Erlent
Þúsundir enn án vatns á Norður-Írlandi Ráðherra málefna Norður-Írlands í bresku ríkisstjórninni segir ljóst að eitthvað meiriháttar hefur brugðist á Norður-Írlandi en um 36 þúsund íbúar landsins hafa verið án vatns dögum saman eftir frosthörkurnar undanfarið. Nokkur svæði hafa verið án vatns í allt að 11 daga. Af þeim sökum hafa íbúar annað hvort þurft að kaupa vatn á flöskum úr búðum eða nálgast það í neyðarvatnstönkum sem komið hefur verið upp á götuhornum. Ráðherrann segir brýnt að koma vatnsmálunum í lag og nú sé ekki rétti tíminn til að finna sökudólga. Farið verði rækilega yfir málið eftir að íbúunum hefur verið tryggt vatn. Erlent 30.12.2010 07:04
Skíðafólk féll úr stólalyftu Átta skíðamenn slösuðust töluvert þegar kröftugir vindar feyktu sætum í stólalyftu til með þeim afleiðingum að fólkið féll niður um 8-10 metra. Atvikið átti sér stað í gær á vinsælu skíðasvæði nærri Portland í Main í Bandaríkjunum. Lyftan var í framhaldinu stöðvuð og sátu um 150 skíðamenn fastir í henni í nokkra stund. Fólkið sem slasaðist var flutt á sjúkrahús, þar af þrír sem hlutu beinbrot. Í hópi hinna slösuðu voru bæði börn og fullorðnir. Erlent 30.12.2010 06:55
Óttast þjóðarmorð Nýskipaður sendiherra Fílabeinsstrandarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum óttast þjóðarmorð í landinu. Laurent Gbagbo, forseti Fílabeinsstrandarinnar, hefur ekki viljað viðurkenna úrslit forsetakosninganna í síðasta mánuði þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi staðfest þau og hótanir nágrannaríkja um að beita hervaldi láti hann ekki af embætti. Sendiherrann segir mannréttindi brotin víðsvegar um landið og að hátt í 200 stjórnarandstæðingar hafi nú þegar látið lífið. Erlent 30.12.2010 06:53
Byltingarleiðtogar ákærðir Júlía Tímosjenko, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, var yfirheyrð í gær í tengslum við ásakanir um spillingu. Hún var fyrr í mánuðinum ákærð fyrir að hafa notað fé, sem fékkst við sölu á kolefniskvóta samkvæmt Kyoto-bókuninni, til þess að standa straum af lífeyrisgreiðslum þegar hún var forsætisráðherra. Hún neitar þeim ásökunum. Erlent 30.12.2010 06:00
Leiðtogar hitta Gbagbo Laurent Gbagbo situr sem fastast á forsetastól Fílabeinsstrandarinnar þrátt fyrir að leiðtogar nokkurra ríkja í vestanverðri Afríku hafi sett honum úrslitakosti um að segja af sér eða búast við hernaðaríhlutun ella. Erlent 30.12.2010 05:00
Þúsundir heimila án vatns dögum saman Þúsundir heimila á Norður-Írlandi hafa verið án vatns dögum saman eftir frosthörkurnar undanfarið. Víða sprungu rör í frostinu og svo þegar þiðnaði á ný lak vatnsforðinn að stórum hluta út í jarðveginn án þess að berast inn á heimilin. Erlent 30.12.2010 04:00
Hamfarir ársins óvenju skæðar Náttúran hefur ekki verið jarðarbúum sérlega mild árið 2010. Rétt eins og sveiflur í veðuröfgum virðist mega rekja til hlýnunar jarðar hafa breyttir lífshættir gert mannkynið viðkvæmara fyrir náttúruhamförum. Erlent 30.12.2010 04:00
Alvarlegasta tilraun til hryðjuverkaárásar Tilraunin sem gerð var til hryðjuverkaárásar í Danmörku í dag er alvarlegasta tilraunin sem gerð hefur verið hingað til þar í landi. Fjórir hafa verið handteknir vegna málsins í Danmörku og sá fimmti var handtekinn í Svíþjóð. Erlent 29.12.2010 23:21
