Hef fengið aukið sjálfstraust með Nøtterøy Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. janúar 2012 10:30 Hreiðar mun væntanlega verja mark íslenska landsliðsins á EM í Serbíu ásamt Björgvini Páli Gústavssyni. Hér eru þeir félagar saman eftir stórsigur Íslands á Austurríki í undankeppni EM í vor. Mynd/Pjetur
Hreiðar Levý Guðmundsson hefur fundið sig vel á æfingum íslenska landsliðsins síðan það hóf undirbúninginn sinn fyrir EM í Serbíu. Mótið hefst eftir rúma viku en Hreiðar er í góðu formi eftir að hafa spilað mikið með liði sínu í Noregi. „Mér líður vel. Ég er búinn að æfa vel og það hefur verið mikið um styrktaræfingar hjá liðinu mínu í Noregi. Það er ekkert nema gott um það að segja," segir Hreiðar sem hefur ásamt Björgvini Páli Gústavssyni varið mark íslenska landsliðsins með miklum myndarskap undanfarin ár. Fyrir tímabilið gekk hann til liðs við Nøtterøy sem situr nú í níunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Honum líður vel þar en þar áður lék hann með Emsdetten í þýsku B-deildinni. „Mér leið svo sem ekkert illa hjá Emsdetten en mér hefur gengið mjög vel síðan ég kom til Noregs. Ég óttaðist ekki að þetta væri skref niður á við enda mæti ég í hvert verkefni með því hugarfari að standa mig eins vel og ég mögulega get." Hreiðar spilar nánast hverja einustu mínútu með Nøtterøy og segir að sér hafi gengið vel. „Með því fær maður aukið sjálfstraust sem skiptir vitanlega miklu máli. Ég er líka með öfluga vörn fyrir framan mig en það er fyrst og fremst sóknarleikurinn sem hefur verið okkar vandamál." Þess má svo geta að Björgvin Páll skipti einnig um lið í sumar en hann leikur nú með Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni. Samstarf þeirra í landsliðinu hefur verið gott og það breytist ekki. „Við reynum ávallt að hjálpa hvorum öðrum og skila sem mestu til liðsins. Það er alltaf gaman að hefja þessa janúartörn og nú getur maður leyft sér að hugsa um ekkert annað en handbolta næsta mánuðinn."
Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira