Bókmenntir

Fréttamynd

Fjórðungur ekki með bókasafnskort

Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur lagði fram tillögu fyrr í mánuðinum um könnun á bókasöfnum borgarinnar og þjónustu þeirra. Meirihlutinn hyggst blása til sóknar en minnihlutinn óttast að þjónustan verði skorin niður. En eiga borgarfulltrúar borgarinnar bókasafnskort og heimsækja þeir söfnin?

Menning
Fréttamynd

„Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“

Rósella Mosty, skartgripahönnuður og höfundur bókarinnar Sagan mín, sagan hennar, er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið í Boston frá árinu 1995. Í bókinni segir hún frá lífi sínu og fjölskyldunnar, þar á meðal veikindum og missi dóttur sinnar, Esterar Evu. Skrifin hófust sem persónulegar minningar en urðu að frásögn sem nær yfir áratugi í lífi Rósellu.

Lífið samstarf
Fréttamynd

„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“

Stefán Máni hefur gefið út um þrjátíu bækur frá árinu 1996 og fagnar nú 30 ára rithöfundarafmæli. Þrjár bækur koma út á þessu ári, Þegar heimurinn fórst, sem segir frá tveimur einstaklingum sem virðast einu eftirlifandi manneskjurnar eftir heimsendi, Gleym mér ei, þar sem lögreglumaðurinn sérlundaði Hörður Grímsson glímir við flókið sakamál sem hefur ásótt hann í mörg ár, og Hvaðan kemur kúkafýlan?, barnabók með teikningum eftir Halldór Baldursson.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Gengst við dul­nefninu en vill samt ekki kannast við það

Rithöfundurinn Hermann Stefánsson virðist gangast við því að hafa skrifað glæpasöguna Páfagaukagarðinn sem kom út sumarið 2025 og var skrifuð undir dulnefninu Akörn. Glæpasagan er á lista yfir fyrr verk Hermanns í nýútkomnu skáldsögunni Sauðburði. Hermann kannaðist hins vegar ekki við að hafa sett verkið þar og vísaði á umbrotsmann sem vísaði á útgefanda sem vísaði aftur á Hermann.

Menning
Fréttamynd

Vill efla bóka­söfnin með minni yfir­byggingu

Markmiðið með úttekt á rekstri Borgarbókasafnsins sé að efla söfnin og kanna hvort draga megi úr yfirbyggingu til að bæta þjónustuna, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún segir látið að því liggja að borgin hyggist loka bókasöfnum í hagræðingarskyni.

Innlent
Fréttamynd

Vilja kanna fækkun úti­búa Borgar­bóka­safnsins

Kannað verði hvort veita megi sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn. Þetta er meðal þess sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar vilja láta skoða í úttekt á rekstri safnsins.

Innlent
Fréttamynd

Færsluóður mið­aldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“

Gunnar Helgason er á rannsóknarferðalagi um Wales fyrir nýjan furðusagnaflokk sinn og hefur deilt myndböndum af vettvangi á Facebook. Deilingarstillingar miðilsins hafa strítt höfundinum og færslurnar ratað í ýmsar óviðkomandi grúppur, svo sem íbúahóp Grafarholts og Úlfarsárdals. Höfundurinn kann engar skýringar á málinu og kennir Mark Zuckerberg um klúðrið.

Lífið
Fréttamynd

Ó­leyst ís­lensk ráð­gáta: Veist þú svarið?

Í síðustu viku hélt hópur fornleifafræðinga til afskekktrar eyjar í Kyrrahafi. Vonuðust þeir til að leysa eina stærstu ráðgátu flugsögunnar: Hvað varð um Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937 er hún reyndi að fljúga umhverfis jörðina? Unnendur hulinna leyndardóma þurfa þó ekki að örvænta. Dularfullur hlutur, sem hafði sést á gervihnattarmynd af lóni á eyjunni, reyndist ekki vera flugvél heldur trjábolir.

Lífið
Fréttamynd

Norð­menn hrepptu öll verð­laun Norður­landa­ráðs

Söguleg úrslit urðu við verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í dag þegar Norðmenn hlutu verðlaun í öllum fimm flokkum. Norska kvikmyndin Sentimental Value varð hlutskörpust í flokki kvikmynda og norsk-samíska skáldið Sigbjørn Skåden í bókmenntaflokknum.

Menning
Fréttamynd

Eva Björg verð­launuð í Frakk­landi

Glæpasagnahöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir hlaut í gærkvöldi verðlaun á glæpasagnahátíðinni Prix Polar de Cognac fyrir bókina Heim fyrir myrkur. Verðlaunin eru veitt fyrir bestu erlendu glæpasöguna í Frakklandi og hafa margir rómaðir glæpasagnahöfundar hlotið verðlaunin.

