Sport

Kyrgiakos kominn til Sunderland

Martin O'Neill, stjóri Sunderland, hefur verið iðinn við að styrkja vörn liðsins í dag en nú hefur félagið staðfest að félagið hafi keypt Grikkjann Sotirios Kyrgiakos, fyrrum leikmann Liverpool.

Enski boltinn

Þjálfari Lazio: Klose er betri leikmaður en Zlatan

Edy Reja, þjálfari ítalska liðsins Lazio, væri ekki tilbúinn að skipta á Svíanum Zlatan Ibrahimovic og Þjóðverjanum Miroslav Klose. Zlatan hefur skorað þremur mörkum meira en Klose í vetur og Svíinn hefur orðið ítalskur meistari öll tímabil sín í deildinni.

Fótbolti

Hedin lét undan pressunni | Hættir með Aalborg

Robert Hedin, þjálfari norska handboltalandsliðsins og danska úrvalsdeildarliðsins Aalborg Håndbold, fær ekki leyfi hjá norska handboltasambandinu að þjálfa áfram bæði liðin. Hedin mun því hætta að þjálfa danska liðið í vor.

Handbolti

Kaupir Tottenham Rodallega eftir leikinn við Wigan í kvöld?

Hugo Rodallega hefur verið orðaður við Tottenham í þessum félagsskiptaglugga og svo gæti farið að gengið verði frá kaupunum á framherjanum áður en glugginn lokar á miðnætti í kvöld. Hlutirnir gætu gerst hratt því Wigan mætir einmitt Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Enski boltinn

Iðuklettar í Stóru-Laxá horfnir

Iðuklettar, hið mikla kennileiti á svæði þrjú í Stóru Laxá, hrundi í gær þegar áin ruddi sig en miklar leysingar hafa verið í ánni undanfarið. Það verður að segjast að mikil eftirsjá verður af þess náttúruundri sem allir sem hafa veitt á Iðu muna eftir.

Veiði

Zamora vill fá alltof há laun hjá QPR

Fulham er búið að samþykkja tilboð Queens Park Rangers í framherjann Bobby Zamora en það gengur ekki eins vel hjá Queens Park Rangers að ná samningum við leikmanninn sjálfan ef marka má frétt á Guardian. Zamora lék undir stjórn Mark Hughes, stjóra QPR, í fyrra.

Enski boltinn

Risableikjur í norður Kanada

Það er alltaf gaman að sjá veiðimyndir frá öðrum löndum og fræðast aðeins um það sem erlendir veiðimenn eru að gera. það skemmir síðan ekkert fyrir að sjá hvað þeir eru að draga á land.

Veiði

Kosið um að fjölga um eina deild og breyta leikbönnum á ársþingi KSÍ

Breiðholtsfélögin Leiknir og KB annarsvegar og KF úr Fjallabyggð hinsvegar eiga athyglisverðustu tillögurnar fyrir 66. ársþing KSÍ sem verður haldið á Hilton Nordica Hótel 11. febrúar næstkomandi. Hér er um að ræða tillaga um að fjölga um eina deild og leyfa fleiri gul spjöld áður en menn fara í leikbann. Grindvíkingar vilja líka að ungt knattspyrnufólk verði ári lengur í yngri flokkum og að aldursskipting verði nær því sem er í gangi hjá landsliðunum.

Íslenski boltinn

Tvíburar sameinast á ný hjá Blackburn

Sænsku tvíburarnir Martin og Marcus Olsson eru orðnir liðsfélagar á nýjan leik eftir að enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn Rovers ákvað að semja við Marcus Olsson. Martin Olsson hefur spilað með Blackburn frá 2006.

Enski boltinn

Guðjón Valur hættir hjá AG Kaupmannahöfn í vor

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins og besti vinstri hornamaðurinn á nýloknu Evrópumeistaramóti í Serbíu, mun bara spila eitt tímabil með danska liðinu AG Kaupmannahöfn. Morgunblaðið greindi frá þessu í dag.

Handbolti

Hughes: QPR gæti hjálpað City fengi liðið Tevez á láni

Mark Hughes, stjóri Heiðars Helgusonar hjá Queens Park Rangers, er viss um að það kæmi sér vel fyrir Manchester City að lána Argentínumanninn Carlos Tevez til annars liðs í ensku úrvalsdeildinni. QPR hefur eins og mörg önnur félög áhuga á því að fá Tevez á láni þar sem að það lítur út fyrir að City nái ekki að selja leikmanninn áður en félagsskiptaglugginn lokar í kvöld.

Enski boltinn

Wayne Bridge lánaður til Sunderland

Wayne Bridge er kominn norður til Sunderland þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun í dag. Bridge fær engin tækifæri hjá Roberto Mancini, stjóra Manchester City, en ítalska stjóranum ætlar engu að síður ekki að ná að selja enska bakvörðinn.

Enski boltinn

Van Persie sleppur við kæru

Robin van Persie, framherji Arsenal, er ekki á leiðinni í leikbann eftir olnbogaskot sitt í bikarleiknum á móti Aston Villa um helgina. Aganefnd enska knattspyrnusambandsins mun ekki taka málið upp.

Enski boltinn