Bandaríkjamenn neita að hjálpa til við rannsókn Bandarísk dómsmálayfirvöld neita að greiða götu pólskra saksóknara sem rannsaka hvort Bandaríkjamenn hafi starfrækt leynifangelsi í landinu. Erlent 29.12.2010 20:45
Rússar svara gagnrýni Ráðamenn í Moskvu svara vestrænir þjóðarleiðtogum fullum hálsi sem hafa gagnrýnt niðurstöðu rússneskra dómstóla í máli auðjöfursins Mikhail Khodorkovsky. Utanríkisráðherra landsins biður vesturlönd um að skipta sér ekki af innanríkismálum Rússlands. Erlent 29.12.2010 17:30
Ætluðu að myrða blaðamenn vegna skopteikninga - fjórir handteknir Fjórir karlmenn af mið-austurlenskum uppruna hafa verið handteknir í Danmörku vegna gruns um að skipuleggja hryðjuverk þar í landi. Það var danska leyniþjónustan sem handtók mennina en þeir komu til Danmerkur frá Svíþjóð í gærkvöldi. Byssa með hljóðdeyfi fannst í fórum mannanna ásamt skotfærum. Erlent 29.12.2010 13:48
Reese Witherspoon trúlofuð Leikkonan Reese Witherspoon og kærasti hennar til eins árs, umboðsmaðurinn Jim Toth, trúlofuðu sig um jólin. Búist er við því að þau gangi í það heilaga strax á næsta ári. Erlent 29.12.2010 11:06
Hægrimenn með stærri heilamöndlu Heilinn í vinstrimönnum og hægrimönnum er gerólíkur, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem læknar í Lundúnum gerðu. Erlent 29.12.2010 10:30
Julian Assange neyðist til að skrifa bók Julian Assange, forsvarsmaður uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks, hefur skrifað undir samning um útgáfu bókar sem færir honum eina milljóna punda eða jafnvirði tæplega 117 milljóna íslenskra króna. Erlent 29.12.2010 10:26
Bankaræningjar fluttu skotvopn í burðarrúmi Bankaræningjar fluttu skotvopn í burðarrúmi þegar að þeir réðust inn í banka í Pétursborg í Rússlandi í gær. Erlent 29.12.2010 09:26
Þúsund íbúum komið til bjargar Þúsundir manna komast nú hvorki lönd né strönd í norðausturhluta Ástralíu eftir ein mestu flóð þar undanfarna áratugi. Flytja þurfti um þúsund manns frá heimilum sínum í Queensland. Flóðin eru vegna mikilla rigninga og storma á þessum svæðum undanfarnar vikur. Áströlsk stjórnvöld hafa notað þyrlur til að flytja vistir til þeirra sem lokast hafa af vegna flóðanna. Þyrlur hafa jafnframt verið notaðar til að flytja fólk á brott, þar á meðal rúmlega 300 íbúa smábæjarins Theodore. Erlent 29.12.2010 09:00
Forsetinn vill frið á Kóreuskaga Forseti Suður-Kóreu vill hefja friðarviðræður á nýjan leik við nágrannanna í norðri en undanfarnar vikur hafa hótanir magnast á báða bóga á Kóreuskaga. Erlent 29.12.2010 08:23
Neanderdalsmenn borðuðu grænt Neanderdalsmenn virðst hafa neytt fjölbreyttari fæðu en áður var talið. Rannsóknir benda nefnilega til að grænmeti og sjávarréttir hafi gjarnan verið á matseðlinum. Erlent 29.12.2010 08:21
Stórstjörnurnar samfagna Elton John Fjölmargar stórstjörnur hafa fagnað fæðingu sonar popparans Elton Johns og eiginmanns hans, David Furnish, sem eignuðust barnið á jóladag með hjálp staðgöngumóður. Breska leikkonan Elizabeth Hurley var meðal þeirru fyrstu sem óskaði hinum nýbökuðu feðgum til hamingju og síðan hafa fleiri bæst við, þar á meðal Mick Jagger og Kelly Osbourne. Elizabeth sendi Elton og David kveðju í gegnum Twitter-síðu sína og sagðist hlakka til að hitta strákinn sem fæddist í Kaliforníu. Nafn konunnar sem gekk með drenginn verður ekki gefið upp. Erlent 29.12.2010 08:11
