Benzema skaut Real Madrid upp í annað sætið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Real fagna.
Leikmenn Real fagna. vísir/getty
Real Madrid er komið upp í annað sæti La Liga-deildarinnar eftir 1-0 sigur á Sevilla sem sat á toppi deildarinnar fyrir helgina.

Fyrsta og eina mark leiksins kom á 64. mínútu en eftir frábæra fyrirgjöf Dani Carvajal skallaði Karim Benzema boltann í netið.

Sevilla náði að koma boltanum í netið er skammt var eftir en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Fyrsta tap Sevilla á tímabilinu staðreynd.

Real er í 2. sætinu með ellefu stig en lífsnauðsynlegur sigur fyrir Zinedine Zidane eftir skellinn gegn PSG í vikunni.





Sevilla er komið niður í fimmta sætinu með tíu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira