Erlent
Sólgos ná til jarðar - trufla fjarskipti og flugumferð Öflug sólgos ná til jarðar í dag og geta truflað fjarskipti, segulsvið og jafnvel flugumferð. Þá má vænta mikils sjónarspils Norðurljósa vegna sólgosanna. Erlent 17.2.2011 13:51
Fjórir látnir í mótmælum í Bahrain Að minnsta kosti fjórir hafa látist í átökum mótmælenda og lögreglu í Bahrain. Fólkið lést í höfuðborginni Manama þegar lögreglan lagði til atlögu við mótmælendur sem höfðu komið sér fyrir á torgi í miðborginni. Erlent 17.2.2011 13:10
Mætti drukkinn í bílprófið 42 ára gamall Rúmeni mætti drukkinn í bílprófið sitt eftir að hafa verið sviptur ökuleyfi tveimur árum fyrr vegna ölvunarakstus þar í landi. Erlent 17.2.2011 08:54
Obama hughreysti Löru Logan Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hringdi í gær í fréttakonuna Löru Logan og talaði í hana kjarki samkvæmt bandarískum fjölmiðlum, en hún lenti í kynferðislegri árás á Frelsistorginu í Egyptalandi, þar sem hún var að taka upp fréttir fyrir ABC fréttastöðina í mótmælunum í síðustu viku. Erlent 17.2.2011 08:47
Norður-Kórea heldur upp á afmæli Kim Jong-il Mikil hátíðarhöld eru við það að hefjast í Norður-Kóreu en tilefnið er 69 ára afmæli einræðisherrans, Kim Jong-il. Meðal viðburða sem verða í höfuðborg landins, Pyongyang, eru tónlistarviðburðir, ísskautasýning og fimleikar. Erlent 17.2.2011 08:44
Braust inn og drap þrjá gullfiska Innbrotsþjófur á unglingsaldri upplýsti lögreglu um að hann hefði drepið þrjá gullfiska í einu innbrotinu því hann „vildi ekki skilja eftir nein vitni.“ Erlent 17.2.2011 08:41
Staðgöngumóðir fæddi barnabarnið sitt Þegar dóttir Kristine Casey frá Bandaríkjunum gat ekki eignast börn ákvað hún að taka málin í eigin hendur. Hún bauðst til þess að verða staðgöngumóðir fyrir dóttur sína. Athygli vekur að Kristína er ekkert unglamb lengur, en hún er 61 árs gömul. Erlent 17.2.2011 08:24
Senda vina-vélmenni út í geiminn Japanskir vísindamenn vinna nú að því að senda vélmenni í Alþjóðlegu geimstöðina til þess að veita einmanna geimförum smá félagsskap í myrkrinu. Erlent 17.2.2011 08:21
Svisslendingar fundu leynireikning Mubaraks Svisslendingar segjast hafa fundð sjóð í eigu Hosni Mubaraks, fyrrverandi forseta Egyptlands, þar í landi, en forsetinn er talinn hafa komið gríðarlegum fjármunum úr landi áður en hann sjálfur hrökklaðist frá völdum. Erlent 17.2.2011 08:19
12 drukknuðu í Víetnam 12 ferðamenn drukknuðu í Víetnam á þriðjudaginn samkvæmt yfirvöldum þar í landi en 20 ferðamenn voru um borð í skipinu sem virðist hafa sokkið í blíðviðri. Erlent 17.2.2011 08:15
Óeirðir í Líbýu - Dagur reiðinnar boðaður Hundruð mótmælenda krefjast afsagnar forsætisráðherra Lýbíu. Óeirðir brutust þar út í nótt, þar sem mótmælendur kveiktu í bílum og köstuðu grjóti í lögregluna. Dagur reiðinnar er boðaður í dag. Erlent 17.2.2011 08:02
Bróðursonur Dalai Lama ferst í bílslysi Bróðursonur Dalai Lama, Jigme Norbu, lést eftir að ekið var á hann í Flórída í Bandaríkjunum í byrjun vikunnar. Norbu var þekktur fyrir frelsisbaráttu í nafni Tíbet. Erlent 17.2.2011 06:30
Segist stoltur af lygunum „Ég varð að gera eitthvað fyrir landið mitt, svo ég gerði þetta og ég er ánægður með það, því nú er enginn einræðisherra lengur í Írak,“ sagði Rafid Ahmed Alwan al-Janabi í viðtali við breska dagblaðið The Guardian. Erlent 17.2.2011 05:00
Hefur lifað í þrjú ár án litla heila Chase Britton litli er væntanlega lítið læknakraftaverk. Hann er þriggja ára gamall en fæddist án litla heila. Læknarnir eru gáttaðir á því hvernig hann hefur getað lifað svona lengi án hans. Hlutverk litla heilans er að stýra hreyfingum líkamans. Erlent 16.2.2011 23:22
Löghlýðinn leigubílstjóri skilaði tólf milljónum Leigubílstjóri í New York fann á dögunum skartgripi og peninga að verðmæti 100 þúsund dollara, eða tæpar tólf milljónir íslenskra króna, í bíl sínum sem einn farþeginn hafði gleymt. Maður að nafni John James hafði gleymt fjársjóðnum í bílnum og þegar hann áttaði sig á því var hann viss um að hann fengi hann aldrei til baka. Erlent 16.2.2011 21:30
Þvinguðu mann til að borða eyrað á sér Glæpagengi réðist á mann á Írlandi á mánudag og þvingaði hann til að borða hluta af eyranu á sér. Erlent 16.2.2011 20:47
Eftirlýstur Ástrali vann á spítala í 15 ár Ástralar klóra sér nú í hausnum yfir því hvernig dæmdur og eftirlýstur morðingi fór að því að stunda vinnu á spítala í Queensland í fimmtán ár áður en upp um hann komst. Luke Andrew Hunter var á sínum tíma dæmdur í 21 árs fangelsi eftir að hann myrti eiginmann ástkonu sinnar. Erlent 16.2.2011 20:00
