Uppgjör: Stjarnan - ÍA 113-102 | Meistararnir mörðu Skagamenn Árni Jóhannsson skrifar 20. mars 2026 20:46 Seth LeDay og Styrmir Jónasson í hörkubaráttu. Vísir / Anton Brink Stjarnan náði í sigur á föllnum Skagamönnum í næst síðustu umferð Bónus deildar karla. Íslandsmeistararnir þurftu allar 40 mínúturnar til að klára leikinn sem endaði 113-102. Heimamenn í Stjörnunni byrjuðu mikið betur og eftir að hafa skipst á sitthvorri körfunni keyrði Stjarnan upp í 10-2 og fékk maður á tilfinninguna að þetta gæti orðið ljótt. Annað kom á daginn því Skagamenn, sem gefast aldrei upp, keyrðu þá bara upp sinn anda og söxuðu niður forskotið og komust yfir þegar um fimm mínútur voru liðnar af leknum og staðan 19-20. Ekki var mikið um varnir en gott tempó og tilþrif einkenndu leikinn. Stjarnan steig þá á bensín gjöfina og skoruðu 15 stig gegn átta og leiddu 34-28 eftir fyrsta leikhluta. Luka Gasic fór mikinn í byrjun leiks.Vísir / Anton Brink Stjarnan hélt áfram að keyra á Skagamenn og voru komnir með 15 stiga forskot þegar 12 mínútur voru liðnar af leiknum, 43-28. Aftur náði ÍA upp stuði í sinn leik og Stjarnan slakaði á klónni. Næstu sex mínútur unnu gestirnir 10-21 og minnkuðu muninn niður í fjögur stig. Þá datt leikurinn í jafnvægi og liðin skiptust á körfum en Stjarnan endaði örlítið betur og var með sjö stigum 64-57. Baráttan í fyrirrúmi.Vísir / Anton Brink Ef við grípum niður í textalýsinguna þá er fyrri hálfleik best lýst svona: „Varnarleikur hefur varla verið spilaður. Nokkur varin skot og stolnir boltar en almennt ekki.“ Hilmar Smári á fleygiferðVísir / Anton Brink Hilmar Smári Henningsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik en fór á sprett í upphafi seinni hálfleiksins. Liðsfélagar hans fylgdu með og staðan var orðin 74-60. Heimamenn náðu að halda ÍA í skefjum en þegar staðan var 81-65 þá skutust gestirnir á 10-0 sprett og munurinn var minnkaður í sex stig 81-75. Stjörnumönnum var þá nóg boðið, aftur og ekki í síðasta skiptið í leiknum, og vann lokin á þriðja leikhluta 9-1 og leiddu með 14 stigum fyrir lokafjórðunginn, 90-76. Ilija Dokovic átti flottan leik.Vísir / Anton Brink Skagamenn byrjaði fjórða leikhlutann mikið betur og keyrði eins nálægt heimamönnum og þeir komust. Í stöðunni 94-89 tók Baldur Þór leikhlé og gekk gjörsamlega af göflunum. Lét sína menn vita að þetta væri ekki í boði og að þeir þyrftu að stíga upp í sínum leik. Það gekk upp í smá stund. ÍA hélt í við Stjörnuna og það var sex stiga munur þegar 1:23 eftir af leiknum. Þá fór allt í skrúfuna fyrir Skagann. Darryl Morsell var vígalegur með grímuna sína.Vísir / Anton Brink Heimamenn vörðust og skoruðu og Darryl Morsell fékk tæknivillu fyrir munnsöfnuð. Þá var munurinn orðinn níu stig og aftur fékk Darryl tæknivillu og honum vísað út. Þar með var leik lokið og Stjarnan sigldi níu stiga sigri heim 113-102. Gojko Zudzum er leikmaður sem gæðin leka af.Vísir / Anton Brink Atvik leiksins Leikhléið sem var tekið þegar 1:23 voru eftir af leiknum. Grípum aftur niður í textalýsinguna: „Baldur er alveg trylltur. Vill greinilega að sínir menn vakni. Fer með leiksigur í að sýna þeim hvernig þeir eru inn á vellinum. Frábært bíó.“ Baldur Þór er alltaf líflegur en var ákaflega líflegur í lok leiksins.Vísir / Anton Brink Við þetta juku menn ákafann en tæknivillurnar á Darryl Morsell hjálpuðu ekki Skagamönnum í lok leiks. Stjörnur og skúrkar Hilmar Smári Henningsson var frábær í seinni hálfleik og lauk leik með 28 stig. Seth LeDay skilaði 25 stigum og 11 fráköstum og Bjarni Guðmann kom með 18 stig og átta fráköst af bekknum. Seth LeDay að skora tvö af sínum stigum.Vísir / Anton Brink Hjá ÍA voru þeirra helstu leikmenn með góðan leik. Darryl Morsell skoraði 27 stig og hrifsaði til sín 17 fráköst. Gojko Zudzum skoraði þá 28 stig. Umgjörð og stemmning Það hefur oft verið betur mætt í ÞG-verk höllina en þau sem mættu gerðu vel í að styðja sína menn. Dómarar leiksins Kristinn Óskarsson, Birgir Örn Hjörvarsson og Einar Valur Gunnarsson gerðu vel úr