Sport
Inter á siglingu | Stórsigur í kvöld Inter hefur heldur betur tekið við sér á síðustu vikum eftir ömurlegt gengi í upphafi tímabils. Inter vann í kvöld öruggan heimasigur á Parma, 5-0. Fótbolti 7.1.2012 21:37
Lauge tryggði Dönum nauman sigur | Úrslitaleikur gegn Íslandi Danir unnu Pólverja, 31-30, á fjögurra þjóða æfingamótinu í Danmörku í dag. Það verður því úrslitaleikur á milli Íslands og Danmerkur í mótinu á morgun. Bæði lið eru með þrjú stig. Handbolti 7.1.2012 20:12
Di Canio: Félagið á að gera eitthvað sérstakt fyrir leikmennina Strákarnir hans Paolo Di Canio hjá Swindon stálu senunni í ensku bikarkeppninni í dag er þeir slógu út úrvalsdeildarlið Wigan. Di Canio var að rifna af stolti eftir leikinn. Enski boltinn 7.1.2012 19:38
Njarðvíkurkempur stóðu í Fjölni Gamlar Njarðvíkurkempur voru ekki fjarri því að slá úrvalsdeildarlið Fjölnis úr Powerade-bikarnum í dag. Fjölnir marði átta stiga sigur, 80-72, á heimavelli. Körfubolti 7.1.2012 18:11
Ipswich losar sig við Ívar Paul Jewell, stjóri Ipswich, sagði fyrir helgi að það hefðu verið mistök að fá Ívar Ingimarsson til félagsins. Jewell fylgdi þeim ummælum eftir með því að losa sig við Ívar í dag. Enski boltinn 7.1.2012 18:04
Tómas samdi við Selfoss Tómas Leifsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Pepsi-deildarlið Selfoss. Tómas kemur til félagsins frá Fram. Íslenski boltinn 7.1.2012 16:19
Malaga safnar liði Spænska liðið Malaga ætlar að bjóða Borussia Dortmund 10 milljónir evra fyrir paragvæska framherjann Lucas Barrios. Fótbolti 7.1.2012 15:45
Sigur á Slóvenum | Aftur stórleikur hjá Guðjóni Val Ísland vann góðan sigur á Slóveníu, 29-26, þegar liðin mættust á æfingamóti í Danmörku. Staðan í hálfleik var jöfn 13-13. Þetta var annar leikur Íslands á mótinu en strákarnir gerðu jafntefli við Pólland í gær. Lokaleikur strákanna er gegn Dönum á morgun. Handbolti 7.1.2012 15:09
Í beinni: Tottenham - Cheltenham Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Tottenham og Cheltenham í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Enski boltinn 7.1.2012 14:30
Í beinni: Newcastle - Blackburn Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Newcastle og Blackburn í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Enski boltinn 7.1.2012 14:30
Í beinni: Milton Keynes Dons - QPR | Heiðar á bekknum Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Milton Keynes Dons og QPR í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Enski boltinn 7.1.2012 14:30
Í beinni: Macclesfield - Bolton Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Macclesfield og Bolton í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Enski boltinn 7.1.2012 14:30
Markalaust í hörmulegum leik | Eggert spilaði með Wolves Leikur Birmingham og Wolves í dag var lítið fyrir augað svo vægt sé til orða tekið. Til að fullkomna leiðindin var svo ekki skorað eitt einasta mark í leiknum. Liðin þurfa því að mætast á nýjan leik. Enski boltinn 7.1.2012 14:28
Ranieri: Sneijder er ekki á förum Claudio Ranieri, þjálfari Inter, hefur nú stigið fram fyrir skjöldu og lýst því yfir að það komi ekki til greina að selja Hollendinginn Wesley Sneijder í þessum mánuði. Fótbolti 7.1.2012 13:15
Hallgrímur spilaði með Völsungi um jólin Húsvíkingurinn Hallgrímur Jónasson, leikmaður SönderjyskE, skellti sér í grænu treyjuna um jólin og spilaði með Völsungi gegn Þór. Voru orðin ansi mörg ár síðan Hallgrímur spilaði með uppeldisfélaginu. Íslenski boltinn 7.1.2012 13:05
Leikmaður Oldham grét á Anfield eftir meint kynþáttaníð Liverpool og lögreglan þar í borg ætla að rannsaka meint kynþáttaníð í garð Tom Adeyemi, leikmanns Oldham, í leik Liverpool og Oldham í enska bikarnum í gær. Enski boltinn 7.1.2012 11:45