Menning
Fréttamynd

„Ég held að maður megi semja svona við móður sína”

Guðrún Vilmundardóttir útgefandi á tuttugu ára starfsafmæli í útgáfubransanum um þessar mundir. Hún stýrir útgáfufélaginu Benedikt og er með afar tilþrifamikinn lista höfunda á mála hjá sér. En fleiri leikalykilhlutverk eins og móðir hennar.

Lífið
Fréttamynd

„Tárin streymdu niður vangana á mér“

„Tárin streymdu niður vangana á mér. Pabbi kveikti á útvarpinu og stillti á fréttirnar sem fjölluðu næstum því bara um Grindavík og jarðskjálftana. Út um gluggann horfði ég á hraunið okkar. Mér hafði alltaf þótt það fallegt en nú var það líka óhugnanlegt.“

Lífið
Fréttamynd

Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi

Írski metsöluhöfundurinn Sally Rooney hefur tekið bækurnar sínar úr sölu í Bretlandi. Hún styrkir samtök sem styðja Palestínu en eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Bretlandi.

Erlent
Fréttamynd

Menningarsprautur í hvísluleik

Óvenjulegt útgáfuhóf fór fram í Listasafni Einars Jónssonar á fimmtudag þegar ljóðabókin Hverfa eftir Melkorku Ólafsdóttur kom út. Hófið hófst á gjörningi myndlistarmannsins Haraldar Jónssonar sem hvíslaði óræðum orðum að gestum meðan ljóðskáldið lék á flautu úr fjarlægum sölum og las svo upp úr bókinni.

Menning
Fréttamynd

Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum

Nóbelsverðlaunahafinn Anne Carson segist hafa slysast út í skrifin og geti ekki hætt úr þessu. Ekkert sem hún geri sé úthugsað og yfirleitt rambi hún á góðar hugmyndir. Hún og maður hennar keyptu sér íbúð á Ægisíðu og urðu íslenskir ríkisborgarar árið 2022 eftir að hafa heimsótt landið reglulega frá árinu 2008. Íslendingar hafi tekið þeim opnum örmum en því fylgir einmanaleiki að tala ekki tungumálið. Carson greindist með Parkinsons-sjúkdóm fyrir þremur árum og heldur honum í skefjum með boxi, sundi og spinning-tímum.

Menning
Fréttamynd

Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný

„Ég áttaði mig ekki á því fyrr en eftir að bókin kom út hvað það hefur verið íþyngjandi og lýjandi að bera harm sinn í hljóði svona lengi. Ég skil vel af hverju ég gerði það fyrst um sinn því ég hefði bara ekki getað höndlað það. Núna finnst mér ég í fyrsta skipti í mörg ár geta borið höfuðið hátt,“ segir rithöfundurinn, listamaðurinn og danshöfundurinn Margrét Bjarnadóttir.

Lífið
Fréttamynd

Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð

Kanadísk-íslenski rithöfundurinn Anne Carson hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum í morgun. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022 og hefur síðan þá búið hluta ársins hérlendis á heimili sínu á Ægisíðu. Carson sagði að það væri henni ráðgáta hvers vegna verðlaunin hefðu fallið henni í skaut.

Lífið
Fréttamynd

Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels

Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum.

Menning
Fréttamynd

Um­deildur metsölu­höfundur látinn

Breski metsöluhöfundurinn og uppgjafarstjórnmálamaðurinn Jeffrey Archer er látinn, 86 ára að aldri. Hann gaf út skáldsögur sem nutu mikilla vinsælda eftir að stjórnmálaferli hans lauk með skömm.

Erlent
Fréttamynd

Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur

Tökur standa nú yfir á Íslandi á þriðju þáttaröð af Netflix þáttunum Four Seasons, en mikill viðbúnaður er á Skólavörðustíg og Klapparstíg þar sem tökur fara fram í dag. Barnabókahöfundarnir Gunnar Theodór Eggertsson og Linn Janssen vissu ekki hvar á sig stóð veðrið þegar Hollywood stjarnan Tinna Fey kíkti í útgáfuhóf þeirra í gær.

Lífið
Fréttamynd

Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu

Gilhagi ehf., félag Arnalds Indriðasonar rithöfundar, hagnaðist um 113 milljónir árið 2025 og á tæplega 1,4 milljarða í hreina eign. Fyrirtæki Yrsu Sigurðardóttur rithöfundar, Yrsa Sigurðardóttir ehf., hagnaðist um rúmar tuttugu milljónir sama ár. 

Lífið
Fréttamynd

Yfir sjö­hundruð manns keypt af Guðna í forsölu

Ný viðhafnarútgáfa Njálu frá Guðna Ágústssyni og félögum í Njálufélaginu hefur selst upp eins og heitar lummur í forsölu. Guðni segir þetta til marks um hve djúpt Brennu-Njáls saga risti í rótum þjóðarsálarinnar en Njálufélagið hefur ekki gefið út bók áður.

Lífið
Fréttamynd

Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi

Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni.

Lífið