sínu. Það var gott flæði í leiknum og leikmenn fengu góðar útskýringar á þeim dómum sem þurfti að dæma. Óskar: Auðvitað er maður vonsvikinn en maður verður að sleikja sárin og halda áfram Óskar Þór ÞorsteinssonVísir / Anton Brink Stolt skein úr andliti Óskars Þórs Þorsteinssonar, þjálfara ÍA, þegar hann hitti blaðamann eftir leik. Hvað hefði betur mátt fara hjá hans mönnum í lok leiks? „Við hefðum bara þurft að hitta betur í lokin. Við fórum á sprett þarna í fjórða leikhluta sem gaf okkur fullt af tækifærum en við vorum svo bara óheppnir að hitta ekki úr þristum, sem mér fannst vera opnir og einhverjum layup-um í lokin“ Hvað var Óskar ánægðastur með hjá sínum mönnum? „Auðvitað er það bara orkustigið. Maður er alltaf hræddur við þessa leiki sem þannig lagað skipta engu máli að menn mæti slakir. Eftir síðasta leik þá töluðum við mikið um það að spila upp á eitthvað, spila upp á stoltið og mínir menn gerðu það í kvöld.“ Það er ein umferð eftir og ÍA getur haft mikil áhrif á niðurstöðu fallbaráttunnar í deildinni. Hvernig sér Óskar fyrir sér næstu viku og síðasta leikinn gegn Ármanni? „Við viljum bara enda á sigri. Við teljum okkur vera með betra lið en Ármann. Þetta er bara búið að vera upp og niður, meiðsli og skiptingar og eitthvað svoleiðis. Liðið sem við erum með í dag finnst mér hörkugott. Við mætum í þennan leik og klárum þetta tímabil með orku og stæl og reynum að taka sigur.“ Þegar líður að lokum tímabilsins þá er hægt að fara að gera hluti upp. Eru Skagamenn sérstaklega fúlir að hafa ekki náð í fleiri sigra því liðið hefur átt mjög góðar frammistöður? „Auðvitað. Ég veit ekki hvað það eru margir leikir sem enda tæpt hjá okkur í vetur. Það voru náttúrlega meiðslin hjá Gojko og mikið af skiptingum. Auðvitað er maður vonsvikinn en maður verður að sleikja sárin og halda áfram.“ Hilmar: Klikkaði á fyrstu 28 skotunum mínum Hilmar Smári Henningsson gerði afskaplega vel í seinni hálfleik.Vísir / Anton Brink Hilmar Smári Henningsson skoraði 28 stig í kvöld og skipti heldur betur máli í að koma sínum mönnum yfir línuna. Hann þakkaði þjálfara sínum traustið við að gera betur í seinni hálfleik. „Þetta var svolítið dapurt hjá okkur einhvern veginn“, sagði Hilmar þegar hann var spurður að því hvort Stjarnan hafi ekki bara rétt svo klárað þennan leik. „Mér fannst við alveg koma vel stemmdir inn í leikinn. Vorum með góða orku en náum ekki að stoppa í vörninni hjá okkur. Ég ákvað svo að klikka á fyrstu 28 skotunum mínum. Það hjálpar ekki þegar ég er að taka mikið af skotum. Mér fannst við ekki ná að tengja orkuna í sókninni í vörnina okkar. Við vorum að skora helling, komumst á körfuna og skoruðum þegar við vildum en vörnin okkar var bara, já, ég ætla ekki að nota stór orð en hún var alls ekki það sem við viljum hafa hana. Við höfum viku til að rífa okkur í gang aftur því þetta er ekki vörnin sem við viljum spila. Þetta er ekki vörnin sem Stjarnan stendur fyrir.“ Hilmar endaði samt með 28 stig. Hvað breyttist hjá honum? „Ekki neitt. Ég hélt bara áfram að skjóta. Baldur hafði trú á mér eins og liðsfélagarnir. Ég veit að ég á að vera að setja þessi skot. Þetta voru galopin skot. Venjulega er ég að hitta úr þeim þannig að ég hélt áfram að skjóta þeim því þeir héldu áfram að gefa mér þau. Sem betur fer fóru þau að detta í lokin. Síðan fann ég aðrar opnanir annarsstaðar og byrjaði að hlaupa meira með boltann. Mér leið vel þannig.“ Það virtist vera að Stjarnan gæti ráðið því þegar keyrt var af stað. Það var þó alltaf stigið af bensíngjöfinni. „Ég er ekki sammála. Ef við hefðum ráðið því þá hefðum við klárað þennan leik í fyrsta leikhluta og ekki litið til baka. Þeir komu alltaf til baka og við vorum ekki að ná að tengja vörn og sókn. Þeir eru með þrusu fínann hóp og ég meina mér finnst mjög óréttlátt að þeir séu neðstir. Þeir eru með góða skorara og voru flottir í dag. Við náðum ekki að stoppa eins og við vildum. Þeir voru þrír með 20 og eitthvað stig og þeir voru að skora alltof mikið á okkur.“ Bónus-deild karla Stjarnan ÍA