Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum 22. mars 2026 20:48 Rebekka Rut Steingrímsdóttir spilaði vel þegar KR hafði betur gegn Njarðvík í kvöld. Vísir/Pawel KR lagði Njarðvík að velli, 89-70, þegar liðin leiddu saman hesta sína í toppslag Bónus-deildar kvenna í körfubolta að Meistaravöllum í kvöld. Njarðvík var í toppsætinu fyrir leikinn sem var liður í næstsíðustu umferð deildarinnar. Njarðvík hóf leikinn betur og var hænufeti framar fyrstu tvo leikhlutana en staðan var 40-36 gestunum í vi þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Danielle Rodriguez fór fyrir sóknarleik Njarðvíkur. Vísir/Pawel Það var hins vegar kraftmikið KR-lið sem mætti til leiks inn í þriðja leikhlut og snéri taflinu sér í vil. KR vann þann leikhluta 30-13 en þar var það orkumikil og sterk vörn heimakvenna, sóknarfráköst og góð skontýting sem varð til þess að þær náðu upp þægilegu forskoti. KR-liðið leit aldrei til baka og hleypti Njarðvík ekki að neinu ráði inn í leikinn í fjórða leikhluta og niðurstaðan sannfærandi 19 stiga sigur KR sem getur þar af leiðandi tryggt sér deildarmeistaratitilinn þegar liðið etur kappi við Hauka í lokaumferð deildarkeppninnar. KR - Njarðvík Bónus deild kvenna Vetur 2026 Daníel: Allt önnur orka í liðinu í seinni hálfleik „Við fórum vel yfir málin í hálfleik og eftir flatan fyrri hálfleik var allt annað að sjá orkustigið hjá liðinu í seinni hállfeik. Við spiluðum mun betri vörn og náðum aðeins að hægja á Danielle Rodrigues. Það skilaði sér í meira sjálfstrausti á sóknarhelmingnum sem var lykillinn að sigrinu,“ Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, sáttur að leik loknum. „Við vorum vel undirbúnar fyrir þennan leik en náðum ekki að framkvæma það sem við ætluðum okkur í fyrri hálfleik en það var allt annað uppi á teningnum í þeim seinni sem var frábært að sjá,“ sagði Daníel Andri enn fremur. „Þessi sigur setur okkur í þá stöðu að við getum tryggt okkur deildarmeistaratitilinn í lokaumferð deildarinnar sem er bara ansi vel gert þegar litið er til þess að við erum nýliðar í deildinni,“ sagði hann um framhaldið. „Nú förum við að búa okkur undir leikinn við Hauka. Við höfum stuttan tíma til þess að fagna þessum sigri og þurfum að fara að einbeita okkur að lokaumferð deildarinnar. Vonandi náum við að taka frammistöðuna í seinni hálfleiknum með okkur í þann leik,“ sagið Daníel um verkefni KR-liðsins í lokaumferðinni. Einar Árni: Margt sem fór úrskeiðis í seinni hálfleik „Við byrjuðum leikinn vel og vorum í fínum málum framan af leik. Það var hins vegar ansi margt sem fór úrskeiðis í seinni hálfleik og því fór sem fór,“ Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, svekktur eftir leik. „Þær tóku mun fleiri sóknarfráköst en við þegar líða tók á leikinn og bara hittu ansi vel. Við náðum ekki að finna lausnir á varnarleiknum þeirra og það vantaði ansi margt til þess að við næðum að fara með sigur af hólmi,“ sagði Einar Árni enn fremur. „Það er hins vegar skammt stórra högga á milli og við eigum hörkuleik á miðvikudaginn þannig að það þýðir ekkert að dvelja of lengi við þetta tap. Það er engin óskastaða að það sé svona stutt á milli leikja þar sem við höfum ekki haft hópinn saman í tæpar þrjár vikur vegna landsliðsverkefna. Við breytum því samt ekkert og þurfum bara að undirbúa okkur eins vel og mögulegt er fyrir komandi leik,“ sagði hann um framhaldið hjá Njarðvíkurliðinu. Einar Árni Jóhannsson fer yfir málin með leikmönnum sínum. Vísir/Pawel Atvik leiksins Molly Kaiser, sem var stigahæst hjá KR-liðinu með 23 stig, setti tóninn fyrir það sem koma skyldi í þriðja leikhluta með því að skora fyrstu stig leikhlutans. KR-liðið lék við hvurn sinn fingur eftir það og frammistaða liðsins var til eftirbreytni. Danielle Rodriguez var fremst meðal jafnningja hjá Njarðvíkurliðinu en hún skoraði 26 stig í leiknum. Hulda María Agnarsdóttir byrjaði leikinn sterkt og skoraði alls 14 stig í leiknum. Jiselle Thomas spilaði vel á báðum endum vallarins. Vísir/Pawel Stjörnur og skúrkar Eins og áður segir dró Molly Kaiser vagninn í sóknarleik KR en Rebekka Rut Steingrímsdóttir og Jiselle Thomas fylgdu fast á hæla hennar með 20 stig hvor. Rebekka Rut reif auk þess niður átta fráköst og Jiselle Thomas sjö. Eve Braslis var einnig öflug undir körfunni hjá KR en hún tók níu fráköst. Hulda María Agnarsdóttir skilaði góðu framlagi fyrir Njarðvík. Vísir/Pawel Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Davið Kristján Hreiðarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Sófus Máni Bender höfðu góð tök á þessum leik og fá sjö í einkunn fyrir prýðileg störf sín í kvöld. Dómaratríóið þeir Davið Kristján Hreiðarsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Sófus Máni BenderVísir/Pawel Stemming og umgjörð Það var frábær stemming á Meistaravöllum í kvöld en bæði lið fengu ríkulegan stuðing úr stúkunni. Leikurinn í kvöld var til styrktar Gigtarfélags Íslands og rennur andvirði miðasölu leiksins sem og sölu á vörum merktum félaginu til þessa góða málefnis. Vel gert KR-ingar. Molly Kaiser var í stuði hjá KR-liðinu. Vísir/Pawel Bónus-deild kvenna KR UMF Njarðvík