Sport

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Argentína 27-23

Íslendingar unnu í kvöld nauman fjögurra marka sigur, 27-23 á Argentínu í handbolta í vináttuleik liðanna í Kaplakrika. Þrátt fyrir að hafa náð að sigra var sigurinn ekki vís fyrr en rétt undir lok leiks þrátt fyrir fjölda tækifæra til að gera út um leikinn

Handbolti

Brassar yfirspiluðu Breta

Ólympíulið Brasilíu í knattspyrnu lagði kollega sína frá Bretlandi að velli 2-0 á Riverside-vellinum í Middlesbrough í kvöld.

Fótbolti

Erlendur þjálfari kemur vel til greina hjá KR-ingum

Hrafn Kristjánsson mun ekki stýra KR-liðinu í Dominos deildinni í körfuknattleik karla á næstu leiktíð og eru forráðamenn liðsins í þjálfaraleit. Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir í samtali við karfan.is að það komi vel til greina að leita að erlendir þjálfarar komi vel til greina hjá félaginu.

Körfubolti

Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn

Phil Mickelson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á opna breska meistaramótinu í golfi að loknum öðrum keppnisdegi af alls fjórum. Mickelson, sem hefur sigrað á fjórum stórmótum, lék á 78 höggum og alls var hann á 11 höggum yfir pari eftir 36 höggum.

Golf

Guðrún Brá bætti vallarmetið á Kiðjabergsvelli

Í dag var leikin fyrsti hringurinn af þremur á Íslandsmóti unglinga en leikið er á Kiðjabergsvelli við frábærar aðstæður. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK lék fyrsta hringinn á 69 höggum, eða 2 höggum undir pari vallar. Hallgrímur Júlíusson úr GV er efstur í 17-18 ára flokki pilta en hann lék á einu höggi yfir pari eða 72 höggum.

Golf

FH hugsanlega á leið til Póllands

Karlalið FH í knattspyrnu mætir annaðhvort liði frá Póllandi eða Aserbaidsjan nái félagið að slá út AIK í forkeppni Evrópudeildarinnar. FH og AIK mættust í Svíþjóð í gær og skildu jöfn, 1-1. Seinni leikur liðanna verður í Kaplakrika í næstu viku.

Íslenski boltinn

LA Lakers heldur áfram að styrkja liðið

Hinn þaulreyndi leikmaður Antawn Jamison hefur samið við LA Lakers og er samningurinn til eins árs. Framherjinn, sem er 36 ára gamall, var í aðalhlutverki hjá Cleveland Cavaliers en hann hefur einnig leikið með Washington Wizards. Jamison hefur aldrei unnið NBA titil á ferlinum og er hann í sömu stöðu og kanadíski leikstjórnandinn Steve Nash sem hefur einnig samið við Lakers.

Körfubolti

Manchesterliðin vilja borga 3 milljarða kr. fyrir Robin van Persie

Dailymail greinir frá því að Manchester City og Manchester United hafi lagt fram tilboð í hollenska landsliðsframherjann Robin van Persie. Ítalska meistaraliðið Juventus hefur einnig sýnt Arsenal-leikmanninum áhuga. Manchesterliðin vilja kaupa leikmanninn á 15 milljónir punda eða sem nemur 3 milljörðum kr.

Enski boltinn

Arsenal vill fá helmingi meira fyrir Van Persie

Arsenal hefur hafnað tilboðum í Robin Van Persie frá Manchester liðinunum City og United auk ítalska liðsins Juventus. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið í morgun. Talið er að tilboð liðanna hafi öll verið í kringum kringum fimmtán milljónir punda en forráðamenn Arsenal eru sagðir vilja fá helmingi meira fyrir leikmanninn.

Fótbolti

Merktur í Lagarfljóti en veiddist í Breiðdalsá!

Bráðabirgðaniðurstöður benda til að þessi lax hafi verið merktur í laxastiganum í Lagarfljóti 21. september 2011. Þar með hefur hann farið aftur til sjávar og gengið svo í Breiðdalsá. Það má bæta því við að laxinn lítur út fyrir að vera úr gönguseiðasleppingu og hugsanlega úr sleppingu í Jöklu eða Breiðdalsá en verið að kíkja inn í Lagarfljótið er hann náðist og var merktur.

Veiði

NBA liðin fá að setja auglýsingar á búningana

Stjórn NBA deildarinnar í körfuknattleik hefur samþykkt að leyfa liðunum í deildinni að selja auglýsingar á keppnisbúninga. Auglýsingar hafa aldrei verið leyfðar á keppnisbúningum í NBA deildinni en frá og með keppnistímabilinu 2013-2014 verður það leyft.

Körfubolti

KR hefði mætt Celtic í næstu umferð

Dregið var í þriðju umferð Meistaradeildar Evrópu í morgun. Sigurvegarinn úr viðureign KR og HJK Helinski mætir skoska stórliðinu Celtic í næstu umferð. Hverfandi líkur eru á því að KR mæti Celtic því til þess að svo verði þarf liðið að skora átta mörk í Vesturbænum eftir 7-0 tapið í Finnlandi.

Fótbolti

McLaren-menn efstir eftir fyrstu æfingar

Jenson Button á McLaren var fljótastur um Hockenheim-brautina í Þýskalandi í dag þegar fyrstu æfingar fyrir þýska kappaksturinn fóru fram þar í morgun. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton, var annar nánast hálfri sekúndu á eftir.

Formúla 1

Draumaliðið átti ekki í vandræðum með Bretland

Bandaríska landsliðið í körfuknattleik karla átti ekki í miklum vandræðum með að leggja Breta að velli í æfingaleik sem fram fór í Manchester í gær. "Draumaliðið“ skoraði 118 stig gegn 78 stigum heimamanna en 17.000 áhorfendur mættu á leikinn.

Körfubolti