
Elon Musk

Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins
Maðurinn sem keyrir um á Teslu-bifreið með einkanúmerinu TRUMP, hlýtur að hafa miklar skoðanir á vinslitum Donalds Trump og Elons Musk. Eða hvað?

Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump
Elon Musk segist nú sjá eftir sumum þeirra færslna sem hann setti á samfélagsmiðil sinn, X, í síðustu viku. Þar fór hann ófögrum orðum yfir nýtt fjárlagafrumvarp Trump. Hann sagði það „viðurstyggilegan hrylling“ og sagði Repúblikana, flokksmenn Trump, eiga að skammast sín.

Hótar Musk alvarlegum afleiðingum styðji hann Demókrata
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sendi Elon Musk, auðugasta manni heims og fyrrverandi bandamanni sínum, viðvörun í gær. Trump sagðist ekki hafa nokkra ástæðu til að lappa upp á samband þeirra að svo stöddu, eftir opinberar deilur þeirra síðustu daga. Þá hét Trump „alvarlegum afleiðingum“ ef auðjöfurinn notaði peninga sína til að styðja Demókrata í framtíðinni.

Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“
Elon Musk, auðugasti maður heims, og fyrrverandi samstarfsmaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að hann langi að stofna nýjan stjórnmálaflokk í Bandaríkjunum. Það er í kjölfar mjög svo opinberra deila hans og Trumps síðustu daga, og segist Musk vilja kalla flokk þennan „Ameríkuflokkinn“.

Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna
Sátt virðist ekki vera innan seilingar milli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og auðkýfingsins Elons Musks. Trump er sagður ætla að selja nýja Tesla-bílinn sinn sem hann keypti einmitt til stuðnings Musk.

Reyna að stilla til friðar með símtali
Aðstoðarmenn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hafa skipulagt símtal milli hans og Elons Musk, auðugasta manns heims, eftir opinberar deilur þeirra í gær. Vonast er til þess að þeir geti grafið öxina en ráðgjafar Trumps hafa beðið hann um að fara mjúkum höndum um auðjöfurinn.

Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast
Forseti Bandaríkjanna, valdamesti maður heims, og auðugasti maður heims, sem hafa unnið náið saman á undanförnum mánuðum, skutu föstum skotum hvor að öðrum í gær. Hvor á sínum eigin samfélagsmiðli. Donald Trump kallaði Elon Musk meðal annars klikkaðan og Musk sagði að bola ætti Trump úr embætti og stakk upp á því að stofna nýjan stjórnmálaflokk, svo eitthvað sé nefnt.

Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum
Elon Musk, fyrrverandi samstarfsfélagi Bandaríkjaforseta, segir nafn forsetans vera í skjölum sem varða rannsókn á auðkýfingnum Jeffrey Epstein.

Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist verulega svekktur út í Elon Musk, auðugasta mann heims og einn nánasta samstarfsmann sinn til langs tíma. Gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og félagar reyna nú að fá samþykkt virðist hafa fallið í grýttan jarðveg hjá forsetanum.

Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður verulega ósáttur við Elon Musk, auðugasta mann heims, og gagnrýni hans á fjárlagafrumvarp sem Trump og leiðtogar Repúblikanaflokksins eru að reyna að koma gegnum þingið. Musk hefur farið hörðum orðum um frumvarpið og sagst ætla að beita sér gegn þeim þingmönnum sem greiða atkvæði með því.

Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps
Elon Musk, auðugasti maður heims, sem staðið hefur dyggilega við bak Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, segir hið „stóra og fallega“ fjárlagafrumvarp sem Trump vill að Repúblikanar samþykki sé „viðurstyggilegur hryllingur“. Hann segir alla þá sem hafa stutt það eiga að skammast sín.

Störfum Musk lokið hjá DOGE
Elon Musk hefur tilkynnt um það að störfum hans hjá DOGE, hagræðingar- og niðurskurðarstofnun Bandaríkjastjórnar, sé lokið. Donald Trump réði Musk til starfa í 130 daga sem sérstakan ráðgjafa um niðurskurð innan stjórnkerfisins.

Geimfar SpaceX splundraðist eftir 45 mínútna flug
Starship-geimfarið sem fyrirtækið SpaceX, sem er í eigu Elons Musk, splundraðist 45 mínútum eftir að því var skotið á sporbaug um jörðu í gærkvöld. Geimskotið var það níunda í röð hjá SpaceX sem stefna á að komast til tunglsins og síðan til annarra reikistjarna.

X-ið hans Musk virðist liggja niðri
Fjöldi notenda samfélagsmiðilsins X, áður Twitter, hefur átt í erfiðleikum með að komast inn á miðilinn eftir hádegi í dag.

Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina
Elon Musk, auðugasti maður heims og náinn bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, ætlar að draga úr fjárútlátum sínum til stjórnmálamanna og vegna málefna sem honum eru hugfangin. Hann segist búinn að gera nóg, í bili.

Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni
Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI, sem þróar mállíkanið ChatGPT, hafa hætt við ætlanir um umfangsmiklar breytingar á rekstri fyrirtækisins. Til stóð að reka fyrirtækið í hagnaðarskyni í framtíðinni en nú hefur verið tekin sú ákvörðun að breyta ekki um stefnu og verður fyrirtækinu áfram stýrt af óhagnaðardrifinni stjórn.

Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör
Elon Musk, einn auðugasti maður heims og náinn bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, ætlar að draga verulega úr störfum sínum fyrir Trump í næsta mánuði. Í staðinn ætlar hann að einbeita sér að rekstri rafmagnsbílafyrirtækisins Tesla, sem birti í dag mjög neikvætt ársfjórðungsuppgjör.

Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla
Auðjöfurinn Elon Musk slökkti á beinu tölvuleikjastreymi sínu eftir að hafa þurft að þola látlausa svívirðingahríð af hendi nettrölla. Musk gekk erfiðlega í leiknum og dó ítrekað en hann hefur viðurkennt að hafa borgað öðrum til að koma karakterum hans á hærra stig.

Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum
Elon Musk, auðugasti maður heims og einn helsti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, kallaði Peter Navarro, einn helsta ráðgjafa forsetans í tollamálum, „heimskari en múrsteinahrúgu“ í færslu á X

Vill tollalaus viðskipti við Evrópu
Elon Musk segir að ákjósanlegt væri að viðskipti milli Evrópu og Bandaríkjanna verði tollalaus og að hægt verði að gera einhverskonar fríverslunarsamning.

Leiðtogar ESB íhuga háa sekt á X og Musk
Forsvarsmenn Evrópusambandsins eru sagðir íhuga að sekta X, samfélagsmiðil Elons Musk, vegna brota á lögum sambandsins um ólöglegt efni og upplýsingaóreiðu. Slíkt myndi líklega auka spennu milli ESB og ríkisstjórnar Donalds Trump en Musk er náinn bandamaður forsetans.

Demókratar unnu dýrustu dómarakosningar Bandaríkjanna
Dómari sem studdur var af Demókrataflokknum bar sigur úr býtum í kosningu um sæti í hæstarétti Wisconsin í gær. Þar sigraði Susan Crawford annan dómara sem studdur var af Donald Trump, forseta, og Elon Musk, auðugasta manni heims sem varði milljónum dala í kosningarnar.

Þreyttur á áreiti og selur Tesluna fyrir slikk
Sveinn Waage framkvæmdastjóri hefur sett Tesluna sína á sölu. Hann segist langþreyttur á því áreiti sem fylgi því að eiga slíkan bíl. Hann vill losna við fararskjótann sem fyrst og slær því vel af verðinu. Hann sér frið og ró sem því fylgi í hillingum.

Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda
Dómsmálaráðherra Wisconsin, demókratinn Josh Kaul, hefur kært yfirlýsingar Elon Musk, um að hann ætli að gefa tveimur kjósendum milljón dali, til hæstaréttar ríkisins. Tvö lægri dómstig hafa hafnað kæru Kaul sem vill meina að greiðslur Musk feli í sér mútur.

Þjónustaði netþrjóta og hefur nú aðgang að opinberum kerfum
Fyrirtæki í eigu Edward „Big Balls“ Coristine virðist hafa veitt tölvuþrjótum tækniaðstoð fyrir um það bil tveimur árum. Coristine er nú einn starfsmanna DOGE og skráður sem „ráðgjafi“ á starfsmannaskrá utanríkisráðuneytisins og netöryggisstofnuninni CISA.

Fólk ekki fasistar þó það eigi Teslu
Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, segir mótmæli sem hún tók þátt í fyrir framan umboð Tesla í Vatnagörðum um helgina ekki beinast gegn eigendum Teslu bíla eða starfsfólki fyrirtækisins heldur Elon Musk, stærsta eigenda þess.

Tesluvandinn
Nú hefur það breyst á síðustu mánuðum og árum að Tesla er ekki lengur bara eitthvað bílafyrirtæki. Stærsti eigandi þess og helsti talsmaður, Elon Musk, hefur stigið inn á svið stjórnmála og mannréttindamála með svo afgerandi hætti að það er ekki lengur hægt að líta á fyrirtækin sem hann byggir sín auðæfi á sem bara venjuleg fyrirtæki á markaði.

Svefnvana Gnarr varð var við grunsamlegan skemmdarvarg
Þingmaðurinn Jón Gnarr varð var við grunsamlegan mann í götunni sinni um fjögurleytið í nótt. Hann hafi ætlað að hringja á lögregluna þegar maðurinn hvarf á braut. Reyndist viðkomandi hafa unnið skemmdarverk á Teslu.

Borgarfulltrúi meðal mótmælenda fyrir utan Tesla
Hópur fólks safnaðist saman í dag fyrir utan Tesla-umboðið í Vatnagörðum í Reykjavík. Borgarfulltrúi Pírata flutti ræðu. Af myndum að dæma voru um tíu til fimmtán manns á staðnum. Skipuleggjendur mótmælanna eru hópur sem kallar sig Save democracy Iceland (Björgum lýðræðinu Ísland).

Trump segir skemmdarverk á Teslum hryðjuverk
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Pam Bondi, dómsmálaráðherra, segja að skemmdarverk á Teslum séu hryðjuverk. Þeim sem fremji slík brot verði refsað harðlega. Þetta sögðu þau í kjölfar fjölda skemmdarverka á Teslum í Bandaríkjunum og íkveikja á bílasölum.