Erlent

Gullnámumenn í verkfalli

Upphaflega fóru gullnámumenn fram á allt að 60% launahækkun en eru nú tilbúnir til að snúa aftur til starfa fái þeir 10% launahækkun.

Erlent

Thorning segir Dönum skylt að styðja aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn

Dönum ber skylda til þess að styðja hernaðaraðgerðir gegn Assad Sýrlandsforsta og stjórnarhers hans, að sögn Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra. Thorning mun hitta Obama Bandaríkjaforseta í Stokkhólmi á morgun, en í samtali við fréttafólk í dag sagði hún að hafið sé yfir vafa að Assad hafi beitt efnavopnum gegn eigin þjóð og Danmörk geti ekki“ horft framhjá því og látið eins og ekkert sé“.

Erlent

Bætist í hóp flóttamanna á 15 sekúndna fresti

Fjöldi flóttamanna frá Sýrlandi komst í dag upp fyrir tvær milljónir manna. Straumurinn út út landinu hefur þyngst stöðugt síðustu tólf mánuði eftir því sem átök harðna í borgarastyrjöldinni þar í landi, en fyrir réttu ári voru flóttamenn rúm 230.000 manns. 5.000 manns flýja land á degi hverjum sem jafngildir því að flóttamaður bætist í hópinn á um fimmtán sekúndna fresti.

Erlent

Morðkvendi í Mexíkó

Lögreglan í Mexíkó leitar nú að konu sem grunuð er um að hafa myrt tvo rútubílstjóra í borginni Ciudad Juares í síðustu viku.

Erlent

Bono úr U2 í jarðarför Heaney

Rokkstjörnur, forseti og forsætisráðherra Írlands og fleiri frægir gestir voru meðal þeirra eittþúsund manns sem mættu í jarðarför Nóbelsverðlaunahafans og rithöfundarins Seamus Heaney.

Erlent

Obama leitar til McCains

Obama á stuðning þingmanna við hernað gegn Sýrlandsstjórn engan veginn vísan og reynir nú að fá McCain til liðs við sig.

Erlent

Verkfalli á Kastrup lokið - hundrað farþegar Icelandair misstu af flugi

Skyndiverkfalli öryggisvarða á Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn er lokið. Verkfallið hófst klukkan sex á dönskum tíma og stóð í fjórar klukkustundir með þeim afleiðingum að gríðarlega langar raðir mynduðust og nokkrar vélar þurftu að fara tómar eða hálftómar í loftið. Talsmenn flugvallarins segja að þrátt fyrir að verkallinu sé lokið megi búast við töfum fram eftir degi.

Erlent

Vélar flúga tómar frá Kastrup-flugvelli

Skyndiverkfall öryggisvarða lama Kastrup-flugvöll. Öryggishlið eru lokuð, flugáhafnir komast í flugvélarnar en farþegar ekki. Til að halda áætlun fljúga flugvélar tómar frá flugvellinum.

Erlent

Segir sælgæti hafa eyðilagt golfferð

Lögmaður í Stokkhólmi meiddi sig í gómnum þegar hann beit í Mars-súkkulaði sem hann keypti í golfferð í Englandi síðastliðið vor. Hann missti af hringnum og krefst skaðabóta.

Erlent