Dýr heimsókn páfans fyrir skattgreiðendur Heimsókn Benedikts XVI páfa til Bretlands á síðasta ári kostaði skattgreiðendur í landinu að minnsta kosti 7 milljónir punda, eða 1,3 milljarð króna. Þetta kemur fram á vef The Independent. Erlent 16.2.2011 19:45
Konur rétta yfir Berlusconi Silvio Berlusconi, umdeildur forsætisráðherra Ítala, kveðst engar áhyggjur hafa af réttahöldunum sem bíða hans í apríl. Athygli vekur að dómararnir í máli Berlusconis eru allir kvenkyns. Erlent 16.2.2011 14:51
Japanir fresta hvalveiðiferð Japanir hafa frestað árlegri hvalveiðiferð sinni á Suðurskautslandinu vegna mótmælaaðgerða Sea Shepard samtakanna. Erlent 16.2.2011 14:22
Byltingarandinn smitast til Líbíu Átök brutust út í hafnarborginni Benghazi í Líbíu í nótt í kjölfar þess að þekktur umbótasinni var handtekinn. Þar lenti saman stuðningsmönnum og andstæðingum stjórnar Muammar Gaddafis. Erlent 16.2.2011 11:21
Forseti Írans segir mótmælendur óvini ríkisins Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, segir að mótmæli undanfarinna daga í landinu hafi ekkert að segja og hann hefur heitið því að refsa skipuleggjendum þeirra. Forsetinn kom fram í ríkissjónvarpinu þar í landi og sagði að þeir sem stæðu í mótmælunum væru óvinir ríkisins sem væru að reyna að setja blett á hina annars skínandi írönsku þjóð. Tveir féllu og margir særðust í mótmælum í höfuðborginni Teheran í gær og Barack Obama forseti Bandaríkjanna hefur gagnrýnt hörku stjórnvalda harðlega. Erlent 16.2.2011 10:32
Bandarískri fréttakonu nauðgað á Frelsistorginu Fréttakona frá bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS liggur nú á spítala þar sem hún nær sér eftir árás sem hún varð fyrir á Frelsistorginu í Kaíró síðastliðinn föstudag. Erlent 16.2.2011 08:24
Bandarískur landamæravörður myrtur í Mexíkó Bandarískur landamæravörður var skotinn til bana í gær og annar særður þegar glæpaklíka gerði árás á bíl þeirra í Mexíkó í gær. Mennirnir höfðu verið sendir til landsins til þess að aðstoða þarlend yfirvöld í baráttunni við eiturlyfjagengin sem öllu stjórna í Mexíkó. Erlent 16.2.2011 08:20
Konungur lofar bót og betrun Þúsundir mótmælenda flykktust inn á aðaltorgið í höfuðborg Barein í gær, á þriðja degi mótmæla sem kostað höfðu tvo menn lífið. Lögreglan hafði tekið harkalega á mótmælendum en í gær brá svo við að Hamid bin Isa al Khalifa, konungur landsins, ávarpaði þjóðina í sjónvarpi, lofaði því að dauðsföllin tvö yrðu rannsökuð og hét því að hraða umbótum í landinu, meðal annars að losa um hömlur á notkun internets og fjölmiðla. Erlent 16.2.2011 06:00
Flækingsköttur í Downingstræti 10 Fjölskylda Davids Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur eignast kött og flutti hann inn í embættisbústað ráðherrans í Downingstræti 10 í dag. Um er að ræða flækingskött úr dýraathvarfi. Tvö elstu börn Davids og Samönthu eiginkonu hans eru miklir kattavinir, að sögn talmanns forsætisráðherrans. Erlent 15.2.2011 23:49
Tveggja barna móðir fannst stungin til bana í garðinum Lík breskrar konu sem hafði verið týnd frá því um jólin fannst í gær. Konan var þrítug og átti tvö börn undir fimm ára aldri með eiginmanni sínum. Líkið fannst við heimili fjölskyldunnar í bænum Holmfirth sem er norðaustur af Manchester. Erlent 15.2.2011 21:45
Górillutvíburar komu í heiminn í Rúanda Górillumamman Kabatwa eignaðist á dögunum tvíbura en slíkt mun vera afar sjaldgæft. Tvíburarnir litlu fæddust þriðja febrúar síðastliðinn á verndarsvæði Górilla í Rúanda. Þetta mun vera í fimmta skiptið sem tvíburagórillur fæðast í landinu frá því menn fóru að fylgjast með þessum mögnuðu skepnum en síðast gerðist það árið 2004. Górillumæður eignast eitt afkvæmi á fjögurra ára fresti að meðaltali. Górillum á svæðinu hefur fjölgað töluvert á síðustu þrjátíu árum en á tímabili voru dýrin í útrýmingarhættu. Erlent 15.2.2011 21:30
200 myrtir í Suður Súdan Yfirvöld í Súdan segja að um 200 hafi verið myrtir í suðurhluta landsins í síðustu viku. Flestir hinna myrtu voru óbreyttir borgarar og voru börn þar á meðal. Sumir voru reknir út í ár af uppreisnarmönnum á svæðinu þar sem þeir drukknuðu. Erlent 15.2.2011 20:30
Berlusconi stendur keikur þrátt fyrir mótmæli Silvio Berslusconi forsætisráðherra Ítalíu lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir gríðarleg mótmæli gegn honum síðustu daga. Hann er hvattur til að segja af sér en hann hefur verið sakaður um að hafa átt samræði við vændiskonu undir lögaldri. Erlent 15.2.2011 10:52