Fangaverðir sóttir til saka Að minnsta kosti 42 fangaverðir verða sóttir til saka fyrir að hafa ýmist aðstoðað eða ekkert aðhafst þegar 153 fangar struku úr fangelsi í Mexíkó, rétt við bandarísku landamærin, fyrir rúmum hálfum mánuði. Fangarnir komust allir út um starfsmannainngang fangelsisins sem er staðsett norðvesturhluta Mexíkó í grennd við við ána Rio Grande. Samkvæmt CNN er þetta eitt fjölmennasta strok fanga í landinu. Fyrr á árinu flúðu hátt í 90 fangar og aðrir 40 úr sitthvoru fangelsinu í borgum við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna. Erlent 29.12.2010 08:02
Rændu síðustu löggu bæjarins Enginn lögreglumaður er nú starfandi í mexíkóska landamærabænum Guadalupe eftir að síðasta lögreglumanninum sem eftir var í bænum var rænt af undirtyllum fíkniefnabaróna. Erlent 29.12.2010 01:15
Flest fórnarlömbin þekktu morðingjann Noregur 31 morð hefur verið framið í Noregi það sem af er ári, að því er fram kemur í úttekt á vef Aftenposten. Erlent 29.12.2010 01:00
Skora á Gbagbo að víkja strax Sendinefnd Vestur-Afríkuríkja hefur skorað á Laurent Gbagbo, forseta Fílabeinsstrandarinnar, að hlíta kosningaúrslitum og víkja úr sæti nú þegar. Erlent 29.12.2010 00:45
Rússar vísa gagnrýni á bug Rússar svara þeim fullum hálsi sem hafa gagnrýnt málareksturinn gegn olíujöfrinum Mikhail Khodorkovsky, sem var fundinn sekur í vikunni um undanskot og peningaþvætti. Erlent 29.12.2010 00:30
Almenningur reiður í New York - samgöngur enn í ólagi Nítján þúsund borgarstarfsmenn New York borgar vinna að því að moka snjó, salta götur og hirða upp rusl í borginni en samgöngu hafa verið í ólagi síðan mikill snjóstormur geisaði á austurströnd Bandaríkjanna um helgina. Erlent 28.12.2010 23:07
Tekinn með kókaín í páskaeggjum rétt fyrir jól Tollverðir á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles stöðvuðu karlmann í síðustu viku sem vakti sérstaka eftirtekt þeirra. Maðurinn var nefnilega með fáein páskaegg í fórum sínum sem tollvörðunum þótti heldur undarlegt í ljósi þess að tveir dagar voru til jóla. Í eggjunum var hvítt duft sem reyndist vera rúm sex kíló af kókaíni. Erlent 28.12.2010 09:32
Elton John orðinn pabbi Breski popparinn Elton John varð faðir í fyrsta sinn á jóladag þegar hann og eiginmaður hans, David Furnish, eignuðust son með hjálp staðgöngumóður, að því er fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar. Erlent 28.12.2010 07:18
Fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu verður framseldur í janúar Dómstólar í Austurríki hafa komist að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu þurfi að dvelja í fangelsi þar í landi þangað til hann verður framseldur til Króatíu í lok janúar. Erlent 28.12.2010 07:07
Skref aftur á bak fyrir Rússa Vestrænir þjóðarleiðtogar gagnrýna harðlega niðurstöðu rússneskra dómstóla í máli auðjöfursins Mikhail Khodorkovsky og segja málið vekja upp fjölmargar spurningar um dómskerfið í Rússlandi. Erlent 28.12.2010 07:00
Almenningssamgöngur komnar í eðlilegt horf Almenningssamgöngur til og frá austurströnd Bandaríkjanna eru komnar í eðlilegt horf eftir að mikill bylur fór þar yfir. Aflýsa þurfti um sjö þúsund flugferðum vegna veðurs í gær og fyrradag. Erlent 28.12.2010 06:58