Kobe fór á kostum í sigri Lakers Kobe Bryant fór á kostum í liði LA Lakers í nótt er það vann sjö stiga sigur, 97-90, á Golden State. Bryant skoraði 39 stig og gaf 7 stoðsendingar í leiknum. Körfubolti 7.1.2012 11:15
Róbert: Ég er ekki sáttur við mína stöðu Róbert Gunnarsson hefur lítið fengið að spila með Rhein-Neckar Löwen en gegnir stóru hlutverki í landsliði Íslands. Sami þjálfarinn er á báðum stöðum. Handbolti 7.1.2012 10:45
Hef fengið aukið sjálfstraust með Nøtterøy Hreiðar Levý Guðmundsson hefur fundið sig vel á æfingum íslenska landsliðsins síðan það hóf undirbúninginn sinn fyrir EM í Serbíu. Mótið hefst eftir rúma viku en Hreiðar er í góðu formi eftir að hafa spilað mikið með liði sínu í Noregi. Handbolti 7.1.2012 10:30
Arnar Þór hefur ekkert hugsað um landsliðið Arnar Þór Viðarsson er í fámennum hópi en aðeins 21 leikmaður á meira en 50 landsleiki að baki. Arnar hefur spilað 52 landsleiki á ferlinum en á þó ekki sérstaklega góðar minningar frá síðasta landsleik, en þá tapaði Ísland fyrir Liechtenstein ytra, 3-0. Fótbolti 7.1.2012 10:00
Árið 2011 var mitt besta á ferlinum Arnar Þór Viðarsson er lykilmaður hjá Cercle Brugge í Belgíu og hefur spilað hverja einustu mínútu á tímabilinu. Hann mun sennilega hefja störf hjá félaginu sem þjálfari að leikmannaferlinum loknum. Fótbolti 7.1.2012 09:30
Gæti reynst okkur vel Ísland mætir í dag Slóveníu á æfingamótinu í Danmörku en þessi lið eru reyndar einnig saman í riðli á EM í Serbíu sem hefst eftir rúma viku. Handbolti 7.1.2012 09:00
Utan vallar: Bikarmeistararnir úr leik við fyrstu hindrun Bikarmeistarar Manchester City taka á móti grönnum sínum í United í hádeginu á sunnudag í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Eftir 1-6 niðurlæginguna á Old Trafford fyrr í vetur eru einhverjir farnir að líta á United sem litla liðið í Manchester. Enski boltinn 7.1.2012 08:00
9 dagar í EM í Serbíu Snobbi, eins og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Róbert Gunnarsson hafa stundum kallað sig eru báðir að fara taka þátt í sínu tíunda stórmóti á EM í Serbíu. Handbolti 7.1.2012 06:00
Auðvelt hjá Aston Villa Aston Villa rúllaði auðveldlega áfram í ensku bikarkeppninni í dag. Liðið lagði þá Bristol Rovers á útivelli, 1-3. Enski boltinn 7.1.2012 00:01
Heiðar hetja QPR | Öll úrslit dagsins í enska bikarnum Íþróttamaður ársins, Heiðar Helguson, var hetja QPR í dag er hann jafnaði leikinn gegn Milton Keynes Dons með marki rétt undir lok leiksins. Hann sá til þess að QPR forðaðist niðurlægingu og fær að spila annan leik gegn Dons. Heiðar spilaði síðasta hálftímann í leiknum. Enski boltinn 7.1.2012 00:01
Real rúllaði yfir Granada Real Madrid náði í kvöld sex stiga forskoti á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar. Real valtaði þá yfir Granada á heimavelli og vann stórsigur, 5-1. Fótbolti 7.1.2012 00:01
Sem betur fer vöknuðu menn í hálfleik Íslenska karlalandsliðið komst yfir brösuga byrjun og slakan fyrri hálfleik og náði að tryggja sér 31-31 jafntefli á móti Pólverjum í fyrsta undirbúningsleiknum sínum fyrir EM í Serbíu. Þetta var fyrsti leikur landsliðsins á fjögurra þjóða æfingamóti, Total Kredit Cup, sem fram fer í Danmörku um helgina. Handbolti 6.1.2012 23:45
Dalglish: Margt jákvætt hjá okkur í kvöld Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, var kátur eftir 5-1 sigur á Oldham í enska bikarnum í kvöld en Liverpool varð þar með fyrsta félagið sem kemst áfram í 4. umferðina. Enski boltinn 6.1.2012 23:15
Yfirlýsing frá United og Rooney um frétt Independent: Algjört bull Manchester United og Wayne Rooney voru fljót að senda frá sér yfirlýsingu í kvöld eftir að fréttist af forsíðufrétt The Independent á morgun um að Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, væri tilbúinn að selja enska landsliðsframherjann. Þar kemur fram að þessi frétt sé algjört bull og uppspuni frá rótum. Enski boltinn 6.1.2012 22:40