkvöldi þegar flugvél á vegum ríkisflugfélagsins Conviasa skall til jarðar skömmu eftir flugtak í borginni Ciudad Guyana.

Erlent

Fermetrinn á 22 milljónir

Bræðurnir Christian og Nick Candy, fyrrverandi viðskiptavinir Kaupþings í Bretlandi, hafa selt þakíbúð sína í Monte Carlo í Mónakó fyrir 190 milljónir punda, jafnvirði rúmra 36 milljarða króna.

Erlent

Endurbótum þarf að hraða

Viviane Reding, sem fer með dómsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir nauðsynlegt að umbætur á fyrirkomulagi dómsmála í Króatíu virki eins og til er ætlast áður en landið getur fengið aðild að ESB.

Erlent

Sigurlíkur Reinfeldts aukast

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra og leiðtogi sænskra hægri manna, þótti standa sig heldur betur en Mona Sahlin, leiðtogi sósíaldemókrata, í sjónvarpseinvígi á sunnudagskvöldið.

Erlent

Treystir ekki Írönum

Yfirmaður kjarnorkueftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna segir að hann geti ekki staðfest að kjarnorkuáætlun Írana sé friðsamleg, þar sem þeir sýni eftirlitsmönnum sínum ekki fulla samvinnu.

Erlent

Nýfætt barn skilið eftir í flugvél

Öryggisverði um borð í flugvél frá Gulf Air sem var nýlent á flugvellinum í Manila á Filipseyjum brá heldur betur í brún þegar hann sá hreyfingu í svörtum ruslapoka sem átti að bera út úr flugvélinni.

Erlent

Beinar útsendingar á YouTube

YouTube, stærsta vefmyndskeiðasíða í heimi, ætlar í dag og á morgun að senda út myndefni í beinni útsendingu. Ef vel tekst til ætla forsvarsmenn vefsíðunnar að senda beint efni reglulega hér eftir. „Við erum að hugsa beinar útsendingar sem næsta kafla í netsjónvarpi," segir Joshua Siegel, framleiðslustjóri hjá YouTube.

Erlent

Bandaríkjamenn undirbúa risa vopnasölusamning

Stærsti vopnasölusamningur í sögu Bandaríkjanna er á teikniborðinu. Frá þessu er greint í Wall Street Journal í dag og sagt að Barack Obama forseti búi sig nú undir að skýra þinginu frá áformunum.

Erlent

„Sá stóri“ handtekinn í Mexíkó

Mexíkóst yfirvöld hafa handtekið einn af eftirlýstustu glæpamönnum landsins, Sergio Villareal, sem kallaður er „sá stóri". Villareal var handtekinn af hermönnum í borginni Puebla í nótt en hann er sagður einn af hæst settu foringjum Beltran Leyva eiturlyfjahringsins.

Erlent

Fellibylurinn Igor færist í aukana

Fellibylurinn Igor sækir nú í sig veðrið langt úti fyrir ströndum Dóminíska lýðveldisins en stormurinn er á vesturleið. Vindhraði mælist nú 220 kílómetrar á klukkustund í mestu kviðunum og að sögn bandarísku veðurstofunnar hefur stormurinn aukist hratt síðustu klukkutíma.

Erlent

Lestarslys í Svíþjóð

Átján voru fluttir á sjúkrahús í gærkvöldi þegar farþegalest í Svíþjóð ók á traktorsgröfu við bæinn Kimstad. 24 ára gömul kona slasaðist mest og gekkst hún undir agðerð í nótt og er á gjörgæslu. Ökumaður traktorsgröfunnar fékk taugaáfall en slapp að öðru leyti ómeiddur. 244 farþegar voru um borð í lestinni sem var á leið frá Kaupmannahöfn til Stokkhólms. Lestin er talin hafa verið á 100 til 115 kílómetra hraða þegar áreksturinn varð.

Erlent

Velferðarkerfið sagt í hættu

Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra og Brian Mikkelsen, atvinnu- og efnahagsráðherra Danmerkur, segja danska velferðarkerfið í hættu ef ekki tekst að skapa hagvöxt svo um munar næstu misserin.

Erlent

Margskipti um dulargervi dagana fyrir sprenginguna

Lögreglan í Danmörku hefur birt myndir úr eftirlitsmyndavélum hótelsins þar sem sprengja sprakk á föstudaginn. Hún hefur enn ekki náð að bera kennsl á manninn sem hún hefur í haldi grunaðan um að bera ábyrgð á sprengingunni.

Erlent

Tólf fangar fundnir

Mexíkóska lögreglan hefur einungis handsamað 12 af þeim 85 föngum sem tókst að flýja úr fangelsi í norðurhluta landsins í fyrrdag. Um er að ræða fangelsi í borginni Reynosa sem er skammt frá landamærum Mexíkó og Texas í Bandaríkjunum.

Erlent

Fengu langþráðar sígarettur

Námuverkamennirnir sem lokuðust í koparnámu í norðurhluta Chile fyrir rúmum mánuði hafa nú loksins fengið sigarettur sem var það fyrsta sem þeir báðu um þegar náðu sambandi við björgunarmenn.

Erlent

Greiða atkvæði um stjórnarskrá

Almenningur í Tyrklandi greiðir í dag atkvæði um breytingar á stjórnarskrá landsins. Um er að ræða 26 breytingartillögur sem fela meðal annars í sér að hægt verður að rétta yfir æðstu yfirmönnum hersins fyrir almennum dómstólum og erfiðara verður að leysa upp og uppræta stjórnmálaflokka. Þá hefur verið gagnrýnt að þingið fái vald til að skipa dómara.

Erlent